Fréttablaðið - 13.03.2005, Blaðsíða 6
TRYGGINGASTOFNUN Tvö af þremur
fyrirtækjum sem flytja inn blóð-
sykurmæla, blóðstrimla og hnífa
fyrir sykursjúka, segja viðskipti
sín mjög svipuð milli ára 2003 og
2004. Um er að ræða fyrirtækin
Vistor og Lyru. Þriðja fyrirtækið
sem flytur inn þessi hjálpartæki
er Logaland.
Kostnaður Tryggingastofnunar
vegna ofangreindra hjálpartækja,
einkum þó blóðstrimla, jókst um
allt að 50 milljónir á árinu 2004,
eins og fram hefur komið í Frétta-
blaðinu. Kristján Guðjónsson,
framkvæmdastjóri hjá Trygg-
ingastofnun, kvaðst vita hvaða
innflutningsfyrirtæki ætti hlut að
máli varðandi þessa kostnaðar-
aukningu. Hann kvaðst ekki vilja
gefa uppi nafn þess, þar sem um
viðskiptahagsmuni væri að ræða.
Eins og greint var frá greip
heilbrigðisráðuneytið til þess ráðs
að breyta reglugerð varðandi
blóðstrimla og önnur hjálpartæki af þeim toga til að sporna við
áframhaldandi ofnotkun eins og
Kristján orðaði það. Um leið var
endurgreiðsluupphæðin til sjúk-
linga lækkuð um fimmtán prósent.
„Umsetningin hjá Lyru minnk-
aði ekkert á árinu 2004,“
sagði Höskuldur Hösk-
uldsson framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins.
Berghildur Magnúsdótt-
ir, lífeindafræðingur og
sölufulltrúi hjá Vistor,
tók í sama streng og
Höskuldur og sagði eng-
an samdrátt í sölu hjá
sínu fyrirtæki milli ára.
Þau kváðust bæði velta
fyrir sér spurningunni
um hver hefði flutt inn allan þann
viðbótarfjölda blóðstrimla sem
hefði hleypt endurgreiðslukostn-
aði Tryggingastofnunar upp um 50
milljónir króna á tíu mánaða tíma-
bili 2004, en stofnunin endurgreið-
ir 80 til 90 prósent af heildarkostn-
aði við strimlana.
„Ég spyr mig hvert allir þessir
blóðstrimlar hafi farið, því úr því
að þessi tvö fyrirtæki halda sínu
þá hlýtur að vera um hreina við-
bót að ræða.“ sagði Höskuldur.
„Áður en reglugerðinni var
breytt var kerfið þannig að það
var nánast opinn reikningur á
Tryggingastofnun hvað
þessar endurgreiðslur
varðaði.“
Aðspurð fullyrtu
Höskuldur og Berglind
að Lyra og Vistor hefðu
hvorki gefið fólki mæla
né blóðstrimla. Á spjall-
vef Samtaka sykur-
sjúkra er hins vegar
varpað fram spurningu
frá manni sem spyr
hvernig standi á því að
ekkert hafi komið frá samtökun-
um um að „Logaland gefi blóðsyk-
urmæla og kostnaður við strimla
og blóðhnífa er enginn fyrir sjúk-
linga hjá þeim“.
Ingibergur Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri Logalands, kvaðst
ekki vilja svara spurningum
Fréttablaðsins um þetta mál.
jss@frettabladid.is
6 13. mars 2005 SUNNUDAGUR
Landeigendur hvattir til að blekkja kaupendur:
Lífshættulegt lóðabrask
SMITSJÚKDÓMAR Dæmi eru um að
fasteignasalar ráðleggi landeig-
endum að þegja yfir dýraleifum
sem dysjaðar eru á landi þeirra og
taldar bera miltisbrand en að öðr-
um kosti kunni jarðirnar að falla í
verði. Berist miltisbrandur í fólk
getur hann leitt til dauða en um 10
slík tilfelli eru þekkt á Íslandi.
