Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.03.2005, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 12.03.2005, Qupperneq 26
„Mér þótti hins vegar gaman að sjá þennan gamla sósíalista og komm- únista, háttvirtan þingmann [Helga Hjörvar], veifa peninga- pungnum og segja að ef við leggj- um niður Reykjavíkurflugvöll muni allir íbúar á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði fá eina milljón króna.“ Halldór Blöndal á Alþingi 7. mars í umræðum um framtíð Reykjavíkurflugvallar. „Verst þykir mér að hæstvirtur utanríkisráðherra, Davíð Oddsson, skuli hafa flúið úr salnum þegar þessi umræða hófst. Því það er Davíð Oddsson sem persónulega og pólitískt ber ábyrgð á Markúsi Erni Antonssyni og Gunnlaugi Sævari Gunnlaugssyni, útvarps- stjóra og formanni útvarpsráðs, og pólitískri misbeitingu þeirra á stofnuninni í þessu tilfelli.“ Helgi Hjörvar á Alþingi 10. mars í umræðum um ráðningu fréttastjóra Ríkisútvarpsins. „Það er einskis að vænta af ráð- herrum, þingmönnum og spuna- meisturum stjórnarflokkanna í þessu máli og öðrum. Þeir svífast einskis, þeir hafa sýnt það.“ Mörður Árnason á Alþingi við sama tækifæri. „RÚV er eign ríkisins en ekki þjóð- arinnar og það er mikill munur þar á. [...] Tal um það að menn eigi RÚV, að það sé eign þjóðarinnar, er út í hött því ef menn eiga eitthvað þá geta þeir gert eitthvað við það og þeir geta selt það eða veðsett það. Og það geta þeir ekki með Ríkisútvarpið. Þess vegna verður RÚV alltaf pólitískt af því að það er pólitík í ríkinu og ríkið á RÚV.“ Pétur Blöndal á Alþingi við sama tækifæri. Tortryggni Össurarmanna Stuðningsmenn Össurar Skarphéðinssonar í slagnum við Ingibjörgu Sólrúnu um for- mannssætið í Samfylkingunni eru ekki par ánægðir með tímasetningu á stofnun Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar sem fyrirhuguð var í vor. Þeir halda því margir fram að stofnun Kvennahreyfingarinnar nú í vor sé samsæri kvenna í flokknum gegn Össuri. Með stofnun hreyfing- arinnar sé verið að hygla Ingibjörgu Sól- rúnu í aðdraganda kosninganna. Konur ákváðu að fresta stofn- fundi hreyfingarinnar fram á haust – en segja að það sé vegna þess að aðalfundi flokksins hafi verið flýtt fram á vor. Bændur forðast Halldór Það þótti víst vandræðalegt á að horfa hversu afskiptur Halldór Ásgrímsson var í boði sem þingflokkur framsóknarmanna hélt fyrir fulltrúa búnaðarþings á dögunum. Gest- gjafinn sjálfur var eins og illa gerður hlutur úti í horni á meðan bændurnir flykktust um varaformanninn Guðna Ágústsson eins og mý á mykjuskán. Guðni fór á kostum og reytti af sér brandarana að venju við góðar undirtektir bændanna. Halldór var þarna augljóslega ekki á heimavelli. Stjórnarandstaðan skýtur sig í lappirnar Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í útvarpsráði eru sagðir hafa skotið sig í lappirnar með því að mótmæla ákvörðun meirihlutans í ráðinu með því að skila auðum atkvæðaseðlum í kjörinu um fréttastjóra Ríkisútvarpsins. Með því hafi þeir bundið hendur Markúsar Arnar Antonssonar útvarpsstjóra, sem hafði engan annan kost en að velja þann umsækjanda sem meirihlutinn mælti með. Fréttamenn RÚV eru víst afar sárir yfir framtaksleysi minnihlutans. Fulltrúar minnihlutans hafa síðan sent frá sér tilkynningu þar sem þeir segjast með aðgerðaleys- inu hafa í raun verið að mæla með umsækj- endunum fimm sem Bogi Ágústsson hafi mælt með. Hmmm? En auðvitað stökk Markús Örn á tækifærið og not- aði aðgerðaleysi minni- hlutans síðan sem afsökun fyrir því að þurfa að staðfesta val meirihlut- ans. 26 12. mars 2005 LAUGARDAGUR Samfylkingin vill að lög um landsdóm og ráð- herraábyrgð verði endur- skoðuð. Lög um ráðherra- ábyrgð þurfi að færa í sama horf og í nágranna- löndum okkar. Skoða eigi sérstaklega ábyrgð ráð- herra gagnvart Alþingi ef hann gefur rangar upp- lýsingar eða leynir upp- lýsingum. STJÓRNARSKRÁ Fyrir Alþingi liggur þingsályktunartillaga Samfylk- ingarinnar um heildarendurskoð- un á lögum um landsdóm og lögum um ráðherraábyrgð. Þing- flokkurinn segir að lög um lands- dóm séu orðin úrelt, en þau voru endurskoðuð fyrir rúmum fjórum áratugum og hafa því ekki fylgt eftir þeirri þróun sem orðið hefur á dóms- og réttarkerfinu. Einnig telur þingflokkurinn að færa þurfi lög um ráðherraábyrgð til sambærilegs horfs og þekkist í nágrannalöndum okkar. Í tillögunni er lagt til að lands- dómur verði jafnvel aflagður. Ráðherraábyrgð verði lögð fram fyrir almenna dómstóla og ráð- herrar saksóttir sem hverjir aðrir embættismenn. Bent á að ýmis ákvæði í núgild- andi lögum um ráðherraábyrgð séu ófullkomin og óskýr, svo sem ákvæði um ábyrgð ráðherra vegna athafna undirmanna. Bent er á að í Danmörku geti ráðherrar orðið ábyrgir vegna athafna undir- manna á grundvelli skorts á eftir- liti og leiðbeinandi fyrirmælum. Þá eru engin ákvæði að finna í núgildandi lögum varðandi ábyrgð ráðherra ef hann gefur Al- þingi rangar eða villandi upplýs- ingar eða leynir upplýsingum er hafa verulega þýðingu við með- ferð máls á Alþingi. Slík ákvæði er að finna í lögum um ábyrgð ráðherra bæði í Danmörku og Noregi Þingflokkurinn telur að endur- skoðun laga um ráðherraábyrgð myndi styrkja þingræðið og eftir- lit Alþingis með framkvæmdar- valdinu. Eiríkur Tómasson, laga- prófessor við Háskóla Íslands, tekur undir það með Samfylking- unni að lögin um ráðherraábyrgð séu ekki nægilega skýr. „Hin lagalega ráðherraábyrgð er eitt af því sem þarf að skoða í tengslum við endurskoðun stjórnarskrár- innar,“ segir hann. Hann bendir á að í kjölfar Watergate-hneykslisins á áttunda áratugnum hafi löndin í kringum okkur endurskoðað lög um ráð- herraábyrgð og gert þau skýrari. „Ef ráðherra yrði staðinn að því að gefa þinginu eða þingnefnd rangar upplýsingar er ekki tekið beint á því í ráðherraábyrgðarlög- unum eins og þau eru núna. Ég tel að þau ættu hins vegar að gera það. Það ætti ekki bara að vera ráðherra siðferðilega skylt að gefa réttar upplýsingar, heldur líka lagalega. Brot á því sé þá lög- brot og leiði til ábyrgðar,“ segir Eiríkur. sda@frettabladid.is stjornmal@frettabladid.is Úr bakherberginu... Samfylkingin vill skýrari lög um ráðherraábyrgð nánar á visir.is UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,, „Mér þykir kúnstugt að fylgjast með hvað allir reyna að rakka niður ályktunina okkar, en það sýnir bara hvað aðrir flokkar eru fúlir út í það að Framsóknarflokkurinn skuli vera leiðandi afl í þessari [ESB] umræðu.“ Dagný Jónsdóttir á heimasíðu sinni 6. mars. „Duga jákvæðar strokur og blíðuhót á framámenn í ís- lensku atvinnulífi? Mun það opna augu þeirra fyrir konun- um í kringum þá?“ Þórunn Sveinbjarnardóttir á heimasíðu sinni 8. mars. Í Staksteinum Morgunblaðsins fimmtudaginn 20. janúar síðastliðinn varaði sá sem þá ritaði við aðgerðum Fram- sóknarflokksins á hendur Ríkisútvarpinu vegna „eineltis“ fjölmiðla í garð flokksins vegna Íraksmálsins. Þar sagði: „Ekki eru vonbrigði framsóknarmanna minni vegna hátt- semi ríkisfjölmiðlanna. Þeir hafa tekið þátt í eineltinu á hendur framsóknarmönnum. Þrátt fyrir, að það eru framsóknarmenn, sem hafa árum saman komið í veg fyrir, að sjálfstæðismenn hristu rækilega upp í RÚV. Það er spurning, hvort framsóknarmennirnir verða jafn áhuga- samir um að koma í veg fyrir umbætur hjá RÚV héðan í frá eins og hingað til. [...] Þess vegna má gera ráð fyrir að framsóknarmenn hugsi sitt þessa dag- ana.“ Spyrja má hvort ákvörðun meirihlutans í útvarpsráði nú í vikunni hafi verið hefndaraðgerðir framsóknarmanna fyrir umfjöllun RÚV um Íraksmálið? Pétur Gunnarsson, skrifstofustjóri þingflokks Framsóknarflokksins, var full- trúi framsóknarmanna í útvarpsráði þegar valið var á milli umsækjenda um starf fréttastjóra stofnunarinnar. Sá hinn sami Pétur Gunnarsson sendi starfandi fréttastjóra Ríkisútvarpsins, Friðriki Páli Jónssyni, harðort bréf þegar umfjöllun fjölmiðla um Íraksmálið stóð sem hæst í byrjun ársins. Í því skammaði hann fréttastjórann fyrir að hafa ekki birt orðrétt fréttatilkynningu Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra sem send var út í kjölfar mistaka Róberts Marshall, fréttamanns á Stöð 2. Í til- kynningunni notaði forsætisráðherra tækifærið til að úthúða öllum fjölmiðl- um landsins fyrir ófagmannleg vinnubrögð í málinu án þess að styðja mál sitt neinum rökum. Pétur sagði í bréfinu eitthvað á þá leið að fréttastofan hlyti að vera hlutdræg eða faglega ónýt. Í sama bréfi nafngreindi Pétur nokkra fréttamenn á öðrum fjölmiðlum sem hann var ekki sáttur við. Þar á meðal var Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, frétta- maður á Stöð 2, sem Pétur sagði fara með daglega dellu og „sda sem léki lausum hala á Fréttablaðinu“. ■ Hefndaraðgerðir framsóknarmanna? VIKA Í PÓLITÍK SIGRÍÐUR DÖGG AUÐUNSDÓTTIR HALLDÓR ÁSGRÍMSSON FORSÆTISRÁÐHERRA OG DAVÍÐ ODDSSON UTAN- RÍKISRÁÐHERRA Þingflokkur Samfylkingarinnar vill að stofnuð verði nefnd til að endur- skoða lög um landsdóm og ráðherraábyrgð, sem séu úrelt og óskýr. UMMÆLI Á ALÞINGI ,, UMMÆLI Á ALÞINGI IÐNAÐUR [ AUKABLAÐ FYLGIR FRÉTTABLAÐINU MIÐVIKUDAGINN 24 MARS ] Auglýsendur snúi sér til Ámunda Ámundasonar sölufulltrúa í símum 515-7580 / 821-7514 amundi@frettabladid.is Líftækni Þróunarverkefni Upplýsingatækni Hátækni ,,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.