Fréttablaðið - 05.02.2005, Side 28
Öryggispróf
Samkvæmt lögum þurfa allar bílategundir að standast öryggispróf áður en þær
eru settar í sölu. Í Evrópu gangast bílar undir próf hjá NCAP og eru öll próf
byggð á reglugerð frá Evrópusambandinu en NCAP var stofnað árið 1997.[
Aukin ökuréttindi
Nú er rétti tíminn til að afla sér nýrra atvinnumöguleika !
Kennt er á leigu-, vöru- og hópferðabifreið,
einnig vörubifreið með eftirvagni.
Skólinn býður uppá nútíma kennsluaðstöðu og reynda kennara.
Innritun alla miðvikudaga, áfangakerfi.
Einnig eru í boði námskeið í vistakstri fyrir einstaklinga
og hópa.
Sími 567-0300
Þarabakka 3 109 Reykjavík
Netfang mjodd@bilprof.is
www.bilprof.is
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
ALLT Á EINUM STAÐ
• HEILSÁRSDEKK
• OLÍS SMURSTÖÐ
• BÓN OG ÞVOTTUR
• HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• NAGLADEKK
• RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• BREMSUKLOSSAR
• PÚSTÞJÓNUSTA
SBD, SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
Öflugur, þýður og vel búinn
Útlitið á Land Rover Discovery 3 hefur fengið andlitslyftingu og ýmsar aðrar framfarir hafa orðið á bílnum.
Land Rover Discovery 3 hefur
þegið ýmsan lúxusbúnað frá
Range Rover og um leið hefur
verið bætt við búnaðinn sem
gerir þennan bíl að fyrsta
flokks jeppa.
Óhætt er að segja að Land Rover
Discovery 3 hafi komið, séð og
sigrað. Bíllinn hefur á þeim
mánuðum sem liðnir eru síðan
hann var kynntur hlotið alls 31
viðurkenningu, flestar í Evrópu
og Bandaríkjunum en einnig í
Ástralíu, Mexíkó, Rússlandi og
Kína. Þyngst af þessum viður-
kenningum vegur áreiðanlega að
Discovery 3 var valinn bíll árs-
ins af breska bílablaðinu WhatC-
ar.
Nýi Discoveryinn er vel að
öllum þessum verðlaunum kom-
inn því bíllinn er eins og hugur
manns. Hann er afar aðgengileg-
ur, ökumanni líður eins og hann
hafi aldrei ekið öðrum bíl um
leið og hann hefur tekið af stað.
Fjöðrunin er frábær, svo góð að
bíllinn siglir yfir hraðahindranir
nánast án þess að farþegar finni
fyrir (hvort sem það telst nú
kostur eða galli!). Viðmót bílsins
er einstaklega notendavænt
þannig að þótt tæknibúnaðurinn
sé mikill þá reynist hann jafnvel
óvönum notanda afar aðgengi-
legur og auðveldur í notkun.
Það sem hefur vakið einna
mesta athygli í Land Rover
Discovery 3 er hið svo kallaða
Terrain Response sem er búnað-
ur sem lagar drifbúnaðinn að
akstursaðstæðum, svo sem
grasi, möl, snjó og aurbleytu.
Þessi búnaður er einkar aðgengi-
legur í notkun þannig að notand-
inn er leiddur áfram.
Þótt bíllinn sé stór er hann
afar lipur meðal annars vegna
þess hversu nákvæmt stýrið er
og beygjuradíusinn góður.
Sömuleiðis gerir öflug sex þrepa
sjálfskipting að verkum að öku-
maður finnur varla fyrir þegar
hún skiptir milli gíra.
Sætin í bílnum eru góð þannig
að vel fer bæði um ökumann og
farþega, meira að segja í öftustu
sætaröð (öftustu sætin tvö eru
aukabúnaður). Aftari sætarað-
irnar eru upphækkaðar þannig
að útsýni er gott, auk þess sem
bíllinn er afar bjartur með
þremur topplúgum (aukabúnað-
ur) með gleri. Þegar sæti eru
lögð niður jafnast þau við gólf
bílsins þannig að geymslurýmið
nýtist mjög vel. Bíllinn er líka
einstaklega vel búinn geymslu-
hólfum sem er góður kostur í
ferðabíl.
Reyndur var bíll með dísilvél.
Athygli vakti hversu hljóðlát
hún var, auk þess sem einangrun
bílsins er þannig að varla heyr-
ist í vélinni inni í bílnum.
Land Rover Discovery 3 er fá-
anlegur með TDV6 dísilvél og og
V8 bensínvél og kostar frá
5.480.000 (TDV6 vél, 189 hestafla
beinskiptur) upp í 7.890.000 (V8
vél, 295 hestafla sjálfskiptur).
steinunn@frettabladid.is
Nýr Skoda Octavia verður frumsýndur í húsakynnum Heklu
í dag. Skoda Octavia hefur verið valinn bíll ársins 2005 í
fjórum löndum og Ítalir völdu hann fallegasta bílinn í sínum
flokki. Þessi nýja gerð Skoda er stærri, lengri, breiðari, ör-
uggari og betur búinn en fyrirrennarinn. Bíllinn er fáanleg-
ur með ýmsum gerðum bensín- og dísilvéla og sjálfskipt-
ingu. Frumsýning Skoda Octavia hefst klukkan 12 og einnig
er opið á morgun. ■
Hefur sópað
til sín verðlaunum
Hekla frumsýnir nýjan Skoda Octavia.
Nýr Skoda Octavia verður frumsýndur hjá Heklu í dag.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
REYNSLUAKSTUR
]