Fréttablaðið - 12.03.2005, Side 57
LAUGARDAGUR 12. mars 2005 45
Jonn Wardle, stjórnarformaðurManchester City, segist munu gera
allt sem í hans valdi stendur til að
hindra það að Shaun Wright-
Phillips fari frá félaginu á hæla
Kevin Keegan.
Phillips er verð-
mætasti leikmaður
félagsins og hefur
staðið sig vel í vet-
ur, en hann er í sí-
fellu orðaður við
stóru klúbbana á
Englandi í sumar.
Manchester City er skuldum vafið
félag og gæti því neyðst til að selja
landsliðsmann sinn, en stjórnarfor-
maðurinn er ekki hrifinn af þeirri
hugmynd þó svo að liðið vanti sár-
lega fé inn í reksturinn. Auk þess
kostaði það örugglega skildinginn
að láta Kevin Keegan fara í gær.
Martin O’Neill, knattspyrnustjóriskosku meistaranna í Glasgow
Celtic, hefur brugðist reiðilega við
orðrómnum sem
tengir hann við
stjórastöðuna hjá
Manchester City,
eftir að Kevin
Keegan fór frá fé-
laginu. „Ég hef ver-
ið spurður hvort ég
væri að fara frá
Celtic hvern einasta dag síðan ég
tók við stjórn liðsins og svara alltaf á
sama hátt – ég fer ekki fet og það
er asnalegt að spyrja svona spurn-
inga á þessum tímapunkti á leiktíð-
inni þegar við erum í baráttunni um
meistaratitilinn. Þetta er allt saman
bara skrípaleikur í fjölmiðlum,“
sagði norður-írski knattspyrnustjór-
inn reiðilega, þegar hann var spurð-
ur út í stöðuna hjá City-liðinu.
Stuart Pearce hefur viðurkennt aðhann hafi mikinn áhuga á að
verða næsti knatt-
spyrnustjóri
Manchester City, en
hann sér um að
stýra liðinu út leik-
tíðina eftir að Kevin
Keegan tók pokann
sinn í gær. „Mig
langar að nota
þetta tækifæri og þakka Kevin fyrir
allt sem hann hefur gert fyrir mig
sem þjálfara og leikmann. Nú er
það ég sem er knattspyrnustjóri
félagsins og ég hef í hyggju að vera
hérna á næsta tímabili og jafnvel
lengur ef ég fæ tækifæri til þess,“
sagði Pearce, en hann hefur starfað
sem þjálfari hjá félaginu síðustu
árin.
Markvörðurinn Albert Sævarssonsem lengst af hefur varið mark
Grindvíkinga í úrvalsdeildinni, hefur
samið við fyrrum
félaga sína í B-68 í
Færeyjum. Albert
er 31 árs og lék
með færeyska lið-
inu árið 2003 og
var valinn í úrvalslið
mótsins fyrir
frammistöðu sína
með liðinu. Nú leikur B-68 hins-
vegar í annari deildinni og stefnir að
því að komast upp aftur. Þjálfari
liðsins er Julian Johnsson, sem var
eitt sinn á mála hjá Skagamönnum,
en hann leikur einnig með liðinu.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Robots :
Platformleikur byggður á samnefndri kvikmynd frá
Fox. Leikmenn fara í hlutverk Rodney Copperbottom
á ævintýrum hans úr Robots myndinni. Robots
heimurinn er að verða yfirtekinn af illum
einræðisherra og þurfa leikmenn að bjarga heiminum
frá þeim slæmu örlögum. Leikmenn taka lest til
stórborgarinnar sem er full af tannhjólum, gírum og
allskyns mekanisma, og hitta þar fyrir ógleymanlegan
hóp af persónum og vélum.
Robots playstation 2 leikur plús
2 bíómiðar á sérforsýningu á Robots á
meðan birgðir endast.
2.799
PC leikur
4.999
PS2 leiku
r
FYLGIR
Kauptu leikinn og farðu á forsýningu á Vélmennum með vini! Tveir bíómiðar fylgja
Ég er gul eins og BT músin
:)
KR - Snæfell
DHL – Höllin
12. mars
kl. 16.00
Úrslitakeppni
Þór hefur kært Keflavík fyrir að ræða við samningsbundna leikmenn án leyfis:
Þeir reyna að vaða yfir allt og alla
FÓTBOLTI Unnsteinn Einar Jónsson,
formaður knattspyrnudeildar
Þórs, sendi formlega kæru inn á
skrifstofu KSÍ á fimmtudag.
Hann er verulega ósáttur við
framkomu Keflvíkinga en hann
segir þá hafa rætt við leikmenn-
ina Hallgrím Jónasson, Gunnar
Líndal og Baldur Sigurðsson án
leyfis félagsins. Reyndar kæra
Þórsarar ekki vegna Baldurs enda
er hann lánsmaður hjá þeim frá
Völsungi.
„Þeir eru að tala við leikmenn á
samningi bæði beint og óbeint. Þá
meina ég að þeir tala líka við
pabba strákanna. Slíkt ætti að
skila sér rétta leið,“ sagði Unn-
steinn frekar ósáttur. „Þetta er
mjög óþægilegt á þessum tíma því
slík atvik koma ókyrrð á hópinn.
Þeir töluðu við föður Hallgríms
fyrir tveim vikum síðan en það er
lengra síðan þeir ræddu við Gunn-
ar. Kristján Guðmundsson, að-
stoðarþjálfari Keflavíkur, sá um
að ræða við Gunnar og það ekki
með okkar leyfi. Okkur finnst það
ólíðandi vinnubrögð að menn
komi svona og reyni að vaða yfir
allt og alla.“
Rúnar Arnarsson, formaður
knattspyrnudeildar Keflavíkur,
skildi hvorki upp né niður í kæru
Þórsara og hafði litlar áhyggjur af
henni.
„Þetta kemur mér í opna
skjöldu og ég vísa þessu til föður-
húsanna. Við teljum okkur hafa
staðið eðlilega að þessu máli og ég
hef engar áhyggjur af þessu
máli,“ sagði Rúnar en hann neitar
því ekki að Keflvíkingar hafi rætt
við feður leikmannanna. „Þeir
hafa frekar hringt í okkur en
öfugt.
Það er heldur ekkert sem bann-
ar okkur að tala við feðurna. Þess-
ir drengir eru áhugasamir um að
koma til okkar og vilja endilega
koma en Þór stendur í vegi fyrir
þeim,“ sagði Rúnar, sem segist
hafa rætt við Baldur með leyfi
Völsungs en Gunnar Líndal
sagðist Rúnar aldrei hafa heyrt
minnst á.
henry@frettabladid.is
SEFUR RÓLEGA Rúnar Arnarsson,
formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur,
hefur engar áhyggjur af kæru Þórsara.