Fréttablaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 52
Í fyrsta lagi er ég alveg sársvekktur
fyrir hönd strákanna að hafa tapað
þessum leik. Ég hafði litlar áhyggjur
lengst af leiks því mér fannst Slóven-
arnir þurfa að hafa meira fyrir hlutun-
um en við. Síðan snerist dæmið svolít-
ið við frá Tékkaleiknum því síðustu
fimmtán mínúturnar urðu okkar bana-
biti. Ég held að markvarslan á þeim
tíma hafi verið vendipunkturinn í leikn-
um. Eftir á að hyggja var rangt að
skipta Roland út af því Birkir Ívar komst
aldrei í takt við leikinn. Það er hins
vegar alltaf auðvelt að vera vitur eftir á
og menn geta ekki vitað svona lagað
fyrir fram.
Mér fannst liðið vera allt annað og
betra en í fyrri leiknum og greinilegt að
frumsýningarskrekkurinn úr fyrsta
leiknum var horfinn. Liðið var vel inn-
stillt, vörnin var góð og markaskorunin
dreifðist mun meira en í fyrsta leikn-
um. Þótt við höfum fengið jafn mörg
mörk á okkur og gegn Tékkum fannst
mér vörnin vera miklu betri, með Vigni
Svavarsson sem besta mann. Eina
áhyggjuefnið er að ekki hafi tekist að
fækka mörkunum frá því í fyrsta leikn-
um. Það er of mikið að fá á sig 34
mörk í hverjum leik.
Sóknarleikurinn var að mörgu leyti
mjög góður. Alexander kom mjög
sterkur inn í leikinn og sýndi hvers
hann er megnugur. Markús Máni var
einnig öflugur þótt skotnýtingin hans
hafi ekki verið jafn góð og í fyrsta leikn-
um. Róbert var góður en það kom of
lítið út úr Ólafi Stefánssyni hvað varðar
markaskorun. Hann skoraði bara tvö
mörk og skotnýting hans var léleg. Það
verður hins vegar að horfa til þess að
andstæðingarnir leggja mikla áherslu á
að stöðva hann. Það var líka gaman að
sjá Arnór Atlason klára síðasta vítið.
Það hefðu ekki allir þjálfarar þorað að
láta svona ungan og óreyndan mann
taka þetta mikilvæga víti og þetta á
eftir að hjálpa honum mikið.
Strákarnir verða að passa sig á að
hengja ekki haus eftir þennan leik.
Slóvenska liðið er gott og það sást vel
að flestir leikmenn þess koma frá
sama liðinu. Þeir voru vel samæfðir og
það er engin skömm að tapa fyrir
þessu liði. Það er hins vegar sorglegt
að það skyldi gerast í
þessum leik en ís-
lenska liðið sýndi
að það býr fullt í
liðinu. Leikmenn
verða að taka það
jákvæða úr
þ e s s u m
leik með í
f r a m -
h a l d i ð .
Þá get-
ur allt
gerst.
Mega ekki hengja haus
24 26. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Við furðum okkur á...
... að þrír af reynsluminnstu leikmönnum landsliðsins skuli gefa
kost á sér í viðtöl eftir leikinn í gær. Við óskum eftir því að
leikreyndustu menn liðsins axli meiri ábyrgð og komi fram fyrir
hönd liðsins í mótlæti sem og í meðbyr.
„Þeir fá endalaus vítaköst og við erum með mann úti
af allan seinni hálfleikinn. Dómararnir tóku af skarið
í leiknum á meðan við vorum að berjast við að spila
handbolta.“
Viggó Sigurðsson var ekki sáttur við framgöngu argentínsku dómaranna.sport@frettabladid.is
LEIKIR GÆRDAGSINS
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
23 24 25 26 27 28 29
Miðvikudagur
JANÚAR
HM Í HANDBOLTA Það var grátlegt að
horfa upp á strákana okkar tapa
niður unnum leik gegn Slóvenum í
El Menzah-íþróttahöllinni í gær.
Þeir hefðu átt að hrista Slóvenana
af sér í fyrri hálfleik en einstakur
klaufaskapur á vítapunktinum
gerði það að verkum að Slóven-
arnir voru alltaf inni í leiknum.
Þeir tóku síðan forystuna í fyrsta
sinn síðan í stöðunni 1-2 þegar 40
sekúndur voru eftir, 32-33. Þeir
unnu að lokum eins marks sigur,
33-34, í dramatískum spennuleik.
Íslenska liðið réð lögum og
lofum í fyrri hálfleik og varnar-
leikurinn var mun betri en gegn
Tékkum. Liðið spilaði aftar að
þessu sinni og það virkaði vel.
Fyrir vikið komst Roland Eradze í
fínt stuð í markinu en hann varði
11 skot í fyrri hálfleik.
Sóknarleikurinn var einnig
með miklum ágætum en eins og
áður segir voru strákarnir klaufar
á vítapunktinum, létu verja fjögur
víti frá sér í fyrri hálfleik. Munur-
inn í hálfleik var því aðeins tvö
mörk, 16-14.
