Fréttablaðið - 12.03.2005, Qupperneq 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
19.900,-
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is
„Geðveikt“
herbergi
IK
E
27
52
5
0
3.
20
05
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
5
290,-
BEDDINGE svefnsófi 200x104 sm með
POPULÄR dýnu 140x200 sm
Heilsuréttur
salat og cous cous
VESTBY kommóða
80x40x58 sm
RIBBA rammi
13x18 sm
2.900,-
VESTBY náttborð
1.490,-
VESTBY fataskápur
90x180 sm
4.900,-
2.990,-
MALOU CIRKEL
sængurföt
150x200/50x60 sm
990,-
490,-
LYDIA púðaver
72x72 sm
1.290,-
MYLONIT lampi
31 sm
690,-
FELICIA teppi
130x170 sm
1.490,-
LYDIA VÅG motta
133x195 sm
3.990,-
STORM lampar
H79,5 1.290,-
H120 2.490,-
H160 2.990,-
LYDIA efni
breidd 150 sm
390,-
MIKAEL tölvuborð
birki eða eik 77x50x76 sm
4.950,-
Ókeypis
mjólk
Jæja. Nú hefur yfirmönnum virt-ustu fréttastofu landsins tekist að
gefa öllum bestu fréttamönnum
stofunnar um árabil langt nef á einu
bretti og ráða í starf ungan mann
sem er á aldur við mig til þess að
stjórna dótinu. En þetta er allt í
góðu lagi því nú eru allir í góðum
gír út af ókeypis mjólk sem er hægt
að fá í stórum stíl í lágvöruverslun-
unum. Nú gildir að sanka að sér
fernum og setja í frysti, og ef menn
eiga ekki frysti, þá kaupa frysti í
grænum hvelli undir herlegheitin.
Þýðir ekkert annað. Spara.
ÞJÓÐFÉLAGIÐ er súrrealískt. Allt
í einu er mjólk ókeypis út af ein-
hverju sem enginn skilur og á sama
tíma verða ungir menn frá Marel
allt í einu fréttastjórar á útvarpinu
út af einhverju sem enginn skilur.
Það er nefnilega ekki nokkur leið að
átta sig á því almennilega hvernig
leiðin til frama á fréttastofu út-
varpsins getur legið í gegnum
Marel, en þar vann hinn nýskipaði
fréttastjóri og þótti standa sig vel.
HIN nýja ráðning á fréttastofunni
vekur spurningar, burtséð frá ókeyp-
is mjólk. Af henni má draga merki-
legar ályktanir. Það er semsagt rugl
að verja ævi sinni í eitthvað sem
kalla má lífsstarf, eins og til dæmis
að vera fréttamaður, og vera svo að
bisa við það um áratugaskeið að
sanka að sér reynslu og þekkingu.
Nú gildir að standa sig vel hjá Marel
Group eða Flögu Group eða deCode
Group eða Icelandair Group eða
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
Group og hafa kannski verið – án
þess að það skipti í sjálfu sér nokkru
máli – sumarafleysingamaður á
fréttastofu, þannig að maður geti
alla vega sagst hafa sagt fréttir ein-
hvern tímann, og þá er maður sem
sagt góður í fréttastjórastólinn. Já,
og ekki sakar að þekkja réttu menn-
ina í réttu flokkunum til þess að inn-
sigla ráðninguna, en menn segja
reyndar að sú vinátta hafi ekki skipt
neinu máli, sem gerir auðvitað ráðn-
inguna enn súrrealískari.
TALANDI um ókeypis mjólk. Líkur
eru á að nýi fréttastjórinn hafi einmitt
verið nýhættur að drekka ókeypis
mjólk rétt um það bil er elstu og
reyndustu fréttamenn á RÚV hófu
störf á stofnuninni. Það sem ég meina
er þetta: Fréttastjórastóllinn á útvarp-
inu er ekki bara einhver staða (tja,
eða ókeypis mjólk) sem pólitískt skip-
að útvarpsráð getur gefið hverjum
sem er, alveg sama hversu ágætir
menn það eru á sínu sviði. Það er til
eitthvað sem heitir reynsla. Og nú vill
svo til að heill haugur af umsækjend-
um hafði einmitt unnið sig upp í virð-
ingu og áreiðanleika innan stofnunar-
innar með farsælu starfi um langt
árabil. Þeim hefur núna verið sagt að
éta það sem úti frýs. Eða öllu heldur:
Þeir geta bara huggað sig við það að
það er hægt að fá ókeypis mjólk í lág-
vöruverslununum um þessar mundir.
Það er ágætt. ■
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR