Tíminn - 23.03.1975, Síða 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 23. marz 1975.
Sunnudagur 23. marz 1975
Vatnsberinn: (20. jaa-18. febr.)
Þessi dagur er ákaflega heppilegur til hvers
^ konar trúarlegra hugleiðinga, og kirkjuganga
sjálfsögð i dag. Það kann að vera, að einmitt i
dag rætist það, sem þú hefur verið að vonazt eft-
ir, og það svolitið einkennilega.
íh
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Einhvers konar viðskipti, brask eða brall er
ofarlega á teningnum i dag, og þú skalt ekki
halda, að allir séu þér sammála. Þú færð að taka
á honum stóra þinum, hvað snertir þolinmæði og
umburðarlyndi.
Hrúturinn. (21. marz-19. april)
Ýmsir möguleikar eru á sveimi, — og þú ert vis
með aö gripa einhvern þeirra. Nýjar leiðir eru
afskaplega heppilegar, og farsælli en þig órar
fyrir. Flutningar eða umrót gætu líka sett sinn
svip á daginn.
Nautið: (20. april-20. mai)
Ef einhver sýnir þér leiðindi, væri fráleitt aö
beita framkomunni gagnvart honum, þvi að þá
værir þú ekkert betri sjálfur. Hins vegar gæti
ýmislegt snúizt þér i haginn, ef þú létir mótlæti
ekkert á þig fá i dag.
Tviburamerkið: (21. maí-20. júni)
Þetta er rétti dagurinn til aö leiðrétta mis-
skilning og einhver leiðindi, sem orðið hafa á
milli þin og kunningjanna. Svo eru fjármálin
eitthvað I rusii, og þyrftu endurskipulagningar
viö. Notaðu daginn til þess.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Þú ert ekki nógu samvinnuþýður i ákveðnu máli.
Þetta mál er það mikilvægt, að þessi stifni þin
gæti eyðilagt það, og það er mikilvægara en þú
heldur. Þetta er góöur dagur hjá þér. Eyði-
leggðu hann ekki með klaufsku.
Ljónið: (23. júIi-23. ágúst)
1 dag skaltu taka lifinu með ró að svo miklu leyti,
sem þú mögulega getur komið þvi við. Þú skalt
umfram allt forðast að taka mikilvægar ákvarð-
anir, — og i dag gildir það alveg sérstaklega að
taka tillit til annarra.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept)
Þú skalt hafa augu og eyru opin i dag, þvi aö það
litur út fyrir að á fjörur þinar reki vitneskja, er
þú gætir haft gagn af. Hérna gæti verið um að
ræða fjárhagslegt happ, — að likindum i sam-
bandi við kynni af einhverjum.
Vogin: (23. sept-22. oktj
Þú hefur verið að bralla eitthvað upp á siðkastið,
og i dag er einmitt rétti dagurinn til að láta til
skarar skriöa með að koma þvi i framkvæmd.
Þú skalt ekki kippa þér upp viö það þótt ein-
hverjir séu mótfallnir þessu i' bifi'.
Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
Það er ekki óliklegt, að þessi dagur beri i skauti
sér einhvern fjárhagslegan hagnað þér til
handa, ef þú ert i félagi við einhvern. En i þessu
sambandi skaltu hafa það hugfast, að það er
erfitt a^/gera fólki til hæfis.
Bogrdaðurinn: (22. nóv-21. des.)
Þér iWfur verið trúað fyrir leyndarmáli, sem þú
skalt Varðveita. Það kemur þér sjálfum i koll, ef
þú ferð að blaðra frá þvi, og þú mátt alls ekki við
þvi núna, ekki gagnvart þeim, sem sagði þér
þetta.
Steingeitin: (22. des.-19. janj.
Eitthvaö gerist I dag, ef til vill ekkert stórvægi-
legt, að þér finnst, en engu aö siður litur út fyrir,
að þaö hafi þó talsverð áhrif I framtiðinni. Það
litur út fyrir að vera i sambandi við eitthvert
samkvæmi.
Tíminn er
peningar
Borgarspítalinn:
Nýtt matardreifikerfi
sparar matarhrdefni um 20%
gébé-Reykjavik — Borgarsjúkra-
húsið hefur nú tekið I notkun nýtt
matardreifikerfi, svokallað
„bakkakerfi”, sem ekki aðeins
sparar matarhráefni um a.m.k.
20%, heldur er maturinn mjög
skemmtilega framleiddur og
mikil hagræðing skapast á
sjúkradeildum og tekur nú ekki
lengri tima en 10 mínútur að
koma inat tii um þrjátiu sjúklinga
á einni sjúkradeild, i stað um
klukkustundar áður.
— Bakkarnir eru einangraðir,
sagði Geir Þórðarson yfirmat-
sveinn, þannig að auðvelt er að
hafa bæði heitan og kaldan mat,
t.d. heitan kjötrétt og is i næsta
hólfi, og helzt maturinn þannig i
allt að tveim timum. Matreitt er
fyrir 220-230 sjúklinga á bökkum
þessum, en hver sjúklingur á sitt
spjald sem er á bakkanum, með
upplýsingum um hvaða mataræði
hann eigi að fá.
Frá eldhúsi Borgarspitalans er
einnig fluttur matur til tveggja
sjúkrastofnana, Hvitabandsins og
Grensásdeildar. Sá búnaður sem
hefur verið notaður til þess, er
greinilega mikið vinnuaflsfrekari
en „Bakkakerfið”. Starfsemi eld-
hússins skiptist i fjóra hluta,
„bakkakerfið”, aðal-eldhús, diet-
eldhús og borðstofan fyrir starfs-
fólkið.
Það var sl. haust að matar-
dreifingarkerfi þetta var kynnt
frá bandarisku fyrirtæki, Temp-
Rite Int. Tilraun var gerð á einni
deild spitalans og urðu niðurstöð-
ur hennar þær, að ákveðið var að
taka kerfið i notkun á öllu sjúkra-
húsinu. Gerður hefur verið samn-
ingur við fyrirtækið til 2ja ára um
leigu á búnaði, tæknilegri aðstoö
og rekstrarvöru.
I staðinn fyrir að áður var mat-
urinn skammtaður á göngum
sjúkradeildanna, er hann nú sett-
ur á bakka i eldhúsi, en eins og
áður segir eru bakkarnir einangr-
Anna Edda Ásgeirsdóttir, diet-
sérfræðingur, er forstöðukona
diet-eldhússins. Hér sýnir hún tvo
matarbakka, seni eru á færiband-
inu i eldhúsinu, en þar er matur-
inn látinn á bakkana.
Timamynd: Gunnar
aðir og eru i hólfum þeirra plast-
skálar, sem brennt er að lokinni
máltið, Dregur kerfi þetta þvi
mjög úr uppþvotti. Bakkarnir eru
svo fluttir á stórum vögnum á
sjúkradeildirnar, og þar sem
hver bakki er merktur með nafni
sjúklings, tekur ekki nema um tiu
minútur að koma matnum til
sjúklinganna á hverri deild.
1 sjúkrahúsi, sem hefur vel
uppbyggt „diet fæði”, eins og
Borgarspitalinn hefur, er það
beinlinis forsenda fyrir þvi að
„diet fæðið” komist örugglega til
skila til sjúklings, að matardreif-
ing á diska og merking fari fram
á matreiðslustað.
Borgarsjúkrahúsið mun þriðja
sjúkrahúsið sem tekur upp þetta
matardreifingarkerfi hér á landi,
en hin eru Landspitalinn i
Reykjavik og sjúkrahúsið LVest-
mannaeyjum.
DOMUS
Til fermingargjafa:
A Ronson hárþurkur — Rafmagnsrakvélar
— Ferðaútvörp — Vekjaraklukkur
— Ferðaútbúnaður — Töfl og taflborð
— Náttföt — Greiðslusloppar
— Leðurjakkar — Leðurlíkisjakkar
— Speglar á veggi og borð • — o.m.fl.
SÍAAI 2-21-10
KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNIS