Fréttablaðið - 31.03.2005, Qupperneq 18
„Ég geri ráð fyrir að fá börnin,
barnabörnin og barnabarna-
börnin í heimsókn og eiga góða
stund með þeim,“ segir Sigurður
A. Magnússon rithöfundur sem er
77 ára í dag. Hann hefur haft
fyrir sið að fagna veglega á
stórafmælum en er rólegri á
öðrum dögum. „Ég bauð hundruð
manna í veislu þegar ég varð
fimmtugur, sextugur, sjötugur og
nú síðast þegar ég varð 75 ára,“
segir Sigurður. „Ég er mikill sel-
skapsmaður og þó það hafi vissu-
lega dregið af manni með árunum,
finnst mér alltaf gott að vera inn-
an um gott fólk.“
Þó Sigurður eigi ekki stóraf-
mæli stendur hann vissulega á
tímamótum, því í sumar fer hann í
sína síðustu Grikklandsför. „Í
fyrra ætlaði ég í síðustu ferðina,
en það komust færri að en vildu
og ég gat ekki hugsað mér annað
en að fylgja þeim út að ári sem
voru á biðlistanum,“ segir hann,
en bætir við að enn sé laust pláss
fyrir þá sem vilja nýta síðasta
tækifærið til að flakka um Grikk-
land undir leiðsögn sagnabrunns-
ins Sigurðar.
Hann hefur lengi haft sterkar
taugar til Grikklands, en þangað
kom hann fyrst 23 ára gamall og
bjó þá í klaustri í eitt ár á meðan
hann nam guðfræði. „Ég heillaðist
bæði af landinu og fólkinu. Grikk-
ir eru hlýtt og skemmtilegt fólk,
loftslagið gerist ekki betra og
landið minnir á heimahagana. Á
öllum mínum ferðalögum hefur
enginn staður minnt mig jafn mik-
ið á Ísland og Grikkland.“
Síðan Sigurður fór að skipu-
leggja hópferðir hafa hátt í
fjögur þúsund manns farið til
Grikklands undir hans leiðsögn og
margir oftar en einu sinni. „Í
fyrra fóru 47 með mér, þar af voru
15 sem höfðu komið áður.“ En
skyldi hann aldrei fá leið á þessu?
„Ekki Grikklandi, nei og ég hef
enn engan hitt sem hefur verið óá-
nægður með ferðina. Skriftir eru
einmanaleg iðja og ég hef gert
þetta að mínu öðru starfi til að fá
tækifæri til að umgangast
skemmtilegt fólk. Það er alltaf
góður andi í þessum ferðum.“ ■
18 31. mars 2005 FIMMTUDAGUR
NIKOLAJ VASSÍLIJEVITS GOGOL
(1809-1852) fæddist þennan dag.
Grikkir sóttir heim
í síðasta sinn
TÍMAMÓT: SIGURÐUR A. MAGNÚSSON 77 ÁRA
„Til lítils er að skamma spegilinn þótt
andlitið sé úr lagi gengið.“
Gogol er einna þekktastur fyrir skáldsögu sína Dauðar sálir sem út
kom árið 1842. Hann var fæddur í Úkraínu og ólst þar upp á setri
foreldra sinna. Rétt eftirnafn hans var Íanofskí, en afi skáldsins
hafði tekið upp nafnið „Gogol“ til að undirstrika tengsl við Kósakka.
Undir það síðasta hafði trúarofstækisprestur að nafni Konstan-
ínoviskí mikil áhrif á Gogol sem brenndi framhaldið af Dauðum sál-
um, tíu dögum áður en hann lést 4. mars 1852.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Fjóla Tryggvadóttir, Austurbrún 4,
Reykjavík, er látin.
Sveinbjörn Bárðarson, flugumferðar-
stjóri, Smárahlíð 7c, Akureyri, lést
sunnudaginn 20. mars.
Friðgerður Rannveig Kjærnested Finn-
björnsdóttir, Garðvangi, Garði, áður á
Birkiteigi 13, Keflavík, lést fimmtudaginn
24. mars.
Ingibjörg Adolfsdóttir, Austurbrún 4,
Reykjavík, lést föstudaginn 25. mars.
Ásta Eygló Stefánsdóttir, fv. banka-
starfsmaður, leiðsögumaður og frönsku-
kennari, Neshaga 15, Reykjavík, lést
sunnudaginn 27. mars.
JARÐARFARIR
11.00 Þormóður Haukur Jónsson,
Ugluhólum 12, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju.
