Tíminn - 06.04.1975, Blaðsíða 39

Tíminn - 06.04.1975, Blaðsíða 39
Sunnudagur 6. aprfl 1975. TÍMINN 39 Mark Twain: Tumi gerist leyni- lögregla kalt. Þá hvarf öll samúð úr þvi og ég barði i þvi skyni að drepa hann. Á þeirri stundu varð mér hugsað til alls þess ranglætis sem ég hafði orðið fyrir, allar skapraunir, sem Júpiter og þessi þorpari, hann bróðir hans, þarna yfir frá, höfðu valdið mér. Mér varð hugsað til þess, hvernig þeir voru samtaka um að á- mæla mér til að spilla áliti minu meðal fólks hér i sveitinni og sverta hið góða nafn mitt og knýja mig til þess að gera eitthvað, sem mundi eyðileggja mig og fjölskyldu mina, vesalings fjöl- skyldu mina, sem aldrei hafði gert þeim neitt. Allt þetta gerðu þeir einungis af óþokka- skap og hefnigirni — og hvers vegna? Vegna þess að vesa- lings saklausa telpan min, sem situr hér við hlið mér, vildi ekki giftast þessum rika, óbilgjarna, óupplýsta og huglausa þorpara, sem situr þarna neð uppgerð og læzt gráta yfir bróður sinum, sem hann mátti áður hvorki heyra né sjá . . >> Einmitt þegar Silas frændi sagði þetta, sá ég alveg greinilega, að Tumi hreyfði sig og var nú glaðlegur á svipinn. „Á þessari hræði- legu stundu, þegar ÖLFUSHREPPUR: A ATHUGUN A NEYZLUVATNI ALLRA BÝLA í HREPPNUM Gsal-Reykjavik — Eins og fram hefur komið I fréttum Tfmans, hefur orðið vart mengunar I neyzluvatni Þorlákshafnarbúa. Heilbrigðis- og umhverfisnefnd Ölfushrepps varð þess áskynja við athuganir á vatninu ekki alls fyrir löngu, að i þvi voru saur- gerlar. Að sögn Páls Péturssonar, formanns nefndarinnar, hefur verið ákveðið að gcra athugun á neyzluvatni allra sveitabæja i ölfushreppi i maí- og júnimánuði n.k. Mun þetta ver i fyrsta sinn sem neyzluvatn i einum hreppi er tek- ið til gaumgæfilegrar athugunar og vatn hvers býlis rannsakað it- arlega. — Að nokkru leyti er ástæðan fyrir þessari athugun sú, að við viljum gera jafnt viö alla þegna sveitarfélagsins, sagði Páll Pét- ursson. betta verk mun taka tals- vert langan tima, en við viljum kanna ástand neyzluvatnsins, þvi að við höfum rökstuddan grun um, að það sé viða ekki nægilega gott. Forseti Rótarý-samtaka í heimsókn FORSETI alþjóðasambands Rótarý-samtakanna, William R. Robbins, kemur hingað til lands með konu sinni þriðjudaginn eftir páska. Dvaldi hann hér i tvo daga, og kom á sameiginlega fundi sex Rótarý-klúbba á Reykjavikursvæðinu að Hótel Sögu miðvikudagskvöldið 2. april. t alheimssamtökunum eru sextán þúsund Rótarý-klúbbar og félgar um 750 þúsund. Hérlendis eru Rótarý-klúbbar tuttugu og einn og félagar 756. Umdæmisstjóri Rótarý-hreyfingarinnar á tslandi er Valgarð Thoroddsen, rafmagnsveitustjóri rikisins. Myndin er af William R. Robbins. Tankvæðing að hefjast hjó KÞ Innan skamms hefst tankvæðing á félagssvæði Mjólkursamlags Kaupfélags Þingeyinga. Félagið er um þess ar mundir að fá fyrstu sendingu sina af mjólkurkælitönkum, og veröa þeir settir upp og teknir i notkun á næstu vikum og mánuðum. Hér er um að ræða Muellers-kælitanka frá Banda- rikjunum, sem keyptir eru fyrir milligöngu Dráttarvéla hf., sem eru umboðsmenn fyrirtækisins hér á landi. Fleiri hundruð slikir tankar eru nú i notkun á öllum helztu mjólkursvæöum landsins. Auglýsið í Tímanum Hríngið og við sendum blaðið um leið V. ■ i— r*' Kjósarsýsla Framsóknarfélag Kjósarsýsiu efnir til almenns stjórnmáia- fundar I Fólkvangi Kjalarnesi sunnudaginn 13. april kl. 14.00. Frummælandi verður Jón Skaftason alþingismaöur, Kristján B. Þórarinsson fundarstjóri. Allir velkomnir,stjórnin. Aðalfundur miðstjórnar Aðalfundur miöstjórnar Framsóknarflokksins verður haldinn í Reykjavik 18. april næst komandi. Þeir aðalmenn, sem ekki sjá sér fært að mæta eru beönir um aö tilkynna það flokksskrif- stofunni að Rauðarárstig 18, simi 24480. Arnesingar Sumarfagnaöur Framsóknarfélagsins verður