Tíminn - 06.04.1975, Síða 6
6
TIMINN
Sunnudagur 6. apríl 1975.
Teinæringurinn Fortúna.
Ingólfur Davíðsson:
Byggt og búið í
gamla daga
LXVIII
Kirkjubær, prestssetriö 1922.
anna var sami maðurinn
forma&ur á Fortúnu. Sá hét
Sigurður Ólafsson, fæddur að
Hrútafellskoti undir Austur-
Eyjafjöllum 1859. Hann fluttist
búferlum til Vestmannaeyja
eftir aldamót. Þá gerðist hann
einn af útgerðarmönnum
vélbáta þar. Eftir það var hann
lengst af kenndur við ibúðarhús
sitt, Bólstað i Eyjum.
Litum á gamal prestssetrið
Kirkjubæ 1822.
Séra Bjarnhéðinn Guðnason,
sóknarprestur i Vestmannaeyj-
um, deyði 1821. Hér birtist
teikning af prestssetrinu á
Kirkjubæ i Eyjum á prests-
skaparárum séra Bjarnhéðins. 1
þessum bæ bjó hann, og hér dó
hann. Við prestsembættinu tók
þá séra Páll skáldi Jónsson, og
bjó hann i bæ þessum þau 15 ár,
sem hann var prestur i Eyjum.
— Teikningu þessa gerði Óskar
Kárason, byggingarfulltrúi i
Vestmannaeyjum, fyrir Blik
eftir lýsingu á prestssetrinu i
Sögu Vestmannaeyja eftir
Sigfús M. Johnsen. Hér er
einnig sýnd mynd af bændahúsi
i Kirkjubæ urh aldamótið 1900.
Bóndi baukar við bæjardyr sin-
ar.
' Kumbaldi hét þetta hús i
Vestmannaeyjum. Það átti sina
sögu, en það var byggt á siðari
hluta 19. aldarinnar. Kumbaldi
var eitt af verzlunarhúsum
einokunarverzlunarinnar
gömlu. Þarna stóðu þrjú hús,
saltfiskhúsið, „Kaðalhúsið”
(veiðarfæra-,,lagerinn”) og
salthúsið. Segja mátti með
sanni, að Kumbaldi væri byggð-
ur yfir öll þessi hús. Saga
Kumbalda er að þvi leyti mark-
verð, að hann var notaður fyrir
leikstarfsemi á haustin, þegar
saltfiskurinn var fluttur út og
veiðarfærin og saltið að miklu
leyti gengið til þurrðar. í
Kumbalda sýndi Leikfélag
Vestmannaeyja t.d. Fjalla-
Eyvind nokkru fyrir siðustu
aldamót. — Einnig efndu Eyja-
búar oft til dansleikja i húsi
þessu á haustin og fram eftir
vetri, áður en ,,Gúttó” var
byggt, en það kom til nota i
þeim efnum árið 1893 eða þar
um bil.
..Kumbaldi".
Myndir þessar og skýringar
eru, eins og i siðasta þætti,
fengnar hjá Bliki, ársriti Vest-
mannaeyja. Um þær leikur salt-
ur sjávarblær liðins tfma.
Myndirnar i þáttunum Byggt og
búið i gamla daga sýna glöggt
hinar miklu og öru breytingar á
húsakosti og atvinnuháttum
okkar íslendinga. Ungt fólk trú-
irvarlaslnum eigin augum! Nú
skulum við athuga myndirnar:
Fortúna hét þessí teinæring-
ur. Hann var hið mesta happa-
skip. Fortúna var gerð út marga
tugi vertiða, ýmist frá Eyja-
fjallasandi, Landeyjasandi eða
frá Vestmannaeyjum. Oftast
voru það einvörðungu bændur
og búalið frá bæjum i Rangár-
vallasýslu, sem voru skipshafn-
armenn á þessum teinæringi.
Siðustu þrjá tugi útgerðarár-
Kændubús á Kirkjubæ um aldamótin.