Fréttablaðið - 07.05.2005, Page 33
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 5
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Við í Ljósheimum bjóðum ykkur
velkomin á Ljósheimadag
– Opið hús sunnudaginn 8 maí kl. 13-18
Í Ljósheimum starfa heilarar, nuddarar, nálastungufræðingur, höfuðbeina- og
spjaldhryggsjafnarar og hómópati. Fjöldi áhugaverðra námskeiða allan ársins
hring.
Á Ljósheimadegi er boðið upp á prufutíma hjá þeim er starfa í Ljósheimum
gegn vægu gjaldi auk þess sem heilunarpýramídi er uppi. Ávalt er áhugaverð
dagskrá í sal, tehúsið okkar sneisafullt og kristallasýning að venju.
Nánari upplýsingar má finna á www.ljosheimar.is
Verið öll hjartanlega velkomin
Ljósheimar Brautarholti 8, 2.hæð t.v.
www.ljosheimar.is
síma 551-0148
Góðan dag!
Í dag er laugardagur 7. maí,
127. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 4.39 13.24 22.12
AKUREYRI 4.09 13.09 22.12
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Sólrún Dröfn Helgadóttir ekur um á
brjálæðislega flottum sportbíl með
blæju. Fólk rekur upp stór augu þegar
það sér stelpu undir stýri.
„Já, það er eins og fólki finnist einkennilegt
að stelpa keyri svona bíl,“ segir Sólrún
Dröfn og finnst það auðvitað alveg fárán-
legt. „Ég hef alltaf verið hálfgerð stráka-
stelpa með bíladellu og finnst æðislegt að
vera á flottum bíl. Ég er líka löggiltur bíla-
sali og kannski finnst fólki það líka skrýt-
ið.“
Bíll Sólrúnar Drafnar er af gerðinni
Chevrolet Camaro árgerð ‘95. „Þetta er
einn með öllu, mótorhjólagrár og eini bíll-
inn í þessum lit. Vélin er 350 LT1 og hásing-
in 10 bolta Chevy-hásing með diskalæsingu
og drifhlutföllin 3.40:1. Svo er hann leður-
klæddur að innan og græjurnar eru meiri-
háttar, Pioneer-geislaspilari, 700 W Boss-
magnari og 12“ TypeR-keilur frá Alpine.“
Sólrún segist ekki vera mikið ofan í vél-
arhlífinni á bílnum þótt hún geti gert það
helsta eins og að skipta um bremsuklossa,
olíu og dekk. „Aðalkikkið er að keyra bílinn,
hann er svo ljúfur og þýður að maður finn-
ur ekkert fyrir hraðanum.“
Sólrún er ekki óvön því að vekja athygli
á bílnum sínum því Skodinn sem hún átti
vakti alls staðar óskipta athygli. „Hann var
fyrsti sportarinn sem ég átti en ég lét
sprauta hann í mjög sérstökum grænum lit.
Hann var líka einn af fyrstu „kittuðu“ bíl-
unum.“ Þótt skammt sé liðið á sumar er Sól-
rún þegar farin að hafa blæjuna niðri. „Það
er langt í frá kalt, maður situr í skjóli og
það er bara hlýtt og notalegt.“
Sólrún er á kafi í hestamennsku og er að
temja fyrir fólk. „Ég hef alltaf verið í hesta-
mennsku og er að temja eftir vinnu. Svo er
ég ofsalega áhugasöm um nýstofnaðan bíla-
klúbb sem heitir Bling Bling og vona að ég
hafi fljótlega tíma til að sinna því áhuga-
máli.“ edda@frettabladid.is
Strákastelpa á blæjubíl
bilar@frettabladid.is
Nýr Skoda Octavia Combi
skutbíll verður frumsýndur hjá
Heklu í dag. Nýi bíllinn er
stærri og rúmbetri en fyrirrenn-
ari hans. Hann er búinn öflug-
um 1.6 og 2.0 FSI vélum og
1.9 og 2.0 TDI dísilvélum. Verð-
ið á bílnum er frá 1.980.000
krónum.
100 ára afmæli Skoda verður
fagnað á sérstökum Skoda-degi
í Heklu í dag, laugardaginn 7.
maí en fyrsti Skoda bíllinn var
framleiddur árið 1905. Boðið
verður upp á afmælistertu og ís
og er öllum Skoda-eigendum
boðinn ókeypis bílaþvottur.
Opið verður í Heklu, Laugavegi
174, frá kl. 11 til 16.
Toyota er vinsælasta bílateg-
undin í heiminum í dag sam-
kvæmt nýlegri könnun. Þar á
eftir koma Volkswagen og
Hyundai. Hérlendis er mál-
um svipað háttað þar sem
Toyota hefur lengi verið
söluhæsta bíltegundin á
Íslandi. Á vef bílgreina-
sambandsins getur að
líta á sölutölur fyrir þetta ár og
þar ber Toyota höfuð og herðar
yfir keppinauta sína, með
22,95% nýskráðra bifreiða.
Sólrún Dröfn á einstaklega flottan bíl sem vekur alls staðar athygli.
LIGGUR Í LOFTINU
í bílum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Ég fór í
stafsetningar-
próf í gær og
nú get ég sko
leiðrétt allt sem
pabbi og mamma
segja.
Nýr BMW 3 frumsýndur
BLS. 3
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
SMÁAUGLÝSINGAR
Á 995 KR.
ÞÚ GETUR PANTAÐ
ÞÆR Á visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N