haldinn að Borg I Grimsnesi miövikudaginn 23. april (siðasta vetrardag) og hefst kl. 21. Dagskrá auglýst siðar. Skemmtinefnd. Framsóknarvist F.U.F. Hafnarfirði Slöasta kvöldið i þriggja kvölda spilakeppni verður fimmtudag- inn 10. aprll kl. 8.30 I iðnaðarmannasalnum að Linnetsstlg 3. Sérstök kvöldverðlaun. Allir velkomnir. Stjórnin. Framsóknarvist að Hótel Sögu Slöasta spilakvöldið i þriggja kvölda Framsóknarvistinni veröur að Hótel Sögu fimmtudaginn 10. aprll. Nánar auglýst slöar. ^ Framsóknarfélag Reykjavíkur, O Bdtaafli 11.665 lestir af loðnu, en I fyrra var loðnuaflinn þar 24 þúsund lestir. Keflavik Frá 1. janúar til 31. marz höfðu komið á land i Keflavik 5445.5 tonn 1869 sjóferöum. Á sama tima I fyrra var aflinn orðinn 5097 lest- ir I 959 sjóferðum, svo aflinn I ár er mun betri hjá bátunum. Allt er þetta netafiskur og hinn ágætasti, að sögn vigtarmannsins I Kefla- vlk. Fjórir togarar höfðu landað 28 sinnum á sama tima og afli þeirra var 2935 tonn. Efsti báturinn I Keflavik er Valþór með 410 tonn. Sandgerði Frá áramótum til 1. april var aflinn I Sandgerði orðinn 4673 lestir úr 717 sjóferðum. t fyrra var aflinn 4257 lestir I 768 sjóferö- um. Mest er þetta netafiskur og einnig nokkuð úr trolli. Hér er um ágætis fisk að ræða, en þó hefur aflinn veriö nokkuð ufsablandað- ur hjá trollbátunum. Aflahæsti báturinn I Sandgeröi er Bergþór með 812 lestir. Reykjavik Aflamagn báta I Reykjavik fyrstu þrjá mánuði ársins var 2385 lestir I 164 sjóferðum. Fyrri hluta tfmabilsins var einna mest um botnvörpufisk, en þegar á leið fór þeim bátum aö fjölga, sem fiskuðu I net. A sama tlma höföu togarar lagt upp I Reykjavlk sem hér segir; siðutogarar 878 tonn og skuttogarar 5047 lestir, en ekki nær sú aflaskýrsla þó nema til tveggja og hálfs mánaðar, þar sem ekki lágu fyrir tölur um afla skuttogaranna siöari hluta marz- mánaðar. Hellissandur A Hellissandi eru komin á land um fjögur þúsund tonn á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þar er aflahæsti báturinn Skarðsvik með 700 tonn. Þetta er svo aö segja eingöngu netafiskur. ólafsvik Fyrstu þrjá mánuði þessa árs hafa borizt á land i Ólafsvik 5884 lestir af fiski i 928 sjóferðum. Aflahæsti báturinn I Ólafsvik er Garðar með 413 lestir. Allt er þetta netafiskur, og aflamagnið mun vera mjög svipað og i fyrra. o Gamansemi og dæsti mæðulega. „Þetta skilur ekkert barn,” sagði hann, og hafnaði þar með handritinu. Ég var aftur á móti sannfærður um að öll börn á íslandi myndu skilja þetta, og sveitabörn engu siður en þau sem við sjó eiga heima. Hins vegar getur vel veriö aö islenzkir framkvæmdastjórar, og þar á meðal bókaútgefendur, heföu skilið mig betur, ef ég hefði verið að tala um lán úr Fiskveiðasjóði. Að gapa gáfulega — Heldur þú ekki samt áfram að yrkja, hvað sem skilningi á verkum þinum liður? — Jú, alltaf er ég eitthvað að fást við þetta, þegar tómgefst til Þegar eitthvað sækir mjög fast á hugann, er ekki um annaö aö ræða en að setjast niður og böggla einhverju saman, einfaldlega til þess að hafa frið — losna við hugsunina um þetta tiltekna yrk- isefni, þótt auövitað komi annað i heimsókn fyrr eða siðar. Annars hef ég gert mest af þvi i seinni tið að yrkja tækifærisvisur af ákveönum tilefnum, — eöa eng- um tilefnum, ef svo vill verkast. — Viltu ekki lofa mér aö heyra eina? — Jú.þviekki þaö. í skólanum, þar sem ég kenni, eru alltaf haldnir kennarafundir reglulega, en ég geri litið af þvi aö tala á fundum, enda enginn mælsku- maður að eðlisfari. Svo gerðist það eftir einn fundinn, þegar ég hafði auðvitað setið og þagaö, eins og venjulega, á meðan aörir töluöu, að ég orti eftirfarandi vlsu, þegar fundinum var lokiö: Ragur er ég aö rjúfa þögn og reifa mál á fundum, en sjálfsagt gæti ég gapað ögn gáfulegar stundum. — VS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.