Fréttablaðið - 07.05.2005, Qupperneq 28
Árni Gautur Arason, landsliðs-
markvörður Íslands í knatt-
spyrnu og atvinnumaður hjá
norska liðinu Vålerenga, er þrí-
tugur í dag en hefur lítinn tíma til
að halda upp á stórafmælið þar
sem hann verður í eldlínunni
gegn Bodø-Glimt í norsku úrvals-
deildinni á morgun. „Ég ætlaði
mér ekki að gera neitt sérstakt en
síðan komu mínir nánustu í heim-
sókn mjög óvænt á fimmtudag-
inn. Það er nokkuð sem þau höfðu
skipulagt án minnar vitundar og
auðvitað mjög skemmtilegt. En
það er leikur á morgun svo að það
verður eitthvað rólegt upp á ten-
ingnum í kvöld,“ sagði Árni Gaut-
ur í léttum dúr þegar Fréttablað-
ið ræddi við hann í gær að tilefni
af tímamótunum.
Árni Gautur kveðst lítið hafa
gert af því í gegnum tíðina að
halda upp á afmælið en hann sló
þó upp veislu þegar hann varð 25
ára. „Það var engin stór veisla
þegar ég var tvítugur og það
verður heldur ekki núna þegar ég
er þrítugur. Ætli ég láti ekki
verða af þessu þegar ég verð fer-
tugur. Þá verð ég örugglega hætt-
ur í boltanum og hef þar af leið-
andi tíma til að standa í þessu,“
segir Árni. Hann kveðst ekki vera
farinn að kvíða fertugsaldrinum.
„Þetta er nú bara eitt ár en engu
að síður er það talsverð breyting
að sjá fyrst töluna þrjá í aldrinum
sínum. Kannski kemur einhver
krísa um helgina, en ég býst nú
ekki við henni,“ segir Árni og
hlær. Hann segist ekkert vita
hvað hann langi mest í í afmælis-
gjöf. „Kærastan mín er einmitt
búin að spyrja mig mikið þessar-
ar spurningar en það er fátt um
svör,“ segir Árni, sem býst þó
ekki við öðru en að hún færi hon-
um pakka í dag. „Hún verður að
gefa mér eitthvað. Annars verð
ég svekktur.“ ■
28 7. maí 2005 LAUGARDAGUR
GARY COOPER (1901-1961)
fæddist á þessum degi.
Fjölskyldan óvænt í heimsókn
TÍMAMÓT: ÁRNI GAUTUR ARASON ÞRÍTUGUR
„Þar til ég kom til sögunnar voru öll aðalhlut-
verkin leikin af myndarlegum mönnum, en sem
betur fer er til nóg af sögum um meðaljóninn.“
Bandaríski leikarinn Gary Cooper er ein skærasta kvikmyndastjarna allra
tíma og vann meðal annars Óskarsverðlaun fyrir hlutverk sitt í vestranum
sígilda High Noon.
timamot@frettabladid.is
ÁRNI GAUTUR ARASON Árni leggur það ekki í vana sinn að fagna stórafmælum en
ætlar að bæta úr því eftir áratug þegar farið verður að hægjast um.
MERKISATBURÐIR
1824 Níunda sinfónía Beethov-
ens er frumflutt í Vín.
1832 Grikkland verður sjálfstætt
ríki.
1912 Columbia-háskóli í New
York kemur Pulitzer-verð-
laununum á laggirnar.
1915 Þýskur kafbátur grandar
farþegaskipinu Lusitaniu.
Tólf hundruð fórust.
1940 Winston Churchill verður
forsætisráðherra Bretlands.
1951 Bandaríska varnarliðið
kemur til landsins en varn-
arsamningurinn var undir-
ritaður tveimur dögum
áður.
1957 Helen Keller kemur í heim-
sókn til Íslands.
1978 Jarðgöngin í Oddsskarði
eru vígð.
Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli, andlát og
jar›arfarir í smáletursdálkinn hér á sí›unni má senda á
netfangi› timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á auglysingar@frettabladid.is
e›a hringja í síma 550 5000.
Veit einhver deili á Álfheiði Guðlaugu Briem, sem bjó með eiginmanni sín-
um Valdimar Sigurði Briem kennara á Laufásvegi 6 í Reykjavík árið 1930?
Hver var Álfhei›ur Gu›laug?
Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um viðkomandi eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við starfsfólk
Íslendingabókar með tölvupósti á netfangið islendingabok@islendingabok.is, í síma 540 7496 eða með því að
skrifa bréf til Íslendingabókar, Þverholti 18, 105 Reykjavík.
Í manntalinu 1930 kemur fram að þau hafi gift sig árið 1928. Álfheiður er sögð
fædd 29. júní árið 1896 í Ólafsvík en finnst ekki þar í kirkjubók og heldur ekki í
sóknarmannatalinu í Ólafsvík 1897. Samkvæmt manntalsskrá Reykjavíkur kom hún
frá Kaupmannahöfn í maí 1930 og fór aftur utan árið 1932. Í Kennaratalinu er
Valdimar Sigurður Briem hins vegar sagður ókvæntur og barnlaus.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, tengdaföður,
afa og langafa,
Jörundar Kristinssonar
skipstjóra, Foldasmára 11, Kópavogi.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki á krabbameinsdeild 11E, LSH
Hringbraut og á líknardeild LSH Kópavogi fyrir mjög góða umönnun
og mikinn hlýhug.
Auður Waagfjörd Jónsdóttir
Kristinn Jörundsson Steinunn Helgadóttir
Kristín Bára Jörundsdóttir Eiríkur Mikkaelsson
Jón Sævar Jörundsson Rita Sigurgarðsdóttir
Alda Guðrún Jörundsdóttir Jóhann G. Hlöðversson
Anna Sigríður Jörundsdóttir Bjarni Kr. Jóhannsson
Jörundur Jörundsson Áslaug Hreiðarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur, tengdasonur og afi,
Helgi Hermannsson
stýrimaður, Heiðarbraut 1c, Keflavík,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðvikudaginn 4. maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Valdís Þórarinsdóttir
Hermann Helgason Steinunn Ýr Þorsteinsdóttir
Jóhann Þór Helgason Særún Rósa Ástþórsdóttir
Pétur Örn Helgason Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Jón Halldór Soffía Axelsdóttir
Áslaug Ólafsdóttir Hermann Helgason
Jóhanna Valtýsdóttir Þórarinn Brynjar Þórðarson
og barnabörn
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu
Sigurlaugar Arnórsdóttur
Smárahvammi 16, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Borgarspítalans fyrir
hlýtt viðmót og góða umönnun.
Guðrún Axelsdóttir
Solveig Axelsdóttir Svavar Haraldsson
Hrönn Axelsdóttir Guillermo Rito
Axel Kristján Axelsson Anna Eiríksdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
ANDLÁT
Haraldur Eggertsson, rafverktaki, lést
sunnudaginn 24. apríl. Bálför hans fór
fram í kyrrþey.
Jochum Magnússon lést í Svíþjóð
sunnudaginn 1. maí.
Aðalsteinn Janus Sveinjónsson, Sól-
heimum 25, Reykjavík, lést miðvikudag-
inn 4. maí.
JAR‹ARFARIR
13.00 Aðalsteinn Grétar Guðmunds-
son, Aðalstræti 71a, Patreksfirði,
verður jarðsunginn frá Patreks-
fjarðarkirkju.
13.30 Ingólfur Pálsson, rafvirkjameist-
ari, Réttarheiði 4, Hveragerði,
verður jarðsunginn frá Hveragerð-
iskirkju.
14.00 Helga Friðrika Stígsdóttir, Hlíf 1,
Ísafirði, verður jarðsungin frá Ísa-
fjarðarkirkju.
14.00 Jóhanna Jóhannsdóttir, Marar-
götu 2, Vogum, verður jarðsungin
frá Kálfatjarnarkirkju.
14.00 Kristín Stefánsdóttir, Hnappa-
völlum, Öræfum, verður jarðsung-
in frá Hofskirkju í Öræfum.
14.00 Ragnar Þór Jörundsson , frá
Hellu, Steingrímsfirði, verður jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju.
Vínarbrau› í Öskjuhlí›
Útvarpsþátturinn Út um græna
grundu á Rás 1 fagnar tíu ára af-
mæli í dag. „Þetta er þáttur sem
fjallar um útivist, náttúru og
ferðalög í víðum skilningi,“ segir
Steinunn Harðardóttir, sem hefur
haft umsjón með þættinum frá
upphafi. „Við fjöllum um stað-
hætti, landslag, mannlíf og hvað-
eina sem rekur á fjörur okkar
tengt ferðalögum.“
Í tilefni dagsins verður þáttur-
inn sendur út beint frá Öskjuhlíð.
„Bjarki Steingrímsson, félagi
minn í þættinum, ætlar að leika á
harmóníku og það verður í fyrsta
sinn sem stef þáttarins er ekki
leikið af Stefáni Jökulssyni. Við
ætlum að virða fyrir okkur þær
breytingar sem hafa orðið á
Öskjuhlíðinni undanfarinn áratug,
tala um fugla, sögulegar minjar og
auðvitað skipulag.“
Þátturinn hefst eftir níufréttir.
Borðum og stólum verður komið
fyrir í Öskjuhlíðinni og þeim sem
vilja er velkomið að líta við og
þiggja kaffisopa eða vínarbrauð. ■
STEINUNN HARÐARDÓTTIR Hefur haft
umsjón með þættinum frá upphafi og
ætlar að beina sjónum að Öskjuhlíðinni í
tilefni dagsins.