Fréttablaðið - 12.03.2005, Page 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
59,19 59,47
113,59 114,15
79,35 79,79
10,66 10,72
9,71 9,77
8,76 8,81
0,57 0,57
91,03 91,57
GENGI GJALDMIÐLA 11.03.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
108,29 +0,46%
4 12. mars 2005 LAUGARDAGUR
Manni bjargað úr rjúkandi timburhúsi:
Skammaði bjargvætti sína
LÖGREGLUMÁL Feðgarnir Guðmann
Guðmundsson og Eðvarð Guð-
mannsson komu nágranna sínum
til bjargar þar sem hann lá
sofandi á eldhúsgólfi í rjúkandi
íbúðarhúsi að Suðurtanga 2 á Ísa-
firði í fyrrinótt. Maðurinn rankaði
við sér þegar komið var með hann
út en hann kunni þó bjargvættum
sínum minnstu þakkir fyrir og
sagðist hafa verið í djúpri hug-
leiðslu.
Að sögn lögreglu var maðurinn
talsvert ölvaður og hafði ætlað að
sjóða sér til matar með fyrr-
greindum afleiðingum.
Bjargvættir mannsins búa á
efri hæð hússins, sem er tvílyft
timburhús, og réðust þeir til inn-
göngu um glugga á neðri hæðinni
þegar þeir urðu varir við megnan
reykfnyk sem lagði frá íbúð ná-
granna síns. Þeir báru manninn
rænulítinn út á götu, en ekki tók
betra við þar þegar maðurinn
rankaði við sér. Hann réðst með
skömmum að bjargvættum sínum
og kunni þeim engar þakkir fyrir
afskiptasemina.
Maðurinn er frá Simbabve og
kvaðst í samtali við Fréttablaðið
einfaldlega hafa orðið hræddur
við þessa tvo íslensku víkinga
sem stóðu skyndilega yfir sér úti
á götu á Ísafirði um miðja nótt.
- jse
Kasparov ætlar
að skáka Pútín
Garrí Kasparov, sterkasti skákmaður heims síðastliðna tvo áratugi, segist
hættur atvinnumennsku í skák. Hann hyggst láta að sér kveða í rússneskum
stjórnmálum þar sem hann mun etja kappi við Vladimír Pútín forseta.
RÚSSLAND, AP Skákgoðsögnin Garrí
Kasparov tilkynnti í gær að hann
væri hættur atvinnumennsku í
íþróttinni sem hann varð fyrst
heimsmeistari í fyrir tveimur ára-
tugum, þá aðeins 22 ára gamall.
Kasparov lét hafa þetta eftir sér
daginn eftir að alþjóðlega skákmót-
inu í Linares á Spáni lauk á
fimmtudag. Vann hann mótið, þrátt
fyrir að tapa síðustu skákinni.
Kasparov hefur verið stiga-
hæsti skákmaður heims frá því
árið 1984 og hefur markað sér
öruggan sess sem einn besti skák-
maður allra tíma ef ekki sá besti.
„Fyrir þetta skákmót tók ég
meðvitaða ákvörðun um að Lin-
ares 2005 yrði síðasta atvinnu-
skákmótið sem ég tæki þátt í,“
sagði Kasparov á blaðamanna-
fundi sem sjá má á myndbandi
sem vistað er hjá skákvefritinu
chessbase.com. Hann gaf þá
ástæðu að ekki væru lengur að
neinu að stefna fyrir sig á þessum
vettvangi.
Friðrik Ólafsson stórmeistari
segir í samtali við Fréttablaðið að
mikil eftirsjá sé að Kasparov úr
atvinnuskákinni – ef rétt reynist
að hann sé hættur. „Ég tel bara
ekki tímabært að tala um hann
sem hættan. Það eru ýmis dæmi
um að menn lýsi svona yfir en
hætti svo við að hætta,“ segir
Friðrik, en að hans mati er
Kasparov langöflugasti og litrík-
asti skákmaður sem fram hefur
komið frá því Bobby Fischer var
upp á sitt besta.
Kasparov lýsti því síðan yfir í
gær að hann hygðist láta meira að
sér kveða í rússneskum stjórnmál-
um. Hann hefur skipað sér í flokk
með félagsskap sem nefnist „2008-
nefndin: frjálst val“, en í honum
eru nokkrir einörðustu gagn-
rýnendur Vladimírs Pútín forseta
úr liði frjálslyndra í Rússlandi.
„Sem skákmaður hef ég gert
allt sem hægt er og jafnvel meira
en það. Nú vil ég beita greind
minni og skipulagðri hugsun í
rússneskum stjórnmálum,“ segir
hann í yfirlýsingu sem Interfax-
fréttastofan vitnar til.
