Fréttablaðið - 12.03.2005, Qupperneq 50
38 12. mars 2005 LAUGARDAGUR
Þ að er gömul saga og ný aðmannaráðningar í Ríkis-útvarpinu valdi ólgu. Oft
hefur gustað um ganga Útvarps-
hússins þegar fólk hefur verið ráð-
ið til starfa, ýmist vegna óánægju
með að viðkomandi hafi verið ráð-
inn en þó oftar vegna þess að ein-
hver annar var ekki ráðinn.
Aldrei hafa lætin þó orðið jafn
mikil og nú.
Útvarpsstjóri ræður starfs-
menn stofnunarinnar „þó að
fengnum tillögum útvarpsráðs ef
um starfsfólk dagskrár er að
ræða“, eins og segir í lögum um
Ríkisútvarpið. Menntamálaráð-
herra skipar útvarpsstjóra og
ræður framkvæmdastjóra fjár-
máladeildar, hljóðvarpsdeildar og
sjónvarpsdeildar. Sú tilhögun að
útvarpsráð mæli með fólki til
dagskrárstarfa hefur lengi verið
gagnrýnd og raunar hefur tillaga
um breytingu þar á verið flutt á
alþingi, án þess að ná fram að
ganga. Samkvæmt framkomnum
upplýsingum um nýtt frumvarp
menntamálaráðherra um Ríkis-
útvarpið er gert ráð fyrir að út-
varpsráð verði aflagt og þar með
aðkoma pólitískt kjörinna full-
trúa að starfsmannamálum.
Á miðvikudag fór útvarps-
stjóri að tillögu meirihluta út-
varpsráðs og réði Auðun Georg
Ólafsson í starf fréttastjóra út-
varps. Ákvörðunin fór illa í
marga og í kjölfarið fylgdu að-
gerðir sem ekki eiga sér hlið-
stæðu.
Elín, Bogi og Dóra
Nokkur hasar varð í Efstaleitinu
í desember 2002 þegar ráðið var
í starf fréttastjóra Sjónvarps.
Sigríður Árnadóttir hlaut þá
fjögur atkvæði í útvarpsráði en
Elín Hirst þrjú. Sjálfstæðis-
mennirnir þrír í ráðinu greiddu
Elínu atkvæði sín og fór Markús
Örn Antonsson útvarpsstjóri að
ráði þeirra.
Minni hasar varð í mánuðin-
um áður þegar Bogi Ágústsson
var ráðinn forstöðumaður ný-
stofnaðs fréttasviðs Ríkisút-
varpsins. Engu að síður greiddi
minnihluti útvarpsráðs honum
atkvæði sín, það er að segja full-
trúar Sjálfstæðisflokksins. Aðr-
ir útvarpsráðsmenn sátu hjá við
atkvæðagreiðsluna.
Fjórum árum áður, 1998, sótti
Margrét Oddsdóttir um starf
framkvæmdastjóra Útvarps.
Það gerði líka Dóra Ingvadóttir,
skrifstofustjóri Útvarpsins. Út-
varpsráð greiddi sín atkvæði
líkt og því bar og hlaut Margrét
fjögur en Dóra þrjú. Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
fór að tillögu flokksbræðra
sinna í útvarpsráði og réði Dóru
til starfans.
Talsverð ólga fylgdi þessari
ráðstöfun ráðherrans en öldurn-
ar lægði með tímanum.
Pólitísk hrossakaup
Nokkrum mánuðum áður stóðu
útvarpsráð og menntamálaráð-
herra frammi fyrir svipuðu
máli. Í september 1997 skyldi
ráða framkvæmdastjóra Sjón-
varps.
Ásdís Olsen fjölmiðlafræð-
ingur hlaut fjögur atkvæði í út-
varpsráði en Bjarni Guðmunds-
son rafmagnstæknifræðingur
þrjú atkvæði sjálfstæðismanna.
Björn réði Bjarna.
