Fréttablaðið - 07.05.2005, Page 34
Sjúkrakassi
Sjúkrakassi ætti að vera í hverjum bíl, sérstaklega þegar fólk er á ferðalög-
um. Hægt er að kaupa tilbúna kassa eða litlar sjúkratöskur í apótekum og
víðar sem auðvelt er að stinga undir sætið í bílnum.[ ]
• SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR
• BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA
ALLT Á EINUM STAÐ
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
VINNUM EFTIR
CABAS-KERFINU
Tjónaskoðun
Sláttuvélarnar eru komnar í hús
Flottar vélar – frábær verð
Formúlu 1 áhuginn
kviknaði út frá tölvuleik
Herbergi Birgis er veggfóðrað af Formúlu 1 plakötum.
Bílar og sport er nýlegt bíla-
tímarit sem kemur út mánað-
arlega. Birgir Þór Harðarson
er aðeins fimmtán ára en
skrifar um Formúlu 1 í blað-
inu enda algjör formúlufræð-
ingur. Birgir hefur í nógu að
snúast enda kann hann ekki
að segja nei.
„Rosalega ertu fullorðinslegur.
Ertu ekki bara fimmtán ára?“
spyr blaðakona furðu lostin þegar
Birgir svarar í símann. „Jú, ég
heyri mjög oft að ég sé fullorðins-
legur. Ég er líka með svo djúpa
rödd,“ segir Birgir og hlær.
Birgir hefur verið veikur
fyrir bílum alla tíð og þegar hann
var sjö ára kunni hann flestöll
nöfn bílaframleiðanda heimsins
utan að. „Ég man eftir fyrstu
kynnum mínum af Formúlu 1.
Það var sumarið 1999. Pabbi var
að horfa og ég gekk inn í stofu og
sá einn bílinn taka eina beygju og
fussaði og sveiaði,“ segir Birgir,
sem er samt harður Formúlu-
maður í dag. „Áhuginn á formúl-
unni kviknaði um haustið 2000
þegar ég fékk tölvuleik í gjöf
sem heitir Formula One 2000. Ég
hef náttúrlega alltaf haft mikinn
bílaáhuga og kappaksturinn var
næsta skref.“
Sumarið 2001 tók Birgir upp á
því að búa til tímarit sem hann
kallaði F1-fréttir og var eingöngu
um formúluna. Þegar leið á
veturinn var Birgir búinn að
eyða nógu bleki úr prentara föð-
ur síns þannig að hann bjó til vef-
setrið F1 Center sem var upphaf-
lega allt á ensku og hýst á fríu
vefsvæði. Í fyrrasumar einfald-
aði Birgir vefsvæðið og snaraði
því yfir á íslensku. „Go.is voru
svo góðir að hýsa síðuna frítt
fyrir mig á f1center.go.is. Ætlun-
in er auðvitað að græða kannski
smá pening á þessu einhvern
daginn en það kemur allt í ljós.“
Það mætti halda að blaða-
mennskan og vefsíðan væru nóg
fyrir Birgi en svo er aldeilis ekki.
„Ég er ósköp venjulegur ungling-
ur. Ég ber út blöð, fer reglulega í
sjoppuna með vinum mínum, er á
fullu í félagsstarfi í skólanum og
æfi sund með keppnishópi sund-
félagsins Ægis, sem hefur reynd-
ar setið aðeins á hakanum að
undanförnu. Ég kann ekki að
segja nei. Ég tek alltaf að mér
allt of mikið og enda stundum á
því að gera tvennt í einu. En ég
geri alltaf mitt besta og ef ég fæ
tækifæri verð ég að grípa það.
Stundum fer ég oft á dag á For-
múlu 1 síður á netinu og uppfæri
vefsvæðið mitt stöðugt. Svo fer
mikill tími í heimildavinnu fyrir
greinarnar í Bílar og sport,
þannig að það er nóg að gera,“
segir Birgir, sem er staðráðinn í
því að læra fjölmiðlafræði í út-
löndum eftir stúdentspróf.
En er bílaáhugamaðurinn ekki
búinn að kaupa sér bíl þótt hann
vanti tvö ár í sjálft prófið? „Ég
var kominn með aðra höndina á
bíl sem ég ætlaði að safna mér
fyrir en hann var keyptur frá
mér. Ég er náttúrlega eins og
aðrir unglingar – kann ekki að
safna. En mig langar í gamlan,
helst gangfæran, Land Rover.
Það væri fínt að hafa ár til að
gera við hann þannig að ég gæti
farið beint á götuna þegar ég fæ
prófið. Ég fæ reyndar æfing-
arakstursleyfi í sumar og hlakka
mikið til þess.“
lilja@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M