Fréttablaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 22
Bitist um bíla
Uppstokkun hefur orðið hjá Toyota-umboðinu eftir
talsverðar væringar. Starfsmenn undir forystu for-
stjórans Emils Grímssonar áttu hlut í fyrirtækinu.
Bogi Pálsson, sonur Páls Samúels-
sonar, aðaleiganda fyrirtækisins,
var upp á kant við fjölskylduna.
Sættir hafa náðst, en fyrirséð
var að nokkrir lykilstarfs-
menn vildu kaupa fyrirtækið.
Þeir áttu hlut í því, en nú
hefur niðurstaðan orðið sú að
Emil og félagar kaupa Arctic
Trucks, en Úlfar Steindórsson sem
hefur unnið náið með Boga tekur
við stjórn Toyota-umboðsins.
Páll Samúelsson verður stjórnarformaður. Niður-
staða hefur því náðst í langvarandi pattstöðu þar
sem starfsmenn umboðsins voru allt annað en
sáttir við að sitja uppi með skuldsetta minnihluta-
eign og geta sig hvergi hrært.
Boðið í bíla
Það er barist um bíla á fleiri vígstöðvum. Þeir
fjandvinirnir Jón Ásgeir Jóhannesson og Philip
Green bitust einnig um bíl á dögunum. Þeir voru
báðir mættir á góðgerðauppoð á Englandi. Meðal
þess sem var til sölu var forláta MG-sportbíll.
Jón Ásgeir og Philip Green háðu einvígi
um bílinn. Þeir tókust hraustlega á í
baráttu um Arcadia um árið, en
óvænt truflun efnahagsbrota-
deildar lögreglunnar leiddi til
að samningsstaða Baugs
fauk út um glugg-
ann. Nú var engri
slíkri truflun fyrir
að fara og Jón Ás-
geir náði bílnum
og greiddi fyrir um
tólf milljónir króna. Ágóð-
inn rann í styrktarsjóð fyrrverandi verslunarstarfs-
manna.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.767
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 357
Velta: 2.146 milljónir
+0,74%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Fjórir lykilstarfsmenn Lands-
bankans nýttu sér í gær rétt til að
kaupa hlutafé í bakanum á geng-
inu 3,58. Þetta er samkvæmt
samningum frá árinu 2000.
Alls var um að ræða 4,3 millj-
ónir hluta sem voru keyptir á um
15,5 milljónir. Markaðsvirði hluta-
fjárins í dag er ríflega 62 milljónir.
Friðrik Magnússon hefur látið
af störfum sem framkvæmdastjóri
Rekstrarfélags Íslandsbanka.
Við starfinu tekur Eggert Þór
Kristjánsson.
Sjóvá hefur lokið við að selja
allt hlutafé sitt í Flugleiðum:
Grunnfé Seðlabankans lækk-
aði um 4,9 milljarða í janúar og
nam 33,7 milljörðum um mán-
aðamótin.
22 5. febrúar 2005 LAUGARDAGUR
Kristinn Björnsson mun ekki
setjast í stjórn Straums fjárfest-
ingarbanka eins og hann var kjör-
inn til á aðalfundi bankans í gær.
Kristinn gerði grein fyrir því að
hann hefði vikið úr stjórn
Straums til að koma í veg fyrir að
bankinn drægist inn í umræðu um
meint samráð olíufélaganna,
vegna fyrri starfa hans sem for-
stjóri Skeljungs. Varamaður mun
taka sæti Kristins þar til annað
verður ákveðið.
Sjálfkjörið var í stjórn
Straums og komu Þór Kristjáns-
son og Ingimundur Sigurpálsson
inn í aðalstjórn í stað Gunnlaugs
Sævars Gunnlaugssonar og Orra
Haukssonar.
Kristinn Björnsson sem gegndi
stjórnarformennsku megnið af
árinu fyrir Straum og Þórður Már
Jóhannesson röktu starfsemina á
liðnu ári. Að baki er fyrsta starfs-
ár Straums sem banka og lýstu
forsvarsmenn bankans mikilli
ánægju með vöxt lána í reikning-
um félagsins, en stefnt er að
áframhaldandi vexti lánastarf-
semi sem breikkar tekjugrunn
félagsins. Hagnaður Straums var
6,4 milljarðar króna sem er met
hjá félaginu. Markaðsvirði
Straums hefur vaxið úr 4,4 millj-
örðum í 56 milljarða á fjórum
árum.
