Fréttablaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 35
Upplýsingafundur
28.1. um það sem er
á döfinni.
Fundur um opinberar fram-
kvæmdir ársins 2005 verður
haldinn 28. janúar á Grand-
hóteli í Reykjavík. Það eru
Samtök iðnaðarins og Félag
vinnuvélaeigenda sem efna til
hans en slíkir fundir hafa ver-
ið haldnir í byrjun árs um
nokkurra ára skeið og verið
vel sóttir. Þarna mæta fulltrú-
ar frá ríki og stórum sveitar-
félögum eins og Reykjavíkur-
borg, Hafnarfirði, Kópavogi
og Garðabæ að kynna þau
verk sem á að hefja fram-
kvæmdir við á árinu. Einnig
mæta byggingaverktakar og
vélainnflytjendur, auk fulltrúa
verkfræðistofa og jarðvinnu-
fyrirtækja og spá í spilin að
sögn Eyjólfs Bjarnasonar,
byggingatæknifræðings hjá
Samtökum iðnaðarins. „Hluti
af þessum verkum verða
væntanlega boðin út á fyrri
hluta ársins, stærstur hlutinn
á tímabilinu apríl-júní en svo
dreifist þetta,“ segir hann og
bætir við.“ Þarna sést svolítið
hvernig árið muni þróast.“
Opinberar
FRAMKVÆMDIR
ársins
{ VINNUVÉLAR 2005 } 11
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/E
. Ó
L.
BUBBI BYGGIR SIGRAR HEIMINN
Tekst þeim það? Ég held nú það!
Bubbi byggir hefur farið sigurför um
heiminn allt frá því hann kom fram á
sjónarsviðið á BBC í apríl 1999. Bubbi er
verktaki og býr á byggingarsvæði ásamt
vinnuvélunum sínum Skófla skurðgröfu,
Moka jarðýtu, Hringlu steypuhrærivél,
Lofta krana og Valta valtara. Þar starfa
líka skrifstofumaðurinn
Selma og kötturinn
Snotra. Það
vekur athygli
að vélarn-
ar tala en
ekki dýrin.
Bubbi og
v é l a r n a r
vinna saman í sátt og samlyndi, bera
virðingu hvert fyrir öðru og lenda í
ýmsum ævintýrum við störf sín sem
eðli málsins samkvæmt felast í því að
byggja og laga. Hver vinnuvél hefur
sinn persónuleika sem tengist
gerð þeirra og eðli, þannig er
skurðgrafan framtakssöm, kran-
inn utan við sig, valtarinn
traustur og áreiðanlegur og
steypuhrærivélin kát og
klappar stundum saman fram-
hjólunum af æsingi. Leiðarstef í gegnum
þáttinn er alltaf spurningin „Tekst þeim
það?“ og þeim tekst það alltaf með góðri
samvinnu og framtakssemi. Vélarnar
hans Bubba byggis eru stórar og sterkar
en hafa samt persónuleika og rödd sem
gerir þær vinalegar og áhugaverðar.
Fyrir fullorðna sem oft þurfa nauð-
ugir viljugir að fylgjast með barna-
efni er samband Bubba og Selmu
í stöðugri þróun en á milli þeirra
er greinileg rómantísk spenna.
Umfram allt er þó markmiðið með
þáttunum að byggja upp jákvæð
lífsviðhorf hjá börnum svo sem að
lausnin sé alltaf nærri ef hugrekki, iðju-
semi og heiðarleiki eru höfð að leiðarljósi
og það sé alltaf hægt að læra eitthvað
nýtt. Og spurningin er: Tekst þeim það?
Ég held nú það!!
FRÁ VINSTRI: Bubbi og Skófli að störfum. Valti valtari með besta vin sinn,
fuglinn, á þakinu. Vélarnar hans Bubba eru geðþekkar og alltaf til í slaginn.
Arnarfell vinnur nótt og dag
að borun ganga sem eiga að
veita vatni inn í göngin sem
liggja frá Kárahnjúkum í
væntanlegt raforkuver í
Fljótsdal. Notaður er
tölvustýrður bor sem þarf
stöðugt vatnsrennsli til að
skola út úr berginu þegar
hann er að störfum. Uppi á
bakkanum er viðgerðarverk-
stæði, geymslur og kaffiskúr.
Við UFSARVEITU
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/R
AG
N
AR
L
EI
FU
R