Fréttablaðið - 26.01.2005, Qupperneq 50
Um þessar mundir eru tuttugu ár
liðin frá því að Helgi Tómasson
tók við stjórn San Francisco-ball-
ettsins.
„Hamingjusamur? Hvernig
ætti ég að vera það ekki?“ spyr
Helgi í nýjasta sunnudagsblaði
San Francisco Chronicle, eins
helsta dagblaðs Kaliforníu. „Að
fylgjast með dansflokknum vaxa
og dafna og heyra það sem sagt
er um hann – þetta hefur verið
gefandi reynsla.“
Afmælisins verður minnst
með ýmsum hætti í dagskrá dans-
flokksins á næstunni.
Núna um jólin sýndi ballettinn
Hnotubrjótinn í nýrri uppfærslu
eftir Helga og uppskar mikið lof
frá gagnrýnendum jafnt sem
áhorfendum.
Vordagskrá ballettsins hefst
síðan núna í kvöld með heljar-
mikilli galasýningu þar sem sýnd
verða stutt verk og brot úr
nokkrum verkum sem sýnd verða
á næstunni.
Á vordagskránni eru meðal
annars verk á borð við Giselle og
Rómeó og Júlíu, og verða bæði
þessi verk í tilefni tvítugsafmæl-
isins sýnd í frægum uppfærslum
Helga sjálfs frá síðasta áratug.
Helgi byrjaði í dansnámi níu
ára gamall í Þjóðleikhúsinu í
Reykjavík. Árið 1969, þegar
Helgi var 27 ára, tók hann þátt í
danskeppni í Moskvu og hreppti
þar silfurverðlaun. Gullið fór til
Mikhaíls Barisjníkovs.
Strax árið eftir gekk hann til
liðs við New York-ballettinn, þar
sem hann vann hvern sigurinn á
fætur öðrum og náði því að verða
einn af virtustu listdönsurum
heims.
Það var svo árið 1985 sem
hann tók boði frá San Francisco-
ballettinum um að gerast list-
rænn stjórnandi dansflokksins
um leið og hann dró sig sjálfur í
hlé sem dansari.
Koma hans þangað varð dans-
flokknum mikil lyftistöng og
markaði greinileg tímamót í sögu
hans. Dansflokkurinn er nú kom-
inn í fremstu röð dansflokka í
heiminum, en hafði engan veginn
náð þeirri stöðu áður en Helgi
gekk til liðs við hann.
Auk þess að vera listrænn
stjórnandi dansflokksins er Helgi
jafnframt skólastjóri ballettskól-
ans San Francisco Ballet School,
sem að mati Helga er ein helsta
undirstaða dansflokksins. ■
22 26. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
DOUGLAS MACARTHUR
Þessi goðsagnakenndi banda-
ríski hershöfðingi fæddist á
þessum degi árið 1880.
Óhjákvæmilegt að
vera hamingjusamur
„Gefðu aldrei skipun sem ekki
er hægt að hlýða.“
Fimm stjörnu hershöfðinginn MacArthur þurfti
oft að segja mönnum fyrir verkum og fyrirskip-
aði meðal annars kjarnorkusprengjuárásirnar á
Hiroshima og Nagasaki.
timamot@frettabladid.is
Það hitnaði verulega undir Bill Clinton, forseta
Bandaríkjanna, þegar kvennamál hans komust í há-
mæli í ársbyrjun árið 1998. Þann 26. janúar þvertók
hann alfarið fyrir það að hafa átt í sambandi við
Monicu Lewinsky og sagði allar sögusagnir um slíkt
vera þvætting. Þetta var þó ekki tekið gilt enda þótti
Monicu-málið alvarlegra en fyrri brek forsetans þar
sem hann átti að hafa haldið við hana eftir að hann
náði kosningu sem forseti Bandaríkjanna. Önnur
kvennamál og ásakanir um áreiti höfðu komið upp
nokkru fyrr þegar hann var ríkisstjóri Arkansas.
Monicu-málið bættist því ofan á ásakanir Paulu
Jones á hendur forsetanum og rannsókn White-
water-málsins og saksóknarinn Kenneth Starr fór
mikinn í gagnaöflun sinni gegn forsetanum. Clinton
vék sér í framhaldinu undan því að svara spurning-
um um Monicu og var meðal annars spurður af
blaðamönnum hvers vegna hann hlypi í felur ef
hann hefði ekkert að
fela.
Washington Post hafði
það eftir fyrrverandi líf-
verði Clintons, nokkrum
dögum síðar, að hann
og Monica hefðu eytt
klukkustund ein saman
á skrifstofu forsetans í
Hvíta húsinu árið 1995.
Lífvörðurinn vissi þó ekki
hvað fór þeim á milli á
fundinum örlagaríka.
Ferill Clintons var í
hættu á tímabili en
eiginkona hans, Hilary,
snerist til varnar enda staðráðin í því að láta ekkert
koma karli sínum út úr Hvíta húsinu.
26. JANÚAR 1998
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1778 Bretar hertaka Ástralíu.
1788 Bresk fangaskip leggjast að
höfn í Ástralíu. Fangarnir
voru fyrsti vísir að fanganý-
lendu sem Bretar hugðust
setja á fót í landinu.
1865 Bretar lýsa því yfir að þeir
muni ekki flytja fleiri fanga
til Ástralíu.
1930 Mohandas K. Ghandi, sjálf-
stæðisleiðtogi Indlands
sem var einnig þekktur
sem „Mahatma“ Gandhi,
hefur göngu sína yfir Ind-
land til að mótmæla her-
setu Breta.
1947 Gústaf Adolf, krónprins Sví-
þjóðar, deyr í flugslysi í
Danmörku. Hann var fer-
tugur þegar slysið varð og
lét eftir sig fimm börn, þar
á meðal Karl XVI Gústaf
núverandi konung.
