Fréttablaðið - 13.03.2005, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 13.03.2005, Blaðsíða 18
Stúlkan hefur glímt við ano-rexíu og búlimíu árum sam-an, en aðstandendur höfðu áður reynt að halda utan um vandamálið heima,“ segir Ægir sem fyrir hönd Spegilsins fer í heimahús til að leggja hönd á plóg gegn átröskunarvítinu. „Hún var nýútskrifuð af geð- deild þar sem hún hafði verið í stuttri meðferð sem ekki bar ár- angur. Á einhvern óskiljanlegan hátt var hún útskrifuð með sex tegundir sterkra lyfja, þrátt fyrir að hafa forsögu um að hafa reynt að fyrirfara sér. Hún hafði áður reynt að fara í meðferð fyrir fjöl- skylduna, en sjálfsbjargarviðleitni er engin hjá átröskunarsjúklingum og víst að þeir hjálpa sér alveg ör- ugglega ekki sjálfir. Því verða að- standendur og helst skólayfirvöld líka að taka í taumana áður en það er orðið of seint,“ segir Ægir ákveðið og staðfast. Sorgin tekin út fyrirfram Spegillinn var stofnaður í minn- ingu Gerðu Bjargar Sandholt, unnustu og barnsmóður Ægis Arnar, en Gerða barðist við átröskunarsjúkdóma í sjö ár. Hún var heilbrigð sál í hraustum lík- ama, sem vildi ná af sér fáeinum aukakílóum sem bæst höfðu á skrokk hennar við meðgöngu frumburðarins. Megrunin fór úr böndunum en léttust varð Gerða aðeins 38 kíló. Sjúkdómurinn hratt henni út í sjálfsvíg á fögrum júnídegi árið 2002. Ægir segir ákvörðun um stofn- un Spegilsins hafa verið tekna í jarðarför Gerðu. „Þá var ekki til staður sem tók á móti sjúklingum né aðstandend- um, en við aðstandendur Gerðu og annar hópur sameinuðum krafta okkar í að koma Speglinum á fót. Fyrsta árið keyrði ég mig út. Ég hafði tekið sorgarferlið fyrirfram og undirbúið mig undir að svona færi, því síðustu tvö árin var Gerða alveg gengin úr karakter og í raun ekki sama konan og ég hafði kynnst og búið með. Við höfðum farið í sundur og aftur saman, en í útrás sorgarinnar ætl- aði ég að flengja kerfið, sem ekki hefur reynst svo einfalt. Ég stóð í ströngu fyrsta árið, var með fyrir- lestra, opinn síma og forvarnar- vinnu, en fékk á endanum ógeð. Ákvað að taka mér ársfrí og end- urmeta stöðuna, en hafði enga hjálp nýtt mér sjálfur. Ég ætlaði þetta allt á hnefanum. Í haust tók ég svo ákvörðun um að halda starfinu áfram fyrir Spegilinn, nú í formi þess að fara í heimahús og tala við aðstandendur, og skóla til að halda fyrirlestra fyrir börn og unglinga. Þetta er mikil lífs- reynsla sem ber að miðla og fólki finnst gott að tala við þá sem stað- ið hafa í sömu sporum.“ Ægir segir aðstandendur átröskunarsjúklinga ekki vita í hvorn fótinn þeir eigi að stíga. Þau, fjölskylda Gerðu, hafi fundið að aðstandendur yrðu að vera í lagi til að geta hjálpað sjúklingn- um, en ekkert þeirra hafi verið í jafnvægi þegar hún var veik. „Við vorum öll meðvirk og tipluðum á tánum; hrædd við hvað beið manns þegar maður kom inn. Gerða bjó um tíma hjá foreldrum sínum og oftar en ekki bað móðir hennar mig að fara inn á undan því hún vissi ekki hvað mundi mæta sér. Gerða hafði fengið flogakast, svo það var ekki bara óttinn um að hún tæki eigið líf; hjartað gat gefið sig hvenær sem var. Að lifa undir slíkri pressu set- ur allt úr skorðum.