Fréttablaðið - 07.05.2005, Page 8
7. maí 2005 LAUGARDAGUR
JARÐHITI Orkuveita Húsavíkur hef-
ur ákveðið að leiða 95 gráðu heitt
vatn úr borholu á Húsavíkurhöfða
í pott sem komið verður fyrir við
Sundlaug Húsavíkur. Veitustjóri
segir vatnið hafa góða virkni gegn
psoriasis-sjúkdómnum auk þess
sem breyting á efnainnihaldi þess
geti sagt til um yfirvofandi jarð-
hræringar á Norðurlandi.
Hreinn Hjartarson veitustjóri
segir að holan hafi verið boruð
1960 og sé um 1.500 metra djúp.
Átti hún að sjá Húsvíkingum fyr-
ir heitu vatni en frá því var horf-
ið þar sem of mikið salt var í
vatninu. „Þetta er með elsta vatni
sem fundist hefur á Íslandi og
hefur klárlega sambærileg
heilsuáhrif og vatnið í Bláa lón-
inu,“ segir Hreinn.
Vikulega eru tekin sýni úr
vatninu og þau send til Stokk-
hólms. „Með því að fylgjast með
breytingum á efnainnihaldi
vatnsins hafa sænskir sérfræð-
ingar getað sagt til um yfirvof-
andi jarðhræringar á Norður-
landi. Á næstunni verður komið
fyrir sjálfvirkum mælibúnaði
sem efnagreinir vatnið og sendir
niðurstöðuna í gegnum símalínu
til Svíþjóðar,“ segir Hreinn.
Kostnaður við að koma vatninu
á sundlaugarsvæðið er um sex
milljónir króna. -kk
Samkeppni um byggingu Háskólatorgs:
Fimm hópar keppa um hönnunina
HÁSKÓLI ÍSLANDS Fimm fyrirtæki
hafa verið valin til að keppa um
hönnun og byggingu Háskóla-
torgs Háskóla Íslands. Ef allt
gengur samkvæmt áætlun verður
torgið tekið í notkun í árslok 2007.
Sérstakur kynningarfundur
var haldinn með keppendum um
hönnun og byggingu Háskóla-
torgsins í hátíðasal Háskólans í
gær. Þar fengu keppendur af-
henta kröfu- og þarfalýsingu fyrir
bygginguna. Hóparnir saman-
standa allir af verktaka- og hönn-
unarteymum. Keppendurnir hafa
um fjóra mánuði til að vinna að
frumtillögum um byggingu og
skipulag en skilafrestur er til 31.
ágúst.
Í septemberlok verður tilkynnt
hvaða tillaga verður fyrir valinu
og áætlað er að hefja fram-
kvæmdir næsta vor. Byggingar-
kostnaður er áætlaður um 1.600
milljónir. Happdrætti Háskólans
fjármagnar hluta framkvæmda
en framlag Háskólasjóðs Eim-
skips er um hálfur milljarður og
skiptir sköpum um að gera fram-
kvæmdina að veruleika. - oá
AKRANES Fyrrverandi alþingismað-
urinn Guðjón Guðmundsson, sem
ráðinn hefur verið framkvæmda-
stjóri dvalarheimilisins Höfða á
Akranesi, segist hafa sótt um stöð-
una einfaldlega vegna þess að
hann taldi sig uppfylla þær hæfn-
iskröfur sem fram komu þegar
staðan var auglýst. Hann þvertek-
ur fyrir að hafa haft samráð við
stjórn dvalarheimilsins eða bæjar-
stjórnarminnihluta Sjálfstæðis-
flokksins þegar hann lagði fram
umsókn sína.
Fram kom í auglýsingu að
óskað væri eftir einstaklingi sem
hefði þekkingu á stjórnsýslusviði,
bókhaldsþekkingu og hæfni í
mannlegum samskiptum auk þess
að vera búsettur á svæðinu.
Guðjón telur sig uppfylla þessar
kröfur.
Guðjón sat á Alþingi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í tólf ár auk
þess sem hann sat í bæjarstjórn
Akraness samtals í jafn langan
tíma þannig að ljóst er að hann
hefur nokkra þekkingu og
reynslu á stjórnsýslusviði. Eins
hefur hann viðamikla reynslu af
bókhaldi sem skrifstofustjóri
Skipasmíðastöðvar Þorgeirs og
Ellerts.
Það olli einnig nokkrum deil-
um á sínum tíma þegar Ásmund-
ur Ólafsson, fráfarandi fram-
kvæmdastjóri dvalarheimilisins,
var ráðinn en fljótlega fennti í
þau spor og hefur hann þótt sinna
starfi sínu vel. Guðjón á að taka
við starfinu á allra næstu dögum.
-oá
SAMKEPPNI UM BYGGINGU HÁSKÓLATORGS HÓFST Í GÆR Kröfu- og þarfalýsing var
afhent keppendum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
ÁB
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON Ráðning hans sem framkvæmdastjóra dvalarheimilisins Höfða á Akranesi hefur valdið nokkrum úlfaþyt.
Heitt vatn á Húsavíkurhöfða:
Töfravatn á sundlaugarsvæ›i›
GAMLI UNDRAPOTTURINN Orkuveita Húsa-
víkur setti upp gamalt ostakar við borhol-
una fyrir rúmum áratug þar sem psoriasis-
sjúklingar og aðrir hafa notið heita vatnsins.
Sótti um án samrá›s
Gu›jón Gu›mundsson segist uppfylla allar hæfniskröfur sem ger›ar voru til
umsækjenda um starf framkvæmdastjóra dvalarheimilisins Höf›a.