Fréttablaðið - 13.02.2005, Síða 47
SUNNUDAGUR 13. febrúar 2005 23
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Aldrei fleiri
áfangastaðir!
Netverðdæmi
Verð frá 47.066 kr.*
Costa del Sol
57.438 kr. ef 2 ferðast saman.
á Santa Clara í 7 nætur.
*á mann m.v. að 2 fullorðnir
og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting, 10.000 kr.
bókunarafsláttur og flugvallarskattar.
á Skala í 7 nætur.
á Elimar í 7 nætur.
á Halley í 7 nætur.
Verð frá 49.400 kr.*
Krít
60.100 kr. ef 2 ferðast saman.
Verð frá 39.500 kr.*
Portúgal
54.200 kr. ef 2 ferðast saman.
Verð frá 38.730 kr.*
Mallorca
47.730 kr. ef 2 ferðast saman.
Verð frá 34.230 kr.*
Benidorm
46.300 kr. ef 2 ferðast saman.
Sumar
Plús 2005
Magnús Ólafsson skemmtikraftur
er kominn af stað með nýja
skemmtidagskrá með engan
annan en hinn gamalkunna Bjössa
bollu í aðalhlutverki. Einnig koma
þar fram persónur á borð við
Elvis the Pelvis, Gvend dúllara og
Prins Póló.
Með Magnúsi í för er hljóm-
sveitin Í gegnum tíðina með söng-
konuna Ester Ágústu Guðmunds-
dóttur úr Idol, Guðmund Símonar-
son og Sigurð Hafsteinsson.
Magnús segist hafa ákveðið að
fara af stað með skemmtunina
eftir að hann kom fram í afmæli
söngvarans ástsæla Ragga Bjarna
fyrir áramót. Þá hafi bakterían
kviknað á nýjan leik eftir að
Bjössi bolla hafði legið í tíu til
fimmtán ára dvala. Einnig sé hann
sjálfur miklu léttari og frískari en
hann var áður.
Magnús gaf út plötu fyrir síð-
ustu jól með gömlu efni og stefnir
á ný lög fyrir næsta sumar, jafn-
vel aðra plötu. Hann segir að
Bjössi eigi enn sinn stað í hjörtum
landsmanna. „Diskurinn féll í
mjög góðan jarðveg og Bjössi
bolla virðist alltaf eiga heima hjá
litla fólkinu. Annars finnst mér
börn nú til dags vera orðin feitari
en áður og Bjössi predikar svo-
lítið um það að börnin eigi að vera
í íþróttum og hreyfa sig sem mest.
Ekki sitja bara fyrir framan
tölvurnar.“ ■
BJÖSSI BOLLA Bjössi bolla er kominn af stað á nýjan leik til að skemmta landsmönnum
eftir að hafa legið í dvala í langan tíma.
Bakterían kviknaði í afmæli Ragga Bjarna