1993 Vaclav Havel er kjörinn for-
seti Tékklands.
Clinton afneitar Monicu
Jóhanna Karlsdóttir, Leo George, Christopher George,
Kristín Sigurvinsdóttir, Hreinn Steinþórsson,
Hafsteinn Sigurvinsson, Anna G. Árnadóttir,
Jóhanna Svanlaug Sigurvinsdóttir, Þorvaldur Kjartansson,
Sigurvin Ægir Sigurvinsson, Bergþóra V. Sigurjónsdóttir,
Dröfn Sigurvinsdóttir,
Karítas Sigurvinsdóttir, Tryggvi Björn Tryggvason,
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug, styrk og vináttu við
andlát og útfarir eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Sigurvins Sveinssonar
sem lést 27. desember sl.
og elskulegrar eiginkonu minnar, móður,
dóttur, systur, mágkonu og frænku,
Kristrúnar Sigurvinsdóttur
sem lést 9. janúar sl.
Elskuleg systir okkar og frænka,
Svava Skúladóttir
áður til heimilis að Hátúni 10a, Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund þann 23. janúar.
Aðstandendur.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför
ástkæru eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
Ólafar Björnsdóttur
Garðvangi, Garði, áður til heimilis að Hringbraut 67,
230 Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Garðvangs á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja.
Skarphéðinn Agnars,
Birna Skarphéðinsdóttir,
Margrét Skarphéðinsdóttir – Þórður Ingimarsson,
Jónína Skarphéðinsdóttir – Ólafur V. Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Gísli Einarsson
fréttamaður er 38 ára.
.
Bjarni Benediktsson
alþingismaður er 35
ára.
Sólveig Arnarsdóttir
leikkona er 32 ára.
JARÐARFARIR
14.00 Elín Katrín Guðnadóttir, frá Rifi,
verður jarðsungin frá Búðakirkju í
Staðarsveit.
14.00 Skarphéðinn Jónsson, Garðvangi,
Garði, áður Njarðvík, verður jarð-
sunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju.
15.00 Anna Ólafsdóttir, Efstasundi 41,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni.
AFMÆLI
ANDLÁT
Margrét Jónsdóttir, frá Ási, Hraunbæ
152, lést mánudaginn 10. janúar. Útför
hefur farið fram í kyrrþey.
Elma Nína Þórðardóttir, Espigerði 6,
Reykjavík, er látin.
Munda Pálín Enoksdóttir, Sogni, Ölfusi,
lést sunnudaginn 16. janúar.
Ari Guðmundsson, Lækjargötu 1,
Hvammstanga, lést þriðjudaginn 18.
janúar.
Skarphéðinn Jónsson, Garðvangi,
Garði, áður Njarðvík, lést þriðjudaginn
18. janúar.
Guðríður Friðgeirsdóttir, Nausti, Stöðv-
arfirði, lést föstudaginn 21. janúar.
Heiðar Rafn Baldvinsson lést föstudag-
inn 21. janúar.
Anna Garðarsdóttir, Vorsabæ 3, Reykja-
vík, lést laugardaginn 22. janúar.
Elín Loftsdóttir, Hásteinsvegi 64, Vest-
mannaeyjum, lést laugardaginn 22. jan-
úar.
Ólöf Anna Ólafsdóttir, frá Ísafirði,
Sæviðarsundi 15, Reykjavík, lést laugar-
daginn 22. janúar.
Steinþór Benediktsson bóndi, Kálfafelli,
Suðursveit, lést laugardaginn 22. janúar.
Aðalheiður Einarsdóttir, Ásbraut 3,
Kópavogi, lést sunnudaginn 23. janúar.
Haraldur Magnússon, Fjarðavegi 12,
Þórshöfn, lést á Heilbrigðisstofnun Þing-
eyinga sunnudaginn 23. janúar.
Svava Skúladóttir, áður til heimilis í Há-
túni 10a, Reykjavík, lést sunnudaginn
23. janúar.
Þann 26. janúar 1980 tók Ragn-
hildur Guðbrandsdóttir fyrstu
skóflustungu að hjúkrunarheimil-
inu Sunnuhlíð. Hún var þá 101 árs
gömul og elsti íbúi Kópavogs.
Skóflustungan var skráð í
heimsmetabók Guinness þar sem
Ragnhildur var elst allra í heimin-
um til að taka fyrstu skóflustungu
að nýbyggingu. Reisugildi var síð-
an haldið 23. maí 1981 og það sóttu
á þriðja þúsund gestir sem gerðu
þetta að fjölmennasta reisugildi
sem haldið hafði verið á Íslandi en
aðsóknin þótti skýrt dæmi um þa
miklu samstöðu sem ríkti um
verkefnið meðal Kópavogsbúa.
Tæpu ári seinna, eða 20. maí
1982, var haldin vígsluhátíð þar
sem heimilinu var gefið nafnið
Sunnuhlíð. Fimm dögum seinna
lagðist fyrsti sjúklingurinn inn og
fyrsta sérhannaða hjúkrunar-
heimilið fyrir aldraða á Íslandi
var tekið til starfa með 38 sjúkra-
rúmum. ■
RAGNHILDUR GUÐBRANDSÓTTIR
Var elsti íbúi Kópavogs þegar hún tók
fyrstu skóflustunguna að hjúkrunarheimil-
inu Sunnuhlíð.
Skóflustunga í
heimsmetabók
HELGI TÓMASSON: TÓK VIÐ Í SAN FRANCISCO FYRIR 20 ÁRUM
HELGI TÓMASSON Fylgist hamingjusamur með San Francisco-ballettinum vaxa og dafna.
M
YN
D
/ÞÖ
K