„Ég vil gera allt sem í mínu
valdi stendur til að spyrna við al-
ræðisstjórnarháttum Pútíns. Það
er mjög erfitt að tefla fyrir land
sem lýtur andlýðræðislegri
stjórn,“ segir Kasparov. ■
Lyfjafyrirtæki:
Bótaskylt
vegna lyfja
DÓMSMÁL Lyfjafyrirtækið Glaxo-
SmithKline og innflutningsaðili þess
hér á landi, Líf ehf., voru dæmd
skaðabótaskyld í Hæstarétti í máli
konu sem varð alvarlega veik vegna
aukaverkana sem hún hlaut af töku
lyfsins Lamictal fyrir fimm árum
síðan. Konan er með 65 prósent
varanlega örorku vegna þessa.
Komst dómurinn að því að upplýs-
ingar á fylgiseðli með lyfinu hefðu
ekki verið jafn auðskildar og ítarleg-
ar og reglugerðir gerðu ráð fyrir og
þar að auki ekki á íslensku. Þótti ekki
sannað að konan ætti að einhverju
leyti sjálf sök og báru því bæði fyrir-
tækin óskipta bótaábyrgð. ■
SNJÓFLÓÐ Í AUSTURRÍKI Austur-
rískir björgunarsveitarmenn
fundu í gær lík þriggja skíða-
ferðamanna, Dana, Hollendings
og Þjóðverja, sem fórust í snjó-
flóðum á þremur skíðasvæðum í
austurrísku Ölpunum. Alls hafa
32 látið lífið í snjóflóðum í Aust-
urríki í vetur.
MÆÐIR Á BLAIR
Breski forsætisráðherrann þurfti á öllu sínu
að halda til að fá báðar þingdeildir til að
samþykkja ný hryðjuverkavarnalög.
Hryðjuverkavarnir:
Blair nær
málamiðlun
BRETLAND, AP Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, tókst loks síð-
degis í gær að koma nýjum
hryðjuverkavarnalögum í gegn-
um þingið, en frumvarpið mætti
harðvítugri andstöðu sem um
tíma virtist geta komið í veg fyrir
samþykkt þess.
Frumvarpið kveður meðal ann-
ars á um nýjar heimildir til að
handtaka menn sem eru grunaðir
um að vera viðriðnir hryðjuverka-
starfsemi, úrskurða menn í stofu-
fangelsi, setja útgöngubann og
beita stafrænum persónunjósna-
búnaði. Andstæðingar ríkisstjórn-
armeirihluta Verkamannaflokks-
ins á þingi gáfu til kynna eftir
meira en sólarhrings samninga-
togstreitu að þeir myndu fallast á
frumvarpið, með umsömdum
breytingum. ■
Sveitarfélög áminnt:
Trassa skil til
ráðuneytis
SVEITARSTJÓRNARMÁL Fimmtán af
101 sveitarfélagi eiga enn eftir að
skila fjárhagsáætlun fyrir árið
2005 til félagsmálaráðuneytisins.
Samkvæmt sveitarstjórnarlögum
eiga öll sveitarfélög að skila inn
fjárhagsáætlunum fyrir lok
desembermánaðar.
Félagsmálaráðuneytið hefur
því sent ítrekun til þeirra sveitar-
félaga sem enn hafa ekki skilað
inn fjárhagsáætlunum og gefst
þeim frestur til 21. mars til að
bæta úr þessari vanrækslu. Ef
þeirri aðvörun verður ekki sinnt,
segir í tilkynningu frá félags-
málaráðuneytinu að heimild til að
stöðva greiðslur til þessara sveit-
arfélaga úr Jöfnunarsjóði sveitar-
félaga verði beitt. ■
Hestur fældist:
Sparkaði í
höfuð konu
SLYS Hestur sparkaði í höfuð konu
um hádegisbilið í gær. Konan var
að teyma hestinn við bæinn Lang-
holt, skammt frá Selfossi, þegar
atvikið átti sér stað.
Hestinum brá við, sennilega
vegna áreitis frá öðrum hesti, og
sparkaði í örvæntingu til konunn-
ar. Konan missti meðvitund í
nokkrar mínútur og kjálkabrotn-
aði. Hún var flutt með sjúkrabíl til
Reykjavíkur til aðhlynningar og
frekari rannsókna vegna höfuð-
áverkanna. - jse
ÚR FANGELSI Á SJÚKRAHÚS Yvon
Neptune, fyrrum forsætisráð-
herra Haítí, var í gær fluttur á
sjúkrahús. Hann var við bága
heilsu eftir nítján daga hungur-
verkfall sem hann hóf til að mót-
mæla því að hafa verið hnepptur
í fangelsi.
■ EVRÓPA
■ MIÐ-AMERÍKA
HÆTTUR ATVINNUMENNSKU
Garrí Kasparov segist ekki hafa lengur að neinu að stefna í skákinni eftir tuttugu ár á
toppnum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
EÐVARÐ GUÐMANNSSON
Bjargaði nágranna sínum úr rjúkandi húsi
og fékk skammir fyrir.