Fréttablaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 48
Kynþokkafullt bankapar
Það kom mörgum landsmönnum á óvart þegar út
spurðist að Frosti Reyr Rúnarsson verðbréfamiðlari
hjá KB banka hefði verið valinn kynþokkafyllsti
karlmaður landsins á Rás 2. Kynþokki Frosta virðist
þó hafa verið á allra vörum innan bankanna því
starfsmenn þeirra voru duglegir að leggja kosn-
ingabaráttunni lið. Með kjöri Frosta þykir sýnt að
bankamenn séu leikurum, sjónvarpsstjörnum og
íþróttahetjum engir eftirbátar hvað
sexappíl áhrærir og nú kemur vart
annað til greina hjá íslenskum
bankamönnum en að halda áfram
á sömu braut. Nú þegar eru farnar
að heyrast raddir um hver verði full-
trúi bankageirans í kjöri á kynþokka-
fyllstu konu Íslands en það vill
svo vel til að unnusta Frosta,
Guðmunda Ósk Kristjánsdótt-
ir, starfar í greiningardeild
Landsbankans og þykir síst
eiga minna erindi í kjörið en unnustinn ómót-
stæðilegi.
Framhaldið hjá Flugleiðum
Vangaveltur eru á markaðnum um hvað sú ákvörð-
un Sigurðar Helgasonar að hætta sem forstjóri
Flugleiða muni hafa í för með sér. Fyrst er að telja
að menn velta því fyrir sér hver verði eftirmaður
hans hjá fyrirtækinu. Það nafn sem oftast heyrist
nefnt er nafn Jóns Karls Ólafssonar, framkvæmda-
stjóra Flugfélags Íslands. Flestir búast við að skipu-
lagsbreytingar í efsta lagi stjórnenda Flugleiða
muni fylgja í kjölfarið. Einnig eru menn á því að
félagið muni huga að einhverri sölu eigna, þótt
það muni ekki hverfa úr starfsemi í almennri
ferðaþjónustu sjá menn engan sérstakan tilgang í
því fyrir félagið að reka til að mynda bílaleigu.
Félagið muni fremur einbeita sér að flugrekstrinum
og útrás en reyna að losa sig út úr tímafrekum ein-
ingum sem gefi ekki mikið af sér í hlutfalli við
heildarumfang félagsins.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.597
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 276
Velta: 3.014 milljónir
+0,91%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Vogun hf. jók í gær hlut sinn í
HB Granda og á nú 31,7 prósent
í félaginu. Kristjáns Loftsson og
Árni Vilhjálmsson eru stjórnar-
menn í Vogun og HB Granda.
FTSE-vísitalan í Lundúnum
hækkaði um 0,60 prósent í gær
og í Þýskalandi hækkaði Dax um
0,78 prósent. Í Japan lækkaði
Nikkei hins vegar um 0,11 pró-
sent.
Það sem af er ári hafa aðeins
tvö félög í Kauphöll Íslands
lækkað í verði. Það eru SÍF og
Atorka sem hafa lækkað um í
kringum 1,5 prósent hvort.
Flugleiðir eru enn efst á blaði
þeirra sem mest hafa hækkað á
árinu (22,8 prósent). Actavis er í
öðru sæti (11,1 prósent) og KB
banki hefur hækkað um 11 pró-
sent.
20 26. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Fjármálaráðuneytið
spáir því að hagvöxtur
verði áfram kröftugur
en verðbólga fari ekki
yfir þolmörk Seðla-
bankans. Alþjóðavæð-
ing og meiri sveigjan-
leiki hjálpa til við að
dempa óæskilega fylgi-
kvilla góðærisins.
Fjármálaráðuneytið telur ekki að
hagkerfið ofhitni þrátt fyrir
mikinn hagvöxt. Alþjóðavæðingin
og aukinn sveigjanleiki í hagkerf-
inu eru helstu ástæður þess að
verðbólga fer ekki úr böndunum
þrátt fyrir uppsveifluna.
Þjóðhagsspá fjármálaráðuneyt-
isins var kynnt í gær. Í henni er
gert ráð fyrir að hagvöxtur verði
5,5 prósent í ár og 4,7 prósent á
næsta ári. Þorsteinn Þorgeirsson,
skrifstofustjóri Efnahagsskrif-
stofu fjármálaráðuneytisins, segir
hagvöxtinn fyrst og fremst kominn
til vegna stóriðjuframkvæmda og
aukinnar einkaneyslu. „Það sem út-
skýrir meiri hagvöxt en við gerð-
um ráð fyrir er annars vegar að
stækkun Norðuráls fór af stað fyrr
og er meiri en gert var ráð fyrir og
hápunktur framkvæmdanna fyrir
austan verður í ár og á næsta ári,“
segir hann.
Hann segir að viðskiptahallinn
aukist vegna þessa en að úr honum
dragi árið 2007 en þá er einnig gert
ráð fyrir minni hagvexti. Þorsteinn
segir að nýjustu tölur bendi til að
vöxtur í útflutningi sé kröftugri en
gert var ráð fyrir og að nýjustu töl-
ur um þáttttatekjur, sem mæla
tekjur af eignum og vinnu Íslend-
inga í útlöndum og útlendinga á Ís-
landi, séu hagstæðari en ráð var
gert fyrir.
Þorsteinn segir að margt í hag-
kerfinu glæði vonir um að kröftug-
ur hagvöxtur valdi ekki ofhitnun
og verðbólgu. Hann nefnir breytt
fyrirkomulag á gjaldeyrismarkaði
frá síðustu uppsveiflu. Nú er geng-
ið ákvarðað á markaði en ekki
beint af Seðlabankanum, sem
eykur sveigjanleika hagkerfisins
til þess að bregðast við misvægi.
Þorsteinn nefnir einnig aukna
alþjóðavæðingu í þessu samhengi.
„Hún leiðir til þess að þegar það er
þensla hér heima er auðveldara að
ná í vinnuafl og aðföng frá útlönd-
um og það dempar verðbólguþrýst-
inginn,“ segir hann.
Ráðuneytið spáir því að verð-
bólgan í ár verði 3,2 prósent en á
næsta ári 3,5 prósent. „Það eru
margir með hugann við verðbólgu-
spá Seðlabankans frá í desember
en síðan hefur bankinn unnið
markvisst að því að úrelda þá spá
með hækkun stýrivaxta,“ segir
Þorsteinn.
Hann nefnir að Seðlabankinn
hafi hækkað stýrivexti um tæp
þrjú prósentustig á síðasta ári og
áfram megi gera ráð fyrir vaxta-
hækkunum. „Hið opinbera hefur
líka verið með virkt aðhald. Það
birtist meðal annars í því að vexti
samneyslu er haldið við tvö pró-
sent á ári og fjárfestingar ríkis-
sjóðs drógust í fyrra saman um
sautján prósent og gert er ráð fyrir
að samdrátturinn þar verði fjögur
prósent í ár. Þetta skilar sér í því að
afkoma ríkissjóðs batnar milli árs-
ins 2003 og 2005 um sem nemur
þremur prósentum af landsfram-
leiðslu, sem dregur úr framleiðslu-
spennu,“ segir hann.
thkjart@frettabladid.is
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 43,00 +4,12% ... Atorka 5,76
– ... Bakkavör 24,90 -1,58% ... Burðarás 12,50 -0,40% ... Flugleiðir 12,10
-0,82% ... Íslandsbanki 11,35 -0,44% ... KB banki 490,50 +1,98% ...
Kögun 47,00 +0,43% ... Landsbankinn 12,70 – ... Marel 53,60 +0,37% ...
Medcare 5,85 -0,85% ... Og fjarskipti 3,37 -0,59% ... Samherji 11,30 – ...
Straumur 10,05 -0,99% ... Össur 81,50 -0,61%
Mikill hagvöxtur
en ekki ofhitnun
Actavis 4,12%
KB banki 1,98%
HB Grandi 0,64%
Tryggingamiðstöðin -2,27%
Bakkavör -1,58%
Síminn -1,23%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
Norska fjármálaeftirlitið hefur
mælt með því við norska fjár-
málaráðuneytið að það sam-
þykki kaup Íslandsbanka á BN
bank í Noregi.
Fjármálaeftirlitið hér á landi
gerir ekki athugasemdir við
kaupin. Íslandsbanki bíður því
þess að fjármálaráðuneytið
norska gefi svar, en það mun
nánast formsatriði eftir með-
mæli fjármálaeftirlitsins. ■
Bullandi hagvöxtur í Kína
Búist er við aðgerðum
kínverskra stjórnvalda
til að halda aftur af hag-
vexti í landinu.
Kínverskum yfirvöldum tókst
ekki að halda aftur af hagvexti í
landinu á síðasta ári eins og vilji
stóð til. Hagvöxturinn í fyrra
reyndist 9,5 prósent, sem er tæpu
prósenti meira en stefnt var að.
Mikill og langvarandi vöxtur
hefur verið í Kína undanfarin
ár og hafa yfirvöld í landinu
reynt að halda aftur af honum
af ótta við hagvaxtarverkina
sem fylgja svo hröðum vexti.
Hagvöxturinn nú eykur líkur
á að stýrivextir verði hækkaðir
og gjaldmiðillinn styrktur.
Kínverjar hækkuðu stýrivexti í
október, en aukin þrýstingur er
um að að þeir hækki verðmæti
gjaldmiðilsins á móti dollar-
anum. Búist er við því að á
fundi helstu iðnríkja heims
verði gerð krafa til þess að Kín-
verjar taki á sig styrkingu, en
evran hefur borið meginþung-
ann af veikingu dollarans hing-
að til.
Fjárfestar hafa átt góða daga
í Kína að undanförnu, en ótti
þeirra beinist fyrst og fremst
að því að Kínverjar stigi of fast
á bremsuna til að koma í veg
fyrir ofþenslu í hagkerfinu.
- hh
MIKILL VÖXTUR Kínverjar eru á mikilli siglingu, en þetta sjöunda stærsta hagkerfi heims
vex hraðar en hollt þykir.
ÞORSTEINN ÞORGEIRSSON, SKRIFSTOFUSTJÓRI Í FJÁRMÁLARÁÐUNEYTINU
Í nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði 5,5 prósent í
ár og 4,7 prósent á næsta ári. Verðbólgan verður innan þolmarka bæði árin ef spáin
gengur eftir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Mælt með Íslandsbanka