Í kjölfarið gagnrýndi Ásdís
ráðninguna og sagðist ekki sjá
að menntun eða þekking Bjarna
uppfylltu skilyrði auglýsingar
og starfslýsingar. Hún teldi að
framkvæmdastjóri Sjónvarps
ætti að hafa vit á dagskrá en
ekki endilega rekstri.
Til svipaðra raka er gripið nú
þegar gagnrýnd er ráðning
markaðs- og sölustjórans
Auðuns Georgs sem fréttastjóra
Útvarps. Því er haldið fram að
fréttastjórinn eigi að vera frétta-
maður að upplagi en ekki eitt-
hvað annað.
Eftir atkvæðagreiðslu út-
varpsráðs, en fyrir ráðningu
menntamálaráðherra, dró Ingólf-
ur Hannesson íþróttafréttastjóri
umsókn sína um framkvæmda-
stjórastarfið til baka. Gerði hann
það með bréfi til menntamála-
ráðuneytisins þar sem hann kall-
aði afgreiðslu útvarpsráðs ógeð-
felld pólitísk hrossakaup.
Breyttir siðir Framsóknar
Framkvæmdastjóramálið var ekki
eina heita kartaflan í Útvarpshús-
inu haustið 1997. Skömmu áður
logaði stafna á milli og teygðu eld-
tungurnar sig inn í þingflokk
Framsóknarflokksins og inn á
borð ráðherra. Þá stóðu útvarps-
ráð og útvarpsstjóri frammi fyrir
því að ráða tímabundið í starf
fréttastjóra Sjónvarps. Helgi H.
Jónsson og Elín Hirst sóttu um,
auk fimm annarra.
Afgreiðsla málsins dróst úr
hófi fram; atkvæðagreiðslum út-
varpsráðs var frestað í tvígang en
á endanum greiddu þrír ráðsmenn
Sjálfstæðisflokksins Elínu at-
kvæði sín en Helgi hlaut atkvæði
hinna fjögurra ráðsmannanna. Út-
varpsstjóri réði Helga.
Pétur Gunnarsson blaðamaður
skrifaði fréttaskýringu um málið
í Morgunblaðið þar sem sagði
meðal annars að tveir ráðherrar
Framsóknarflokksins, þeir Finn-
ur Ingólfsson og Halldór Ás-
grímsson, hefðu beitt sér gegn
ráðningu Elínar. Sé það rétt, sem
ekki verður efast um hér, höfðu
þeir sitt fram.
Síðar í greininni er Gissur
Pétursson, fulltrúi Framsóknar-
flokksins í útvarpsráði, spurður
hvort hann vinni samkvæmt
flokkslínu í ráðinu. Gissur svar-
ar: „Þegar ég starfa í Útvarps-
ráði starfa ég þar sem fulltrúi
Framsóknarflokksins og það er
svo með alla þá sem þarna eru
inni og það er yfirskin að segjast
vera eitthvað annað að mínu
mati. Þetta er pólitísk stjórn og
ríkisstofnanir heyra með einum
eða öðrum hætti undir hið pólit-
íska vald.“
Blaðamaðurinn Pétur Gunn-
arsson sat útvarpsráðsfundinn
umdeilda á þriðjudag fyrir Fram-
sóknarflokkinn og neitaði því í
Kastljósi á fimmtudag að hafa
ráðfært sig við nokkurn mann
um ráðstöfun atkvæðis síns.
Þau orð Péturs verða ekki
dregin í efa hér og því óhætt að
fullyrða að Framsókn hafi tekið
upp nýja siði.
Þorgerður Katrín ráðin
Þetta viðburðaríka haust 1997
var einnig ráðið í þrjár forstöðu-
mannastöður innan Ríkis-
útvarpsins. Var það gert vegna
nýs skipulags sem þá tók gildi en
við það voru dagskrárdeildirnar
tvær, Rás eitt og Rás tvö, lagðar
niður sem einingar og í staðinn
búin til þrjú dagskrárfram-
leiðslusvið.
Hávaðalaust var Margrét
Oddsdóttir ráðin yfirmaður
menningardeildar og Óskar Ing-
ólfsson yfirmaður tónlistar-
deildar. Ráðning Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur í starf
yfirmanns samfélags- og dægur-
máladeildar var hins vegar
stormasöm. Þorgerður hafði
hlotið þrjú atkvæði sjálfstæðis-
manna í útvarpsráði en Kristín
Ólafsdóttir dagskrárgerðarmað-
ur hin fjögur atkvæðin. Talsverð
óánægja greip um sig á göngun-
um og víðar með þá ákvörðun út-
varpsstjóra að ganga gegn
meirihluta útvarpsráðs og var
pólitík sögð stjórna gjörðum
hans. Var það hvorki í fyrsta
sinn né það síðasta sem stjórn-
mál og flokksskírteini eru talin
ráða meiru um ráðningar starfs-
manna Ríkisútvarpsins en fag-
leg sjónarmið.
Athyglisvert er annars að
rifja upp að í febrúar 1997 lögðu
Mörður Árnason og Svanfríður
Jónasdóttir, þá þingmenn í þing-
flokki Jafnaðarmanna, til á Al-
þingi að útvarpsáð hætti afskipt-
um af ráðningu fréttamanna hjá
RÚV. Skemmst er frá því að
segja að tillagan náði ekki fram
að ganga þá en breyting ku vera
í farvatninu, nú átta árum síðar.
bjorn@frettabladid.is
Þau skipuðu Útvarpsráð á þriðjudag
Andri Óttarsson Sjálfstæðisflokki
Anna K. Jónsdóttir Sjálfstæðisflokki
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson Sjálfstæðisflokki
Pétur Gunnarsson Framsóknarflokki
Andrés Jónsson Samfylkingunni
Ingvar Sverrisson Samfylkingunni
Kjartan Eggertsson Frjálslynda flokknum
RÁÐNINGU MÓTMÆLT Starfsmannasamtök RÚV efndu til fundar í hádeginu á fimmtu-
dag þar sem mikill meirihluti fundarmanna mótmælti ráðningu útvarpsstjóra á nýjum
fréttastjóra Útvarps.
Sjálfstæðismenn ráða RÚV
Það er regla að útvarps-
stjóri ráði þá umsækj-
endur um yfirmanna-
störf hjá Ríkisútvarpinu
sem fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins í útvarpsráði
mæla með. Á því eru
þó undantekningar sem
sanna regluna. Af þessu
má ráða að Sjálfstæðis-
flokkurinn stjórnar
hverjir stjórna RÚV.
ÞJÓÐAREIGN Í ÞÍNA ÞÁGU Ríkisútvarpið
hefur starfað í 75 ár. Alla tíð hefur gustað
þar um ganga og afskipti stjórnmálamanna
af stofnuninni sögð óeðlileg.
Þegar ég starfa í
Útvarpsráði starfa
ég þar sem fulltrúi Fram-
sóknarflokksins og það er
svo með alla þá sem þarna
eru inni og það er yfirskin
að segjast vera eitthvað
annað að mínu mati. Þetta
er pólitísk stjórn og ríkis-
stofnanir heyra með einum
eða öðrum hætti undir hið
pólitíska vald.
,,
Yfirstjórn RÚV tengist
Sjálfstæðisflokknum
Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri er fyrrverandi borgarfulltrúi og borgarstjóri
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Framkvæmdastjórar Útvarps og Sjónvarps, Dóra Ingva-
dóttir og Bjarni Guðmundsson eru tengd flokknum. Bogi Ágústsson, forstöðu-
maður fréttasviðs og Elín Hirst, fréttastjóri Sjónvarps, hallast að stefnu Sjálfstæð-
isflokksins í stjórnmálum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/H
AR
I