Fréttablaðið - 31.03.2005, Side 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
61,26 61,56
115,20 115,76
79,27 79,71
10,64 10,70
9,69 9,75
8,67 8,72
0,57 0,57
92,37 92,93
GENGI GJALDMIÐLA 30.03.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
109,22 -0,21%
4 31. mars 2005 FIMMTUDAGUR
Davíð Oddsson um sölu á Símanum:
Nokkur stór atriði ófrágengin
SÍMINN Ákvörðun um hvernig staðið
verður að sölu Símans verður tekin
á allra næstu dögum, að sögn
Davíðs Oddssonar utanríksi-
ráðherra sem fundaði með Halldóri
Ásgrímssyni um málið að loknum
ríkisstjórnarfundi í gær.
Enn á eftir að afgreiða nokkur
stóð atriði, að sögn Davíðs. Hann
vildi ekki láta uppi hver þau atriði
væru en sagði að þau væru saman-
hangandi. Spurður hvort stjórnar-
flokkarnir væru sammála um fram-
vindu málsins svaraði hann:
„Stjórnarflokkarnir eru sammála
um það að þessi atriði séu atriði sem
verði að liggja á borðinu áður en til
sölunnar kemur.“
Meðal þess sem taka þarf
ákvörðun um er hvort selja eigi allt
fyrirtækið í einu, og ef ekki, hversu
stór hluti fyrirtækisins verði seldur
í fyrstu umferð. Einnig þurfa
stjórnarflokkarnir að komast að
niðurstöðu um það hversu stór hluti
verði seldur til kjölfestufjárfesta og
hvort bjóða eigi stofnanafjárfestum
hlut eða hvort þeir eigi að kaupa á
almennum markaði.
Að sögn Davíðs er ráðherra-
nefndin, sem auk Davíðs og Hall-
dórs er skipuð Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra og Valgerði Sverris-
dóttur iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, enn að fara yfir málið.
„Einkavæðingarnefndin gengur
ekki lengra en hún hefur gengið
fyrr en hún veit hvernig þeir sem
bera hina pólitísku ábyrgð vilja að
málið liggi við,“ sagði Davíð.
„Við viljum klára málið sem
fyrst því til þess að salan geti farið
fram í júní eða júlí þarf þetta að
liggja fyrir. Ég á von á því að það
verði á allra næstu dögum, án þess
að ég vilji dagsetja það. Vonandi í
þessari viku,“ sagði Davíð. ■
- sda
Ungt fólk neikvæðara
í garð innflytjenda
Fjórðungur stráka 14-16 ára segir að innflytjendur eigi ekki að njóta sömu réttinda og
aðrir Íslendingar. Helmingur telur þá of marga. Félagslegar aðstæður og námsárangur
hafa áhrif á afstöðu strákanna en enginn munur er milli höfuðborgar og landsbyggðar.
INNFLYTJENDUR Neikvæð viðhorf í
garð innflytjenda fara vaxandi
meðal ungs fólks, samkvæmt nið-
urstöðum rannsóknar sem Rann-
sóknir og greining hafa gert fyrir
Rauða kross Íslands. Samanborið
við svipaðar kannanir 1997 og
2000 fækkar þeim ungmennum
sem telja að menning sem fylgir
innflytjendum hafi jákvæð áhrif á
samfélagið en hinum sem telja að
áhrifin séu neikvæð hefur fjölgað.
Rannsóknin, sem var gerð árið
2003, tekur til níundu og tíundu
bekkja grunnskóla um allt land en
í þeim bekkjum eru krakkar á
aldrinum fjórtán til sextán ára.
Í könnuninni var meðal annars
spurt hvort innflytjendur eigi að
njóta sömu réttinda og aðrir Ís-
lendingar og er aðeins helmingur
unglinganna sammála því en
fimmtungur eða 20 prósent er því
ósammála. Þar hefur fækkað um átta af hundraði í hópi þeirra sem
voru þessu sammála 1997 og þeim
sem eru ósammála fjölgað að
sama skapi um átta prósent. Áber-
andi munur er á hlutfalli stráka og
stelpna að þessu leyti, en fjórði
hver strákur á aldrinum fjórtán
til sextán ára er þeirrar skoðunar
að innflytjendur eigi ekki að njóta
sömu réttinda og aðrir Íslending-
ar. Helmingi færri stelpur, eða 13
prósent, eru sömu skoðunar.
Þá var spurt um afstöðu til
fjölda innflytjenda og eru um 40
af hundraði unglinganna á þeirri
skoðun að þeir séu of margir.
Sambærileg tala 1997 var 24 pró-
sent. Afstaða strákanna er mun
harðari en stelpnanna en helming-
ur þeirra telur innflytjendur of
marga.
„Þetta eru sláandi niður-
stöður,“ segir Sigrún Árnadóttir,
framkvæmdastjóri Rauða kross
Íslands. „Við sjáum dæmi um já-
kvæð áhrif útlendinga víða í sam-
félaginu, meðal annars í menn-
ingu, listum og atvinnulífi, en á
sama tíma virðist afstaða ungs
fólks gagnvart útlendingum vera
að harðna“.
Enginn munur er á afstöðu
unglinga á höfuðborgarsvæðinu
og landsbyggðinni en efasemdir
um jákvæð áhrif innflytjenda
aukast eftir því sem áhættuhegð-
un eykst og félagslegar aðstæður
versna. Hins vegar er athyglis-
vert að þau ungmenni sem gengur
vel í skóla og hafa jákvæð viðhorf
til námsins eru jákvæðari gagn-
vart innflytjendum en þau sem
verr gengur.
- sþs
Lambasel:
Fjörutíu um
hverja lóð
LÓÐAMÁL Alls eru 40 umsóknir um
hverja lóð í Lambaseli í Breiðholti.
Borginni hafa þegar borist um tólf-
hundruð umsóknir um einbýlishúsa-
lóðirnar þrjátíu, en umsóknarfrest-
urinn er ekki liðinn.
Athygli vakti þegar ónafngreind-
ur auglýsti í Fréttablaðinu eftir því
að kaupa lóð af þeim sem fengi út-
hlutað. Fyrsta dag auglýsingarinnar
heimsóttu um 1.200 manns heima-
síðu ónefnda mannsins. Nú hafa
nær 100 til viðbótar skoðað síðuna.
Í auglýsingu borgarinnar stend-
ur að sá sem framselji úthlutaða lóð
geti ekki átt von á að fá úthlutað
annarri byggingarlóð í Reykjavík.
- gag
Uppgjör hins opinbera:
Taprekstur
sveitarfélaga
FJÁRMÁL Taprekstur sveitarfélag-
anna árið 2004 nam tæpum tíu millj-
örðum króna samkvæmt yfirliti
sem Hagstofa Íslands birti í gær.
Mest var tapið á síðasta ársfjórð-
ungnum; 4,2 milljarðar króna.
Afgangur var hins vegar á
rekstri ríkisins í fyrra og nam hann
fjórum milljörðum. Var veglegur
rekstrarafgangur á síðasta árs-
fjórðungi sem snéri þróuninni við
en fyrri helming ársins var rekstur-
inn neikvæður um 5,5 milljarða. Síð-
ustu þrjá mánuði ársins 2004 voru
tekjurnar hins vegar um níu millj-
örðum króna meiri en gjöldin.
Samanlagt var því tapið á rekstri
hins opinbera tæpir sex milljarðar
króna. Tekið er fram að tölur fyrir
síðasta ársfjórðung eru bráða-
birgðatölur. - bg
Ekki fyrsta aprílgabb!
Pantanir í síma 483 4700
info@hotel-ork.is, www.hotel-ork.is
Einungis 4.900 krónur
(Nóttin á mann í tvíbýli. Gisting, matur og skemmtanir)
Einstakt vortilboð á Hótel Örk 1. - 3. apríl
Hljóðkútarnir leika fyrir dansi laugardagskvöld
Þriggja rétta hátíðarkvöldverður hússins
Trúbadorar föstudagskvöld
Sundlaug og gufa
Gisting í tvíbýli
Heitir pottar
Morgunverður
Aðeins 1.- 3. apríl
■ MJÓLKURSAMLÖG
■ LÖGREGLUMÁL
Færð á vegum:
Takmarkanir
á malbiki
FÆRÐ Enn eru í gildi þungatakmark-
anir á mörgum láglendisvegum og
jafnvel malbikuðum leiðum sam-
væmt upplýsingum frá Vegagerð
ríkisins. Ástæðan er sú að vegir eru
mjög viðkvæmir meðan frost fer úr
jörðu. Þá er akstur bannaður á fjöl-
mörgum hálendisvegum sem
komnir eru upp úr snjó þar sem þeir
verða að drullusvaði ef þeir eru
eknir.
Ef fólk hefur áhuga á að komast
upp á jökul er hægt að komast upp á
Langjökul frá Húsafelli. ■
KOSIÐ UM SAMEININGU Deildar-
fundir í félögum Mjólkursamsöl-
unnar á Norður- og Vesturlandi
verða haldnir í vikunni og þeirri
næstu. Verður kosið um hvort sam-
eina eigi fyrirtækið Mjólkurbúi
Flóamanna. Felli ein af deildunum
fimm sameiningu nær hún ekki
fram að ganga í þetta sinn. Mjólk-
ursamlag Kjalarnesþings hefur
samþykkt sameiningu.
Fræðirithöfundar:
Sjö fá starfslaun
ÚTHLUTUN 10,4 milljónum króna
hefur verið úthlutað úr Launasjóði
fræðirithöfunda. Samtals bárust 59
umsóknir og fengu sjö rithöfundar
starfslaun í sex mánuði. Þetta eru
Björn Hróarsson, Erla Hallsteins-
dóttir, Halldór Guðmundsson, Ing-
unn Ásdísardóttir, Jakob F. Ásgeirs-
son, Ólafur Páll Jónsson og Þorvald-
ur Kristinsson. Meðal þeirra verka
sem rituð verða eru ævisaga Bjarna
Benediktssonar forsætisráðherra,
Þórbergur og Gunnar – líf tveggja
skálda auk fræðirits um íslenska
hraunhella. - sgi
SLASAÐIST VIÐ ÚTAFAKSTUR Kona
var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri snemma í gærmorgun
eftir að hafa ekið bíl sínum út af til
móts við Æsustaði í Langadal.
Kvartaði hún yfir eymslum í hálsi
og baki en ekki var talið að um al-
varleg meiðsl væru að ræða. Bíll
konunnar var talinn ónýtur.
FORDÓMAR AUKAST
Þau kynntu rannsóknina: Bryndís Björk Ásgeirsdóttir frá Rannsóknum og greiningu, Ómar
Kristmundsson í stjórn RKÍ, Sigrún Árnasóttir framkvæmdastjóri RKÍ, og Helga G. Halldórs-
dóttir sviðsstjóri.
Erlendum ríkisborgurum á Íslandi hefur
fjölgað hratt á undanförnum árum.
Þannig hefur fjöldi þeirra tvöfaldast á síð-
ustu tíu árum og þrefaldast á síðustu 25
árum. Heildarfjöldi:
1980 3240
1996 5148
2003 10180
Fjölmennustu hópar innflytjenda
1980
Danir 966
Bandaríkjamenn 667
Þjóðverjar 239
1996
Danir 953
Bandaríkjamenn 576
Pólverjar 460
2003
Pólverjar 1.856
Danir 870
Filippseyingar 609
DAVÍÐ ODDSSON EFTIR
RÍKISSTJÓRNARFUND Í GÆR
Meðal þess sem taka á eftir ákvörðun um
er hvort selja á Símann í einu lagi, og ef
ekki hversu stór hluti fyrirtækisins yrði
seldur í fyrstu umferð.