Fréttablaðið - 31.03.2005, Síða 14

Fréttablaðið - 31.03.2005, Síða 14
Hjól atvinnulífsins snúast nú hratt og vel, og samt lætur verð- bólgan – góðkunningi íslenzks efnahagslífs frá gamalli tíð – ekki enn á sér kræla, ekki verulega. Gríðarlegar lántökur erlendis voru hér áður fyrr næsta óskeikul ávísun á þenslu og verðbólgu, en svo er þó ekki lengur. Svo er einkum fyrir að þakka frívæðingu efnahagslífsins undangengin ár, gerbreytingu, sem hefur m.a. liðkað til um innflutning vinnuafls frá útlöndum. Framkvæmdirnar við Kárahnjúka leiða því ekki til þess nú, að húsbyggjendur þurfi að bíða vikum saman eða mánuð- um eftir óstundvísum iðnaðar- mönnum, það er liðin tíð. Tölurnar segja söguna: síðan 1986 hafa rösklega 25 þúsund er- lendir ríkisborgarar flutzt til Ís- lands skv. upplýsingum Hagstofu Íslands, á meðan rösklega 15 þús- und erlendir þegnar hafa flutzt á brott héðan. Fjöldi aðfluttra út- lendinga umfram brottflutta hefur því verið um tíu þúsund þessi ár. Á sama tíma hafa 48 þús- und íslenzkir ríkisborgarar flutzt úr landi, og 41 þúsund hafa flutzt heim, svo að fjöldi brottfluttra Íslendinga umfram aðflutta hefur verið um sjö þúsund. Hlutdeild innflutts vinnuafls í mann- aflanum hefur því aukizt hröðum skrefum að undanförnu. Þessi þróun hefur breytt ásjónu lands- ins með því að fjölga þjóðunum, sem byggja landið, og hún hefur um leið létt þrýstingi af vinnu- markaði og hamlað verðbólgu með því móti. Hlutfall útlendinga (þ.e. íbúa fæddra erlendis) í mannfjöldanum hér heima hækkaði úr 3% 1986 í tæp 7% 2003. Þetta hlutfall hækkaði sömu ár úr 2% í 5% í Danmörku til sam- anburðar og stóð í stað í Svíþjóð (5% bæði árin). Sviss er annar handleggur: þar standa allar gáttir opnar, svo að útlendingum fjölgaði úr 14% af mannfjöldan- um 1986 í 20% 2003. Hér höfum við hluta skýringar- innar á því, hvers vegna gamla lögmálið um lausbeizlað inn- streymi lánsfjár og aukna verð- bólgu er dottið úr sambandi. En hvaða afleiðingar hefur skulda- söfnun Íslendinga erlendis að öðru leyti? Lítum sem snöggvast yfir landslagið. Mikill viðskipta- halli hefur einkennt efnahagslíf landsins nær allan lýðveldis- tímann. Þetta var eðlilegt framan af. Gróandi þjóðarbúskapur þarf á miklum innflutningi að halda til ýmissa þarfa, jafnvel umfram út- flutning, og þá þarf að brúa bilið með erlendum lántökum eða með því að bjóða útlendingum innlend fyrirtæki til kaups. Við tókum fyrri kostinn – ólíkt Eistum, til dæmis – og höfum gengið miklu lengra í lántökum en góðu hófi gegnir. Skuldir Íslendinga við út- lönd eru nú orðnar of miklar og skuldabyrðin of þung, enda þótt vextir séu nú lágir í útlöndum. Þar að auki höfum við ekki farið alls kostar vel með allt lánsféð, nema hvað, heldur varið því til neyzlu og óarðbærrar fjárfestingar í stórum stíl, sumpartinn að undir- lagi fjölskiptinna stjórnmála- manna. Erlendar skuldir þjóðar- innar hafa rokið upp úr öllu valdi síðustu ár: skuldirnar jukust úr 60%-70% af landsframleiðslu 1993-1999 upp í 200% í árslok 2004 (þetta er ekki prentvilla). Það er því engin furða, að kaup- máttur almennings hafi tekið kipp. Erlendar eignir hafa að vísu aukizt nokkuð á móti skuldunum, en ekki nóg: hrein staða þjóðar- búsins hefur veikzt til muna. Nú ríður á því sem aldrei fyrr, að fjárfestingin, sem lánsféð er notað til, beri arð, þ.e. arð umfram vexti. Vextir á erlendum fjármála- mörkuðum hafa verið lágir und- angengin ár og hafa nú tekið að hækka aftur, ekki sízt vegna ótæpilegs ríkishallarekstrar í Bandaríkjunum. Næstum 90% af erlendum skuldum Íslendinga eru skráðar í erlendri mynt, og vaxta- greiðslur af þeim munu hækka um nálega 1% af landsframleiðslu fyrir hvert prósentustig þeirrar vaxtahækkunar, sem hafin er. Hækkun heimsvaxta um eitt pró- sentustig eykur m.