Tíminn - 23.03.1975, Page 24
24
TÍMINN
Sunnudagur 23. marz 1975.
,,Ertu ekki að gera að gamni þínu?"
„Nei".
Nokkrum dögum síðar var Lydía stödd hjá Katrínu.
„Og nú hefur Einar skipt um nafn", sagði hún „Skipt
um nafn?" sagði Katrín og skildi ekki hvað grannkona
hennar átti við.
„Já. Veiztu það ekki? Ég las það i „Álandstíðindun-
um" í dag.
„Því trúi ég ekki".
„Jæja þá. Hvar er blaðið? Já, þarna á dragkist-
unni...á öftustu síðunni var það..við skulum sjá....
hér er auglýsingin: „Tilkynning.Nafn mitt, sem hingað
til hefur verið Einar Jóhannsson, verður eftirleiðis
Einar Norðmann. Þórsey hinn...... Einar Norðmann
skipstjóri". Þarna sérðu það svart á hvítu, Katrin. Norð-
mann er líka voðalega fint nafn".
Katrín svaraði engu. Hún tók blaðið og las tilkynning-
una. Lydía sá, að henni gazt ekki að þessu, og hún talaði
ekki meira um það. Henni sárnar auðvitað, að hann skuli
ekki haf a ráðgazt við hana um naf nbreytinguna, hugsaði
hún. En það var annað og meira, sem hryggði Katrínu.
Hún sá, að nú var Einar að reyna sð slíta síðustu tengslin
við æskuheimilið. Nafnið fylgdi, hafði hann sagt. Ó,
góður guð! Var hún búin að missa öll börnin sín?
Bernska Gretu
í hinu nýja skrauthúsi Sögu var oftast þögult og ein-
manalegt. Maður hennar var aldrei heima nema um
stundarsakir og hvarf jafnan frá þeirri fyrirætlun sinni
að setjast um kyrrt fyrir fullt og allt. Dunandi hlátrar
Sögu voru hljóðnaðir, og enda þótt hún væri aðeins rúm-
lega tvítug, forðaðist hún félagsskap unga fólksins.
Stöku sinnum bar þó við, einkum í samkvæmum og veizl-
um, þar sem jafnvel roskið fólk hætti sér út á dansfólkið,
að hún spratt allt í einu upp og dálítið af fornu f jöri virt-
ist færast í hana. En það dvínaði nær jafnskjótt, og þá
dró hún sig í hlé með þreytulegum svip, eins og hún væri
vaxin upp úr svona barnaskap.
Það var hin unga dóttir Gústafs ein, sem gat glætt yl í
brúnum, þunglyndislegum augum hennar.
Saga og Grefa voru orðnar miklir mátar, enda dekraði
þessi einmana kona á allan hátt við litla órabelginn. Hún
mátti átölulaust gera það, sem henni sýndíst í húsi
hennar, — toga í pálmana, brjóta skrautker og rissa með
blýant á borðdúkana. Hún var aðeins kysst á vangann, og
það var öll hegningin. Saga hafði breytt einni stof unni í
leikherbergi handa telpunni, og þar voru öll þau
leikföng, sem komungsdóttir hefði getað óskað sér.
Óvild Katrínar í garð Sögu hafði fyrst breytzt í með-
aumkun og síðan innilega samúð. Nú orðið kom hún oft
til hennar, og þær trúðu hvor annarri fyrir ýmsu, sem
annars var ekki f líkað. En sérstaklega var þó Greta litla
og allt, sem henni viðvék, sameiginlegt áhugamál
beggja. En fortíðina, — öll samskipti þeirra Gústafs og
Sögu, — létu þær iiggja í algeru þagnargildi.
í rauninni sár-vorkenndi Katrín þessari ungu ein-
stæðingskonu. Og þegar fram í sótti, fór hún að bera æ
meiri virðingu fyrir henni. Hún gat ekki umflúið
afleiðingarnar af yfirsjón sinni, en hún bar möglunar-
laust þá byrði, sem lífið hafði lagt henni á herðar,. Og
þótt fegurð hennar fölnaði, þroskaðist hún andlega.
Enginn vissi til þess, að nokkurt styggðaryrði hefði
hrotið milli Sögu og manns hennar. Þau voru meira að
segja óvanalega vingjarnleg hvort við annað í öllu
viðmóti. En þegar Malm var heima, kom alltaf óþreyja
og eirðarleysi yf ir Sögu, og það var eins og einhver ótti
speglaðist í augum hennar, sem annars voru svo mild.
Og Malm kjagaði ennþá meira en áður á daglegum
göngum sínum milli þorpsins og Bátvíkurinnar. Hár
hans var orðið brimhvítt og ellin bygjuð að rista rúnir
sínar á andlitið.
