Fréttablaðið - 12.03.2005, Page 10
10 12. mars 2005 LAUGARDAGUR
Taldi sig aðeins eiga einn kost
Fréttamenn RÚV ætla að
fara fram á rökstuðning
frá útvarpsstjóra vegna
ráðningar nýs frétta-
stjóra. Heimildir innan
Útvarpsins herma að út-
varpsstjóri hafi metið það
svo að þar sem enginn
annar umsækjenda hafi
komist á blað hjá útvarps-
ráði ætti hann þann kost
einan í stöðunni að skipa
Auðun Georg Ólafsson
fréttastjóra.
Stjórn Félags fréttamanna á Ríkis-
útvarpinu ætlar að fara fram á rök-
stuðning frá Markúsi Erni Antons-
syni útvarpsstjóra á þeirri ákvörð-
un sinni að ráða Auðun Georg Ólafs-
son í starf fréttastjóra, en hafna
fimm reyndum umsækjendum.
Stjórnin fer fram á slíkan rökstuðn-
ing verði útvarpsstjóri ekki við
þeirri áskorun þeirra að draga ráðn-
ingu Auðuns Georgs til baka.
Þetta sagði Jón Gunnar Grjet-
arsson, formaður félagsins, í gær.
Markús Örn hefur neitað fjöl-
miðlum um viðtöl en heimildir
Fréttablaðsins innan Ríkisútvarps-
ins segja Markús hafa bent á það
ráðningunni til stuðnings að Auðun
Georg hafi fengið stuðning meiri-
hluta fulltrúa í útvarpsráði. Eng-
inn annar en Auðun hafi fengið
atkvæði hjá þessum lögbundna
umsagnaraðila og ekki sé vitað um
nein dæmi þess í sögu Ríkis-
útvarpsins að útvarpsstjóri hafi
hunsað niðurstöðu ráðsins svo
rækilega að ráða til starfa um-
sækjanda, sem ekki hafi komst á
blað hjá útvarpsráði, eftir að fyrir
hafi legið stuðningur meirihluta
þess við annan umsækjanda.
Útvarpsstjóri mun jafnframt
hafa litið til þess að fréttastofa út-
varps hafi mörg undanfarin ár farið
sex til átta prósent fram úr fjár-
heimildum. Það séu umtalsverðar
fjárhæðir fyrir deild sem hafi feng-
ið vel á annað hundrað milljónir
króna til ráðstöfunar samkvæmt
áætlun hvers árs, rúmar 150 millj-
ónir á ári síðustu tvö árin. Útvarps-
ráð, sem fjalli um fjármál Ríkisút-
varpsins í höfuðdráttum, hafi gert
athugasemdir við þetta og því sé
engin goðgá að hugað sé að þessu
þegar nýr fréttastjóri er ráðinn.
Ritstjórnarlegur ábyrgðarmaður
Hvað varði hina miklu ritstjórnar-
legu ábyrgð, sem rætt hafi verið
um að fylgi fréttastjórastarfinu og
verði að byggjast á mikilli
reynslu, herma heimildir blaðsins
að Markús Örn líti svo á að Bogi
Ágústsson, sem forstöðumaður
fréttasviðs RÚV, sé ritstjórnarleg-
ur ábyrgðarmaður allrar frétta-
þjónustu Ríkisútvarpsins, bæði í
útvarpi og sjónvarpi. Hann svari
fyrir allt fréttasviðið út á við og sé
í forsvari fyrir það faglega á fund-
um útvarpsráðs og í fram-
kvæmdastjórn RÚV.
Hvað það varði að Auðun
Georg er sagður framsóknarmað-
ur hafi helst verið sagt því til
stuðnings að afi hans væri Hannes
Jónsson, fyrrverandi sendiherra
og blaðafulltrúi ríkisstjórnar
Ólafs Jóhannessonar um það leyti
sem Auðun fæddist. Þá þyki það
tortryggilegt að hann umgangist
Steingrím J. Ólafsson, fyrrverandi
fréttamann á Stöð 2, sem er í dag
upplýsingafulltrúi forsætisráðu-
neytisins. Hægt sé að benda á
mörg dæmi á RÚV um að góðir og
gegnir fréttamenn eigi að baki
pólitískan feril í hinum ýmsu ung-
liðasamtökum og í stúdentapólitík.
