Fréttablaðið - 13.03.2005, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 13.03.2005, Blaðsíða 56
24 13. mars 2005 SUNNUDAGUR > “Ég er mjög sáttur með að hafa tapað þessum leik.“ Valur Ingimundarson, þjálfari Skallagríms í körfubolta, tók undarlega til orða í viðtali við Morgunblaðið að leik loknum gegn Fjölni í úrslita- keppninni í fyrradag. sport@frettabladid.is > Við hrósum ... ... Snæfellingum og Grindvíkingum fyrir að sýna mikinn karakter og spila frábæra vörn gegn andstæðingum sínum í gær. Það er ekki á hverjum degi sem KR- ingum er haldið í 57 stigum á heimavelli og Keflavík skorar aðeins 76 stig í leik. Með sigrunum tryggja liðin sér dýrmætan oddaleik á miðvikudaginn. Aðal frétt vikunnar Sigur Chelsea á Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen skráði sig í sökubækur íslenskrar knattspyrnu með því einu að taka þátt í þessum ótrúlegasta leik Meistaradeildarinnar á síðari árum. Ekki skemmdi fyrir að íslenski víkingurinn skoraði fyrsta mark Chelsea í leiknum. LEIKIR GÆRDAGSINS Enska bikarkeppnin BOLTON–ARSENAL 0–1 0–1 Freddie Ljungberg (3.). SOUTHAMPTON–MAN.UTD 0–4 0–1 Roy Keane (3.), 0–2 Christiano Ronaldo (45.), 0–3 Paul Scholes (48.), 0–4 Paul Scholes (87.). Enska 1. deildin BURNLEY–ROTHERHAM 2–1 COVENTRY–CARDIFF 1–1 CREWE–SUNDERLAND 0–1 IPSWICH–NOTT. FOREST 6–0 LEEDS–GILLINGHAM 1–1 Gylfi Einarsson spilaði ekki með Leeds vegna meiðsla. PLYMOUTH–BRIGHTON 5–1 Bjarni Guðjónsson lék allan leikinn á miðju Plymouth en náði ekki að skora. PRESTON–WOLVES 2–2 QPR–WATFORD 3–1 Brynjar Björn Gunnarsson fékk beint rautt spjald á 21. mínútu fyrir að slá boltann viljandi með hendi. Heiðar Helguson lék allan leikinn. READING–WEST HAM 3–1 Ívar Ingimarsson lék allan leikinn fyrir Reading. STOKE–SHEFFIELD UTD. 2–0 Hvorki Tryggvi Guðmundsson né Þórður Guð- jónsson voru í leikmannahópi Stoke. WIGAN–MILLWALL 2–0 Þýska Bundesligan BIELEFELD–HAMBURG 3–4 0–1 Lauth (2.), 1–1 Porcello (21.), 2–1 Vata (27.), 2–2 Barbarez (38.), 2–3 Boulahrouz (43.), 2–4 Mahdavikia (71.), 3–4 Buckley (87.). LEVERKUSEN–H.BERLIN 3–3 1–0 Ponte (5.), 2–0 Butt, víti (13.), 2–1 Marcelinho (24.), 2–2 Marcelinho (29.), 2–3 Neuendorf (62.), 3–3 Voronin (84.). FREIBURG–NURNBERG 2–3 1–0 Koejoe (7.), 1–1 Muller (23.), 2–1 Bajramovic (59.), 2–2 Mintal (85.), 2–3 Mintal (90.). H.ROSTOCK–BOCHUM 3–1 1–0 Di Salvo (36.), 2–0 Di Salvo (49.), 3–0 Prica (53.), 3–1 Edu (70.), KAISERSLAUTERN–M.GLADBACH 1–0 1–0 Altintop (45.). W. BREMEN–MAINZ 0–0 WOLFSBURG–HANNOVER 1–0 1–0 Menseguez (6.). STAÐA EFSTU LIÐA BAYERN 24 15 5 4 46–23 50 SCHALKE 24 16 2 6 39–27 50 W.BREMEN 25 13 5 7 53–27 44 HAMBORG 25 14 1 10 45–39 43 STUTTGART 24 12 6 6 43–30 42 H.BERLIN 25 10 11 4 43–24 41 LEVERKUSEN 25 11 7 7 45–34 40 Deildarbikar karla ÍA–BREIÐABLIK 1–2 0–1 Steinþór Freyr Þorsteinsson (8.), 0–2 Hans Fróði Hansen (10.), 1–2 Jón Ákason (71.). VALUR–VÍKINGUR 2–5 0–1 Vilhjálmur Vilhjálmsson, víti (17.), 1–1 Matthías Guðmundsson (18.), 2–1 Atli Þórarinsson (19.), 3–1 Steinþór Gíslason (55.), 4–1 Matthías Guðmundsson (65.), 5–1 Matthías Guðmundsson (87.), 5–2 Stefán Arnarson (90.) GRINDAVÍK–FYLKIR 4–5 0–1 Sævar Þór Gíslason (12.), 1–1 Óli Stefán Flóvetnsson, víti (19.), 1–2 Björgólfur Takefusa (22.), 1–3 Björgólfur Takefusa, víti (27.), 1–4 Björgólfur Takefusa (43.), 2–4 Óskar Hauksson (47.), 2–5 Erik Gustafsson (58.), 3–5 Eyþór Atli Einarsson (74.), 4–5 Eyþór Atli Einarsson (86.). NÚMI–AFTURELDING 0–3 0–1 Jóhann Björn Valsson (18.), 0–2 Jóhann Björn Valsson (53.), 0–3 Gunnar Borg Borgþórsson (85.) Deildarbikar kvenna FH–STJARNAN 1–2 0–1 Harpa Þorsteinsdóttir (30.), 0–2 Lilja Kjartansdóttir (42.), 1–2 Linda Björgvinsdóttir (77.). 60 SEKÚNDUR Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Maður á aldrei að segja aldrei en Haukar eru síðasta liðið sem ég myndi spila með. Bjór eða rauðvín? Prótíndrykkir. Er glasið hálffullt eða hálfttómt? Það er hálffullt. Brúnkukrem eða ljósabekkur? Brúnkukrem. Ég nota stundum smá brúnkukrem fyrir leiki ef leikurinn er í sjónvarpinu. Þá verður maður að vera smá klikkaður. Viggó eða Gummi? Báðir góðir en Viggó betri. Gel eða hárspray? Gel og vax. Það er komin ný blanda. Hvað eyðirðu miklum tíma í hárið á dag? Þremur til fjórum mínútum. Metallica eða Madness? Metallica. Besti handboltamaður heims? Christ- ian Schwarzer. Bratwurst eða SS-pylsa? Bratwurst. Hún er rosalega góð. Miklu betri en SS-pylsa. Hvor er betri handboltamaður, þú eða pabbi þinn? Pabbi er miklu betri en ég ætla að verða betri. MEÐ LOGA GEIRSSYNI Snæfell og Grindavík knúðu fram oddaleiki Snæfell hélt KR í 57 stigum í DHL-höllinni og Grindavík hélt Keflavíkur- hraðlestinni í aðeins 76 stigum á heimavelli sínum í Grindavík. KÖRFUBOLTI Snæfell og Grindavík tryggðu sér oddaleiki í átta liða úr- slitum Intersportdeildarinnar í gær en jafnframt mistókst KR og Keflavík að tryggja sér sæti í und- anúrslitum. Snæfell hélt KR í 57 stigum í DHL-höllinni og Grinda- vík hélt Keflavíkurhraðlestinni í aðeins 76 stigum á heimavelli sín- um í Grindavík og það er ljóst að á báðum vígstöðum var lögð mikil áhersla á að laga vörnina. Snæfellingar rifu sig upp eftir tapið á heimavelli sínum og unnu mjög öruggan 25 stiga sigur á KR, 57-82, og hin frábæra Snæfells- vörn sem vakti svo mikla athygli í fyrra er greinilega mætt til leiks á nýjan leik. Snæfell var komið í 17 stiga forustu eftir fyrsta leikhluta, 8-25 og þrátt fyrir að KR-ingar ættu nokkra góða spretti náðu þeir aldrei að minnka muninn í minna en 10 stig. Bárður Eyþórsson, þjálfari Snæfells, var líka ánægður með sína stráka eftir leik. „Ég sá það strax í gær þegar við komum sam- an heima hjá mér að mínir menn voru tilbúnir til að klára þennan leik og þetta var mjög sterkur sig- ur hjá okkur. Allir í liðinu höfðu rosalega gaman að þessu og það gerði útslagið. Við vorum einbeitt- ir allan tímann og þetta var algjör- lega sigur liðsheildarinnar,“ sagði Bárður Eyþórsson eftir leik. „Nú er ekkert aftur snúið hjá okkur og við þurfum bara að mæta bara eins til leiks og það eru allir í liðinu staðráðnir að láta leikinn frá því í