Fréttablaðið - 13.02.2005, Side 46
HIN HLIÐIN
HIN HLIÐIN Á BIRKI ÍVARI GUÐMUNDSSYNI, MARKVERÐI LANDSLIÐSINS OG HAUKA Í HANDBOLTA.
Hvernig ertu núna? Ég er nokkuð góður.
Augnlitur: Brúngrænn.
Starf: Verkefnisstjóri hjá Impru.
Stjörnumerki: Meyja.
Hjúskaparstaða: Giftur Kristínu Ólafsdóttur.
Hvaðan ertu? Ég er Vestmannaeyingur í húð og hár.
Helsta afrek: Börnin og að hafa farið tvisvar holu í höggi.
Helstu veikleikar: Að vita ekki alltaf hvenær ég á að þegja.
Helstu kostir: Að vera mjög fylginn sér og nokkuð ákveðinn.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Íþróttir almennt.
Uppáhaldsútvarpsþáttur: Reykjavík síðdegis og Rokkland.
Uppáhaldsmatur: Góð nautasteik elduð heima.
Uppáhaldsveitingastaður: Kaffi ópera, Caruso og Eldsmiðjan.
Uppáhaldsborg: París og Barcelona.
Mestu vonbrigði lífsins: Hef ekki orðið fyrir miklum vonbrigðum. Ég er
alla vega fljótur að gleyma þeim.
Áhugamál: Handbolti og golf.
Viltu vinna milljón? Fimm helst.
Jeppi eða sportbíll? Götujeppi.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Ég ætlaði að
verða markaðsfræðingur og íþróttamaður.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Eddie Murphy í gamla daga og
Siggi Sigurjóns.
Hver er kynþokkafyllst(ur)? Konan að sjálfsögðu.
Trúir þú á drauga? Já.
Hvaða dýr vildirðu helst vera? Örn og fljúga frjáls um
heiminn.
Hvaða dýr vildirðu ekki vera? Gullfiskur í búri.
Áttu gæludýr? Nei.
Besta kvikmynd í heimi: Shawshank Redemption
og As Good as it Gets eru flottar ræmur.
Besta bók í heimi: Lord of the Rings-bækurnar
og Tilfinningagreind. A Painted House eftir John
Grisham er líka góð.
Næst á dagskrá: Íslandsmótið í handbolta.
14.9.1976
Hefur tvisvar farið holu í höggi
22 13. febrúar 2005 SUNNUDAGUR
Lárétt
2 þýsk mynt, 6 þyngdareining, 8 verk-
færi, 9 hátíð, 11 eldsneyti áður fyrr, 12
svipað, 14 angraði, 16 farvegur, 17
kaldi, 18 gangur, 20 skammstöfun, 21
úrgangsfiskur.
Lóðrétt
1 glugga, 3 glíma, 4 lofsverður, 5 nögl,
7 náðir, 10 fugl, 13 verkur, 15 reiði, 16
kyn, 17 skammstöfun.
Lausn
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Þessi kvikmynd var bönnuð lengi
vel fyrir nekt og djöfulskap, sem
þótti mjög hneykslanlegt á sínum
tíma en er kannski frekar fyndið í
dag,“ segir Barði Jóhannsson í
Bang Gang, sem hefur samið
tónlist við kvikmyndina Häxan,
Nornina, þögla mynd frá árinu
1922 sem danski kvikmyndagerð-
armaðurinn Benjamin Christen-
sen gerði árið 1922.
Myndin er nærri níutíu mín-
útur að lengd og var tekin upp í
Danmörku en framleidd með
sænsku fjármagni. Hún þykir
afar sérstök í kvikmyndasögunni
og hefur haft áhrif á marga kvik-
myndagerðarmenn seinni tíma.
Meðal annars nefndu höfundar
Blair Witch myndanna fyrirtæki
sitt í höfuðið á henni.
„Þetta er eiginlega heimildar-
mynd um galdra og ofsóknir á
miðöldum, mjög sérstök mynd
sem hressir gríðarlega.“
Barði hafði aldrei séð myndina
þegar menningarbíóið Forum des
images í París leitaði til hans um
að semja tónlist við hana.
„Mér voru boðnar nokkrar
myndir til að semja músík við og
valdi þessa mynd. Síðan var þetta
flutt í París síðasta sumar með
tveimur fiðlum, gítar og slag-
verki.“
Nú hefur þessi tónlist verið út-
sett fyrir Sinfóníuhljómsveit og
fékk Barði þar Þóri Baldursson
sér til aðstoðar. Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands ætlar að frumflytja
tónlistina í Háskólabíói á laugar-
daginn kemur meðan þessi magn-
aða mynd líður yfir tjaldið.