Strákarnir héldu tveggja til
fjögurra marka forystu í síðari
hálfleik en varnarleikurinn fór að
láta á sjá og markvarslan einnig
en Roland og Birkir Ívar vörðu
samtals fjóra bolta í síðari hálf-
leik. Ólafur Stefánsson var þar að
auki ískaldur, skoraði ekki nema
tvö mörk og klúðraði jafn mörg-
um vítaköstum.
Þegar svona mikið er að í leik
íslenska liðsins hlýtur eitthvað að
láta undan og það gerði það. Slóv-
enar tóku forystuna með 40 sek-
úndur eftir. Arnór jafnaði úr
vítakasti þegar 10 sekúndur lifðu
leiks en stórskyttan Sergei
Rutenka tryggði Slóvenum sigur
þegar aðeins þrjár sekúndur voru
eftir af leiknum.
Grátleg niðurstaða fyrir strák-
ana, sem ættu með réttu að vera
komnir með þrjú stig í riðlinum.
Þess í stað eru þeir komnir með
bakið upp að veggnum fræga og
lítið annað en sigur gegn Rússum
mun fleyta liðinu áfram í keppn-
inni.
Strákarnir geta sjálfum sér um
kennt því það gengur ekki að
klúðra fimm vítaköstum í leik og
fara þar að auki með fjölda dauða-
færa. Það sem gerir þetta tap samt
sárast er sú staðreynd að liðið lék
mjög vel nánast allan leikinn, ólíkt
síðasta leik. Alexander átti frá-
bæran leik, sem og Róbert. Guð-
jón Valur og Markús voru traustir,
Arnór átti fína innkomu og Vignir
stóð vaktina manna best í vörn-
inni. Roland varði aftur vel í fyrri
hálfleik en hálfleikspásan virtist
fara illa í hann því það slokknaði á
honum í síðari hálfleik.
Þrátt fyrir þennan fína leik
er uppskeran engin og verður
ekki sagt annað en að íslenska
liðið sé búið að upplifa mikið í
þessum fyrstu tveim leikjum.
Nú verða menn að safna liði og
mæta grimmir gegn Rússum ef
þeir ætla sér að ná takmarki
sínu.
henry@frettabladid.is
DAGUR KOMINN Á BLAÐ Dagur Sigurðsson, fyrirliði íslenska liðsins, skoraði sín fyrstu
þrjú mörk á heimsmeistaramótinu í Túnis í gær í tapinu gegn Slóveníu.
Fréttablaðið/Andreas Waltz
Þvílíkur klaufaskapur
Íslenska landsliðið í handbolta kastaði frá sér unnum leik gegn Slóveníu á
HM í gær. Leikmenn liðsins geta engum kennt um tapið nema sjálfum sér.
■ ■ LEIKIR
18.30 Njarðvík og ÍS mætast í
Njarðvík í 1. deild kvenna í
körfubolta.
19.15 Grindavík og Keflavík
mætast í Grindavík í 1. deild kvenna
í körfubolta.
20.30 Njarðvík og Grindavík
mætast í Njarðvík í Intersport-
deildinni í körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
15.35 HM í handbolta á RÚV.
Útsending frá leik Íslands og
Slóveníu í HM í handbolta.
19.10 HM í handbolta á RÚV. Bein
útsending frá leik Íslands og Kúvæt
á HM í handbolta.
19.50 Enski deildabikarinn á Sýn.
Bein útsending frá leik Manchester
United og Chelsea í ensku
deildabikarnum í fótbolta.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.30 Handboltakvöld á RÚV.
23.15 Enski deildabikarinn á Sýn.
Útsending frá leik Manchester
United og Chelsea í enska deilda-
bikarnum í fótbolta.
Enski deildabikarinn
WATFORD–LIVERPOOL 0–1
0–1 Steven Gerrard (77.).
LIVERPOOL VANN SAMANLAGT 2–0
1. deild kvenna í körfu
KR–HAUKAR 76–87
Stig KR: Jerica Watson 25 (12 frák.), Helga
Þorvaldsdóttir 15, Gréta María Grétarsdóttir 13,
Georgía Kristiansen 10, Hanna B. Kjartansdóttir 9,
Halla Jóhannesdóttir 4.
Stig Hauka: Helena Sverrisdóttir 29 (16 frák., 9
stoðs.), Ebony Shaw 15 (10 frák.), Pálína
Gunnlaugsdóttir 13, Kristrún Sigurjónsdóttir 11,
Ösp Jóhannsdóttir 7, Ragnheiður Theódórsdóttir
6, Hanna Hálfdanardóttir 4, Guðrún
Ámundadóttir 4.
STAÐAN
KEFLAVÍK 12 12 0 1025–715 24
Grindavík 13 8 5 797–784 16
HAUKAR 14 7 7 925–978 14
ÍS 12 7 5 772–723 14
NJARÐVÍK 13 4 9 784–850 8
KR 14 1 13 763–1016 2
STÖÐUR ÚR LEIKNUM
Fyrri: 1–0, 1–2, 2–3 (3 mín), 4–3, 5–3,
7–4, (9 mín), 7–6, 9–6, 9–8, 12 –8 (17
mín), 12–10, 14–10 (21 mín), 14–11,
15–11, 15–13, 16–13 , 16–14.