ö.o. viðskipta- hallann hér heima um 1% af landsframleiðslu að öðru jöfnu, eins og Ásgeir Jónsson lektor hefur bent á. Gengi krónunnar myndi þá trúlega falla, kannski með brauki og bramli, og skulda- byrðin myndi þyngjast enn frekar. Á móti kæmu meiri út- flutningur og minni innflutningur, þar eð gengisfall ýtir undir út- flutning og hamlar innflutningi með því að hækka verð á erlendri vöru og þjónustu. Heildaráhrif vaxtahækkunar erlendis og með- fylgjandi gengisfalls krónunnar á erlenda stöðu þjóðarbúsins munu fara eftir því, hversu mikið geng- ið lækkar, þegar heimsvextirnir hækka; vandi er um slíkt að spá. ■ Traustvekjandi er að vita að yfirvöld heilbrigðismála og sótt-varna hér á landi eru ásamt öðrum viðkomandi stjórnvöldumá varðbergi gagnvart hættum á því að nýjar tegundir skæðra sjúkdóma berist inn í landið eins og fréttir fjölmiðla í vikunni stað- festa. Í þessu efni gildir sú einfalda lífsregla að of seint er að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í. „Þetta er bara flensa, þetta er að ganga,“ segjum við gjarnan yfir háveturinn, þegar pestirnar sækja okkur heim. Við erum orðin vön einkennunum og vitum að yfirleitt standa þau stutt við. En inflúensa greinist í ýmsar tegundir og sumar þeirra geta verið skæðari og hættulegri en aðrar. Sérstakar áhyggjur hafa menn nú af svokallaðri fuglaflensu og ýmsum afbrigðum hennar sem orðið hefur vart í nokkrum Asíulöndum. Ekki er víst að við henni sé til óbrigðul bólusetning. Drjúgur hluti þeirra sem hafa sýkst hefur látist. Heilbrigðisstjórnir útiloka ekki að þessi tegund flensu eða eitt- hvert afsprengi hennar geti farið sem faraldur um heiminn og lagt mikinn fjölda fólks að velli. Í því efni er ekki aðeins verið að tala um þúsundir manna, heldur hugsanlega hundruð þúsunda eða milljónir. Sums staðar er kveðið fast að orði um líkur á þessum far- aldri og fullyrt að málið snúist ekki um það hvort hann komi upp, heldur hvenær. Síðasti skæði inflúensufaraldurinn sem gekk yfir heimsbyggð- ina var spánska veikin svokallaða veturinn 1918 til 1919. Fórnar- lömb hennar eru talin á bilinu 25 til 40 milljónir manna. Þótt Ísland væri þá einangraðra land en nú og strjálbýlla fór veikin sem eldur í sinu um byggðir landsins. Gagnstætt því sem ætla mætti herjaði hún mest á fólk á besta aldri. Þjóðlífið lamaðist. Mest kvað að veik- inni í Reykjavík þar sem tveir þriðju borgarbúa lögðust um hríð veikir. Skýrslur benda til þess að á fimmta hundrað manns hafi látist. Það var veruleg blóðtaka fyrir okkar fámenna þjóðfélag. Fuglaflensan mun fyrst hafa verið greind fyrir einni öld á Ítalíu. Uppspretta hennar er hjá farfuglum, sérstaklega villiendum. Berst veiran úr þeim í hænsnfugla (kjúklinga og kalkúna) sem drepast þá yfirleitt. Fyrsta smit í mönnum uppgötvaðist í Hong Kong fyrir átta árum, en þá sýktust átján manns af einni tegund