Fréttablaðið - 13.03.2005, Síða 28
S T A R F S N E M A R
Í A F R Í K U
Þróunarsamvinnustofnun Íslands vekur athygli
ungs háskólafólks á, að umsóknarfrestur um
stöður starfsnema í samstarfslöndum stofnun-
arinnar í Afríku rennur út 20. mars n.k. Starfs-
námið er ætlað ungu fólki, sem lokið hefur
grunnnámi í háskóla og áhuga hefur á að
kynna sér þróunarstörf í samstarfslöndum ÞSSÍ
í Afríku, en þau eru Namibía, Malaví, Mósambík
og Uganda.
Nánari upplýsingar er að finna á Starfatorgi
(starfatorg.is) og á heimasíðu ÞSSÍ (iceida.is)
8
ATVINNA
Hákon Bragi Valgeirsson, mat-
reiðslumaður á Grand Hótel og fé-
lagi í matreiðsluklúbbi mat-
reiðslumanna, Freistingu, er að-
eins á 25. aldursári en búinn að
ná takmarki sínu sem hann hefur
unnið að síðan hann var 15 ára –
að verða kokkur. Hann er alsæll í
starfinu og gæti ekki hugsað sér
neina aðra vinnu.
„Ég var staðráðinn í því frá barnæsku
að verða kokkur. Ég byrjaði að elda
áður en ég var búinn með grunnskóla
og ég hef verið að stefna að því alla ævi
að læra að verða matreiðslumeistari og
vinna við það. Ég veit ekki af hverju ég
fékk þessa bakteríu en frændi minn
kallaði mig alltaf Konna kokk þegar ég
var lítill og þannig byrjaði þetta. Þetta
er algjört draumastarf. Ég er búinn að
vakna á hverjum morgni síðastliðin
átta ár og bíða eftir því að fara í
vinnunna. Ég er gjörsamlega alsæll í
mínu starfi,“ segir Hákon sem hefur
greinilega fundið ástina í sínu lífi, af
svo mikilli ástríðu talar hann um starf-
ið sitt.
„Strax eftir grunnskóla fór ég á
samning í eitt ár á A. Hansen. Síðan árið
1996 fékk ég samning hér á Grand Hót-
el og vann í fjögur ár undir lærimeist-
ara mínum, Elíasi Hartmann. Ég vann
mig sem sagt upp úr afgreiðslunema og
upp í kokkinn og útskrifaðist sem
sveinn í matreiðslu árið 2000. Síðan út-
skrifaðist ég úr meistaraskólanum árið
2002 en það er eins og hálfs árs nám og
með það í vasanum er ég titlaður mat-
reiðslumeistari og get tekið nema að
mér á samning. Nú er ég einmitt með
sex nema á samning hjá mér,“ segir
Hákon sem hefur aldeilis fengið mikla
reynslu í gegnum árin.
„Ég vann sumarið 1999 á veitinga-
stað sem heitir Sleepy Hollow í New
York. Það er rosa flottur veitingastaður
rétt fyrir utan Manhattan. Þar er náttúr-
lega brjálaður erill og ég lærði mjög
mikið á þeim tíma. Árið 2002 fékk ég frí
á Grand Hótel um sumarið og fór til Sví-
þjóðar og vann sem yfirkokkur á hóteli.
Ég hef sem sagt náð mér í mjög góðan
reynslubanka síðan ég byrjaði fimmtán
ára.“
Þó að Hákon virðist hafa komið sér
vel fyrir í kokkastéttinni þá er hann
hvergi nærri hættur að færa sig upp á
við. „Ég hef tekið þátt í keppninni „mat-
reiðslumaður ársins“ en aldrei unnið.
En það kemur að því. Það var einmitt
keppni á Akureyri núna um helgina en í
staðinn fyrir að fara sendi ég þrjá nema
frá mér í keppnina nemi ársins. Ég hef
líka í hyggju að fara til Noregs í frekara
eldhús- og hótelnám á haustmánuðum,“
segir Hákon sem hefur auðvitað leitt
hugann að því að opna sitt eigið hótel
eða veitingastað. „Það væri auðvitað
mjög gaman því þetta er skemmtilegur
bransi. Sérstaklega núna hér á Íslandi
út af öllum ferðamönnunum sem heim-
sækja landið. Ég kannski dríf í þessu
þegar ég er orðinn eldri og sjóaðri.“
lilja@frettabladid.is
Hákon byrjaði
sem nemi á Grand
Hótel en leiðbein-
ir nú sex nemum.
Hlakkar til að fara í vinnuna á hverjum morgni
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N