Fréttablaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 16
Húmor í óskilum Íslendingar sem sóttu tónleika Stuðmanna í Royal Al- bert Hall skemmtu sér konunglega. Húmor Stuð- manna og upphitunarbandsins Hunds í óskilum vakti ósvikna gleði Íslendinganna á svæðinu. Eitthvað var um það að íslensk fyrirtæki nýttu þetta tækifæri og byðu breskum viðskiptavinum sínum til skemmtunarinnar. Bretarnir sem mættu voru hins vegar úti á þekju þegar hinn alíslenski húmor var annars vegar. Meðal þess sem fór fyrir brjóstið á sum- um bresku gestanna var grín með tvífara Englands- drottningar á tónleikunum. Meðal þess sem rætt mun hafa verið í einu íslensku stórfyrirtæki var að senda breskum gestum þess bréf, biðjast afsök- unar og gera tilraun til þess að útskýra íslenskt fönn. Velta vöngum um Actavis Það vakti athygli fyrir skemmstu þegar Actavis samdi við Íslandsbanka um að hafa viðskiptavakt um bréf félagsins í Kauphöll Íslands. Áður hafði KB banki sinnt þessu verkefni fyrir Actavis og velta menn nú fyrir sér hvort kærleikar milli þessara tveggja fyrir- tækja séu í minni kantinum. Greiningardeild KB banka gaf nýverið út mat á verðmæti Actavis og ráð- lagði fjárfestum að losa sig við bréf í lyfjafyrirtækinu. Greiningardeild KB banka telur að verðmæti bréfanna sé 33,1 en á markaði fæst nú 41 króna fyrir bréfin. Í fyrradag fjallaði KB banki um Actavis í Hálf fimm frétt- um og velti vöngum um hvort stjórnendur félagsins hafi í hyggju að frest skráningu á hlutabréfamarkað í Lundúnum, en það hefur verið yfirlýst stefna félags- ins. KB banki bendir á að Actavis leiti nú að nýjum fjár- málastjóra og að tillaga fráfarandi stjórnar um næstu stjórn feli ekki í sér að reglum bresku kauphallarinnar sé fylgt. MESTA HÆKKUN ICEX-15 3.899 KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ] Fjöldi viðskipta: 217 Velta: 2.962 milljónir +0,07% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... KB banki hefur samið um að hafa viðskiptavakt með bréf í finnska hlutafélaginu Aspocomp Group sem skráð er í finnsku kauphöllinni. Seil ehf. sem meðal ananars er í eigu stjórnarmanna og stjórn- enda hjá Vinnslustöðinni jók í gær hlut sinn í Vinnslustöðinni úr 4,9 í 11,9 prósent. Sænska fyrirtækið Industrie- varden jók í gær hlut sinn í Öss- uri og er sem fyrr stærsti hluthaf- inn í félaginu. FTSE-vísitalan í Lundúnum lækkaði um 0,37 prósent í gær. Í Þýskalandi lækkaði Dax-vísitalan um 0,1 prósent og í Japan lækk- aði Nikkei-vísitalan um 0,29 pró- sent. 16 31. mars 2005 FIMMTUDAGUR Áhugaleysi fjárfesta er að sögn forstjórans ein meg- inskýringin fyrir brott- hvarfinu. Samherji er stærsta útflutningsfélag á Íslandi en tækifæri til vaxtar eru erlendis. Samherji, stærsta sjávarútvegs- fyrirtæki landsins, er á leið af markaði ef yfirtökutilboð nokkurra hluthafa félagsins nær fram að ganga. Í gær var tilkynnt um að eig- endur 60 prósenta hlutafjár í félag- inu ætli að gera öðrum hluthöfum tilboð í hlutabréf þeirra. Að tilboðinu munu standa Krist- ján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson, stærstu hluthafar Samherja, ásamt Fjárfestingarfé- laginu Firði, sem er í þeirra eigu, Blika, sem er í eigu lykilstarfs- manna Samherja, Tryggingamið- stöðinni, F-15, Finnboga A. Bald- vinssyni, forstjóra Pickenpack- Hussmann & Hahn, og öðrum fjár- hagslega tengdum aðilum. Tilboðið verður lagt fram innan fjögurra vikna. Markaðsvirði Samherja er um 20 milljarðar króna þannig að hóp- urinn þarf að reiða fram um 9,0 milljarða króna til að eignast aðra hluti. Yfirtökuverðið miðast við verðið 12,1 króna á hlut en við það bætist 30 prósent arðgreiðsla fyrir síðasta ár. Samherji, sem var skráður á markað í júní árið 1997, bætist við flóru þeirra félaga sem hafa verið afskráð á undanförnum misserum. Félagið gæti orðið það fjórða sem hverfur úr Kauphöll Íslands á þessu ári en fyrr á árinu voru Opin kerfi Group og sjávarútvegsfélögin Hraðfrystistöð Þórshafnar og Tangi afskráð. Það er því hugsanlegt að aðeins þrjú sjávarútvegsfyrirtæki verði eftir á markaði; HB Grandi, Vinnslustöðin og Þormóður rammi – Sæberg. „Sjávarútvegsfyrirtæki hafa verið að hverfa úr Kauphöll Íslands af ýmsum ástæðum. Deilur um þessa grein hafa skaðað þessi fyrir- tæki og fjárfestar