Tíminn - 23.03.1975, Qupperneq 11
Sunnudagiir 23. marz 'láfs'.
'nMmN''
n
/ /
Sr. Guðmundur Oskar Olafsson:
Fórnarvika á föstu
Svo segir i fornum húsgangi:
„Minnka tekur mjólkin hvit /
mæt nú þykir blanda / kort er gef-
ið / könnur tómar standa”. Sú var
tiðin i landi okkar, að smátt var
til að skammta og könnur stóðu
tómar. Slikur timi er ekki lengra
að baki en svo, að flest roskið fólk
man sagnir foreldra af kröppum
kjörum og skorti. Vist er ei ýkja
langt liðið, þá er kveðið var eða
hugsað á þessa leið: „örvasa er
tsland / af ósköpum háð.” Já, það
var ekki aðeins fyrir mörgum
öldum, sem ljóðað var um
bjargarleysi hér okkar á meðal.
Kannski var einhver að orða slikt
i gær, án þess við veittum nána
eftirtekt. Þannig var sagt hér
bara fyrir fáeinum árum: „Ég
var soltinn og klæðlaus og sjúkur
af langvinnum skorti, — en þið
sáuð mig ekki fremur en rykið á
götunni. — Og ég hro'paði á mis-
kunn, á hjálp, — eins og drukkn-
andi maður — en þið heyrðuð það
ekki — og genguð brosandi fram
hjá”.
Sem betur fer megum við trú-
lega treysta þvi að afar fáir séu
nú illa haldnir hvað fæði og klæði
varðar á Islandi, svo vel hefur nú
árað og gefizt um drjúgan veg.
Meira að segja, þegar hin mestu
óhöpp eru frá talin, hefur þjóðin
rétt hendi til fjarlægra staða,
miðlað myndarlega, og er
skammt að minnast sliks. Það
verður enda ekki ofmælt, að hin
frjálsu félög i landinu hafa unnið,
og vinna verulega vel, að mann-
úðar- og liknarmálum á ýmsan
veg, en slikt gerist ekki nema af
þvi að fólkið almennt er ekki
þeirrar gerðar að geta séð bág-
indi og þrengsli við grannans dyr,
án þess að leggja lið. Hitt er ann-
að, að samstillt átak þarf, þegar
beina skal hjálp þangað sem mest
er aðkallandi hverju sinni, og
ekki liggur heldur ætið ljóst fyrir
fjöldans augum, hvar brýnast er
að bæta úr, og þá er gjarnan þörf
á hvatningu og ábendingum á-
kveðinna aðila.
Ýmsir (aðilar) hafa verið i for-
svari hér á landi, þegar safnað
hefur verið gjafafé til margvis-
legra góðra málefna, eða aðstoð-
ar i einhverri mynd. Er vart á
nokkurn hallað, þótt sagt sé, að
mest hafi þar verið að unnið undir
krossins merki, og á ég þar við
tvo aðila einkanlega, þ.e. Rauða
krossinn og i annan staö það fólk,
sem hefur safnað I söfnuðum og
sóknarkirkjum landsins fyrir alls
kyns hjálparstarf, svo lengi sem
muna má. Það eru nú aðeins fáein
ár siðan sú hugmynd varð að
veruleika að samhæfa og útvikka
þennan þátt I eðlilegri starfsemi
safnaðanna, sem timanleg aðstoð
við liðandi meðbræður hlýtur að
vera.
Undir forystu núverandi bisk-
ups var komið á fót miðstöö,
er hlaut nafnið Hjálparstofnun
kirkjunnar. Tvennt má segja að
hafi átt mikinn þátt i að þetta var
gert. 1 fyrsta lagi þótti eðlilegt og
nauðsynlegt, og liklegt til betra
árangurs en ella að stjórnun al-
mennra safnana, og leiðbeiningar
þar að lútandi, væri á einum stað.
Og i öðru lagi væri hægara á
þennan veg að beina sameigin-
legum kröftum að ákveðnum inn-
lendum og erlendum verkefnum
ekki sizt með tilliti til svonefndrar
þróunarhjálpar, sem og þegar
miklir og válegir atburðir gerðust
innanlands eða utan.
Fyrrnefnd stofnun hefur nú, að
ég ætla, á stuttum tima sannað
tilverurétt sinn. Verulegir
fjármunir hafa borizt til hennar
viðsvegar að og hver eyrir skilast
til fullra nota, bæði hér heima og
erlendis. Þess má geta, að liðlega
-16 milljónir voru greiddar á sl. ári
til hjálpar hungruðum, klæðlaus-
um og holdsveikum i ýmsum
löndum og er þá ótalið fé til
margvislegrar aðstoðar á fjöl-
mörgum stöðum hér innanlands.
