Fréttablaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 39
27LAUGARDAGUR 5. febrúar 2005
Smáralind 522 8322 Kringlunnni 568 8190
Batman
búningur
st. 120-140
grímur, tennur, andlitslitir, hársprey, skegg, gerviblóð, neglur, vopn, fjaðrir, kórónur ofl.
ofl.
Spiderman
búningur
st.116,128,140
Action man
búningur
st. 120,140,160
Bratz
búningur
st. 5/7-8/10
Mjallhvítar
búningur
st. 120,140,160
Grímubúningar
margar gerðir
Siv Friðleifsdóttir:
Jafnréttissjónarmið í fjárlagagerð
ALÞINGI Siv Friðleifsdóttir vakti at-
hygli á áhugaverðri nálgun á um-
ræðuna um fjárlagagerð á Alþingi
í vikunni er hún spurði fjármála-
ráðherra að því hvernig því verk-
efni hér á landi að samþætta
kynja- og jafnréttissjónarmið í
fjárlagagerð miðaði.
Benti Siv á að með þátttöku Ís-
lendinga á heimsráðstefnu
kvenna í Beijing 1995 skuldbundu
Íslendingar sig, ásamt öðrum
Norðurlandaþjóðum, til að flétta
kynja- og jafnréttissjónarmið inn
í alla pólitíska ákvarðanatöku. „
Þetta á meðal annars við um gerð
fjárlaga sem gegna lykilhlutverk-
um í pólitískum forgangsverkefn-
um landanna. Fjárlög sem eru
gagnsæ og vel unnin hvað varðar
kynjasjónarmið hafa mikla þýð-
ingu til að tryggja þróun í átt til
jafnréttissamfélags, bæði hér á
Íslandi sem og annars staðar á
Norðurlöndunum,“ sagði Siv.
„Það er alveg ljóst að í gegnum
tíðina hafa verk kvenna verið
minna metin fjárhagslega en verk
karla og allir vita að hefðbundin
kvennastörf, aðallega umönnun-
arstörf, hafa færst út á stofnanir
og þar eru þau frekar lágt launuð.
Það er hægt að koma með mörg
dæmi um það hvernig staða
kvenna hefur verið slakari en
staða karla varðandi laun og varð-
andi hvernig fjárlögin koma út
gagnvart ólíkum hópum, það er
gagnvart kynjunum,“ sagði hún.
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra svaraði fyrirspurn Sivjar
með því að lýsa yfir vonum um að
verkefnið nýtist við gerð fjárlaga
2006. - sda
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR:
„Það er hægt að koma með mörg
dæmi um það hvernig staða
kvenna hefur verið slakari en staða
karla varðandi laun og varðandi
hvernig fjárlögin koma út gagnvart
ólíkum hópum, það er gagnvart
kynjunum.“
PÁLL MAGNÚSSON, VARAÞINGMAÐ-
UR FRAMSÓKNARFLOKKSINS:
„Hingað kom kona í húsið og
rassskellti þingmenn fram eftir
nóttu.“
Sagt í ræðustól á Alþingi í annarri umræðu
um eftirlaunafrumvarpið 13. desember
2003. Konan sem Páll vísar til er Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylk-
ingarinnar.
GUÐJÓN ÓLAFUR JÓNSSON, VARAÞING-
MAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS:
„Þar segir hæstvirtur þingmaður,
með leyfi hæstvirts forseta: „Bla,
bla, bla.““
Sagt í ræðustól á Alþingi í annarri umræðu
um eftirlaunafrumvarpið 13. desember
2003. Þingmaðurinn sem Guðjón vísar til
er Sigurjón Þórðarson, Frjálslyndum.
HALLDÓR BLÖNDAL, ÞINGMAÐUR
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS:
„Menn satt að segja lítt hrifnir
yfir því að forsætisráðherrafram-
bjóðandinn, hæstvirtur þingmað-
ur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
skyldi slysast til Austurlands og
opna munninn um sjávarútvegs-
mál.“
Sagt í ræðustól á Alþingi við umræðu um
fjárhagslegan aðskilnað í rekstri útgerðar
og fiskvinnslu 1. febrúar síðastliðinn.
UMMÆLI
Á ALÞINGI
,,
UMMÆLI
Á ALÞINGI ,,