Tíminn - 23.03.1975, Síða 8
r. 8
v mmuN
Sunnudagur 23. marz 1975.
Heimilisdýrin okkar heimilisdýrin okkar heimilisdýrin okkar heimilisd
SUMIR
DÁ ÞÁ,
AÐRA
HRYLUR
Hamstrar borða sumir hverjir hnetur, og hér
eru nokkrir þeirra einmitt aft gæfta sér á þeirri
fæftutegund, og hjá þeim stendur iltil, hvit mús.
Sumu fólki þykir gaman aft eiga hvitar mýs, en
þeirra er ekki getiö i þessari grein.
ÞEIM!
Hamstrar og naggrísir
eru eftirlæti margra
barnd, og reyndar
fullorðinna
líka
Hugmyndir fólks um húsdýr
efta gæludýr eru ótrúiega mis-
jafnar. Snerting er eigendum
dýranna oft mikilvæg, og þá er
varla hægt aft tala um skjaldbök-
ur eöa skrautfiska, heimiiisdýrin,
sem við höfum verið aft fjalla um
undanfarnar helgar. Þaft fær
enginn glefti af þvi aft snerta
skjaldbökuna, og fiskarnir eru
heldur ekki snertanlegir. Til eru
heimilisdýr, sem suma hryllir
vift, en aftrir dásama, og hand-
fjatla, án þess aft minnsti hrollur
fari um þá, þvert á móti, þeir
njóta þess aft kjá i dýrin. Eigum
vift þar vift hamstra og naggrisi,
og jafnvel mýs og rottur.
Hamstrar eru mjög vinsælir
meftal barna og jafnvel fullorft-
inna. Þeir eru alla jafnan til hjá
þeim, sem annast sölu á fuglum
og fiskum, og það sem meira er,
þeir eru ekki sérlega dýrir, kosta
aöeins 250 krónur. Hins vegar eru
naggrisir, sem fást á sömu stöð-
um, mun dýrari, þvi aö þeir kosta
1800 krónur. Naggrúsirnir eða
marsvinin, eins og þeir eru lika
kallaðir lifa lika helmingi lengur
en hamstrarnir, svo ef til vill er
meira borgandi fyrir þá.
Gullhamsturinn er brúnn á
hrygg og hliðum, en hvitur að
neðan. Eyrun eru dekkri og aug-
un stór og svört. Halinn er stutt-
ur. Þegar dýrin eru fullvaxin geta
þau verið 15-18 cm. löng, og vega
þá 150 til 180 gr. Kvendýrin
eru heldur stærri en karldýrin.
Til eru hvitir hamstrar, og
reyndar lika mismunandi brúnir
og flekkóttir, og hafa þeir orðið til
við markvissa blöndun þeirra
sem rækta dýrin. Hviti hamstur-
inn, albinóinn kom fyrst fram i
Bandarikjunum árið 1952.
Einn hamstur i einu
Hamsturinn er ekki félagslynt
dýr. Þrátt fyrir það getur hann
orðið gæfur og vinalegur, ef fólk
fær hann mjög ungan og leggur
sig fram um að temja hann.
Hamstrar eiga af sömu
ástæðum ekki gott með að vera
margir saman i búri. Kvendýrin
eru venjulega illvigari en karl-
dýrin, og ráðast gjarnan á þau,
nema þá-rétt um fengitimann. Af
þessu leiðir, að bezt er að hafa að-
eins eitt dýr i búri. Þetta á þó ekki
við um ung dýr, eða unga. Þeir
geta verið saman þar til þeir eru
orðnir svona 3ja mánaða. Þá er
rétt að skilja þá að, ef ekki á allt
að enda með ósköpum.
Annars eru hamstrar næturdýr.
Þeim er eðlilegt að sofa um daga,
en vaka um nætur. Þess vegna
hefur fólk kannski ekki eins mikla
ánægju af þeim eins og sumum
öðrum dýrum, sem vaka þegar
aðrir á heimilinu vaka.
Heimilisdýrin okkar heimilisdýrin okkar heimilsdýrin okkar heimilisd