hafa lítinn áhuga á greininni. Bankar og lífeyrissjóð- ir hafa einna helst verið að fjárfesta í bréfum okkar og annarra sam- bærilegra félaga,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Sam- herja og bendir á að ávöxtun hluta- bréfa í öðrum greinum en sjávar- útvegi hafi verið betri. Þorsteinn Már vonar að aðrir hluthafar Sam- herja verði sáttir við yfirtökuverðið en það er 10 prósentum hærra en gengi félagsins var um síðustu ára- mót. „Það er ljóst að Samherji vex ekki á Íslandi. Við höfum unnið mikið erlendis og við viljum vaxa þar áfram. Tækifærin eru þar,“ segir hann. - eþa vidskipti@frettabladid.is Peningaskápurinn… Actavis 41,30 +0,73% ... Atorka 6,10 – ... Bakkavör 31,60 -1,56% ... Burðarás 14,05 – ... FL Group 13,75 – ... Flaga 5,38 -0,92% ... Íslandsbanki 12,30 +0,41% ... KB banki 525,00 - 0,19% ... Kögun 60,00 – ... Landsbankinn 14,85 +0,34% ... Marel 56,50 -0,35% ... Og fjarskipti 4,12 -0,24% ... Samherji 12,25 +2,08% ... Straumur 10,35 +0,49% ... Össur 83,00 +1,22% Samherji af markaði Líftæknisjóðurinn 33,33% Vinnslustöðin 9,72% Samherji 2,08% Fiskimarkaður Ísl. -1,79% Tryggingamiðstöðin -1,74% Bakkavör -1,56% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: nánar á visir.is                              !     "  #  $ #" %                     !" &' ("("  )   )%**%+% , !! ,- #        .      ) )/ ,,    $      %     ! $    !    &  0) 0 $ )   #   /) / )    % 1,     '     !  $ 2    #  "3       % 1-, ($   !%  4 ) !       5 )  %  %64        *  ) %    +  !$ !!% $     &  )  $    7     " )   "  #  $ #" %               +   , 08)9 )   # )  "             - . #  /   $"   % #  - / , 1%%:%     %     Þórði Friðjónssyni, forstjóra Kauphallar Íslands, þykir það sárt að missa Samherja af mark- aði, enda er um glæsilegt félag að ræða. Stærstu eigendur Sam- herja hyggjast yfirtaka félagið og afskrá það úr Kauphöllinni. Þórður bendir á að sjávar- útvegsfyrirtæki hafi átt undir högg að sækja á hlutabréfamark- aði og fari fækkandi. Stafi það meðal annars af sérkennum greinarinnar en erlendum fjár- festum er óheimilt að fjárfesta beint í þessum félögum. Einnig hafi pólitísk sjónarmið dregið úr áhuga fjárfesta. „Hún er orðin fátækleg flóran af sjávarútvegs- fyrirtækjum. Við gerðum okkur vonir um að efla þennan mark- að,“ segir Þórður. Hann hefur ekki miklar áhyggjur af þeirri þróun sem hefur átt sér stað með fækkun skráðra fyrirtækja. „Við gerum okkur þvert á móti vonir um að sterk fyrirtæki sæki aftur inn á markað. Það horfir ágætlega til með nýskráningar þótt skráning nýrra sjávarútvegsfyrirtækja séu ekki í sjónmáli. Við reiknum með að allnokkur fyrirtæki komi fljótlega inn í Kauphöllina,“ segir hann. - eþa Flaggskipið hverfur ÞÓRÐUR FRIÐJÓNSSON, FORSTJÓRI KAUPHALLAR ÍSLANDS Alltaf sárt að sjá á eftir glæsilegum félögum. RISAYFIRTAKA Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, ætlar ásamt öðrum fjár- festum að gera tilboð í hlutabréf annarra hluthafa í Samherja. Hlutabréf í Samherja, stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, verða svo afskráð. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Greiða mikinn arð Tvö félög í Kauphöllinni greiða allan hagnaðinn í arð. Tvö félög í Kauphöllinni, Landssíminn og Þormóður rammi – Sæberg, greiða í ár hærri arð til eigenda sinna en sem nemur árshagnaði síðasta árs. Á aðalfundi Landssímans, sem haldinn var fyrir stuttu, var sam- þykkt að greiða 90 prósenta arð, sem þýðir að félagið greiðir út 6.300 milljarða króna. Síminn hagnaðist um 3.070 milljónir króna og greiðir því út um 200 prósent af hagnaði sínum í arð. Það mun vera hæsta arðgreiðsla sem íslenskt félag hefur greitt. Þormóður rammi – Sæberg skilaði 319 milljóna króna hagn- aði árið 2004. Stjórn félagsins lagði til að hluthöfum yrðu greiddar 650 milljónir króna í arð. Bæði félög hafa lagt áherslur á að greiða háan arð. Þormóður rammi greiddi eigendum sínum einnig 50 prósenta arð árin 2002- 2003 og Síminn hefur borgað yfir 10 milljarða í arðgreiðslur und- anfarin þrjú ár. - eþa FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T AÐALFUNDUR SÍMANS 2005 Síminn hefur greitt hluthöfum sínum yfir 10 millj- arða króna í arð undanfarin þrjú ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.