Fréttablaðið - 07.05.2005, Side 30
30 7. maí 2005 LAUGARDAGUR
Heilbrigðisyfirvöld í
Kambódíu staðfestu í
byrjun síðustu viku að tví-
tug kona úr Kampot hér-
aði sem dó á spítala í Ví-
etnam 19. apríl hafi verið
fjórða fuglaflensutilvikið í
landinu sem lagðist á fólk.
Konan var framhalds-
skólanemi frá Kompong
Trach umdæminu í
Kampot, en þar kom
einnig upp fyrsta
fuglaflensusmitið í febrú-
ar sl. Í sýnum úr konunni
fannst fuglaflensuvírus af
A/H5 stofni, en greining
fór fram hjá Pasteur
stofnuninni í Ho Chi Minh-
borg í Víetnam.
Starfsfólk á vegum
hei lbrigðisráðuneyt is
Kambódíu hefur haldið í
þorpið þar sem konan
stundaði nám, stundað
rannsóknir og uppfrætt
nemendur. Þá kannar
landbúnaðarráðuneyti
landsins umfang og orsak-
ir alifugladauða í
námunda við skólann.
Fuglaflensuvírusinn er
af A-stofni inflúensu-
veirunnar og var fyrst
greindur á Ítalíu fyrir
meira en hundrað árum
síðan, að því er fram kem-
ur í gögnum Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinn-
ar. Talið er að allar tegund-
ir fugla geti sýkst af
fuglaflensu þó svo að
næmi tegunda geti verið
eitthvað misjafnt. Ein-
kenni sýkingar í fuglum
geta verið mismunandi eftir eðli
hennar, allt frá vægum krankleika
til bráðsmitandi og bráðdrepandi
sjúkleika. Alvarlegustu tilvikin
einkennast af því að þau ber brátt
að, fuglarnir verða mjög veikir og
deyja fljótlega. Þá getur dánar-
tíðnin nálgast 100 prósent.
Þekktir eru 15 undirflokkar af
inflúensuvírusnum sem
leggjast á fugla. Hingað til
hafa alverleg tilvik sem
upp hafa komið verið af
völdum inflúensu af A-
stofni, af undirflokkunum
H5 og H7.
Farfuglar meðal and-
fugla, sér í lagi villtar end-
ur, eru hið náttúrulega
forðabúr inflúensuvírusa,
en um leið sýna þessar teg-
undir fugla mest viðnám
við sýkingu. Kjúklingar og
kalkúnar til manneldis hafa
hins vegar reynst sérlega
viðkvæmir fyrir faröldrum
bráðdrepandi inflúensu.
Vísindamenn hafa sér-
stakar áhyggjur af undir-
stofni flensunnar sem
nefnist H5N1. Sá stökk-
breytist hratt og hefur til-
hneigingu til að innlima
gen úr vírusum sem leggj-
ast á aðrar dýrategundir.
Stofninn getur smitast í
fólk og verið banvænn.
Fuglaflensufaraldurinn
sem hófst um miðjan des-
ember 2003 í Kóreu og hef-
ur greinst víðar um Asíu er
af H5N1 veirustofninum.
Aukin útbreiðsla
fuglaflensunnar ýtir undir
að smit í fólk, eða aðrar
dýrategundir, geti átt sér
stað og þar með undir
stökkbreytingu vírussins.
Verði þannig til stofn sem
smitast getur milli manna
markar það upphaf nýs
heimsfaraldurs inflúensu.
- óká
V erður komið í veg fyrirheimsfaraldur inflúensu?Nei, segja sérfræðingar og
telja einn slíkan geta brostið á þá
og þegar. Inflúensufræðingar eru
þó sammála um að skipulögð ali-
fuglaslátrun í Hong Kong árið
1997 þar sem upp kom fuglaflensa
hafi ef til vill afstýrt slíkum far-
aldri, að því er fram kemur í upp-
lýsingum Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar (WHO).
Þó svo að fuglaflensan sé
hættuleg og fólk geti smitast af
henni smitast hún ekki á milli
manna. Mesta hættan liggur í að
fuglaflensuveiran nái að breyta
sér þannig að til verði nýr stofn
sem svo geti geisað um heiminn.
Heimsfaraldrar inflúensu hegða
sér með öðrum hætti en sú flensa
sem fólk á að venjast að komi hér
upp á hverjum vetri, því ekki er
hægt að segja til um hvenær
ósköpin skella á, alheimsfaraldrar
geta komið á hvaða árstíma sem
er.
Vegna þess að faraldurinn
verður til eftir stökkbreytingu á
flensuveiru ríkir mikil óvissa um
hversu langan tíma tekur að búa
til bóluefni við nýju flensunni. Þá
gera nútímasamgönguhættir það
að verkum að heimsfaraldurinn
getur borist um heiminn með áður
óþekktum hraða.