13.00 Birna Björnsdóttir, fv. bankafull-
trúi, Hvassaleiti 14, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grensás-
kirkju.
13.00 Katrín Vilhelmsdóttir, Hrafnistu,
áður Byggðarenda 4, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvog-
skapellu.
15.00 Árný Hulda Steinþórsdóttir,
Freyjugötu 30, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju.
15.00 Inga G. Þorkelsdóttir, Droplaug-
arstöðum, áður Freyjugötu 17,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Hallgrímskirkju.
15.00 Unnur Frímannsdóttir, fyrrum
húsfreyja á Heiðarbæ II, Þingvalla-
sveit, verður jarðsungin frá Lang-
holtskirkju.
Þennan dag árið 1959 var Dalai
Lama hrakinn í útlegð þegar kín-
versk yfirvöld bældu niður upp-
reisn í Tíbet. Dalai Lama flúði til
Indlands og fékk þar pólitískt
hæli.
Dalai Lama fæddist í Takster-
héraði í Kína og hét þá Tensin
Gjatso. Hann var skipaður fjórt-
ándi Dalai Lama árið 1940 og
varð ekki aðeins trúarlegur held-
ur einnig pólitískur leiðtogi
Tíbeta. Frá fyrri hluta 20. aldar
höfðu Kínverjar treyst ítök sín í
Tíbet sífellt meira og árið 1950,
eftir að kommúnistar komust til
valda í Kína, réðust þeir inn í
Tíbet. Ári síðar komust löndin að
samkomulagi um að Tíbet yrði
sjálfráða hérað innan Kína. Að
nafninu til átti Dalai Lama að
stjórna landinu en Kínverjar fóru
ekki leynt með að þeir höfðu
tögl og hagldir. Tíbetar undu trú-
banni kínverskra yfirvalda illa og
mótmæltu reglulega og í mars-
mánuði árið 1959 braust út upp-
reisn. Kínverski herinn bældi
uppreisnina niður af svo mikilli
hörku að það þótti jaðra við
þjóðarmorð.
Dalai Lama komst undan til Ind-
lands og réttum tíu árum síðar
fékk hann varanlegt hæli þar í
landi. Hann kom á fót lýðræðis-
lega kjörinni útlagastjórn Tíbeta
og mótmælti ákaflega harðstjórn
Kínverja sem höfðu tekið algjör-
lega fyrir iðkun búddisma og
eyðilagt klaustur. Trúarbanninu
var aflétt árið 1976 en yfirráðum
Kína í Tíbet er enn mótmælt
með alþjóðlegum stuðningi. Árið
1989 hlaut Dalai Lama friðar-
verðlaun Nóbels fyrir friðsamlega
baráttu fyrir sjálfstæði Tíbets.
DALAI LAMA
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1863 Vilhelmína Lever verður fyrst
kvenna til að kjósa hér í sveit-
arstjórnarkosningum þegar
hún kaus í bæjarstjórnarkosn-
ingum á Akureyri.
1889 Franski verkfræðingurinn
Alexandre Gustave Eiffel
flaggar franska fánanum úr
toppi turns síns til marks um
að hann sé fullgerður.
1905 Við borun eftir vatni í Öskju-
hlíð fannst málmtegund sem
talin var vera gull. Síðar kom í
ljós að vinnsla myndi ekki
borga sig.
1936 Bretar og Frakkar heita Pól-
verjum stuðningi verði ráðist
inn í landið.
1944 Pétur Gautur eftir Henrik
Ibsen í þýðingu Einars Bene-
diktssonar sýndur í fyrsta sinn
á Íslandi.
1990 Viðbygging við Háskólabíó
tekin í notkun, en við það
fjögaði sýningarsölum úr ein-
um í fimm.
Dalai Lama hrakinn í útlegð
Elskulegur sonur minn, bróðir okkar og barnabarn,
Þorsteinn Þórðarson
Gaukstaðavegi 4, Garði
varð bráðkvaddur á heimili sínu sunnudaginn 27. mars.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þórður Guðmundsson
Hafþór Þórðarson
Kristín Þórðardóttir
Ólafur Þórðarson
Kristín Ingimundardóttir
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi
Sveinbjörn Bárðarson
flugumferðarstjóri
Smárahlíð 7c, Akureyri
lést að heimili sínu sunnudaginn 20. mars. Útförin verður gerð frá
Skútustaðakirkju laugardaginn 2. apríl kl. 14.00.
