Fréttablaðið - 13.03.2005, Síða 58

Fréttablaðið - 13.03.2005, Síða 58
Fáir knattspyrnumenn hafa náð að snerta viðkvæma strengi spænskra jafnt og skölótti bangsinn Ivan de la Pena. Honum var spáð glæstri framtíð er hann braust fram í sviðsljósið fyrir réttum áratug í draumaliði Johans Cruyff hjá Barcelona þar sem hann lék við hvurn sinn fingur innan um Romario, Stoichkov og Laudrup í framlínunni. De la Pena náði þrátt fyr- ir augljósa hæfileika aldrei að festa sig í sessi sem lykilmaður, var meira og minna varaskeifa fyrir stórmennin. Með komu Van Gaal í þjálfarasætið versnaði staða hans til muna og þar kom að hann tók tilboði Lazio. Ítalíuvistin fór ekki vel með de la Pena og lagðist lakt gengi á leikvelli á sálina á honum. Viðurnefni hans, litli Búdda, virtist fremur vísa til útlits hans en innri manns því sálræn ró og styrkur var ekki de la Pena gefið og hann lagðist í mikið þunglyndi. Var á tímabili afar illa komið fyrir honum og var hann óleikfær vegna veikinda. Hann fór að láni til Marseille í Frakklandi og gekk sæmilega en ljóst var að hvorki geðlæknar né sálfræðingar gætu hjálpað honum að ná fullum bata og eina færa leiðin væri að leita í faðm altumlykjandi fjölskyld- unnar í Barcelona. Hann gekk í raðir Espanyol og þótti ekki góð latína hjá aðdáendum Barcelona. En þeir vonuðu nú samt að de le Pena myndi ná sér og kannski koma heim til Barca þegar hann hefði náð fyrri styrk. Og sjá, de la Pena reis úr öskustónni og hefur verið einn albesti maðurinn í deildinni í vetur og átt einna stærstan hlut í frábæru gengi Espanyol. Annar leikmaður sem hefur hröklast frá Barca er Argentínu- maðurinn Juan Riquelme. Hann þykir koma sterklega til greina sem knattspyrnumaður ársins á Spáni í ár, hefur verið prímusmótor í skemmtilegu liði Villareal sem berst við Espanyol og fleiri lið um Meistaradeildarsæti. Villareal-menn hafa verið frámunalega lunknir að fá menn að láni eða hirða gamlingja sem taldir voru útbrunnir og gefa þeim lokaséns í keppni þeirra bestu. Sóknarboltinn og samúð með lítilmagn- anum hefur kallað fram vinalegar kenndir hjá spænskum og Villareal það lið sem í mestum hávegum er haft hjá aðdáend- um annarra liða. Séu menn fengnir að láni kemur að því að það þarf að skila þeim og miðað við stórleik Riquelme í vetur ættu Börsungar að bíða í ofvæni eftir honum. En spennan virðist ekkert vera að drepa Rikjaard og hans menn og svo kann að fara að Riquelme haldi áfram að leika með Villareal eða verði seldur eitthvert annað. Fyrir eru hjá Barca þeir Ronaldinho, Giuly og Deco auk þess sem Riquelme virtist aldrei þola pressuna hjá Barca og stuðningsmenn liðsins margir á því að hann sé einn af þeim leikmönnum sem sé betur borgið sem stórfiski í lítilli tjörn en smásíli í hafsjó Barcelona. Vonandi er að de la Pena og Riquelme fái að þroska hæfi- leika sína enn frekar hjá sínum klúbbum þótt ekki séu þeir stórir. Nóg er um samþjöppun og fákeppni í boltanum. Lið þeirra mætast í deildinni í dag og verður gaman að sjá þessi skemmtilegu sóknarlið mætast þótt litli Búdda sé reyndar tæpur vegna meiðsla. 26 13. mars 2005 SUNNUDAGUR MARS 2005 U.S. OPEN: Gull í -78 kg. Valinn besti keppandi mótsins af yfir 1000 keppendum. JANÚAR 2005 Norðurlandameistari. APRIL 2004 Íslandsmeistari. JANÚAR 2004 Norðurlandameistari. DESEMBER 2003 Björn leggur Asíumeistarann Yang Liu af velli á heimsúrtöku- móti fyrir Ólympíuleikanna. NÓVEMBER 2003 SCANDINAVIAN OPEN: Gull, sigr- aði landsliðsmann Dana í úrslita- bardaganum. Styrkleiki: B-mót. OKTÓBER 2003 US MASTERS CUP: Gull og valinn besti keppandi mótsins. Styrk- leiki: B-mót. OKTÓBER 2003 US CUP: Gull, og valinn besti keppandi mótsins. Styrkleiki: B- mót. ÁGÚST 2003. WONDERFUL COPENHAGEN: 2. sæti. Styrkleiki: B-mót. FEBRÚAR 2003 AMERICAN EAGLE CLASSIC TAE KWON DO TOURNAMENT: Gull í sínum þyngdarflokki. Valinn besti keppandi mótsins. OKTÓBER 2002 US CUP: Brons í -78 kg flokki Styrkleiki: B-mót. SCANDINAVIAN OPEN: Gull í -78 kg. Styrkleiki: B-mót. ÁGÚST 2002. WONDERFUL COPENHAGEN TKD CHAMPIONSHIP: Gull í -78 kg flokki. Valinn besti