Fréttablaðið - 12.03.2005, Page 54
42 12. mars 2005 LAUGARDAGUR
> Við mælum með ...
... að körfuknattleiksunnendur skelli sér
á leik Grindavíkur og
Keflavíkur í dag. Síðast
sauð upp úr og enduðu
lætin með kæru. Það
hafa því margir
harma að hefna og
von á miklu fjöri.
sport@frettabladid.is
> Það vantar greinilega ekki ...
... peningana í færeyska fótboltann en
B68 hefur samið á ný við markvörðinn
Albert Sævarsson. Hann er ekki sá
ódýrasti á
markaðnum en
hann játaði
síðastliðið sumar
að fá 250 þúsund
krónur fyrir að spila
fótbolta með
Grindavík.
Aðal frétt dagsins
Kæra Keflavíkur gegn Terrell Taylor
Keflvíkingar kærðu Taylor fyrir að
stíga ofan á Jón Hafsteinsson.
Aganefnd tók málið fyrir í gærkvöldi
og sá ekki ástæðu til þess að þyngja
refsingu Taylors og sleppur hann því
við bann.
Það er óhætt að segja að Jón Nordal
Hafsteinsson, körfuboltamaður úr Kefla-
vík, hafi komist í hann krappann á
fimmutdagskvöldið. Jón var að spila
með sínum mönnum gegn Grindavík í
úrslitakeppni Intersportdeildarinnar og
fékk að finna duglega fyrir Bandaríkja-
manninum Terrell Taylor í liði Grindavík-
ur. Taylor steig ofan á háls Jóns þar sem
hann lá á gólfinu og fékk dæmt ásetn-
ingsvíti á sig. Að fá Taylor á sig er ekkert
sældarlíf því kappinn er sannkallaður
þungvigtamaður, 203 cm á hæð og heil
132 kg á þyngd.
Jón Nordal bar sig þó þokkalega þegar
Fréttablaðið ræddi við hann í gær. „Ég er
allur að koma til,“ sagði Jón, nokkuð
ferskur miðað við að hafa fengið rúm-
lega 130 kg trukk á sig. „Þetta gerðist
hratt og ég verð að viðurkenna að þetta
kom mér töluvert á óvart. Ég er
handviss um að þetta var vilja-
verk því hann hefði auðveld-
lega getað sleppt þessu.
Þetta var fólskubrot en ég
veit ekki hvað hann var að
hugsa. Ég veit ekki hvort hann
var sár eða hvað en þú verður
að spyrja hann að því hvað var að
gerast hjá honum,“ sagði Jón.
Hann sagðist oft hafa fengið högg í leik
áður en þetta væri í fyrsta sinn sem stig-
ið væri á hann. Jón sagðist þó ekki ætla
að berja Taylor í leiknum í dag. Ég ætla
ekki að hefna mín á honum nema með
því að vinna leikinn. Það er eina hefndin
sem dugar,“ sagði Jón, sem er ekki
hlynntur því að kæra Taylor. „Það hefur
ekkert upp á sig því að við vinnum leik-
inn hvort sem hann er með eða ekki.“
JÓN NORDAL HAFSTEINSSON: FÉKK 132JA KG TERREL TAYLOR Á HÁLSINN
Ætla ekki að hefna mín
Skómarkaðurinn
Glæsibæ
S: 693-0997
ÚTSÖLUMARKAÐURINN
GLÆSIBÆ
Ertu búinn að koma og sjá úrvalið?
Ótrúlegt úrval af vinsælum
herra-, dömu- og barnaskóm:
Frábær verð eða frá kr. 995,-
Leðurstígvél
Rússkinsstígvél
Spariskór
Fermingarskór
Kuldaskór
Sportskór
Inniskór
Mikið úrval af töskum, eitt verð kr. 995,-
Nýjar vörur í hverri viku!
Opið sem hér segir:
Laugardaga frá 10:00-18:00
Alla virka daga frá 10:00 –18:00
ATH. Enn meiri verðlækkun
Komdu og gerðu góð kaup!
Í ELDLÍNUNNI Í UNGVERJALANDI Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real mæta
ungverska liðinu Fotex Veszprem í beinni á Sýn í dag.
Verðum að vinna þessa keppni
HANDBOLTI Tveir Íslendingar verða
í eldlínunni með félögum sínum í
Meistaradeildinni í handbolta í
dag. Logi Geirsson og félagar
hans í Lemgo eiga mjög erfitt
verkefni fyrir höndum er þeir
mæta Celje Pivovarna Lasko í
Celje en slóvenska liðið vann fyrri
viðureign félaganna í Þýskalandi
með fjögurra marka mun, 29-33.
Staða Ólafs Stefánssonar og
félaga í Ciudad Real er ívið betri
en þeir mæta ungverska liðinu
Fotex Veszprem í Ungverjalandi.
Ciudad vann fyrri leikinn með sjö
marka mun, 29-22. Fréttablaðið
sló á þráðinn til Ólafs og spurði
hann út í leikinn í dag, sem sýnd-
ur verður í beinni útsendingu á
Sýn.
„Við erum í fínum málum en
það er bara hálfleikur og það
mætti segja að við séum bara
þremur mörkum yfir. Það er ekki
meira en það því hlutirnir eru
mjög fljótir að gerast þarna í
Veszprem og ég þekki það mjög
vel,“ sagði Ólafur, sem hefur
margoft mætt þessu ungverska
liði, bæði með Ciudad og
Magdeburg.
„Maður spilar þarna nánast á
hverju ári. Þetta er mikil gryfja
og mikill hávaði sem myndast
þarna. Ef þeir ná upp vörn og
markvörslu getur allt gerst.“
Ciudad verður án markvarðar-
ins Arpard Sterbik sem sleit
krossbönd en markvarslan ætti
samt ekki að vera vandamál því
liðið hefur einnig innan sinna raða
hinn frábæra markvörð spænska
landsliðsins, Hombrados. Það er
mikið undir hjá Ciudad í leiknum.
Liðið er búið að missa af spænska
titlinum og stendur ekki vel að
vígi með að vinna sér sæti í Meist-
aradeildinni að ári og því þarf það
helst að vinna keppnina til þess að
tryggja sér þátttökurétt í Meist-
aradeildinni að ári.
„Það er óhætt að segja að það
sé pressa á okkur og við verðum
að vinna þessa keppni til þess að
vera öruggir með áframhaldandi
þátttökurétt,“ sagði Ólafur
Stefánsson og hló létt.
henry@frettabladid.is
Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real mæta Fotex Veszprem í Meistaradeildinni í dag. Ólafur segir
að Ciudad verði helst að vinna keppnina til þess að tryggja sæti í deildinni að ári.
LEIKIR GÆRDAGSINS
1. deildin í handbolta
GRÓTTA/KR–STJARNAN 24–32
Grótta/KR: Kristinn Björgúlfsson 9, Kristján
GeirÞorsteinsson 4, Daníel Berg Grétarsson 4,
Daði Hafþórsson 3, David Kekelia 2.
Stjarnan: Guðmundur Guðmundsson 12, Arnar
Theodórsson 6, Þórólfur Nielsen 4, Gunnlaugur
Garðars. 3, Kristján Kristjáns. 3, Davíð Ketils. 3.
FH–AFTURELDING 34–24
FH: Guðmundur Pedersen 7, Brynjar Geirsson 6,
Heiðar Arnarson 6, Hjörleifur Þórðarson 5,
Hjörtur Hinriksson 4, Jón Jóns. 2, Arnar Agnars. 2.
Afturelding: Ernir Arnarson 8, Vlad Troufan 6,
Magnús Einars. 3, Einar Hrafns. 3, Ásgeir Jóns. 3.
SELFOSS–FRAM 23–33
Mörk Selfoss: Ramunas Mikalonis 5, Jón Þor-
varðarson 5, Ívar Grétarsson 4, Ramunas Kalen-
dauskas 3, Haraldur Þorvarðars. 3, Atli Kristins. 1,
Mörk Fram: Jón Pétursson 13, Guðjón Drengs-
son 6, Stefán Stefánsson 4, Þorri Gunnarsson 3,
Guðlaugur Arnarsson 2, Ingólfur Axelsson 2.
STAÐAN
FH 9 7 1 1 253–20515
FRAM 9 7 0 2 245–219 14
GRÓTTA/KR 9 4 1 4 216–220 9
AFTURELDING9 4 0 5 240–251 8
STJARNAN 9 2 1 6 236–256 5
SELFOSS 9 1 1 7 224–263 3
Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppninni í körfubolta:
ÍR sigraði í Njarðvík
KÖRFUBOLTI ÍR-ingar komu
geysilega á óvart í gærkvöld
þegar þeir gerðu sér lítið fyrir og
sigruðu Njarðvíkinga á útivelli,
101–106, en þetta var fyrsta
rimma félaganna í úrslita-
keppninni.
Njarðvík leiddi nánast allan
tímann og hafði þriggja stiga
forystu eftir þrjá leikhluta. Þeir
komust síðan í 92–86 í fjórða
leikhluta en þá sögði ÍR-ingar
hingað og ekki lengra. Þeir
skoruðu níu stig í röð, litu aldrei
til baka og sigruðu leikinn.
Í hinum leik gærkvöldsins
fagnaði Fjölnir sigri á Skalla-
grími. Leikurinn var æsi-
spennandi og Skallagrímur leiddi
með átta stigum eftir þriðja
leikhluta. Fjölnismenn reynust
síðan sterkari í lokafjórðungnum.
Skallagrímur hefði getað tryggt
sér sigur undir lokin en þriggja
stiga skot Hafþórs Gunnarssonar
geigaði.
- hbg
LEIKIR GÆRDAGSINS
Intersportdeildin
FJÖLNIR–SKALLAGRÍMUR 76–74 (42–38)
Stig Fjölnis: Jeb Ivey 20 (9 stoðs.), Pálmar
Ragnarsson 16 (9 fráköst), William Coley 16 (13
fráköst), Nemanja Sovic 12, Magnús Pálsson 8,
Guðni Valentíusson 2, Hjalti Vilhjálmsson 2.
Stig Skallagríms: George Byrd 22 (21 fráköst),
Jovan Zdravevski 19, Ragnar Steinsson 15, Hafþór
Gunnarsson 11, Pálmi Sævarsson 3, Clifton Cook
2, Áskell Jónsson 2.
NJARÐVÍK–ÍR 101–106 (58–55)
Stig Njarðvíkur: Alvin Snow 23 (12 stoðs.),
Brenton Birmingham 20, Páll Kristinsson 16,
Doug Wrenn 13, Halldór Karlsson 11,
Guðmundur Jónsson 6, Egill Jónasson 4, Friðrik
Stefánsson 3 (16 fráköst), Ólafur Ingvason 2.
Stig ÍR: Theo Dixon 26 (9 fráköst), Eiríkur
Önundarson 21 (8 stoðs.), Grant Davis 19 (19
fráköst), Ólafur Sigurðsson 16, Fannar Helgason
11 (8 fráköst), Gunnlaugur Erlendsson 11, Ómar
Sævarsson 6.