Fréttablaðið - 05.02.2005, Síða 47

Fréttablaðið - 05.02.2005, Síða 47
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sl. fimmtudagskvöld voru flutt verk eftir íslensk tónskáld. Una Svein- bjarnardóttir lék einleik á fiðlu og Skólakór Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur söng. Stjórn- andi var Esa Heikkila frá Finnlandi. Venite ad me eftir Jón Nordal er samið í minningu Halldórs Hansens barnalæknis. Verkið er fyrir kór og hljómsveit, sungið á latínu og byggist á texta Nýja testamentisins „Leyfið börnunum að koma til mín...“ Það er mjög skýrt að byggingu og höfuð- litum verksins, málmblæstri, strengj- um og kór er mjög haldið aðskildum, eins og hóparnir talist á. Þetta er fallegt, dramatískt verk sem lýsir ein- lægum söknuði. Skólakór Kársness, sem tók þátt í frumflutningi verksins á sínum tíma, skilaði sínu hlutverki mjög vel. Það er gaman að heyra hve hið unga söngfólk á auðvelt með að syngja óhefðbundið tónmál. Ný kyn- slóð virðist ekki bundin dúr og moll einum saman. Annað verk á þessum tónleikum var Draumnökkvi eftir Atla Heimi Sveinsson frá árinu 1987. Að sögn tónskáldsins er það hugleiðing um Sólfarið, mynd Jóns Gunnars Árna- sonar, og texti þar um er ritaður í raddskrána. Þetta er raunverulega konsert í einum þætti fyrir fiðlu og kammersveit. Dreginn er upp fallegur hljóðheimur strengjahljóðfæranna með glissando, tremolando, pizzi- cato, col legno og fleira tilheyrandi. Þar er gott að dvelja um hríð. Á sínum tíma var það nánast krafa tíð- arandans að semja svona tónlist. Ekki spillti fyrir að Una Sveinbjarnardóttir lék einleikshlutverkið með miklum glæsibrag og sýndi að ekki verður skortur á góðum fiðluleikurum hér á landi í bráð. Tvö verk voru flutt eftir Hauk Tóm- asson. Gildran – brot úr Fjórða söng Guðrúnar, óperu Hauks frá árinu 1996 og Ardente, sem frumflutt var í Kaupmannahöfn á síðasta ári. Gildran er stuttur kafli, ógnvekjandi og tættur, sem lýsir voveiflegum at- burðum í óperunni. Hann fór í raun- inni vel sem eins konar andstæða við verkið sem á eftir kom og hefði ef til vill mátt leika án hlés á milli. Ardente er í þremur samtengdum hlutum, sem hver hefur sinn skýra lit hljóm- fræðilega og í útsetningunni fyrir hljóðfærin. Stefrænar línur halda öllu saman og gefa svigrúm til andstæðna í vef og lit. Þetta er vel samið verk sem sýnir góð tök höfundarins á hljómsveitinni. Síðasta verkið á tónleikunum var Sólófónía eftir Kjartan Ólafsson, sem stjórnað hefur Tónskáldafélagi Ís- lands af miklum dugnaði um árabil. Þetta verk er samið með tölvuforrit- inu Calmus, sem Kjartan hefur hann- að og þróað. Að sögn tónskáldsins er notast við efni úr íslenskum þjóðlög- um auk heimasmíðaðs efniviðar í verkinu. Það er í einum kafla en heyra mátti greinileg hlutaskil þar sem skiptist á þéttskipaður vefur og vefur skýrra þríhljóma. Ekki er unnt að gera sér grein fyrir hlutdeild Calmusar í verkinu, sem skiptir senni- lega ekki máli því að hann er einnig höfundarverk tónskáldsins. Ef til vill mátti heyra þarna eins konar tvíhyggju og átök manns og vélar, hugsunar og sjálfvirkni. Hlutur hljómsveitarinnar var yfir- leitt með miklum ágætum á þessum tónleikum og hinn finnski hljómsveit- arstjóri sýndi að hann kann sitt fag til hlítar. LAUGARDAGUR 5. febrúar 2005 TÓNLIST FINNUR TORFI STEFÁNSSON Háskólabíó Verk eftir íslensk tónskáld Sinfóníuhljómsveit Íslands /Skólakór Kársness Einleikari: Una Sveinbjarnardóttir Kórstjóri: Þórunn Björnsdóttir Stjórnandi: Esa Heikkila Smáralind Barnabuxur/pils 1000 Barnapeysur 1000/1500 Barnabolir 500 Kvenbuxur/pils 1500 Peysur 1000/2000 Jakkar 3000/5000 Kápur 5000 Vorvörurnar komnar - frábærir litir. Útsölulok! Hljómsveit TR í Neskirkju Hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík heldur tónleika í Neskirkju í dag klukkan 17.00. Á efnisskrá eru Marosszeki Tan- cok eftir Zoltan Kodály, Zig- eunerweisen op. 20 fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Pablo de Sarasa- te, Meditation úr Thais fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Jules Masse- net og Sinfónía nr. 3 Eroica eftir Beethoven. Einleikari á fiðlu er Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir, konsertmeistari er Sólrún Gunn- arsdóttir og stjórnandi er Gunnsteinn Ólafsson. Gamalt og nýtt UNA SVEINBJARNARDÓTTIR Ekki spillti fyrir að Una lék einleikshlutverkið með miklum glæsibrag. Hlutur hljómsveitar- innar var yfirleitt með miklum ágætum á þessum tónleikum og hinn finnski hljómsveitarstjóri sýndi að hann kann sitt fag til hlítar. ,,

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.