Gagnrýnt hefur verið að 34 ára
gamall maður, í þessu tilviki Auð-
un Georg, búi ekki yfir sömu
reynslu og fólk um fimmtugt og
enn eldra sem starfað hefur hjá
RÚV með miklum ágætum í
áraraðir. Til að svara þessu er út-
varpsstjóri sagður hafa bent á
ráðningu nýs forstjóra Flugleiða
svo og ungs bankastjóra Íslands-
banka á sínum tíma. Þá megi rifja
upp að Matthías Johannessen hafi
orðið ritstjóri Morgunblaðsins 29
ára. Í kjölfar þessa hafi útvarps-
stjóri spurt hvort áhersla á
reynslu og fyrri störf eigi að verða
til þess að ungt og vel menntað
fólk eigi alls ekki að vera gjald-
gengt í stjórnunarstöf hjá RÚV
fyrir æsku sakir.
jss@frettabladid.is
Vart hefur farið framhjá nokkrum að
mikil ólga hefur verið á fréttastofu
Ríkisútvarpsins síðan útvarpsstjóri til-
kynnti um ráðningu Auðuns Georgs
Ólafssonar í stöðu fréttastjóra. Er
honum ætlað að fylla skarð Kára
Jónassonar, sem lét af því starfi í
október síðastliðnum og tók við
stöðu ritstjóra Fréttablaðsins.
Samkvæmt níundu grein laga um
Ríkisútvarpið frá 30. júní árið 2000
skulu allir starfsmenn stofnunarinnar
persónulega ráðnir af útvarpsstjóra,
Markúsi Erni Antonssyni, þó að
fengnum tillögum frá útvarpsráði ef
um starfsfólk dagskrár er að ræða.
Það á ekki við um framkvæmda-
stjóra stofnunarinnar sem eru ráðnir
af menntamálaráðherra að fengnum
tillögum útvarpsstjóra og útvarps-
ráðs. Framkvæmdastjórar eru fyrir
hverja af þremur deildum Ríkis-
útvarpsins; fjármáladeild, hljóðvarps-
deild og sjónvarpsdeild en fram-
kvæmdastjórn skipa þeir ásamt
útvarpsstjóra sjálfum og formanni
útvarpsráðs.
Samkvæmt sjöundu grein sömu laga
segir að útvarpsráð skuli skipa sjö
menn. Skulu þeir kosnir hlutfalls-
kosningu á Alþingi eftir hverjar al-
þingiskosningar og menntamálaráð-
herra skipar formann og varafor-
mann úr hópi hinna kjörnu. Útvarps-
stjóri hefur rétt til setu á fundum
ráðsins og hefur þar málfrelsi og til-
lögurétt. Útvarpsráð tekur einnig
ákvarðanir um stefnumótun stofnun-
arinnar varðandi efni og efnistök og
eru ákvarðanir ráðsins endanlegar.
Starfsmenn ráðnir af útvarpsstjóra
FBL GREINING: LÖG UM RÍKISÚTVARPIÐ
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, safnað-
arprestur Fríkirkjunnar í Reykjavík, er einn
þeirra sem kjörinn var í stjórn samtaka
Samtaka um aðskilnað ríkis og kirkju
(SARK). Hann telur að of náið samband
ríkisins og eins tiltekins trúfélags sé ótrú-
verðugt og jafnvel ókristilegt.
Ertu mótfallinn því að kristinfræði sé
kennd í grunnskólum landsins?
Nei, í rauninni ekki. En ég hef mikið út
á þennan hræðsluáróður þjóðkirkjunn-
ar að setja, um að ef greint verði á
milli ríkis og kirkju muni Ísland af-
kristnast á einni nóttu. Þetta þykir mér
hreint fáránlegt. Ég tel hins vegar að ef
greint verði þarna á milli verði kristin-
fræði kennd eftir sem áður í skólum
því þetta er einfaldlega trú meirihluta
fólks í landinu. Og þó ekki væri nema
fyrir það að kristnin er það stór hluti af
íslenskri sögu og menningu. Ég hef
búið í löndum þar sem önnur trú en
kristin trú hefur verið í meirihluta og
þar var hlutum hagað með allt öðrum
hætti. Það væri kristninni til framdrátt-
ar að greint yrði þarna á milli.
SR. HJÖRTUR MAGNI JÓHANNSSON
Ekki mótfallinn
kristinfræði
AÐSKILNAÐUR RÍKIS OG KIRKJU
SPURT & SVARAÐ
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
N
A
T
25
47
1
09
/0
4
Fyrir
okkur hin
Honey Nut Cheerios er fyrir
okkur sem viljum
morgunkorn sem gefur
náttúrulegan sætleika
og er jafnframt fullt af
hollum trefjum og vítamínum.
FUNDUR HJÁ FRÉTTAMÖNNUM Fréttamenn lýstu strax andstöðu við ráðningu Auðuns Georgs Ólafssonar í starf fréttastjóra Útvarps.
Þeir hafa fundað tvo síðustu daga og rætt til hvaða aðgerða skuli gripið.
MARKÚS ÖRN ANTONSSON Ekki vitað
um nein dæmi þess að útvarpsstjóri hafi
hunsað niðurstöðu útvarpsráðs svo rækilega
að ráða til starfa umsækjanda sem ekki
komst á blað hjá ráðinu eftir að fyrir hafi
legið stuðningur við annan umsækjanda.
JÓN GUNNAR GRJETARSSON
Fréttamenn bíða viðbragða frá útvarps-
stjóra og nýráðnum fréttastjóra.