Þessi viðburður er liður í dag-
skrá Vetrarhátíðar í Reykjavík,
sem hefst á fimmtudaginn og
stendur fram á sunnudag.
Í ár er upp á nýjungum á borð
við Safnanótt, sem verður á laugar-
dagskvöldið. Þá verða nánast öll
söfn í borginni opin til miðnættis og
bjóða fólki að ganga í bæinn endur-
gjaldslaust. Ókeypis strætóferðir
verða einnig á milli safnanna.
Þá mætir Vesturfarasetrið í
bæinn með sýningu í Tjarnarsal
Ráðhússins og dagksrá á hverjum
degi. Á laugardeginum kemur til
dæmis Böðvar Guðmundsson rit-
höfundur og segir frá vesturfara-
sögum sínum auk þess sem leikar-
ar frá Leikfélagi Reykjavíkur
flytja brot úr Híbýli vindanna. ■
Galdrar fram nornamúsík
FJANDINN SJÁLFUR AÐ VERKI Barði í Bang Gang hefur samið tónlist við magnaða
nornamynd frá árinu 1922. Sinfóníuhljómsveitin frumflytur þetta verk á Vetrarhátíð um
næstu helgi.
ERNST S. OLSEN: HÆTTUR SEM FRAMKVÆMDASTJÓRI VESTNORRÆNA RÁÐSINS
Gefur út bækur
í Færeyjum
... fá Stuðmenn fyrir að leggja
land undir fót og troða upp í
Royal Albert Hall.
HRÓSIÐ
Lárétt: 2mark,6kg,8tól,9jól,11
mó,12ámóta,14amaði,16æð,17
kul,18tif, 20rl,21tros.
Lóðrétt: 1skjá,3at,4rómaður, 5kló,
7gómaðir,10lóm,13tak,15illi,16
ætt, 19 fo.
„Ég fer aftur til Færeyja núna að
vinna í mínu eigin fyrirtæki við
að gefa út bækur,“ segir Ernst S.
Olsen, sem gegnt hefur stöðu
framkvæmdastjóra Vestnor-
ræna ráðsins undanfarin fjögur
ár. Hann er að láta af þeirri stöðu
núna um miðjan febrúar.
Margir muna eftir Ernst frá
því hann fór á kostum í hlutverki
Færeyings í auglýsingum fyrir
Dominos pizzur. Hlutverkið
vafðist ekki fyrir honum, þar
sem hann er sjálfur Færeyingur
og með húmorinn í lagi.
Skrifstofa ráðsins er staðsett í
Reykjavík þannig að Ernst hefur
búið hér frá því árið 2000 en er
nú á leið til Færeyja þar sem
hann rekur bókaútgáfu. Stærsta
verkefni þeirrar bókaútgáfu er
færeyska skipaalmanakið, en
auk þess gefur fyrirtækið út
ýmsar bækur sem tengjast við-
skiptum.
„Fyrsta verkefnið verður
samt rit sem gefið er út í tilefni
af hundrað ára afmæli færeyska
símans,“ segir Ernst. „Svo ætla
ég líka út á bát að fiska. Ég hef
saknað þess mikið.“
Hann segist staðráðinn í að
koma aftur tíl Íslands þegar
tækifæri gefst.
„Þetta hefur verið góður tími.
Það er alltaf gott að koma aftur
þegar maður þekkir landið og
þekkir fólk. Landið er stórt og
hér er mikið sem ég á eftir að
upplifa.“
Sá sem tekur við af Ernst
sem framkvæmdastjóri Vest-
norræna ráðsins er Þórður
Þórar insson ,
s t j ó r n m á l a -
fræðingur sem
undanfarið hef-
ur starfað hjá
u p p l ý s i n g a d e i l d
Norðurlandaráðs.
Vestnorræna ráðið er sam-
starfsvettvangur íslenska, fær-
eyska og grænlenska þingsins og
eiga sex þingmenn frá hverju
landi sæti í ráðinu.
gudsteinn@frettabladid.is
ERNST S. OLSEN Auglýsti
pitsur fyrir Dominos en er á
leiðinni aftur til Færeyja þar
sem hann gefur út bækur og
bregður sér á sjóinn.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT