Fréttablaðið - 12.03.2005, Side 29
LAUGARDAGUR 12. mars 2005 29
Tveir
risanna
hættir
Stóru stöðvarnar þrjár,
ABC, CBS og NBC, voru
lengi einráðar í banda-
rískum sjónvarpsfrétt-
um. Þrátt fyrir að nýjar
stöðvar á borð við CNN
og Fox News hafi hrifsað
til sín áhorf frá stóru
stöðvunum voru aðal-
fréttaþulir þeirra löngum
stærstu nöfnin í fjöl-
miðlaheiminum. Nú eru
tveir þeirra þriggja sem
Bandaríkjamenn horfðu
á flytja fréttirnar kvöld
eftir kvöld um rúmlega
tveggja áratuga skeið
hættir.
Tími stóru fréttaþulanna, á borð við
Rather, Jennings og Brokaw, er að líða
undir lok, segir Ingvi Hrafn Jónsson. Hann
hefur löngum fylgst vel með bandarískum
fjölmiðlum og heimsótti fréttastofur stóru
sjónvarpsstöðvanna vestanhafs áður en
hann tók við starfi fréttastjóra Sjónvarps á
sínum tíma.
„Já. Ég held það sé engin spurning,“
svarar Ingvi Hrafn aðspurður um hvort
Brokaw, Jennings og Rather, kunni að vera
síðustu fréttaþulirnir sem talist geti risar í
sínu starfi.
„Þeir voru það sem kallað er í Banda-
ríkjunum rödd guðs,“ segir Ingvi Hrafn
um áhrif aðalfréttaþulanna. „Þeir eru ein-
faldlega að hverfa.“ Hann segir þetta að
hluta til komið vegna þess að netið fái
sífellt aukið vægi í fréttaflutningi og á
sama tíma horfi færri á sjónvarpsfréttir.
„Þetta er risaeðla. Fréttastofurnar á stóru
stöðvunum eru gífurlega dýrar í rekstri þó
búið sé að trimma þær niður. Það þótti
virðingarhluti að vera með svona fræga
fréttastjóra,“ segir Ingvi Hrafn en telur að
þeir tímar kunni að vera á enda ef fyrir-
tækin sem eiga sjónvarpsstöðvarnar hætta
að vilja reka fréttaþjónustur með tapi.
OPIÐ Á LAUGARDAG: 11 - 17 / SUNNUDAG: 13 - 17
RICARDA - burstað stál
LJÓSAKÚPLAR Á FRÁBÆRU VERÐI
Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
Kúpladagar
UFO - króm/svartkróm/Gyllt
690-
UFO - svart
690-
UFO - antik
990-
1690-
RICARDA - burstað messing
1690-
UNIVERSAL - hvítt
990-
RICARDA - gyllt
1690-
PLANET - hvítt
RICARDA - krómað
1690-
PLANET - hvítt
990-
990-
UNIVERSAL - eik
1490- UNIVERSAL - fura
1490-
STORIA - burstað messing
1495-
UNIVERSAL - gyllt
1290-
50%
afsláttur
á öllum
öðrum
ljósakúp
lum í ve
rslun.
Allt að
INGVI HRAFN JÓNSSON
Segir mjög erfitt að gera upp á milli
risanna þriggja en kveðst alltaf hafa verið
hrifinn af Dan Rather.
Sjónvarpsfréttastofurnar of dýrar í rekstri:
Tími þeirra stóru liðinn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
PETER JENNINGS
Aðalfréttaþulur ABC
Jennings er sá
eini risanna
þriggja sem enn
er aðalfréttaþul-
ur og ólíkt hinum
aðalfréttaþulum
bandarísku sjón-
varpsstöðvanna
er hann kana-
dískur. Jennings
byrjaði snemma í fjölmiðlum og
var með barnaþátt á CBC þar
sem faðir hans, Charles, var í
stjórnunarstöðu. 1962 var hann
annar aðalþula á fyrstu einka-
reknu kanadísku sjónvarps-
fréttastöðinni. Flutti tveimur
árum síðar til New York og hóf
störf hjá ABC. Varð aðalfrétta-
þulur CBS árið 1983. Kom til Ís-
lands líkt og Brokaw og Rather
og flutti fréttir af leiðtogafundi
Ronalds Reagans og Mikhaíls
Gorbatsjov.
DAN RATHER
Aðalfréttaþulur CBS
Rather byrjaði
sem blaðamaður
á Houston
Chronicle og
vann síðar á út-
varps- og sjón-
varpsstöðvum í
Texas þar til
hann tók til
starfa hjá CBS. Þar flutti hann
fréttir af mörgum heimsvið-
burðum, svo sem morðinu á
John F. Kennedy Bandaríkja-
forseta, réttindabaráttu þel-
dökkra og Watergate-hneyksl-
inu. Í millitíðinni óskaði hann
eftir því að vera sendur til
Víetnam þaðan sem hann sagði
fréttir af stríðinu sem þar geis-
aði. Tók við starfi aðalfréttaþul-
ar CBS af Walter Cronkite árið
1981 og upphófst fljótt mikil
samkeppni milli hans, Jennings
og Brokaw.
TOM BROKAW
Aðalfréttaþulur NBC
Þegar Brokaw
hætti störfum 1.
desember síðast-
liðinn átti hann
að baki 21 ár í
starfi sem aðal-
f r é t t a þ u l u r
NBC. Brokaw
byrjaði í frétta-
mennsku rúm-
lega tvítugur, fjallaði um mann-
réttindabaráttuna í suðurríkjum
Bandaríkjanna á sjöunda ára-
tugnum og var fréttamaður NBC
í Hvíta húsinu þegar Watergate-
hneykslið var í algleymi. Hann
varð fréttaþulur við annan mann
1982 en varð einn um sviðið ári
síðar. Brokaw var að sögn fyrir-
myndin að fréttamanninum í
myndinni Broadcast News sem
reis á toppinn þrátt fyrir tak-
markaða fréttamennskuhæfi-
leika.