Fréttablaðið - 12.03.2005, Page 20
Hluthafar í Árvakri munu
að öllum líkindum koma í
veg fyrir að nýir fjárfest-
ar eignist sextán prósenta
hlut. Hópurinn sem gerði
tilboðið er undrandi á
hörðum viðbrögðum.
Töluverðs óróa hefur gætt meðal
eigenda Morgunblaðsins á síðustu
vikum. Hópur fjárfesta hefur gert
tilboð í hluti í félaginu og nú-
verandi hluthafar hafa blásið í
herlúðra til þess að verja stöðu
sína. Meðal þeirra sem vildu
kaupa eru fjárfestingarfélagið
Meiður og Einar Sveinsson,
stjórnarformaður Íslandsbanka.
Margir fá tilboð
Margir hluthafar í Morgunblað-
inu hafa á undanförnum misser-
um fengið tilboð í bréf sín.
Fyrir skemmstu keypti Krist-
inn Björnsson tíu prósent hlut
Johnson fjöskyldunnar en
orðrómur var uppi um að aðrir
fjárfestar hafi haft augastað á
þeim hlut. Þannig var komið í veg
fyrir að brestir kæmu í hluthafa-
hóp Árvakurs.
Þetta er mikilvægt fyrir nú-
verandi hluthafa því sterk for-
kaupsréttarákvæði eru í gildi
varðandi hlutafé í Árvakri en þau
giltu ekki um Johnson ehf. heldur
einungis hlutabréfin sem eru í
eigu Johnson. Þannig var hægt að
ná eignarhaldi yfir bréfunum á
óbeinan.
Líklegt að forkaupsréttur verði nýttur
Nú stendur slagurinn um sextán
prósenta hlut í eigu Haraldar
Sveinssonar og fjölskyldu. Sá hlut-
ir eru ekki í eigu eignarhalds-
félaga. Þetta þýðir að núverandi
hluthafar hafa forkaupsrétt í hlut-
falli við eign sína í félaginu og
hafa tvo mánuði til að ganga inn í
kaupin. Allar líkur eru á því að
flestir hluthafar gangi inni í
kaupin.
Stærsti einstaki hluthafinn í
Árvakri er Útgáfufélagið Valtýr,
sem er í eigu Huldu Valtýsdóttur
og fjölskyldu. Ekki er vitað hvaða
augum forsvarsmenn þess félags
líta aðkomu hópsins sem gert
hefur tilboð.
Næststærsti hluthafinn tengist
Kristni Björnssyni og fjölskyldu.
Eftir kaup Kristins á hlut Johnson
ehf. hefur sú blokk yfirráð yfir um
29,5 prósentum af hlutafénu. Að
auki er því slegið föstu að eigend-
ur Garðars Gíslason ehf., sem fara
með tíu prósenta hlut, muni standa
með Kristni og einnig er gert ráð
fyrir að Leifur Sveinsson, sem á
7,7 prósent í félaginu, nýti for-
kaupsrétt sinn.
Þetta þýðir að blokkin undir
forystu Kristins hefur í raun ríf-
lega 47 prósenta hlut í félaginu. Ef
allir í þeim hópi ganga inn í tilboð
um sextán prósenta hlut Haralds
Sveinssonar og fjölskyldu ræður
blokkin yfir tæplega 56 prósenta
hlut í Morgunblaðinu jafnvel þótt
aðrir nýti sér einnig forkaupsrétt
að fullu.
Sterkir fjárfestar bak við tilboðið
Hópurinn sem vill kaupa bréf
Haraldar inniheldur meðal annars
fjárfestingarfélagið Meið, Brynjólf
Bjarnason, forstjóra Símans og
Einar Sveinsson.
Það kemur ýmsum á óvart að
þessum aðilum sé ekki tekið opnum
örmum í hluthafahóp Morgunblaðs-
ins, enda hafa hagsmunir þessara
viðskiptavelda löngum legið sam-
an. Einar Sveinsson er forystu-
maður höfuð Engeyjarfjölskyld-
unnar svokölluð en Kristinn
Björnsson fer fyrir H. Ben fjöl-
skyldunni.
Hörð varnarviðbrögð hluthafa
Morgunblaðsins eru til marks um
að lítið traust ríki milli þessara
hópa um þessar mundir.
Hópurinn sem gerði tilboð í hlut
Haraldar Sveinssonar er stórundr-
andi á hörðum viðbrögðum forystu-
manna Árvakurs og finnst þau bera
vott um óþarfa taugaveiklun.
Erfiður rekstur en hátt metinn
Rekstur Morgunblaðsins hefur
gengið erfiðlega undanfarin ár.
Árið 2003 var tap á rekstrinum þrjú
hundruð milljónir króna og arðsem-
in hefur í mörg ár verið léleg.
Fjárhagsleg staða Morgunblaðs-
ins styrktist hins vegar verulega
þegar fyrirtækið seldi lóð sína við
Kringluna á um tvo milljarða
króna.
Hópurinn sem hugðist kaupa
hlut í Árvakri telur að hægt sé að
bæta rekstur fyrirtækisins veru-
lega. Versnandi rekstrarafkoma er
hluti af ástæðu þess að sumir hlut-
hafanna eru nú tilbúnir að losa sig
út úr rekstrinum.
Talað er um að tilboðin sem hlut-
hafar hafa fengið jafngildi því að
Árvakur sé metinn á hátt í fjóra
milljarða króna. Inn í verðið reikn-
ast vitaskuld ákveðinn vegsauki
sem menn telja af því að vera hlut-
hafar í Morgunblaðinu, þannig að
menn eru tilbúnir að greiða hærra
verð fyrir reksturinn en ella. Sext-
án prósenta hlutur Haraldar
Sveinssonar og fjölskyldu gæti því
kostað nálægt sex hundruð
milljónum króna.
Svekktir út í Íslandsbanka
Innan veggja Morgunblaðsins eru
menn undrandi á því að tilboð hins
nafnlausa kaupanda sé sett fram
með milligöngu Íslandsbanka. Að-
eins eru um tvö ár síðan Morgun-
blaðið flutti öll sín viðskipti úr
Landsbankanum í Íslandsbanka.
Félag í eigu Íslandsbanka keypti
svo lóð Árvakurs og gerði samning
um að byggja nýjar höfuðstöðvar
Morgunblaðsins við Hádegismóa.
Í hópi hluthafa Morgunblaðsins
eru vonbrigði í garð Íslandsbanka
og þá sérstaklega stjórnarfor-
manns bankans, Einars Sveinsson-
ar. Þetta finnst Morgunblaðsmönn-
um óviðeigandi í ljósi tengsla
Morgunblaðsins við Íslandsbanka.
Morgunblaðsmenn eru enn
fremur óhressir með að hópurinn
sem hefur nú sýnt áhuga á að eign-
ast hlut í félaginu skáki í skjóli
banka og undir nafnleynd. Fullyrt
er að núverandi hluthafahópur
hefði ekki litið neikvæðum augum á
að fá þessa aðila inn í hópinn en
þeim hugnast ekki aðferðin sem
beitt er.
Ekki endilega ný risasamsteypa
Ekki er ljóst hver meginhugmyndin
er á bak við tilraunir Meiðs og Eng-
eyinganna til að eignast hlut í
Morgunblaðinu. Aðkoma Brynjólfs
Bjarnasonar, forstjóra Símans, að
málinu vekur athygli og hefur sú
ályktun verið dregin að til hafi stað-
ið að mynda fjölmiðla- og fjar-
skiptafyrirtæki til mótvægis við Og
Vodafone. Talað er um að að reka
Símann, Skjá einn og Morgunblaðið
saman, sérstaklega í ljósi þess að
Meiður er talinn mjög líklegur
kaupandi á Símanum.
Slíkar hugmyndir munu sam-
Brugðist við vexti
Ör vöxtur hefur verið í starfsemi Landsbankans og
útlán hans aukist gríðarlega. Stjórn bankans hefur
ákveðið að styrkja eigið fé bankans til þess að
mæta vextinum og komandi sóknarfæri í starfsemi
bankans. Hlutafé verður aukið um 800 milljónir að
nafnvirði eða 11,4 milljarðar að markaðsvirði mið-
að við útboðsgengið sem er 14,25. Hlutaféð verður
borðið núverandi hluthöfum bankans til kaups.
Bankarnir eru í miklum ham þessa dagana og
sóknarhugur í mannskapnum. Landsbankinn hefur
farið fram á innlausn útistandandi hluta í Teather
and Greenwood í Bretlandi og mun í framhaldinu
skrá verðbréfafyrirtækið af markaði. Flestir eru á
því að næstu stóru útrásarhreyfingar á fjármála-
markaði verði hjá KB banka, en kaupkraftur bank-
ans er talinn nema um hundrað milljörðum króna.
Skyrbjúgur og bílakaup
Bankakerfið er ekki eitt um bjartsýni á komandi
tíð. Þeir sem treysta sér til að lifa á mjólkurmat
eingöngu eins og forfeður okkar í harðindum eiga
nóg afgang til annarrar neyslu. Mjólkin er ókeypis í
Bónus og Krónunni, en vert er að taka fram að
mjólkurneysla eingöngu veldur
skyrbjúg.
Mjólkurpeningana nota
menn nú til að flytja
inn bíla frá Bandaríkj-
unum meðan dollar-
inn er ódýr. Bryggjan í
Norfolk ku vera full af
lúxusbílum sem bíða
þess að hitta eigendur
sína á Íslandi og mun
staðan sú að óþreyju-
fullir bílkaupendur
munu þurfa að
bíða í
nokkurn tíma
eftir skips-
rúmi fyrir
fararskjót-
ann.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.845
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 287
Velta: 4.433 milljónir
+0,12%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Gengi krónunnar hélt áfram að
styrkjast í gær. Bandaríkjadalur
fór undir 59 krónur og gengisvísi-
talan fór niður í 107,3 stig. Í lok
viðskipta stóð vísitalan í 107.
Hagnaður Hampiðjunnar nam
276 milljónum króna í fyrra. Árið
2003 var hagnaður félagsins 160
milljónir.
Hraðfrystihús Þórshafnar
hagnaðist um 121 milljón króna
árið 2004. Þetta er ríflega tvöfalt
meira en árið 2003, þegar hagn-
aðurinn var 58 milljónir.
Eignarhaldsfélagið Skildingur
sem er í eigu lykilstarfsmanna hjá
Flugleiðum seldi í gær sex pró-
senta hlut í félaginu.
20 12. mars 2005 LAUGARDAGUR
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 39,60 – ... Atorka 6,00 – ...
Bakkavör 32,80 +2,82% ... Burðarás 13,70 -0,72% ... Flugleiðir 14,40 -
2,04% ... Íslandsbanki 11,70 – ... KB banki 525,00 -0,19% ... Kögun
58,00 – ... Landsbankinn 14,85 +1,02% ... Marel 56,20 +0,18% ...
Medcare 5,45 -0,91% ... Og fjarskipti 4,00 +2,56% ... Samherji 11,20 –
... Straumur 10,10 – ... Össur 83,00 -0,60%
Tryggingamiðstöðin 6,73%
Bakkavör 2,82%
Og fjarskipti 2,56%
Flugleiðir -2,04%
Medcare -0,91%
Burðarás -0,72%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Skjaldborg slegin um Mogga
ÞÓRLINDUR KJARTANSSON
HAFLIÐI HELGASON
BLAÐAMENN
FRÉTTASKÝRING
ÁTÖK UM ÁRVAKUR