keppandinn á mótinu annað árið í röð. Styrk- leiki: B-mót. DESEMBER 2001 THE 17TH INTERNATIONAL PARK POKAL TKD: Brons. Styrkleiki: A- mót. OKTÓBER 2001 US CUP: Gullverðlaun í -78 kg flokki. Valinn í úrvalslið mótsins. ÁGÚST 2001 WONDERFUL COPENHAGEN TKD CHAMPIONSHIP: Gullverðlaun í - 72 kg flokki karla og valinn besti keppandinn á mótinu. FEBRÚAR 2001 AMERICAN EAGLE CLASSIC TAE KWON DO TOURNAMENT: Gull í sínum þyngdarflokki. NÓVEMBER 2000 OPNA EVRÓPSKA MEISTARA- MÓTIÐ Í PARÍS: Gull í -72 kg flokki og kosinn besti keppand- inn á mótinu. Íslandsmeistari 1997, 1998, 2000, 2001, 2002, 2004 (árið 1999 dvaldist Björn við æfingar í USA og 2003 í æfingarbúðum erlendis). Taekwondo-maðurinn Björn Þorleifsson úr Fim- leikafélaginu Björk hefur átt góðu gengi að fagna síðan hann byrjaði að æfa taekwondo fyrir 15 árum síðan. Björn er sigursælasti taekwondo- maður okkar Íslendinga. Hann tók nýlega þátt í US Open í Bandaríkj- unum og bar sigur úr býtum. Á mótinu voru heims- og Evrópu- meistarar, alls 26 landslið. Björn var að auki valinn besti keppandi mótsins, sem kórónaði glæsilegan árangur hans. „US Open er liður í undirbúningi fyrir heimsmeist- aramótið sem er í apríl,“ sagði Björn í samtali við Fréttablaðið. „Ég held á næstu dögum til Dan- merkur, verð þar í æfingabúðum með danska og sænska landslið- inu ásamt einhverjum úr banda- ríska landsliðsinu. Eftir heims- meistaramótið er Evrópumót og Smáþjóðaleikarnir svo eitthvað sé nefnt.“ Taekwondo heillaði Björn á unga aldri og hefur hann lagt stund á íþróttina síðan hann var 12 ára gamall. „Ég hef alltaf haft áhuga á að gera eitthvað svona og langaði að byrja að æfa. Ég ætlaði nú samt alltaf að fara í júdó eða karate en svo dró vinur minn mig með á taekwondo-æfingu. Ég hélt áfram en hann hætti,“ sagði Björn og brosti. Bönnuð íþrótt Taekwondo er kóresk íþrótt sem var lengi vel bönnuð. Eftir seinni heimsstyrjöldina var banninu aflétt og spruttu þá upp taekwondo-skólar. Taekwondo- nemendur frá Kóreu héldu síðan út fyrir landsteinana og stofnuðu eigin skóla. Íþróttin fór að láta á sér kræla hér á landi upp úr 1990 þegar fyrsti skólinn var stofnaður í Hafnarfirði. Gróskan hefur vax- ið með hverju árinu og náði ís- lenska unglingalandsliðið sér í tvenn gullverðlaun, ein silfur- og bronsverðlaun á síðasta Norður- landamóti. Framtíð taekwondo er því björt hér á landi. Blár og marinn eftir bardaga Að sögn Björns eru átökin í íþrótt- inni töluverð. „Þetta er bardaga- íþrótt þar sem full snerting er leyfð. Júdó gengur meira út á glímu, boxið er meira með hönd- um en í taekwondo eru fæturnir meira áberandi. Þar eru til dæmis spörk algengari,“ sagði Björn. „Við erum með vesti og hjálma og stigakerfið er rafrænt. Hver bar- dagi samanstendur af þremur þriggja mínútna lotum.“ Það er greinilega ekki tekið út með sæld- inni að keppa í taekwondo því Björn var allur blár og marinn á fótunum eftir átökin á US Open. Björn fullyrti að það fylgdi íþrótt- inni. „Eftir 5 bardaga eða 15 lotur er þetta viðbúið. Þó að það sé sparkað fyrir ofan mitti er maður samt sem áður marinn á sköflungnum og ristinni.“ Björn sagði að taekwondo ætti gríðarlegum vinsældum að fagna úti í heimi. „Það sést best á því að 100 milljónir manns æfa taekwondo.“ Björt framtíð Það er af nægu að taka þegar ár- angurslisti Björns er skoðaður. Hann á fjóra Norðurlandameist- aratitla í farteskinu sem og sex Ís- landsmeistaratitla. „Þetta er það eina sem ég geri núna ásamt því að þjálfa og ég fer einnig út stund- um til að æfa. Mitt æðsta takmark er að komast á Ólympíuleikanna 2008,“ sagði Björn en þangað komast aðeins 16 keppendur í heiminum. Björn var hársbreidd frá því að komast á síðasta ári en Evrópa fékk fjögur sæti á Ólymp- íuleikunum og reyndist Björn vera í fimmta sæti. „Ef allt geng- ur vel á ég að komast næst.“ smari@frettabladid.is STEFNIR Á PEKING 2008 AFREKALISTI Lítill Búdda rís úr þunglyndinu EINAR LOGI VIGNISSON: BOLTINN Í SUÐUR-EVRÓPU SUNNUDAGSVIÐTALIÐ > BJÖRN ÞORLEIFSSON FR ÉT TA B LA Ð IÐ : H AR I

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.