fyrra endurtaka sig,“ sagði Bárður en Snæfell fór eins og kunnugt er alla leið í úrslit í fyrra. Grindvíkingar mættu harð- ákveðnir til leiks á heimavelli sín- um í gær og náðu að leggja granna sína úr Keflavík og jafna metin í viðureign liðanna í 1-1 og knýja fram oddaleik í Keflavík á mið- vikudag. Eftir að jafnt var eftir fyrsta leikhluta 17-17, sigu heima- menn framúr og voru yfir allan leikinn og sigruðu að lokum 87-76. Það var fyrst og fremst varnar- leikurinn og stórleikur Helga Jónasar Guðfinnssonar sem skóp sigurinn í gær. Keflvíkingar urðu fyrir því óláni að missa fyrirliða sinn Gunnar Einarsson af velli meiddan í byrjun leiks. „Við vorum bara lélegir í dag,“ sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, eftir leik en Einar Einarsson, þjálfari Grind- víkinga, var öllu hressari með sína menn. „Við höfum ekki verið að spila góða vörn í vetur en hún gekk upp hjá okkur í dag og það að halda Keflvíkingum í 76 stigum segir sína sögu um það. Ef menn koma jafn tilbúnir til leiks á miðvikudag- inn og við vorum í dag, þá getur allt gerst. Keflvíkingarnir eru erf- iðir heim að sækja, en það styttist alltaf í tapið hjá þeim og við höfum engu að tapa,“ sagði Einar. Oddaleikir liðanna verða í Keflavík og Stykkishólmi á mið- vikudaginn og þá ræðst hvaða lið kemst áfram í undanúrslitin. ■ Létt hjá Arsenal og Man.Utd Arsenal og Manchester United komust í gær í undanúrslit ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Arsenal sigraði Bolton með einu marki gegn engu þar sem Freddie Ljungberg skoraði sigurmarkið strax á 3. mínútu leiksins. Það var þó ekki fótbolti sem vakti mesta athygli manna í þessum leik held- ur var það frakoma El-Hadji Diouf sem er enn einu sinni búinn að koma sér í vandræði. Diouf fékk réttilega að líta rauða spjaldið strax á 8. mínútu leiksins fyrir að slá í andlit Jens Lehman í marki Arsenal. Enn og aftur sýndi Senegalinn óútskýr- anlega hegðan og löngu ljóst að verulegur skortur er á greind í kollinum á þeim manni. Sam Allardyce, stjóri Bolton, var spar á yfirlýsingarnar í leiks- lok en hann er mjög líklega búinn að fá nóg af heimskupörum Diouf. „Lehman kveikti í honum og Diouf brást illa við. Hann þurfti ekki að gera það en Lehman byrjaði. Ég er ekki að af- saka framkomu míns manns því að leikmenn verða að geta haft stjórn á sjálfum sér í tilvikum sem þessum,“ sagði Allardyce. Skiljanlega var á brattann að sækja fyrir Bolton einum færri en 10 leikmenn liðsins sýndu samt hetjulega baráttu það sem eftir lifði leiks og hefðu með smá heppni getað jafnað leikinn. Manchester United hafði mikla yfirburði gegn South- ampton þar sem lokatölur urðu 0- 4. Sigurinn var síst of stór því að leikmenn Man.Utd fengu fjöl- mörg dauðafæri þar sem ungu strákarnir, Wayne Rooney og Christiano Ronaldo, fóru fremstir í flokki. Lið Southampton mætti einfaldlega ofjörlum sínum og greinilegt að vonbrigði vikunnar í Meistaradeildinni voru ekkert að sitja í leikmönnum Man.Utd. ■ Arsene Wenger, stjóri Arsenal,segir að misjöfn frammistaða Arsenal