Fréttablaðið - 12.03.2005, Síða 32
Volkswagen bjalla
Fyrir tilstilli Adolfs Hitler var Volkswagen bjallan hönnuð á þriðja áratug síðustu
aldar af Ferdinand Porsche. Hitler vildi láta framleiða smáan fjölskyldubíl á við-
ráðanlegu fyrir fólkið í landinu, en Volkswagen þýðir einmitt bíll fólksins.[ ]
• SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR
• BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA
ALLT Á EINUM STAÐ
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
VINNUM EFTIR
CABAS-KERFINU
Tjónaskoðun
Vel búinn bíll á hagstæðu verði
Hyundai Sonata 2005 við höfuðstöðvar Hyundai í Evrópu sem eru í Rüsselheim, rétt fyrir utan Frankfurt.
Ný Hyundai Sonata er rúmgóður fjögurra dyra
vel búinn stallbakur. Bíllinn státar meðal ann-
ars af nýju fullkomnu fjöðrunarkerfi og sjálf-
skiptingu með beinskiptimöguleika.
Ný Hyundai Sonata verður frumsýnd hjá B og L nú
um helgina og er þetta fimmta kynslóð bílsins, sem
kom fyrst á markað árið 1985. Bíllinn hefur verið
lengdur um 5,5 mm frá síðustu útgáfu og er plássið
vel nýtt því þetta er bíll sem er vel stór að innan,
yfirdrifið pláss fyrir fætur fullorðinna aftur í þótt
framsætisfólk spari ekkert við sig plássið. Farang-
ursgeymslan er einnig mjög stór (462 l).
Breytingar á útliti eru ekki byltingarkenndar en
framendinn sérstaklega er fallegur og nútímalegri
en á fyrirrennaranum. Að innan er bíllinn einfaldur
og stílhreinn og ekki síður aðgengilegur og not-
endavænn. Af nýjum staðalbúnaði má nefna nýtt
og fullkomið fjöðrunarkerfi og fjögurra þrepa
steptronic-sjálfskiptingu með beinskiptimöguleika.
Í lok febrúar var blaðamönnum boðið að reynslu-
aka bílnum í Þýskalandi. Þar voru reynslueknir
bílar með 2,4 lítra 161 hestafla vél, bæði beinskipur
og sjálfskiptur, en þetta eru fyrstu útgáfur bílsins í
nýju 2005 útfærslunni. Síðar á árinu er væntanleg
ný Sonata með 3,3 lítra V-6 vél og á næsta ári
kemur dísilbíll með tveggja lítra CRDi-vél.
Bíllinn var skemmtilegur í allri umgengni og
vakti til dæmis athygli hversu vel hann lá á hrað-
brautinni jafnvel þótt afar greitt væri ekið. Sömu-
leiðis var bíllinn vel einangraður þannig að veg-
hljóð greindust varla. Viðmótið var skemmtilegt og
hlutir eins og leðurklætt stýri og hnúður á gírstöng
gefabílnum gæðalegt yfirbragð. Sömuleiðis upp-
hitun í framrúðu fyrir rúðuþurrkur, sem kom sér
vel í frostinu sem herjaði á Mið-Evrópu.
Hyundai Sonata er bíll sem hentar þeim sem
vilja verulega rúmgóðan fólksbíl með góða
aksturseiginleika og er um leið á afar góðu verði.
Verðið á sjálfskipta bílnum er 2.290.000 kr. en sá
beinskipti kostar 2.140.000.
Hyundai Sonata verður frumsýnd nú um helg-
ina hjá B og L. Opið er milli kl. 12 og 16 báða dag-
ana.
steinunn@frettabladid.is
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
REYNSLUAKSTUR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
IN
U
N
N