“ Aðgengilegir lyfjakokkteilar Ægir og Gerða bjuggu saman í níu ár og áttu saman tvö börn. Gerða reyndi ítrekað að fyrirfara sér, en sú staðreynd virtist engin áhrif hafa á lyfseðlaskrif lækna sem hún heimsótti. „Hún fékk alltaf sama væna lyfjapokann með sér ef hún lagð- ist inn á sjúkrahús. Gerða fann einnig út hvernig læknavaktin virkaði og fékk alls staðar lyf, meira að segja morfín. Hún gat fengið morfín annan hvern dag hjá mismunandi læknum, tíu töfl- ur í einu. Læknar og lyfsalar eru sofandi á verðinum. Í apótekum standa hægða- og þvaglosandi lyf í hillum framan við búðarborðið. Lyfjatæknir í apóteki sagði mér að flestir sem keyptu sér hægða- losandi lyf væru ungar stúlkur og strákar í grennsta lagi. Samt er þetta látið vera unga fólkinu að- gengilegt til að koma örugglega öllu út úr líkamanum. Morfín er svo eftirritunarskylt lyf, en samt getur sjúklingur gengið á því í nokkra mánuði áður en tengslin sjást. Hví er þetta svona? Hvers vegna eru ekki strangari reglur um að aðeins einn læknir megi skrifa út lyfseðla fyrir hvern og einn sjúkling?“ spyr Ægir Örn og hristir höfuðið reiðilega. „Læknað með lyfjum er slagorð lækna og maður veltir fyrir sér hvort þeir þiggi sporslur frá lyfjafyrirtækj- um. Ég fullyrði ekki neitt, en það bendir margt til þess.“ 3.000 veikir Þegar Ægir kom aftur til starfa Spegilsins síðastliðið haust blasti við honum hrikalegur veruleiki. Ástandið hafði versnað mikið og biðlistar átröskunarsjúklinga lengst. Enginn hefur verið tekinn inn í teymismeðferð geðdeildar frá áramótum 2003 og óvíst hvernig verður með árið í ár vegna manneklu og fjárskorts sjúkrahúsanna. „Biðlistar lengjast, en samt er ekki litið á þetta sem vandamál innan heilbrigðiskerfisins,“ segir Ægir Örn og bætir við að áætlað sé að 3.000 átröskunarsjúklingar séu á Íslandi, áttatíu prósent þeirra konur á aldrinum 13 til 26 ára. „Margfalt fleiri konur greinast með átröskun en krabbamein á þessum aldri. Séu bornar saman batalíkur og dánartíðni átröskun- ar miðað við krabbamein, enda tuttugu prósent átröskunartilfella með dauða. Heilbrigðisyfirvöld segja engan hafa dáið úr átröskun á Íslandi, því þegar átröskunar- sjúklingur deyr er það af völdum sjálfsvígs, hjartaáfalls eða köfn- unar vegna aðskotahluts í hálsi.“ Dottandi ráðherra Ægir fór ásamt tveimur úr stjórn Spegilsins á fund landlæknis og heilbrigðisráðherra á haustdögum 2002, eða fyrir tveimur og hálfu ári. Samþykkt var að setja á fót nefnd á vegum embættanna, en Ægir segir það hafa verið gert til þess eins að friða fundargesti. „Við komum á fund heilbrigðis- ráðherra eldsnemma morguns þar sem hann hélt á penna í annarri hönd og sat sem stein- runninn ofan í borðið án þess að segja eitt einasta orð. Við vissum ekki á tímabili hvort hann hefði dottað fram á bringuna á sér því hann leit aldrei upp meðan aðstoð- arfólk hans talaði. Þegar ég sá mynd af páfa og aðstoðarliði hans í sjónvarpinu datt mér strax í hug Jón Kristjánsson, því hann sinnti okkur á engan hátt. Einu við- brögðin frá æðsta manni heil- brigðiskerfisins voru þögn og morgunlúr þegar við sögðum hon- um frá alvarlegu ástandi og þrýst- um á úrbætur.