það sem af er leiktíð sé sér og engum öðrum um að kenna. Wen- ger segist hafa átt að kaupa reynslu- meiri leikmenn til liðsins síðasta sum- ar en meiðsli hafi sett stórt strik í reikninginn. „Stað- reyndin er sú að við höfum misst enska meistaratitilinn úr okkar höndum og erum ekki lengur með í Meistaradeildinni. Það hlýtur að segja að ég sem þjálfari hef ekki staðið mig nægilega vel,“ segir Wenger. Gabriel Heinze, argentínski varn-armaðurinn sem staðið hefur sig svo frábærlega með Man.Utd á tímabilinu, segir álit sitt á samherja sín- um Wayne Rooney hafa farið sívaxandi. „Á minni fyrstu æf- ingu með honum var ég ekki svo hrif- inn. Hann lét lítið fyrir sér fara og var allt öðruvísi en ég átti von á. En í fyrsta leiknum sem við spiluðum saman sá ég úr hverju hann er gerður. Þá gerði ég mér grein fyrir því að hann er leikmaður á heims- mælikvarða, fæddur skapari og markaskorari. Hann hefur allt,“ segir Heinze. Heinze hefur einnig fulla trú á aðMan.Utd liðið eigi eftir að kom- ast langt á næstu árum. „Ég er í ein- stöku liði. Við erum rétt að byrja að kynnast hvor öðrum og ég er viss um að þetta lið mun vinna stærstu titla Englands og Evrópu í nánustu framtíð. Það er frábær mórall í hópnum og allir eru með fæturna á jörðinni. Það er mjög sjaldgæft,“ segir hann. Lið Þróttar í Landsbankadeildinni íknattspyrnu varð fyrir töluverðri blóðtöku í síðustu viku þegar ljóst var að framherjinn Henning Jónas- son þyrfti á aðgerð að halda til að ráða bót á meiðslum í bæði liðþófa og mjöðm. Talið er að Henning geti orðið frá keppni í allt að þrjá mán- uði en ef allt gengur að óskum ætti hann að geta verið orðinn klár í slaginn þegar Íslandsmótið hefst um miðjan maí. ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM Tveir leikir fóru fram í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í gær: ASHLEY COLE Þurfti að sætta sig við að byrja á varamannabekk Arsenal í gær. Úrslitakeppnin í körfu karla GRINDAVÍK–KEFLAVÍK 87–76 Stig Grindavíkur: Helgi Jónas Guðfinnsson 22 (hitti úr 5 af 11 þriggja-stiga), Jeffrey Boschee 22, Darrel Lewis 21, Terrel Taylor 16, Björn Brynjólfsson 3, Þorleifur Ólafsson 3. Stig Keflavíkur: Anthony Glover 30 (11 fráköst), Nick Bradford 18 (10 fráköst), Magnús Þór Gunnarsson 18, Jón Nordal Hafsteinsson 6, Sverrir Sverrisson 2, Arnar Freyr Jónsson 2. KR–SNÆFELL 57–82 Stig KR: Aaron Harper 18, Cameron Echols 12 (20 fráköst), Ólafur Már Ægisson 9, Níels Páll Dungal 6, Brynjar Þór Björnsson 5, Steinar Kaldal 4, Jón Ólafur Jónsson 3. Stig Snæfells: Mike Ames 22, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 19 (15 í fyrri hálfleik), Sigurður Þorvaldsson 15 (9 fráköst), Magni Hafsteinsson 8 (9 fráköst), Calvin Clemmons 7 (10 fráköst), Hlynur Bæringsson 4 (11 fráköst, 5 stoðs.), Helgi Reynir Guðmundsson 3, Sveinn Davíðsson 2, Gunnlaugur Smárason 2. LEIKIR GÆRDAGSINS PÁLMI GOÐUR Pálmi Freyr Sigurgeirsson skoraði 15 stig í fyrri hálfleik í sigri Snæfells á KR í gær. Fréttablaðið/Stefán
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.