Benedikt Sveinbjörnsson Sólveig Jónsdóttir
Bárður Sveinbjörnsson Ingibjörg H. Þórisdóttir
Gunnar Sveinbjörnsson Þórdís Þórarinsdóttir
Jón Egill Sveinbjörnsson Hanna Edda Halldórsdóttir
og barnabörn.
AFMÆLI
Ragnar Þór Arnljótsson teiknari er
fimmtugur í dag.
Ásdís Kalman myndlistarkona er 41 árs
í dag.
Þrúður Vilhjálmsdóttir
leikkona er 32 ára í dag.
Kristján Guy Burgess,
fréttastjóri DV, er 32 ára
í dag.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1596 Rene Descartes,
heimspekingur.
1732 Franz Joseph
Haydn, tónskáld.
1811 R.W. von Bunsen,
efnafræðingur.
1934 Shirley Jones,
leikkona.
1943 Christopher Walken,
leikari.
1959 Angus Young,
gítarleikari AC/DC.
1971 Ewan McGregor,
leikari.
Heimir á
herrakvöldi
Herrakvöld Víkings verður haldið
í Víkinni annað kvöld og opnar
húsið klukkan hálf átta, en gestir
herrakvöldsins fá frítt á leikinn
Víkingur-FH sem hefst þegar
klukkuna vantar fimmtán mínút-
ur í sjö.
Veislustjóri á herrakvöldinu
verður sjónvarpsmaðurinn góð-
kunni Heimir Karlsson, en ræðu-
maður og gestur verður Gísli
Einarsson, ritstjóri Skessuhorns.
Jóhannes Kristjánsson eftirherma
skemmtir og fleira til. „Ég er nátt-
úrlega borinn og barnfæddur Vík-
ingur og var í Víkingi bæði í hand-
bolta og fótbolta,“ segir Heimir og
kvaðst því ekki hafa getað færst
undan því að stýra veislunni í
gamla félaginu sínu þegar eftir
því var leitað og bjóst við
skemmtilegu kvöldi. „Maður tínir
saman einhverjar skemmtilegar
sögur úr boltanum og brandara
einhverja. Svo er nú boðið upp á
heilmikla skemmtidagskrá og
maður reynir að passa að hún
gangi snurðulaust fyrir sig.“ ■
Samkeppni um
sjávarútvegsvef
Ráðuneyti sjávarútvegs og
menntamála hafa efnt til sam-
keppni meðal grunnskóla lands-
ins um verkefnið Sjávarútvegur í
fortíð, nútíð og framtíð, en í því
felst að nemendur búi til sérstak-
an sjávarútvegsvef um efnið sem
vistaður skal á vefsvæði skólans.
Samkeppnin er haldin í tilefni af
því að um þessar mundir eru 100
ár síðan Coot, fyrsti íslenski tog-
arinn, kom til landsins.
Á heimasíðunni Menntagátt
(www.menntagatt.is/?pageid=449
) má finna allar frekari upplýs-
ingar um keppnina, en þar er
einnig búið að safna saman upp-
lýsingum um vefsíður og fleira
sem nýst gætu nemendunum sem
heimildir, auk þess sem vísað er á
efni um vefsíðugerð og annað
gagnlegt.
Hver skóli getur sent eitt
verkefni í keppnina og er skila-
frestur verkefna til 25. maí næst-
komandi. Verðlaun verða veitt
fyrir þrjú bestu verkefnin og
koma þau í hlut viðkomandi skóla.
Fulltrúum skólanna í þrem efstu
sætunum verður síðan boðið á
sjávarútvegssýninguna í septem-
ber þar sem verðlaunin verða
afhent. Fyrstu verðlaun eru
skjávarpi, myndbandstökuvél og
tölva, önnur verðlaun eru
skjávarpi og myndbandstökuvél
og þriðju verðlaun skjávarpi. ■
COOT, FYRSTI ÍSLENSKI TOGARINN
Á sjávarútvegssýningunni í haust verða
veitt verðlaun í samkeppni grunnskóla um
gerð vefsvæðis með yfirskriftinni Sjávarút-
vegur í fortíð, nútíð og framtíð.
HEIMIR KARLSSON
SIGURÐUR A. MAGNÚSSON Hátt á fjórða þúsund manns hafa fylgt Sigurði til Grikk-
lands undanfarna fjóra áratugi. Skriftir eru einmanaleg iðja og Sigurður segist ferðast til
að umgangast fólk.