“ Móttökurnar voru betri hjá Sigurði Guðmundssyni landlækni sem virtist sleginn yfir upplýsing- um Spegilsins, eitthvað sem áður hafði ekki komið inn á borð til hans, að sögn Ægis. „Sigurður gaf okkur loforð um nefnd til úrlausnar, en nefndin er enn að störfum og hefur ekki skil- að neinu, tveimur og hálfu ári seinna. Eftir því sem ég best veit situr í nefndinni yfirlæknir á geð- deild sem nýlega lýsti yfir á fundi að átröskun væri ekki vandamál á Íslandi. Ég bendi henni á að skoða „Spurningar og svör“ á heimasíðu Spegilsins til að byrja með.“ 18 13. mars 2005 SUNNUDAGUR Barcelona Fegurst á vorin 3. apríl frá kr. 29.690 Vikuferð Barcelona er einstök perla sem íslendingar hafa tekið ástfóstri við. Heimsferðir bjóða þér nú tækifæri til að njóta vorsins í þessar einstöku borg frá 3.-10. apríl. Beint flug til Barcelona og þú velur hvort þú kaupir eingöngu flugsæti eða gistir á einhverju af okkar vinsælu hótelum í hjarta Barcelona. Verð kr. 29.690 Flugsæti með sköttum. Netverð. Verð aðeins kr. 49.990 – vikuferð Flug, skattar og gisting með morgunmat, m.v. 2 í herbergi á Hotel City Park Nigaragua **** í 7 nætur. Netverð. Spegillinn Spegillinn var stofnaður 17. október 2002 í minningu Gerðu Bjargar Sandholt sem lést úr sjúkdómnum 6. júní 2002. Markmið samtakanna er fræðsla, forvarnir og meðferðar- úrræði fyrir átröskunarsjúklinga. Fræðslubæklingur Spegilsins liggur frammi á öllum heilsugæslustöðv- um í landinu. Sjálfshjálparhópur fyrir aðstandendur er starfandi á vegum samtakanna. Upplýsingar eru veittar í síma 661 0400 og á heimasíðunni spegillinn.is undir fréttir. Spegillinn hvetur aðstand- endur og sjúklinga til að hafa tafar- laust samband ef grunur leikur á átröskunarsjúkdómum . Í minningu Gerðu Ægir Örn Sigurgeirsson er nýkominn úr húsvitjun í Reykjavík. Tvítug stúlka reyndi að taka líf sitt. Ekki í fyrsta skipti. Nú með aðstoð litríks lyfjakokkteils í plastpoka frá geðdeild Landspítalans. Töflum sem hægt er að blanda á ýmsa vegu til að komast fyrr til Guðs. Aðstandendur stúlkunnar eru ringlaðir og sorgmæddir. Meðvirkir og þreyttir. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir ræddi við Ægi. STERKUR Í MÓTLÆTI Ægir Örn Sigurgeirsson missti barnsmóður sína og unnustu þegar hún gafst upp fyrir átröskunarsjúkdómnum sumarið 2002. Í kjölfarið ákvað hann, ásamt ástvinum Gerðu heitinnar Sandholt, að stofna Spegilinn, hagsmuna-, forvarnar- og fræðslu- samtök um anorexíu- og bulimíu-sjúkdómana. Eftir árshvíld er hann kominn tvíefldur til starfa og krefst úrbóta fyrir ört stækkandi hóp átröskunarsjúklinga. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL G AR Ð GERÐA BJÖRG SANDHOLT Myndirnar sýna Gerðu Björg árið 1999 þegar sjúkdómurinn var farinn að ágerast en seinni myndin er tekin þegar Gerða Björg er orðin fárveik og að- eins 38 kíló. Linsur myndavéla gera fólk breiðara en það er í raun, svo fólk getur rétt ímyndað sér hve súpermódelin eru létt og veikbyggð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.