Fréttablaðið - 12.03.2005, Qupperneq 48
36 12. mars 2005 LAUGARDAGUR
Plötusnúðurinn heimsþekkti Fatman Scoop
kemur fram á næstu Shockwave-hátíð FM 957
sem verður haldin föstudaginn 18. mars í
Sjallanum á Akureyri og daginn eftir á Broa-
dway.
Hinn íturvaxni Scoop hefur gefið út mörg
vinsæl partílög undanfarin ár, þar á meðal Be
Faithful sem hann söng með Faith Evans.
Nýjasta lag hans er með söngkonunni Mariah
Carey. Scoop er að vinna að sinni fyrstu stóru
plötu um þessar mundir en hann hefur áður
gefið út fjölmargar smáskífur sem hafa notið
mikilla vinsælda.
Feita manninn hlakkar mikið til að koma
hingað til lands. „Auðvitað, ég hef aldrei kom-
ið þangað. En ég verð fyrst að fá að vita eitt-
hvað um landið því fyrirfram held ég að það
sé mjög kalt þar, er það rétt?, spyr hann með
nokkuð hásri en mjúkri útvarpsrödd sinni.
Fær hann þau svör að hér sé nokkurra gráðu
hiti og alveg hreint ágætis veður.
Fatman var að stýra hinum vinsæla út-
varpsþætti sínum á Hot 97 FM í New York
þegar blaðamaður ræddi við hann, en þangað
hefur hann fengið í heimsókn marga af fræg-
ustu tónlistarmönnum heims á borð við Snoop
Dogg og 50 Cent. Síðar um daginn átti Fatman
síðan að kynna nýja lagið sitt ásamt Mariah
Carey. Hann segist alltaf hafa nóg fyrir stafni.
„Já, ég er mjög upptekinn á hverjum degi. Ég
vinn um 20 klukkustundir á dag og sef því í
um það bil fjóra tíma,“ segir hann og virðist
meina hvert orð. Hann bætir því við að sam-
starfið með Carey hafi verið ákaflega gott.
„Ég þekkti Mariah aðeins áður en þessi
reynsla hefur sýnt mér betur að hún er mjög
góðhjörtuð manneskja, algjör engill.“
Að sögn Fatman var löngu kominn tími á að
búa til plötu með eigin lögum í stað þess að
spila sömu lögin eftir aðra á hverjum tónleik-
unum á fætur öðrum. „Ég vil ekki vera þekkt-
ur sem náunginn sem stelur plötum og lögum
eftir aðra, heldur sá sem gerir miklu meira en
það. Þessi nýja plata verður partíplata sem þú
getur sett á fóninn þegar þú ert að þrífa húsið
eða bara að skemmta þér. Það er það eina sem
ég vil gera. Ég vil ekki meiða neinn, skjóta
neinn eða slást við neinn. Ég vil ekki vera bófi
því það er bara ekki ég. Ég vil bara skemmta
mér og búa til partítónlist,“ segir hann.
Öflugur hópur íslenskra hip hop lista-
manna mun hita upp fyrir Fatman á tónleik-
um hans hér á landi. Þar má nefna Tiny og
Steina úr Quarashi, Igor, Kritikal Mass, Önnu,
DJ B Ruff og DJ Skinny T. Miðasala fer fram
á Broadway og í Sjallanum og er miðaverð
1500 krónur.
freyr@frettabladid.is
Miðasala á tónleika Roberts Plant í
Laugardalshöll 22. apríl, hefst
laugardaginn 19. mars klukkan 11.
Tónleikarnir eru liður í tónleika-
ferð Roberts Plant og hljómsveitar
hans The Strange Sensation í til-
efni af útkomu Mighty Rearranger,
nýjustu plötu Plants.
Ljóst er að eftirvæntingin er
mikil enda á Robert Plant sér að-
dáendur á öllum aldri á Íslandi,
ekki síst sökum þess að Led Zepp-
elin kom hingað og hélt eftir-
minnilega tónleika í Laugardals-
höllinni árið 1970.
Miðasalan fer fram í Hard
Rock í Kringlunni, bókabúðum
Pennans á Akureyri og á Akra-
nesi, í Hljóðhúsinu á Selfossi og á
midi.is.
Laugardalshöllinni verður
skipt í þrjú svæði. Verð í stúku
verður 4.900, í fremri stúku 5.500
og í stæði 4.500. ■
Á laugardaginn mun '80 goðsögn-
in Grafík halda sinn fyrsta dans-
leik í rúm 17 ár á NASA. Hljóm-
sveitin hefur ekki spilað fyrir
dansi síðan hún steig á stokk á
áramótadansleik Broadway 1987
en árið eftir hætti sveitin form-
lega störfum. Grafík gaf út alls
fimm plötur og náði meðal annars
þremur lögum í 10 efstu sætin á
vinsældarlista Rásar 2, eitthvað
sem fáum íslenskum hljómsveit-
um hefur tekist að leika eftir.
Helga Björnssyni, aðalsöngv-
ara Grafík var farið að kitla í lóf-
ana, og lofaði góðum tónleikum.
„Prinsessan Andrea Gylfadóttir
verður heiðursgestur og við mun-
um að sjálfsögðu spila alla klass-
ísku smellina eins og Húsið og ég,
Sextán og 1000 sinnum segðu já í
bland við gamla '80 smelli á borð
við China Girl, Let's Dance og
Money for nothing,“ segir hann.