Straumur á virkan eignarhlut í
Íslandsbanka og Tryggingamið-
stöðinni. Fjármálaeftirlitið hefur
samþykkt eignarhlutina með
þeim skilyrðum að eignarhlutur í
báðum félögum sé ekki til fram-
búðar. Kristinn sagði því ljóst að
verkefni stjórnar og starfsmanna
Straums verði að vinna úr núver-
andi stöðu. Meðal þess sem talið
er koma til greina meðal ráðandi
hluthafa Straums er að sameina
Straum og Íslandsbanka. - hh
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 41,40 +1,22% ... Atorka 6,25 -
0,79% ... Bakkavör 25,70 +1,58% ... Burðarás 13,30 +0,38% ... Flugleiðir
13,95 -0,36% ... Íslandsbanki 12,00 +0,42% ... KB banki 514,00 +1,18%
... Kögun 46,70 +0,43% ... Landsbankinn 14,40 +0,35% ... Marel 53,50
+2,88% ... Medcare 5,98 +0,50% ... Og fjarskipti 3,74 +0,54% ... Sam-
herji 11,50 +1,32% ... Straumur 10,25 -1,44%Össur 83,50 -
Leyst úr eign-
arhaldi í ár
Marel 2,88%
Bakkavör 1,58%
Samherji 1,32%
Straumur -1,44%
Austurbakki -1,41%
Jarðboranir -0,93%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N/
SI
A.
IS
L
BI
2
71
14
0
1/
20
05
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N/
SI
A.
IS
L
BI
2
71
14
0
1/
20
05
Aðalfundur
Landsbanka Íslands hf.
Dagskrá:
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár.
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram
til staðfestingar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps á síðastliðnu reikningsári.
4. Tillögur til breytinga á samþykktum.
5. Tillaga um að heimila bankanum að kaupa eða taka að veði allt að 10% af eigin bréfum.
6. Kosning bankaráðs.
7. Kosning endurskoðenda.
8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil.
9. Önnur mál.
Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins fela í sér hækkun á heimild bankaráðs
til hækkunar hlutafjár. Er hluthöfum bent á að kynna sér tillögurnar fyrir fundinn.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu endurskoðenda munu
liggja frammi, hluthöfum til sýnis. Einnig verður hægt að nálgast þessi gögn á
www.landsbanki.is
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við innganginn við upphaf fundarins.
Bankaráð Landsbanka Íslands hf.
Aðalfundur Landsbanka Íslands hf. verður haldinn
á Nordica hótel, í dag, laugardaginn 5. febrúar kl. 14.00.
410 4000 | landsbanki.is
FÉKK SÆTI EN SEST EKKI Kristinn Björnsson var kosinn í stjórn Straums fjárfestingar-
banka. Ákvörðun hans um að víkja sæti vegna olíumálsins stendur hins vegar og mun
hann ekki taka sæti í stjórninni að sinni.
Metár er að baki hjá
Straumi. Straumur get-
ur ekki átt virkan hlut í
Tryggingamiðstöðinni
og Íslandsbanka til lang-
frama. Verkefni ársins
er að leysa þá stöðu.
Vilji er talinn til þess að
sameinast Íslandsbanka.
Bónus oftast ódýrast
Aftur hefur fjölgað í hluthafa-
hópi Húsasmiðjunnar. Baugur
keypti hlut Árna Haukssonar og
Hallbjörns Karlssonar og átti þá
allt hlutafé Húsasmiðjunnar.
Jafnframt var gefið út að fjölga
myndi á ný í hluthafahópnum.
Nú hefur verið stofnað Eign-
arhaldsfélag Húsasmiðjunnar
sem eignast hefur allt hlutafé .
Eigendur nýja félagsins eru
Baugur með 45 prósenta hlut,
Saxhóll sem er fjárfestingar-
félag Nóatúnsfjölskyldunnar,
Prímus sem er í eigu Hannesar
Smárasonar og Byggingarfélag
Gylfa og Gunnars eru með 18,3
prósent hvert félag.
Þessir hluthafar eru stærstu
eigendur Flugleiða en Baugur
hefur nýverið aukið hlut sinn
þar.
Stjórnarformaður verður
Skarphéðinn Steinarsson, en
meðal stjórnarmanna er Árni
Hauksson, fyrrverandi forstjóri
Húsasmiðjunnar. - hh
Flugleiðamenn í Húsasmiðjuhóp
Bónus var oftast með lægsta
verðið í könnun á mjólkurvörum,
ostum og ýmsum þurrvörum
sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í
nokkrum matvöruverslunum á
höfuðborgarsvæðinu á þriðju-
dag.
Í mjólkurvörum og ostum var
Bónus með ódýrustu vöruteg-
undirnar í 49 af 56 flokkum sem
voru skoðir.
Verslanir 10-11 voru oftast
með hæsta verðið en 43 tegund-
ir voru dýrastar þar. 11-11 kom
þar á eftir og var með hæsta
verðið í 27 tilvikum.
Vegna mistaka við fram-
kvæmd könnunarinnar var ekki
hægt að birta gögn frá Nettó í
Mjódd.
Bónus var einnig oftast með
lægsta verðið í könnun ASÍ á
ýmsum þurrvörum en Fjarðar-
kaup í Hafnarfirði var næst-
oftast með lægsta verðið.
Athygli vekur að mikill fjöldi
varanna í könnuninni fékkst
ekki í Bónus. Af þeim 59 vöru-
tegundum sem voru skoðaðar
var 31 fáanleg í Bónus en lægst
var hlutfallið í Europris, 38
vörutegundir könnunarinnar
voru ófáanlegar.
Í Sparverslun í Bæjarlind
fengust hins vegar flestar vöru-
tegundir eða 57 af 59. - bs