Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.03.2005, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 31.03.2005, Qupperneq 40
HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 28 29 30 31 1 2 3 Fimmtudagur MARS ■ ■ LEIKIR  19.00 Valur og ÍA mætast í Egilshöll í 1. riðli A-deildar deildarbikars karla í fótbolta.  19.15 FH og Valur mætast í Kaplakrika í úrslitakeppni DHL- deildar kvenna í handbolta.  19.15 ÍBV og Víkingur mætast í Vestmannaeyjum í úrslitakeppni DHL-deildar kvenna í handbolta. ■ ■ SJÓNVARP  16.00 Formúla 1 á Sýn.  16.25 Skíðamót Íslands á RÚV.  16.45 Handboltakvöld á RÚV.  17.15 Olíssport á Sýn.  18.30 Fótbolti um víða veröld á Sýn.  20.00 Íslandsmótið í handbolta á RÚV. Bein útsending frá síðari hálfleik í leik FH og Vals í úrslitakeppni DHL-deildar kvenna í handbolta.  21.00 Þú ert í beinni! á Sýn.  22.00 Olíssport á Sýn.  23.05 Skíðamót Íslands á RÚV.  23.15 Þú ert í beinni! á Sýn.  00.15 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn. Varnarsigur Íslands í Padova 20 31. mars 2005 FIMMTUDAGUR > Við vorkennum ... ... Kára Árnasyni, sem hlýtur að hafa liðið skelfilega í gær er honum var vikið af velli eftir aðeins þrjár mínútur í sínum fyrsta landsleik. Svo sannarlega eftirminnileg byrjun á landsliðsferlinum hjá Kára, sem hlýtur að hafa skráð sig í einhverjar metabækur. sport@frettabladid.is > Við hrósum ... ... íslenska landsliðinu í knattspyrnu sem tókst loksins að stöðva lekann í vörninni og halda hreinu gegn Ítölum í Padova í gær. Það var svo sannarlega kominn tími til eftir flengingar í síðustu leikjum. Aðal frétt dagsins Betri úrslit hjá Möltu í Zagreb Maltverjar stóðu sig betur gegn Króötum í gær en Íslendingar gerðu á laugardaginn í Zagreb. Malta tapaði „aðeins“ 3–0 fyrir króatíska liðinu, sem er betri árangur heldur en það íslenska getur státað af, en Íslend- ingar fóru til Ítalíu með fjögurra marka tap á bakinu. Eggert Maríuson, þjálfari ÍR í Intersport- deildinni í körfuknattleik, tilkynnti á dögunum að hann væri hættur að þjálfa í bili. „Ég var búinn að ákveða það fyrir töluverðum tíma að ég ætlaði að taka mér hvíld eftir að samningstíma mínum lyki hjá ÍR,“ sagði Eggert, sem var ráðinn til þriggja ára. „Ég verð sjálf- sagt eitthvað í kringum liðið en ekki sem þjálfari.“ Aðspurður hvort hann myndi ráða sig til annars liðs taldi Eggert afar litlar líkur á því. „Maður getur náttúrlega aldrei sagt aldrei en ef ég hefði haldið áfram að þjálfa hefði ég verið áfram hjá ÍR. Ég er búinn að þjálfa meistaraflokk í sex ár og tími til kominn að hlaða batteríin,“ bætti Eggert við en hann var eitt ár hjá Fjölni og tvö ár með Breiðablik áður en hann hélt til ÍR. Eggert fullyrti að ekkert hefði getað breytt ákvörðun sinni og að hún hefði legið lengi í loftinu. „Það hefði nátt- úrlega verið skemmtilegra að hætta sem Íslandsmeistari en það hefði ekki breytt ákvörðun minni um að draga mig í hlé. Þetta er búið að vera mjög gaman í vetur þrátt fyrir miklar sveiflur.“ ÍR-ingar geta vel við unað og sýndu hvers megnugir þeir eru með því að vinna Njarð- vík, 2-0, í fyrstu umferð úr- slitakeppninnar og lögðu Kefl- víkinga á hinum firnasterka heimavelli, Sláturhúsinu. „Ég kveð sáttur í bili en það var samt hundleiðinlegt að tapa þremur í röð í undanúrslitunum. Eftir á að hyggja voru Keflvíkingar bara með mjög góðir og við erum ekkert minni menn að vera slegnir út af sjálf- um Ís- lands- meistur- unum,“ segir Eggert Maríu- son, frá- farandi þjálfari ÍR. Íslenska knattspyrnulandsliðið hélt hreinu gegn Ítölum í Padova. Leikurinn var líflegur og nýliðinn Kári Árnason fékk að líta rauða spjaldið eftir aðeins þrjár mínútur á vellinum. KÖRFUBOLTAÞJÁLFARINN EGGERT MARÍUSON: HÆTTUR MEÐ ÍR-INGA EFTIR ÞRJÚ ÁR Í BREIÐHOLTINU Kominn tími til að hlaða batteríin FÓTBOLTI „Við vorum ekkert farnir að athuga okkar stöðu sem lands- liðsþjálfarar neitt sérstaklega fyrir leikinn. Við reynum alltaf að gera