Fréttablaðið - 13.03.2005, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Taktu flátt á www.icelandexpress.is
Fer›afljónusta Iceland Express, Su›urlandsbraut 24, Sími 5 500 600
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Kappsamir starfsmenn Icelandair klippi› hér
Fullor›insver› frá:
(A›ra lei› me› sköttum)
FREISTA‹U GÆFUNNAR OG BÓKA‹U FLUGMI‹A FYRIR 16. MAÍ!
ÓKEYPIS FLUG
OG 588 PAKKAR
AF TOBLERONE?
Ef flú bókar flugmi›a hjá Iceland Express fyrir 16. maí 2005 gætir flú fengi› flugmi›ann endurgreiddan og
100.000 krónur í gjaldeyri. fiú ræ›ur au›vita› hva› flú gerir vi› peninginn, en fyrir 100.000 krónur gætir flú
t.d. keypt 588 pakka af Toblerone, 100 karton af tyggjói, 89 kíló af saltpillum, 346 pakka af M&M, 53 Barbídúkkur,
500 Matchboxbíla, 78 Mackintosh dollur e›a 26 krukkur af vöndu›u dagkremi.
10 bókanir ver›a dregnar út á næstu vikum. Fer›irnar ver›a a› vera á tímabilinu 15. maí til 15. september.
VER‹A DREGNAR ÚT
Á NÆSTU VIKUM
BÓKANIR
Í GJALDEYRI
+100.000 KR
FRÍAR FER‹IR
Barnaver›: 5.995 kr.
7.995 kr. (A›ra lei› me› sköttum)
Lítið stríð í
litlu landi
Stríðið á lágvöruverðsmarkaðnumvirðist nú vera í rénun þannig að
fólk getur aftur farið út að kaupa í
matinn eins og það er vant. Fólk hef-
ur brugðist við stríðinu með mis-
munandi hætti og margir hafa látið
það hafa áhrif á kaupvenjur sínar.
Ég frétti til dæmis af einni konu
sem er vön að gera öll sín innkaup í
lágvöruverðsverslun en lagði á sig
langa ferð og rangl um ókunnuga
búð til þess eins að taka ekki þátt í
þessari vitleysu og fá að greiða fyrir
mjólkina sína. Og af barnmargri
fjölskyldu heyrði ég sem hafði verið
mjólkurlaus dögum saman vegna
þess að foreldrarnir höfðu ekki kom-
ið því í verk að fara í búð þar sem
mjólkin var gefins og fannst kjána-
legt að borga hátt í hundraðkall fyr-
ir lítrann í hverfisversluninni.
ÞEGAR ég renndi inn á planið fyrir
framan dýru búðina mína undir
kvöld á föstudag brá svo við að bíl-
arnir voru einmanalegir á stangli á
stæðinu í stað þess að standa þétt
eins og vant er á þessum tíma. Í
versluninni reyndust vera örfáar
hræður sem horfðu hver á aðra með
hálfgerðum sektarsvip. Fólk tautaði
jafnvel fyrir munni sér þegar það
greip rándýran kjúklinginn úr kæl-
inum að það næði náttúrlega engri
átt að láta bjóða sér að greiða þetta
verð fyrir varninginn. Hvað þá að
borga yfir höfuð fyrir mjólkina á
sama tíma og bauðst mandarína í
meðgjöf með hverjum lítra í næstu
verslun. Og í lágvöruverðsbúðinni
minni var sviðin jörð í gær, skyr-
laust með öllu og örþreytt starfs-
fólk.
OG NÚ er þessu að ljúka og við
getum farið að anda léttar. Því þó að
það sé ágætt að fá gefins mjólk og
ódýrt kók þá lifir enginn á þeim
kostadrykkjum einum saman. Og
meðgjöf með þeim hlýtur alltaf að
verða tekin af öðrum varningi sem
fólk þarf að kaupa sér til viðurvær-
is. Þannig að þrátt fyrir þennan
stutta verðstríðssnúning þá borgum
við neytendurnir auðvitað brúsann
þegar upp er staðið. Það verður þó
að viðurkennast að stóra verðstríðið
hefur sett skemmtilegan svip á
þennan seinni hluta vetrar sem virt-
ist ætla að verða tíðindalítill þar til
ríkisvaldið gerði innrás á fréttastofu
Útvarps og Trölli gerði tilraun til að
stela Mogganum.
BAKÞANKAR
STEINUNNAR
STEFÁNSDÓTTUR