Til marks um hversu alvarleg
ógn nýr flensustofn er má nefna
að inflúensufaraldurinn sem fór
um heiminn árin 1918 til 1919
varð fleirum að bana en létust í
fyrri heimsstyrjöldinnni, á milli
40 og 50 milljónum manna, sam-
kvæmt upplýsingum Alþjóðaheil-
b r i g ð i s m á l a s t o f n u n a r i n n a r
(WHO). Faraldurinn er ýmist
nefndur Spánarveikin eða
spænska veikin og barst hingað
til lands í október 1918. Á fyrsta
hálfa mánuðinum eftir að veikin
kom upp í Reykjavík er talið að
tíu þúsund manns hafi smitast, en
á þeim tíma bjuggu í bænum um
fimmtán þúsund manns. Í Öldinni
okkar er áætlað að yfir 300
manns hafi látist úr veikinni á
landinu öllu og um 260 í Reykja-
vík.
Flensufaraldrinum árið 1918
hefur verið lýst sem skaðlegasta
faraldri sem sögur fara af, en á
einu ári dóu í heiminum fleiri af
völdum Spánarveikinnar en á
þeim fjórum árum sem Svarti
dauði geisaði, 1347 til 1351.
Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin hefur í nokkur ár haft
nokkrar áhyggjur af yfirvofandi
heimsfaraldri og fylgst grannt
með þróun mála á þeim svæðum
þar sem fuglaflensa hefur komið
upp. Til þess að fuglaflensuvírus-
inn geti stökkbreyst í hættulegri
útgáfu þarf hann að berast í svo-
kallaðan millihýsil, en það gæti
til dæmis verið svín, eða maður.
Á fundi framkvæmdastjórnar
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar í Genf 24. janúar síðastlið-
inn voru öll aðildarríki stofnunar-
innar hvött til þess að koma á og
virkja viðbúnað vegna yfirvof-
andi heimsfaraldurs. Viðbúnaður-
inn á að miða að því að draga úr
heilsutjóni og efnahagslegum og
félagslegum afleiðingum farald-
urs. Þá voru aðildarríkin hvött til
að huga að framleiðslu inflúensu-
bóluefnis og koma sér upp vara-
birgðum inflúensulyfja.
Hér á landi vinnur Landlæknis-
embættið að endurskoðun á drög-
um um viðbúnaðaráætlun við
heimsfaraldri. Verið er að meta
þá kosti sem fyrir hendi eru brjót-
ist faraldur út og ekkert bóluefni
sé tiltækt í upphafi. Áætlunin er
unnin í samvinnu við Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunina, Evrópu-
sambandið og Norðurlöndin.
olikr@frettabladid.is
Flensufaraldur
óumflýjanlegur
Heilbrig›isyfirvöld og stofnanir um heim allan búa
sig undir yfirvofandi heimsfaraldur n‡s inflúensu-
stofns. Sérstakt eftirlit er me› fuglaflensu í Asíu.
Stofn hennar er flekktur fyrir a› stökkbreytast au›-
veldlega en fla› myndi marka upphaf farsóttar.
Síðasta mannslát af völdum fuglaflensu:
Tvítug stúlka dó í Kambódíu
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/H
AR
I
KJÚKLINGAR Samkvæmt upplýsingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar eru
hænsnfuglar sérstaklega viðkvæmir fyrir ákveðnum hættulegum stofnum flensuveirunnar.
Þessir stofnar geta smitast í fólk, en ógna ekki heimsbyggðinni allri nema þeir nái að
stökkbreytast þannig að þeir smitist manna á milli.
UPPSAFNAÐAR TÖLUR UM
FÓLK SMITAÐ AF FUGLA-
FLENSU AF A-STOFNI (H5N1)
SÍÐAN Í JANÚARLOK 2004.*
*HEIMILD:
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin,
2. maí 2005.
**Dauðsföll eru talin með í fjölda til-
vika. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
telur bara tilfelli staðfest á tilrauna-
stofu.
Land/svæði Fjöldi tilvika** Dauðsföll
Kambódía 4 4
Taíland 17 12
Víet Nam 68 36
Alls: 89 52
SJÚKRABÚÐIR Í BANDARÍKJUNUM
1918 Þegar Spánarveikin geisaði í Banda-
ríkjunum árið 1918 var sums staðar brugð-
ist við með því að slá upp tjaldbúðum
sem bráðabirgðasjúkrahúsi. Hætt er við að
ámóta flensa sem upp kæmi nú myndi á
skömmum tíma lama allt athafnalíf í fjölda
landa um allan heim.
Heimsfaraldur verður til
1. Fuglaflensan er viðvarandi í andfuglum.
2. Ákveðnir flensustofnar geta lagst þungt á hænur og kalkúna.
3. Hænsnfuglaafbrigðið getur borist í menn, eða önnur dýr á borð
við svín og hesta.
4. Til getur orðið stökkbreytt útgáfa sem þá er nýr flensustofn sem
getur smitast á milli manna og orðið að heimsfaraldri.