Fréttablaðið - 05.02.2005, Síða 27

Fréttablaðið - 05.02.2005, Síða 27
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 4 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 329 stk. Keypt & selt 57 stk. Þjónusta 42 stk. Heilsa 11 stk. Skólar & námskeið 6 stk. Heimilið 35 stk. Tómstundir & ferðir 7 stk. Húsnæði 37 stk. Atvinna 28 stk. Tilkynningar 4 stk. Borgartún 26 sími 535 9000 Komdu í ljós Góðan dag! Í dag er laugardagur 5. febrúar, 36. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 9.55 13.42 17.30 AKUREYRI 9.51 13.26 17.03 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Ingólfur Arnarson eignaðist Cadillac Coup DeVille á 17 ára afmælisdaginn. Hann ætlar að gefa syni sínum bílinn þegar hann verður 17 ára. „Þetta er rosalega fínn bíll og gaman að keyra hann. Ég hreifst fyrst af þessum bíl þegar ég var tíu ára. Hann var þá í eigu vin- ar pabba og ég sagði honum þá að ég myndi kaupa hann einn góðan veðurdag,“ segir Ingólfur Arnarson, sölumaður hjá Íslensk- ameríska, um fyrsta bílinn sinn – bíl sem hann ætlar að eiga lengi enn. „Ég tók bíl- prófið á réttum tíma og daginn sem ég varð 17 ára var ég kominn með ökuskírteini. Þá var ekkert annað að gera en að eignast draumabílinn. Ég keypti hann sama dag og hef átt hann síðan,“ segir Ingólfur. Draumabíllinn er Cadillac Coup Deville frá árinu 1984. Ingólfur segir bílinn í topp- standi og hann þurfi lítið viðhald. „Ég hef afar sjaldan þurft að gera við hann – eina viðhaldið felst í að bóna hann og halda hon- um hreinum. Annars legg ég honum að mestu yfir vetrartímann en nota hann þess meira á sumrin. Þegar ég fékk bílinn á sín- um tíma þá var þetta náttúrlega aðalkagg- inn og við félagarnir fórum í marga bílt- úrana á þeim árum,“ segir Ingólfur. Hann ætlar að eiga bílinn áfram og stefnan er að láta hann ganga til sonarins þegar hann nær 17 ára aldri. „Ég hef engan áhuga á að selja bílinn en það væri ágætt ef sonur minn vildi taka við honum þegar hann fær bílpróf. Það er um að gera að halda honum innan fjölskyldunnar.“ Bíllinn er ekki eina samgöngutækið sem heillar Ingólf því hann er nýbúinn að kaupa sér einshreyfils Cessnu 150. „Móðurfjöl- skyldan er öll á kafi í fluginu og mér telst til að það séu fimm flugvélar í fjölskyld- unni fyrir utan mína. Ég hef ekki flogið Cessnunni og geri það sennilega ekki fyrr en í sumar. Þá ætla ég að fljúga víða og taka ljósmyndir sem er enn eitt áhugamálið. Ætli maður bjóði ekki vinum og kunningj- um að sitja í ef veðrið er gott,“ segir Ingólf- ur Arnarson bíla- og flugvélaáhugamaður. arndis@frettabladid.is Ákvað tíu ára að þetta væri bíllinn minn Bylting í hjólabúnaði bíla er í sjónmáli ef marka má nýjustu fréttir frá dekkjaframleiðandan- um Michelin. Þar á bæ eru menn „að finna upp“ nýtt hjól sem kallast Tweel. Nýja bílhjól- ið er loftlaust og er talið mun sterkara en klassískir lofthjól- barðar. Tweel-hjólið er búið plastpílárum sem fjaðra í stað lofts- ins í hefðbundnu dekki. Michelin er um þessar mundir að prófa nýja dekkið undir Audi- bílum og þykir byrjunin lofa góðu. Íslandsmeistarinn í mótocrossi, Ragnar Ingi Stefánsson, ætlar að freista þess að stökkva yfir fimmtíu Nashuatec ljósritunar- vélar. Stökkið fer fram annað annað kvöld í Reiðhöllinni í Víðidal. Ef stökkið tekst þá verður það 25 metra langt og að sögn Ragnars er áskorunin erfið að því leyti að ekið verður upp ramp og lent á jafnsléttu en ekki í sömu hæð og stokkið er úr. Allir eru vel- komnir að fylgjast með tilraun- inni sem hefst klukkan 20. Ökumenn sem tala í farsímann í akstri eiga það til að aka eins og gamalmenni og sjá ekki það sem er beint fyrir fram- an augun á þeim. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem gerð var við Utah-háskóla í Bandaríkjunum. Fylgst var með leikni ökumanna á meðan þeir töluðu í farsíma og kom í ljós að jafnvel þeir sem notuðu handfrjálsan búnað sýndu mun minni leikni við aksturinn en þegar þeir slepptu símanum alveg. Mælikvarðinn á ökuleikni ungra og gamalla í rannsókninni var metinn samkvæmt viðbragðstölum en vitað er að tvítugur ökumaður hefur mun hraðara viðbragð en sá sjötugi – nema þegar sá ungi talar í símann. Ingólfur við flotann sinn. Hann hefur átt bílinn síðan hann var 17 ára en Cessnuna keypti hann síðsumars. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is LIGGUR Í LOFTINU í bílum FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl. Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is KRÍLIN Nýr Skoda Octavia frumsýndur BLS. 2 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 bílar@frettabladid.is Í vinnunni hans pabba er sími á veggnum sem þjófarnir geta hringt í þegar þeir eru búnir að stela. FR ÉT TA B LA Ð IÐ V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.