Sigurður Sigurðarson, dýra-
læknir að Keldum, segir dæmi
þess að fasteignasalar hafi ráðlagt
fólki á ýmsum stöðum á landinu að
segja ekki frá urðunarstöðum sem
geyma sýktar dýraleifar. „Ég vil
ekki segja hvaða fasteignasalar
þetta eru en með því að upplýsa
þetta vænti ég þess að þeir sjái að
sér enda er hægt að varast smit af
völdum miltisbrands ef menn
þekkja urðunarstaðina. Á Austur-
landi er vitað um tæplega 30 urð-
unarstaði en þeir eru einnig marg-
ir á höfuðborgarsvæðinu og vestur
í Dölum,“ segir Sigurður.
Björn Þorri Viktorsson, formað-
ur Félags fasteignasala, segist
ekki þekkja dæmi þess að fast-
eignasalar hafi vísvitandi með
þessum hætti reynt að blekkja
kaupendur.
„Ef rétt reynist þá er ljóst að
umræddir fasteignasalar eru ekki
að fara að lögum hvað varðar upp-
lýsingalöggjöf til kaupenda,“ segir
Björn Þorri. - kk
fermingargjöf
Flott hugmynd að
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
74
76
12
/2
00
5
High Peak Norfolk
Mesta kuldaþol -15C°
Fermingartilboð
5.990 kr.
Verð áður 7.990 kr.
Er söknuður að Kasparov úr
skákinni?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Fylgistu með rektorskosningum
Háskóla Íslands?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
46%
54%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
MILTISBRANDUR Á VATSNLEYSUSTRÖND Í FYRRA
Vitað er að miltisbrandur hefur lifað í hræjum í jörð á Íslandi í 130 ár en sýkillinn lifir hins
vegar ekki lengi eftir að hræin hafa verið grafin upp.
Blóðstrimlar í
opinn reikning
Talsmenn tveggja fyrirtækja sem flytja inn blóðstrimla til blóðsykursmælinga
segja þau ekki hafa gefið fólki slíka strimla í stórum stíl til að fá endurgreidd
hjá Tryggingastofnun. Þriðja innflutningsfyrirtækið neitar að svara.
KRISTJÁN GUÐJÓNSSON
Sykursjúkir verða nú að greiða 15 prósent-
um meira en áður fyrir hjálpartæki eftir að
reglugerð var breytt til að koma í veg fyrir of-
notkun blóðstrimla, að sögn Kristjáns Guð-
jónssonar framkvæmdastjóra hjá TR.
HÖSKULDUR HÖSKULDSSSON
Framkvæmdastjóri Lyru spyr hvert viðbót-
arblóðstrimlar fyrir milljónatugi hafi farið
en endurgreiðslukostnaður TR vegna
þeirra nam um 50 miljónum 2004.
BERGHILDUR
MAGNÚSDÓTTIR
MANNRÉTTINDI Ný skýrsla íslenskra
stjórnvalda um mannréttindamál
hér á landi verður tekin til um-
ræðu í Mannréttindanefnd Sam-
einuðu þjóðanna næstkomandi
miðvikudag.
Í fréttatilkynningu frá nefnd-
inni segir að fjórða skýrsla ríkis-
stjórnar Íslands um framkvæmd
Alþjóðasáttmálans um borgara-
og stjórnmálaleg réttindi verði
tekin til gagnrýninnar skoðunar
þennan dag á 38. allsherjarfundi
nefndarinnar, en hann hefst í New
York á mánudaginn og stendur
yfir fram til 1. apríl.
Alls eru 154 aðildarríki Sam-
einuðu þjóðanna aðilar að um-
ræddum alþjóðasáttmála sem er
grundvallarsáttmáli Mannrétt-
indanefndarinnar, saminn árið
1966. Síðasta skýrsla um fram-
kvæmd sáttmálans á Íslandi var
lögð fram árið 1998. ■
Mannréttindanefnd SÞ:
Íslandsskýrsla rædd