Sjá má af þessu þann velvilja og
fúsleika, sem landsmenn sýna
téðum málum. Ekki ætla ég að
segja, að þetta beri að þakka, —
þökkin er fólgin i þeirri kennd,
sem sérhver og einn finnur til yfir
þvi að hafa eitthvað til að miðla
og geta I nokkru sýnt samkennd i
verki, þar sem tómar könnur
SIGLFIRÐINGAFELAGIÐ
Árshátíó
félagsins verður haldin i Súlnasal Hótel Sögu
miðvikudaginn 26. marz n.k.
Fjölbreytt skemmtiatriði
Miðasala i Tösku og Hanzkabúðinni, Skóla-
vörðustig 7. Simi 15814.
Siglfirðingar fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Stjórnin
f
Eg vil vera með
( hinum nýja Bókaklúbbi AB. Vinsamlega skrdið nafn mitt á
félagskró Bókaklúbbs AB og sendið mér jafnframt Fréttabréf
AB og aðrar upplýsingar um bækur á Bókaklúbbsverði.
nafn
nafnnúmer
heimilisfang
AuglýsicT
í Timanum
standa og minria en kort er gefið.
En er þá um allt vel i þessum
málum? Svo er sizt. Þvi er ekki
að neita, að mest af þvi fé, sem
rennur til hjálparstofnunarinnar,
það kemur þegar býsn ganga á,
þegar slikar hamfarir geisa ein-
hvers staðar, að fjölmiðlar hafa i
hámæli. En svo skipast mál viða,
;iafnvel við bæjardyr okkar, án
þess að við veitum þvi athygli, að
hrópað er i leynum á miskunn og
hjálp —- eða eins og f kvæðinu,
sem ég áður vitnaði i „en þið
heyrðuð það ekki og genguð bros-
andi fram hjá.” Og úti i hinum
stóra heimi er kvölin viðvarandi
viða og svo skelfileg, að þvi ná
engin orð.
Þegar fregnirnar skella á hlust-
um og sjón, frá hungurstrætum
og sprengjuvöllum, hvort eigum
við þá að segja sem svo: Hvað
angrar mig þetta ókunna lif/sem
atvikin slógu i hel - - eða: Mig
varðar og snertir hver örlög þess
eru, þvi það er minum örlögum
ofið, lif sem er fram sprottið, úr
sömu hendi og mitt eigið.
Að visu er misskipting gæðanna
pólitiskt mál, og einstaklingar
munu aldrei leysa það með
ölmusugjöfum eða ómagastyrkj-
um á fornan máta. En slik vit-
neskja firrir okkur ekki þeirri
skyldu að reyna aö gera það sem i
okkar valdi stendur til að rétta
fram hendi, þegar við höfum nú
einu sinni fulla lófana. Þvi jafnvel
þótt við lifum það sem við köllum
erfiða tima i landinu okkar sem
stendur, þá eru það gnægtatimar
mælt á kvarða þeirra, sem ekkert
hafa. Og máski gildir það um flest
okkar á einhvern hátt, það sem
Oscar Wilde sagði eitt sinn: „Að
það eina sem við getum ekki án
verið er munaðurinn.” Okkur
hefur verið kennt það, að jörðin
og gæði hennar væru sameign
manna, og visast játa það flestir,
án tillits til stjórnmála eðá trúar-
skoðana. Hitt er annað, hversu
djúpt þessi játun ristir, þegar til
kastanna kemur og nálægt hags-
munum hvers og eins er höggvið.
En sé kristinni viðmiðun beitt,
sannri kristinni viðmiðun, þá ætti
engum, er á þann veg skoðar, að
liða ákjósanlega á meðan hann
veit bróður sinn i sárri raun og
kröm f jarri eða nærri, þvi allt um
allt þá er ekki fólk, sem þjáist,
bara ryk á veginum, heldur lif,
sköpun Guðs með sama rétti og
sömu kröfu og þú og ég til að
komast af.
Við tslendingar höfum litið get-
að sinnt þróunarhjálp, þvi miður,
og á vegum hjálparstofnunar
kirkjunnar hefur sliku skammt
miðað, — til þess skortir fasta
tekjustofna, enn sem komið er.
Sömu sögu er að segja með fyrstu
hjálp til einstaklinga, hér heima,
sem verða fyrir áföllum á ein-
hvern máta. Fastir sjóðir eru rýr-
ir, sem veita má úr. Það er ósk
þeirra, og von, sem að stofnuninni
standa, að von bráðar muni
margur fara að senda mánaðar-
lega eða árlega einhvern
smáskatt af miklum eða litlum
tekjum sinum, svo byggja megi á
fasta sjóði. Benda má á, að ein
stétt hefur um árabil gefið 1% af
launum sinum til H.K. Smá upp-
hæð er ekki þeirri stóru siðri, þvi
eyrir ekkjunnar er enn i fullu
gildi. Það er ekki magnið, sem
máli skiptir ætið, heldur hvaða
mannsmynd er á okkur og hvað
hjartalagið segir okkur að beri að
gera.
Það er nú orðin föst venja i
starfi H.K. að höfða til almenn-
ings á föstunni. Ein vika nefnist
þá fórnarvika. Slikur timi fer nú i
hönd. Frá sunnudeginum 16.
marz i sjö daga mun fólk hvatt til
að huga að þeim, sem tómhentir
eru á einhvern máta. Vist á kirkj-
an blakkan slóða I mörgu tilliti,
en hún á einnig bjart að baki, þar
sem hún hafði forystu i mannúð
og mildi i nafni herra sins. Hverju
hún áorkar nú, eru sögu framtið-
ar að skera úr um. 1 kristnu landi
erum við öll ábyrg og þátttakend-
ur i þvi, sem kirkjan er að gera
eða lætur ógert. Hvert er þá eðli
þeirrar fórnarviku, sem nú hefst?
Að vekja fólk til umhugsunar um
skyldu sina við bjargarvana ná-
unga, þá skyldu að ganga ekki
brosandi framhjá, heldur hlúa að.
Föstutiminn minnir á hina mestu
fórn, frelsarans leið, en á fórnar-
viku er spurt, hver sé fórn hins
einstaka kristna manns. Er hún
of stór, ef hún ar afgangsbiti, eða
verðmæti einhverrar munaðar-
vöru, bióferðar eða bensinlitra
einn dag?
Þú sérð gjarna myndir á
skerminum þínum eða blaðinu
frá hörmungum meðal þjóða.
Myndirnar segja frá þvi, að bróð-
ir er ekki bróðir, og þvi mega
akrarnir skrælna i breiskjunni,
munnarnir þorna og maginn
bólgna i litlu barni, af þvi að sam-
takamáttur, þar sem kynnt er
undir illum verkum, er mikill, en
máttur samtaka um græðslu og
frið er ofurliði borinn. Fórnarvik-
an er af kirkjunnar hálfu hugsuð
til að minna okkur á að hugsa
stöðugt út fyrir bæjarlækinn og
leggja þvi einhuga og raunhæft
lið, sem horfir til blessunar fyrir
þá, sem eru á einhvern hátt
negldir undir hæl og geta enga
björg sér veitt.
Meðfram fjársöfnun til þeirra
óbrotlegu verkefna, sem biða, þá
er og eðli og tilgangur nefndrar
viku i þetta sinn að bregða upp
fyrir almenningssjónir, i máli og
myndum, þeirri starfsemi til að-
stoðar erlendis, er á rót sina að
rekja til fórnarþels íslendinga.
Mun þessarar kynningar væntan-
lega gæta i fjölmiðlum á næst-
unni. Það sýnist kannski ein-
hverjum úrhættis að hvetja til
fjárstyrkja við slik mál úr vasa
almennings, þegar svo horfir sem
raun ber i fjármálum þjóðarinn-
ar. En þeir minnast þess, er að
standa, að aldrei hefur liknarlund
i raun einasta verið i réttu hlut-
falli við pyngjunnar þyngd, né
heldur talið liklegt, að lánleysi
fylgdi þvi að hlynna að litil-
magnanum, þótt smjör drypi
ekki af hverju strái. Þvi skal þess
vegna treyst, að sem flestir veiti
fórnarvikunni athygli I þetta sinn,
sem endranær, og jafnvel þótt
ekki sé um að ræða kjötbindindi á
föstu að fornum sið, þá geti
kannski nokkur hollusta veriö i
þvi fólgin, jafnvel þótt hún sjáist
ekki á likamanum, að halda I við
sig hvað varðar óþarfa munnfylli
ofurlitla stund, ef sú föstufórn
mætti verða til að kveikja þó ekki
væri nema eitt vonarbros á
barnsandliti i fjarlægri álfu. Eða
munum við ekki ennþá öll þessi
orð: Svo framarlega, sem þér
hafið gjört þetta einum þessara
minna minnstu bræöra, þá hafið
þér gjört mér það.
® SHDDR tfOLS
5-MANNA, FJOGURRA DYRA. VÉL 62 HESTÖFL.
BENSlNEYÐSLA 8.5 LÍTRAR Á 100 KM.
FJÖGURRA HRAÐA ALSAMHÆFÐUR GÍRKASSI.
GÓLFSKIPTING. VIÐBRAGÐ 18.5 SEK. í 100 KM. Á KLST
VERÐ MEÐ SÖLUSKATTI KR. 619.000,00
VERÐ TIL ÖRYRKJA KR. 449.000,00
TEKKNESKA B/FRE/ÐAUMBOD/Ð A /SLAND/ H/E
AUÐBREKKU 44-46 — SlMI 42600