okkar besta. Ef við einbeit- um okkur ekki að því fara leikirn- ir illa. En ef eitthvað slíkt kemur upp, að við séum á útleið, þá lofa ég því að þið fáið að frétta af því,“ sagði Logi Ólafsson landsliðs- þjálfari við Fréttablaðið í Padova í gærvöld eftir markalaust jafn- tefli Ítalíu og Íslands í vináttu- landsleik þjóðanna. Ísland fékk fyrsta færi leiksins strax á fjórðu mínútu. Hannes Þ. Sigurðsson slapp einn í gegn og lét skotið ríða af við markteigshornið en Flavio Roma bjargaði með góðu úthlaupi. Eftir þetta tóku Ítalir öll völd á vellinum og dældu háum boltum fram á hinn stóra og stæði- lega framherja, Luca Toni. Eftir hálftíma leik skoraði Toni með skalla en markið var réttilega dæmt af þar sem hann braut á Ólafi Erni Bjarnasyni. Tveimur mínútum síðar skor- aði Daniele De Rossi aftur fyrir Ítalíu með skoti frá vítateigslínu eftir hornspyrnu en markið var dæmt af vegna brots inni í teig. „Við löguðum það sem aflaga fór gegn Króatíu. Við stóðum varnarleikinn mjög vel, menn voru vakandi í vörninni. Eðli málsins samkvæmt var lítið að gerast fram á við. Hvorugt lið var með sinn sterkasta mannskap og við söknum auðvitað Eiðs Smára. En ég er stoltur af strákunum, þeir sýndu mikinn karakter,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson lands- liðsþjálfari. Ítalir áttu 20 markskot í leikn- um en Ísland tvö, eitt í hvorum hálfleik. Kári Árnason kom inn í sínum fyrsta landsleik þegar 10 mínútur voru eftir. Hann staldraði stutt við, eða nákvæmlega þrjár mínút- ur, því hann braut gróflega á Barzagli og var réttilega rekinn af velli. „Mér fannst þetta ekki vera rautt spjald, brotið var ekki það gróft. Þetta er rosalega súrt, ætli ég sé ekki kominn í flokk með Vinnie Jones og félögum eftir þetta,“ sagði Kári við Fréttablað- ið. Þá fengu Emil Hallfreðsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson einnig að spila lokamínútur leiks- ins og eru því með skráðan lands- leik. Hermann Hreiðarsson átti frá- bæran leik í hjarta varnarinnar ásamt Ólafi Erni Bjarnason. Árni Gautur var maður leiksins og ný- liðinn Hannes stimplaði sinn í A- landsliðið með glæsibrag. Grétar Rafn og Gylfi börðust vel eins og reyndar allt íslenska liðið sem fékk svolitla uppreisn æru eftir dapurt gengi að undanförnu. thorsteinn.gunnarsson@365.is                               !"  # !                 !      !  %    $&   !  !  !  ! ! "  !"'' !        !         !!       !      (     ) !      $   !         !     "            !  !*      !               + ,   (       !"  #$ +        "  ! "!          $ + -        !     !         "  $ + -           '        !$          !     " #  $   % & '     .//0121 !  3$  '  .//0244     (  )    5 &   ' "6     !              7     8$ !"    ! !   $ *   99$)92$ ' 244. $9144:9;44$ (         <    2$ +  , 2;$444$))))))))))))))))) Fyrirliði ÍR á förum? Créteil vill fá Bjarna HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn og ÍR-ingurinn Bjarni Fritzson kom heim frá Frakklandi í gær þar sem hann var í skoðun hjá franska félaginu Créteil. Forráðamönnum franska félagsins leist vel á Bjarna og þeir munu freista þess að ná samningum við hann á næstu dögum. „Mér leist verulega vel á þetta félag og það á margt sameiginlegt með ÍR. Það er góð fjölskyldu- stemning þarna,“ sagði Bjarni við Fréttablaðið nýlentur frá París í gær en hann hyggst reyna að ná samningum við félagið helst ekki síðar en um helgina. „Það væri gott að klára þetta fyrir úrslita- keppnina og ég er nokkuð bjart- sýnn á að það takist.“ Félagi Bjarna hjá ÍR, Ingi- mundur Ingimundarson, gæti einnig farið til franska félagsins en það hefur spurst fyrir um Ingi- mund. - hbg BJARNI FRITZSON Væntanlega á leið til Frakklands. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI STUTT GAMAN Kári Árnason fékk að líta rauða spjaldið eftir aðeins þrjár mínútur í sínum fyrsta landsleik. FRÉTTABLAÐIÐ/BÖDDI

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.