veirunnar og lést þriðjungur þeirra. Síðan hafa nokkur tilvik greinst áfram í Asíu og nokkrir látist. Ískyggilegastar þykja þær fregnir að hugs- anlega geti veiran borist á milli manna í stað þess að vera bundin við neyslu á sýktu fuglakjöti. Ekki er nú um stundir bráð hætta á ferðum að mati sóttvarna yfirvalda, en hitt blasir við að berist veikin til okkar heimshluta mun hún að líkindum breiðast hraðar út en sambærilegir faraldrar fyrr á tímum. Þess vegna er skynsamlegt að skipuleggja af ná- kvæmni og kaldri yfirvegun hvernig við verður brugðist. Gott er að vita að þar eru í forystu menn með góða dómgreind og sem kunna til verka. ■ 31. mars 2005 FIMMTUDAGUR SJÓNARMIÐ GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Mikilvægt er að undirbúa vel viðbrögð við skæðum sjúkdómsfaröldrum. Ekki bara flensa FRÁ DEGI TIL DAGS Ekki er nú um stundir bráð hætta á ferðum að mati sóttvarnayfirvalda, en hitt blasir við að berist veikin til okkar heimshluta mun hún að líkindum breiðast hraðar út en sambærilegir faraldrar fyrr á tímum. Þess vegna er skynsamlegt að skipuleggja af nákvæmni og kaldri yfirvegun hvernig við verður brugðist. ,, Í DAG FRAMFÖR ÍSLANDS ÞORVALDUR GYLFASON Gamla lögmálið um lausbeizlað inn- streymi lánsfjár og aukna verðbólgu er dottið úr sam- bandi. ,, GNOÐARVOGI 44 Opið frá 10-18:15 Nýjar stórlúðusneiðar Verð aðeins 890 kr/kg Áður 1590 kr/kg Glæsilegt úrval fiskrétta Lausbeizlað lánsfé Ný vefsíða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur opn- að vefsíðu á slóðinni ingibjorgsolrun.is. Er hún helguð formannsframboði hennar í Samfylkingunni. Á síðunni er að finna leiðbeiningar um hvernig ganga eigi í Samfylkinguna til að styðja framboðið og tugir manna vitna um ágæti hennar og for- ystuhæfileika. Er lofið ekki skorið við nögl. „Forystukona af guðs náð“ – hvorki meira né minna! – segir til dæmis Elín G. Ólafsdóttir. „Hún er öðrum líklegri til að greina að kjarna og hismi í hverju máli og hún mun einnig kunna að forgangs- raða, með sann- girni og hlutlægni að leiðarljósi“, segir Þorbjörn Broddason. Ekki gasprandi „Hún er ekki gasprandi út í loftið í fjöl- miðlum, hún hugsar sitt og kemur málum fram á hóg- væran og alúðlegan hátt. Hún er ekki valdasjúkur hrokagikkur“, segir Guð- mundur Ólafsson hagfræð- ingur. Undir þetta tekur einn af pistlahöfundum Fréttablaðs- ins, Guðmundur Andri Thors- son: „Hún talar við kjós- endur eins og viti borið og virðingar- vert fólk“, segir hann. Gáfulegar greinar Líklega er nokkuð til í því að Ingibjörg Sólrún hafi meiri áhuga á hugmyndum og málefnum en títt er um stjórnmála- menn. Á nýju vefsíðunni birtir hún langar og gáfulegar greinar í stað þess að blogga um daginn og veginn eins og keppinautur hennar og svili, Össur Skarphéðinsson, gerir á sínu bloggi. Þetta er í lagi gagnvart menntafólki, sem fjölmennt er í Samfylkingunni, en spurningin er hvort of mikil áhersla á þessu sviði geti orðið henni til trafala gagnvart breiðum hópi kjósenda sem taka afstöðu í stjórnmálum á grundvelli tilfinninga og skyndidóma, vilja hreinar línur, brauð og leiki og leiðist spakleg tal. gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL- SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 LESTU GREININA Á VISIR.IS OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.