Helgi segir að þó einn með-
lima sveitarinnar sé nú horfinn
af sjónarsviðinu muni andi hans
svo sannarlega svífa yfir vötn-
um á laugardagskvöldið. „Sonur
trymbilsins Rafns Jónssonar,
Egill, spilar á trommurnar og
heldur minningu föður síns hátt
á lofti, enda lifandi eftirmynd
hans.“ Nasa opnar klukkan ell-
efu og er miðaverðið 1.500 krón-
ur. ■
Það er eitthvað mjög ævintýralegt
við tónlist Mercury Rev. Þetta er
hundgömul sveit sem á nokkur frá-
bær ævintýri að baki og enn og
aftur er bakpokinn lagður yfir öxl-
ina. En í þetta skiptið er ævintýrið
ekki jafn spennandi og áður. Að
hlusta á þessa plötu er eiginlega
eins og að heyra þriðju framhalds-
söguna af Hans og Grétu. Eða jafn-
vel frekar áframhaldandi ævintýri
fjölskyldu Bambi.
Það er erfitt að skjóta niður
sveit sem maður hefur hjarta
fyrir. Ef þið eruð í ævintýrahug,
tékkið þá á meistarverkunum
Deserter's Songs og All Is Dream
en látið þessa plötu eiga sig. The
Secret Migration virkar útþynnt
og hljóðfæraleikur aldinn.
Þessi plata er skýr merki þess
að maður á ekki alltaf að halda sig
við formúluna. Þessi plata er í
svipuðum hljóðheimi og fyrri
verk og það er í rauninni ekkert
að flutningnum. En hið óútskýran-
lega „það“ vantar sárlega. Þetta
er þegar allt kemur til alls bara
hundleiðinlegt. Ég efast um að ég
eigi eftir að muna eftir að hafa
hlustað á þessa plötu eftir svona
viku. Sem er kannski frábært, því
ef ég man ekki eftir þessu glappa-
skoti get ég fyrr fyrirgefið þess-
ari annars frábæru hljómsveit. Ég
ætla því ekki að afskrifa hana í
þetta skiptið.
Birgir Örn Steinarsson
Hundleiðinlegt ævintýri
MERCURY REV:
THE SECRET MIGRATION
Niðurstaða: The Mercury Rev hefur aldrei
hljómað eins óáhugaverð og á þessari nýju
plötu. Það er eins og liðsmenn hafi verið knún-
ir áfram af einhverju allt öðru en sköpunargleði
við að gera þessa plötu.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Ef maður er rappari og langar til
þess að ná athygli rappheima með
fyrstu plötu sinni er ekki verra að
vera studdur af Dr. Dre og 50
Cent. Þannig er það einmitt með
The Game. Ungur svartur pirrað-
ur piltur úr Compton-hverfi Los
Angeles sem er auðvitað búinn að
vinna fyrir sér sem eiturlyfjasali.
Hann er harður nagli og rapp-
ar um glæpi jafn heiðarlega og
hann rappar um hvað annað. Svo
virðist sem þetta sé tilraun Dr.
Dre að koma gangsta rappinu
aftur í tísku. Nú er hann og
Eminem búnir að finna tvo harða
nagla, hvorn á sinni strandlengju
í Bandaríkjunum.
Auðvitað er þetta virkilega vel
gert, enda ekki hægt að búast við
öðru frá meistara Dre. Hins vegar
hefur The Game ekki upp á neitt
nýtt að bjóða hvað textainnihald
varðar. Hann hefur gott flæði,
kann að skjóta á hina og þessa...
en maður hefur svo sem heyrt
þessar sorgarsögur af strætinu
áður. The Game er alvarlegur
tappi, ekki húmoristi eins og
Snoop Dogg eða Eminem. Grúfin
eru grípandi, en þau gætu alveg
eins verið búin til fyrir 50 Cent...
þetta er allt byrjað að hljóma of
líkt hvort öðru.
Auðvitað er platan full af gest-
um á borð við Eminem, 50 Cent,
Busta Rhymes, Nate Dogg og Faith
Evans. Persónulega finnst mér The
Game bestur í þeim lögum sem
hann er einn og óstuddur. Ég get
ekki ímyndað mér að The Game
verði stórstjarna á borð við 50 Cent
eða Eminem en þessi plata kemur
honum örugglega á kortið.
Birgir Örn Steinarsson
Er glæparappið dautt?
THE GAME:
THE DOCUMENTARY
Niðurstaða: Nýjasta undrabarn Dr. Dre gefur út
frumraun sína. Sæmilegasta plata og ágætis
rappari, en glæparímurnar virka þreyttar. Sama
tuggan, aftur og aftur.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Grafík snýr aftur
GRAFÍK Í NÚVERANDI MYND Hefur ekki spilað fyrir dansi í rúm 17 ár, en ætlar á
laugardaginn að trylla lýðinn á Nasa.
FATMAN SCOOP
Hlakkar mikið til að spila partítónlist sína
fyrir íslenska hiphop-aðdáendur.
Sefur í fjóra tíma á dag
ROBERT PLANT Fyrrverandi söngvari Led Zeppelin er á leiðinni hingað til lands.
Miðasalan hefst 19. mars