Seinni: 16–15, 17–17, 17–16 (31 mín),
20–16 (34 mín), 21–17, 21–19, 22–19,
23–20 (39 mín), 23–22, 25–23, 25–25
(45 mín), 28–26, 29–27, 29–29 (53
mín), 31–30, 32–31, 32–33 (59 mín),
33–33, 33–34.
TÖLFRÆÐIN
Skotnýting 58%–68%
Tapaðir boltar 10–10
Hraðaupphlaupsmörk 8–3
Brottvísanir (mínútur) 18–18
Varin skot 17/1–20/5
Varin skot í vörn 1–2
Víti fengin (nýting) 11 (55%)–9 (89%)
MÖRK–SKOT ÍSLANDS
Alexander Peterson 7–9 (78%)
Róbert Gunnarsson 6/2–8/4 (75%)
Guðjón Valur Sigurðsson 5/1–7/2 (71%)
Markús Máni Michaelsson 4–6 (67%)
Arnór Atlason 3/3–4/3 (75%)
Dagur Sigurðsson 3–6 (50%)
Vignir Svavarsson 2–2 (100%)
Ólafur Stefánsson 2–9/2 (22%)
Einar Hólmgeirsson 1–5 (20%)
VARIN SKOT ÍSLANDS
Roland Valur Eradze 15/1 af 40/5 (38%)
Birkir Ívar Guðmundsson 2 af 11/4 (18%)
STOÐSENDINGAR ÍSLANDS
Ólafur Stefánsson 10 (3 inn á línu)
Dagur Sigurðsson 2 (0)
Arnór Atlason 2 (1)
Alexander Petersson 2 (0)
Markús Máni Michaelsson 1 (0)
Einar Hólmgeirsson 1 (0)
FISKUÐ VÍTI ÍSLANDS
Róbert Gunnarsson 5
Ólafur Stefánsson 2
Guðjón Valur Sigurðsson 2
Alexander Petersson 1
Markús Máni Michaelsson 1
HRAÐAUPPHLAUPSMÖRKIN
Guðjón Valur Sigurðsson 3
Vignir Svavarsson 2
Alexander Petersson 2
Róbert Gunnarsson 1
HVAÐAN KOMU MÖRKIN
Langskot Ísland 10– Slóvenía 8
Úr hornum 3–4
Af línu 3–3
Með gegnumbroti 3–8
Úr hraðaupphlaupum 8–3
Úr vítum 6–8
33-34
ÍSLAND SLÓVENÍA
GEIR SVEINSSON
SÉRFRÆÐINGUR FRÉTTABLAÐSINS
SPÁÐ Í SPILIN
ÍSLAND MÆTTI SLÓV-
ENÍU Á HM Í HAND-
BOLTA Í TÚNIS Í GÆR
LEIKIR GÆRDAGSINS
HM í handbolta í Túnis
A-RIÐILL
GRIKKLAND–FRAKKLAND 20–19
KANADA–TÚNIS 20–42
ANGÓLA–DANMÖRK 19–47
STAÐAN Í A-RIÐLINUM
TÚNIS 2 2 0 0 81–43 4
DANMÖRK 2 2 0 0 74–42 4
GRIKKLAND 2 1 0 1 43–46 2
FRAKKLAND 2 1 0 1 63–36 2
ANGÓLA 2 0 0 2 42–86 0
KANADA 2 0 0 2 36–86 0
B-RIÐILL
RÚSSLAND–KÚVEIT 38–11
ALSÍR–TÉKKLAND 29–29
ÍSLAND–SLÓVENÍA 33–34
STAÐAN Í B-RIÐLINUM
RÚSSLAND 2 2 0 0 66–33 4
SLÓVENÍA 2 2 0 0 68–50 4
TÉKKLAND 2 0 2 0 63–63 2
ÍSLAND 2 0 1 1 67–68 1
ALSÍR 2 0 1 1 51–57 1
KÚVEIT 2 0 0 2 28–72 0
Enski deildabikarinn í gær:
Liverpool í
úrslitaleikinn
FÓTBOLTI Liverpool tryggði sér í
gær sæti í úrslitaleik enska
deildarbikarins þegar liðið bar
sigurorð af Watford, 1–0, í seinni
leik liðanna á Vicarage Road. Það
var Steven Gerrard sem skoraði
sigurmark Liverpool þrettán
mínútum fyrir leikslok. Liverpool
vann einnig fyrri leikinn, 1–0, og
því samanlagt 2–0 og mætir annað
hvort Manchester United eða
Chelsea í úrslitaleiknum. ■
STEVEN GERRARD Fagnar hér marki
sínu en það kom Liverpool í úrslitaleik
enska deildarbikarsins.
HENRY BIRGIR
GUNNARSSON
SKRIFAR UM
HM Í
HANDBOLTA
FRÁ TÚNIS