Fréttablaðið - 02.04.2005, Side 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
490,-
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is
Sápuóperan
290,-
VIREN baðvörur 7 stk.
Heilsuréttur
salat og cous cous
SPARREN baðskápur
með spegli 60x16x52 sm
VIREN
klósettbursti
1.990,-
TOFTBO baðmotta
65x100 sm
1.250,-
SAXÅN baðmotta
Ø60 sm
490,-
KILÅN
baðvigt
490,-
LETTEN kollur
690,-
FRYKEN körfur 3 stk.
990,-
KNIPPLAN handklæði
50x100 sm
390,-
FUSA spegill
með stækkun Ø15 sm
390,-
NÄCKTEN handklæði
60x130 sm
250,-
MALOU VÅG
sturtuhengi 180x180 sm
590,-
FLORENCE
handklæði
50x100 sm
690,-
95,-
MOLGER hirsla/kollur
38x38 H50 sm
3.900,-
IK
E
27
73
9
0
3.
20
05
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
5
Stjórnandinn
Ein athyglisverðasta bíómynd síðariára heitir Being John Malkovich.
Myndin fjallar um það þegar venjulegt
fólk fær tækifæri til þess að vera inni í
hausnum á stórleikaranum í stundar-
korn og upplifa það hvernig er að vera
hann. Upp á síðkastið hef ég velt því
fyrir mér, þó svo vissulega sé ólíkum
einstaklingum saman að jafna, hvernig
það yrði að vera inni í hausnum á
Markúsi Erni Antonssyni útvarps-
stjóra. Ég held að til dæmis Baltasar
Kormákur gæti gert ágætis kvikmynd
um þetta efni. Being Markús Örn.
HÚN yrði skrýtin, sem er gott. Mjög
súrrealísk. Hugsanlega yrði þetta
blanda af Being John Malkovich og
Office þáttunum bresku sem voru
sýndir í sjónvarpinu fyrir skömmu.
Ekki er nefnilega ofsögum sagt að út-
varpsstjórinn knái hafi sýnt það í verki
að hann er álíka heppinn stjórnandi og
hinn breski David Brent og ber álíka
mikið skynbragð á aðstæður sínar og
hvernig megi snúa þeim fyrirtækinu í
hag og skapa í leiðinni góðan og upp-
byggilegan starfsanda.
ÞAÐ hlýtur að vera gaman að vera
svona náungi. Það þarf nefnilega
ákveðna snilligáfu til þess að a) móðga
alla sína bestu starfskrafta á virtustu
og farsælustu deild stofnunarinnar á
einu bretti í fréttaviðtali sem annars
hefði verið upplagður vettvangur til
þess að skýra málið og róa gagnrýnis-
raddir, b) fá þrjár vantraustsyfirlýs-
ingar á störf sín frá þremur starfs-
mannafundum á innan við mánuði, c)
ráða mann í starf sem síðar varð upp-
vís að því strax á fyrsta degi að segja
ósatt í viðtali við fréttastofuna sem
hann var ráðinn til að stjórna og síðast
en ekki síst d) láta sér fullkomlega í
léttu rúmi liggja, að því er virðist, allt
þetta ástand og láta bara eins og ekk-
ert sé, skilja jafnvel ekkert í því.
ÞAÐ kallast í mínum vinahópi að taka
strútinn, samanber það hátterni strúts
að stinga höfðinu í sandinn. Talað er
um að taka strútinn á eitthvað þegar
menn með allt niðrum sig ákveða að
allt sé í sómanum. Þetta er reyndar
orðið ansi útbreitt háttalag íslenskra
stjórnmálamanna, að láta eins og þeir
séu í fötum þótt þeir séu það alls ekki.
Keisarinn á sínum tíma tók strútinn á
nekt sína.
INNI í höfðinu á útvarpsstjóra held ég
að sé hugsanlega veröld þar sem önnur
gildi ríkja en þau sem flestir þekkja.
Ekki skiptir til dæmis máli í þessari ver-
öld að vera sérstaklega farsæll í starfi,
enda farsæld ofmetin. Vantraust er bara
eitthvað merkingarlaust orð sem er ekki
til í íslensku og því betri eru ákvarðan-
irnar eftir því sem þær ná að gera fleiri
reiða á sem skemmstum tíma.
VIÐHORF þeirra sem halda um
stjórnartaumana er reyndar orðið
þannig almennt að full ástæða er til að
gera kvikmyndir sem gerðust inni í
höfðinu á fleirum. Þetta yrði á endan-
um heil þáttaröð sem myndi hugsan-
lega á endanum, ef vel tekst til, varpa
einhverju ljósi á hugsunarhátt sem
flestu venjulegu fólki, a.m.k. mér, er
hulin ráðgáta. ■
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR