Fréttablaðið - 13.03.2005, Blaðsíða 23
10-11 er framsækið fyrirtæki í örum
vexti. 10-11 er fremsta þægindaverslun
landsins með 38 verslanir, þar af 32
á höfuðborgarsvæðinu. Velgengni sína
þakkar fyrirtækið fyrst og fremst starfs-
fólki sínu. Því er ætíð lögð áhersla á
að gott fólk veljist til starfa.
Verslunarstjórar eru ábyrgir fyrir versluninni. Þeir eru í miklum samskiptum við
birgja, sjá um vörupantanir, skipulagningu vakta og ráðningu starfsmanna ásamt
öðrum starfsmannamálum. Umsækjendur þurfa að vera skipulagðir, agaðir,
heiðarlegir, vinnusamir og góðir í mannlegum samskiptum. Reynsla af verslunar-
störfum er mikill kostur. Lágmarksaldur verslunarstjóra er 25 ár. Starfið hentar
einstaklingum af báðum kynjum.
Vinnutími verslunarstjóra er kl. 8-18 virka daga og samtals 9 tímar um helgar í mánuði.
10-11 gerir miklar kröfur til starfsmanna sinna og leggur áherslu á
frammistöðumælingar.
Vinsamlegast sendið umsókn ásamt ferilskrá á skrifstofu 10-11, þar sem fram
koma upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, menntun, starfsreynslu,
meðmælendur, áhugamál, o.fl. Umsóknarfrestur er til og með 21. mars nk.
10-11
b.t. Magnúsar Árnasonar starfsmannastjóra
Lyngási 17
210 Garðabæ
10-11 óskar eftir verslunarstjóra í
verslanir sínar á höfuðborgarsvæðinu
3
ATVINNA