Katrínu fannst, að hún hefði aldrei aumkað nokkurn
mann jaf n mikið og Malm, — ekki einu sinni Jóhann eða
Serafíu. Það var eins og sárar stunur liðu sífellt frá
brjósti hans: „Of seint, of seint!" Vinnudagur hans
hafði verið langur og erf iður og þegar hann kom að vitja
launa sinna, þá voru dyrnar lokaðar. Mikill fáráðlingur
hafði hann verið! Allt var orðið um seina. — Skyldi fara
eins fyrir Einari, hugsaði Katrín. Með hin beisku en þó
spaugilegu örlög Malms í huga bað hún guð sinn þess,
að forða syni sínum frá slíku, hvaða ógæfa svo sem
kynni að verða hans hlutskipti.
Auk Sögu var annar, sem gerði sér dælt við Gretu litlu.
Það var Einar. Hann jós í hana gjöf unum, þrátt fyrir þá
miklu sparsemi, sem hann hafði annars tamið sér. Frá
hverri höfn, sem hann kom í bárust nýjar og nýjar
sendingar. Það voru leikföng, föt, skór og silkikjólar,
sem voru svo fallegir, að Katrín þorði varla að snerta þá
og þaðan af síður skreyta með þeim litla fjörkálfinn,
sem helzt hefði þurft að vera brynjuð f rá hvirlf i til ilja.
Hún klif raði upp í tré og girðingarstaura, özlaði lyng og
Hvað eru Viðviljum jafn-í Meinarðu að þú
réttiávið / viljir jafnrétti
stráka. A á við Hadda?
Þegar þú segir þetta
svona þarf ég að hugsa
mig um betur.
SUNNUDAGUR
23. marz
Pálmasunnudagur
8.00 Morgunandakt. Séra
Sigurður Pálsson vigslu-
biskúp flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfegnir.
8.15 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. tltdráttur úr
forustugreinum dagblað-
anna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir). a. Tilbrigði
11.00 Messa i Háteigskirkju.
Prestur: Séra Arngrimur
Jónsson. Organleikari:
Marteinn Friðriksson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Hafréttarmálin á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna.
Gunnar G. Schram prófess-
or flytur þriðja og síðasta
hádegiserindi sitt: Mengun
hafsins og frelsi til hafrann-
sókna.
14.00 Þórbergur Þórðarson.
Gylfi Gislason tekur saman
þátt úr viðtölum sinum við
Þórberg og Steinþór bróöur
hans. Ennfremur fluttir
kaflar úr ritum Þórbergs.
15.00 Miödegistónleikar: Frá
útvarpinu i Berlin. Flytj-
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Bein lina.
17.25 Létt tónlist frá hollenzka
útvarpinu.
17.40 tJtvarpssaga barnanna:
„Vala” eftir Ragnheiði
Jónsdóttur.Sigrún Guðjóns-
dóttir les (7).
18.00 St.undarkorn með
Stefáni Islandi. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Þekkirðu land?” Jónas
Jónasson stjórnar spurn-
ingaþætti um lönd og lýöi.
Dómari: Ólafur Hansson
prófessor. Þátttakendur:
Pétur Gautur Kristjánsson
og Steingrlmur Bragason.
19.40 John Miiton, maðurinn
og skáldið. Hrafn Gunn-
laugsson flytur erindi.
20.05 Sinfóníuhljómsveit ís-
lands leikur i útvarpssal.
Stjórnendur: Páll P. Páls-
son og Karsten Andersen.
Einleikarar: Einar Jó-
hannesson og Harry Kve-
bæk. a. Forleikur að óper-
unni „Nabucco” eftir Verdi.
b. Klarinettukonsert eftir
Aaron Copland. c. Trompet-
konsert eftir Aratyunajan.
20.45 „Páskabréf” eftir Sol-
veigu von Schoultz. Séra
Sigurjón Guðjónsson þýddi.
Herdís Þorvaldsdóttir leik-
kona les siöari hluta sög-
unnar.
21.25 Fyrri landsleikur ís-
lendinga og Dana I hand-
knattleik. Jón Asgeirsson
lýsir siðari hálfleik i Laug-
ardalshöll.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
Heiöar Ástvaldsson dans-
kennari velur lögin.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
MÁNUDAGUR
24. marz
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7 00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05: Valdimar örnólfsson
leikfimikennari og Magnús
Pétursson pianóleikari.
(a.v.d.v.) Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugr. lands-
málabl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55: Séra
Jón Dalbú Hróbjartsson
flytur (a.v.d.v.). Morgun-
stund barnanna kl. 9.15:
Siguröur Gunnarsson les
þýðingu sina á „Sögunni af
Tóta” eftir Berit Brænne
(19). Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög milli atriða. Búnað-
arþáttur kl. 10.25: Tryggvi
Eiríksson aðstoðarmaður
við tilraunir að Keldum tal-
ar um grasköggla og nýt-
inguþeirra. Islenzkt málkl.
10.40: Endurt. þáttur Jóns
Aðalsteins Jónssonar.
Passiusálmalög' kl. 11.00.
Morguntónleikar kl. 11.20:
Roberto Szidon leikur á