Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.05.2005, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 07.05.2005, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 7. maí 2005 Iðnaðarhurð til sölu Verð 75 þús. auk vsk. Hæð 3800mm breidd 4700mm (4 flekar m/glugg) Upplýsingar veitir Gunnlaugur í síma 825-2282. Kerrur af ýmsum stærðum og gerðum. Verð frá 135.705 kr. Bílakerrur Pakkningar og pakkningasett. Tímareimasett. Einnig ventlar, tímareimar, olíudælur, knastásar og knastásasett. Vatnsdælur. www.kistufell.com Gæðavara á góðu verði Spyrnur, spindilkúlur og stýrisendar. Útvegum hús og aðra aukahluti. Bjóðum ávallt hagstæðustu verðin. Útvegum alla bíla frá Usa. Útvegum Ford F150, F250 og F350 á frábæru verði Örugg þjónusta hjá löggiltum bifreiðasala. 11ára reynsla. Uppl. Í s. 897-9227 www.is-band.is                       Áfram veginn Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar Það er að koma vetur „Áttu einhvern pening, Einar?“ spurði lögregluþjónninn og hélt áfram að skrá niður upplýsingar af ökuskírteininu mínu. Það var um há- vetur fyrir meira en tíu árum síðan. Snjónum kyngdi niður og skyggni var nánast ekkert. Ég var að dóla á innanbæjarhraða úr sumarbústað og sá ekki vegamótin fyrr en rétt áður en ég kom að þeim. Hálkan var of mikil og bíllinn skautaði yfir og út af hinum megin án þess að ég réði neitt við neitt. Og af því að ég er fæddur undir mjög spaugsamri heillastjörnu endaði þetta allt með smá árekstri. Fyrsta umferðar- óhappið mitt. Og nú vildi löggan líka grennslast fyrir um bankainni- stæðuna svo hún vissi hvað sektin ætti að vera há, eða hvað? „Eee... já, eitthvað pínu,“ svaraði ég. „Gott. Ég held þú ættir að nota hann til að kaupa ný dekk,“ sagði löggan og kvaddi. Ég labbaði að bílnum og skoðaði dekkin. Í bylnum sýndist mér að þau væru af fjórum mismunandi gerðum. Að minnsta kosti. En öll jafn ónýt. Eins og aðrir ungir ökumenn hafði ég ekki úr miklum pen- ing að moða en ljóst var að útgjöld voru óumflýjanleg. Þann 14. apríl síðastliðinn áttu síðustu nagladekkin að vera komin undan bílum landsmanna. Dekkjaverkstæði landsins eru því vel birg af notuðum vetrar- og nagladekkjum og hagsýnir ökumenn geta feng- ið heilleg dekk á góðu verði, jafnvel míkróskorin og/eða negld. Til að losna við að sitja í biðröð í marga klukkutíma þegar fyrsti snjórinn lætur sjá sig gæti jafnvel verið sniðugt að fara á stúfana núna og kaupa vetrardekk fyrir næsta vetur. Hver veit nema hægt sé að fá þau á vortilboði svo að verkstæðin losni við að geyma dekkin í sumar? Og þú losnir við að löggan fari að hnýsast í fjármálin hjá þér næsta vetur. Ný BMW 3 lína frumsýnd SÖLUHÆSTA LÍNAN FRÁ UPPHAFI. B&L frumsýnir nýja BMW 3 línu nú um helgina. Þetta er fimmta kynslóðin af 3 línunni og er smíðuð á nánast nýjum grunni að utan og innan. „Nýja línan er þannig bæði lengri og breiðari en fyrir- rennarinn og því með alveg nýtt útlit auk þess sem innanrýmið er mun meira. Þrátt fyrir aukna stærð helst eig- in þyngd línunnar óbreytt milli kyn- slóða, þar sem bíllinn er nú smíðaður úr léttari og höggþolnari stálblöndu,“ segir Karl Óskarsson sölustjóri. Vélarnar eru einnig nýjar og og kem- ur bíllinn með 211 ha bensínvél, 163 ha díselvél og sex strokka 258 ha bensínvél og er sú síðastnefnda jafn- framt sú fyrsta frá BMW sem er gerð úr léttmálmunum áli og magnesíum. „3 línan hefur frá upphafi verið söluhæsta lína BMW, eða alveg frá því hún kom fyrst á markað árið 1975 og er því í augum margra hinn eini sanni BMW,“ segir Karl. „Helsta sérstaðan felst í akst- urseiginleikunum, sem eru sér á báti. Með nýtt fjöðrunarkerfi, enn betri stöð- ugleikastýringu og sex gíra er óhætt að fullyrða að nýja 3 línan sé í dag búin fremstu aksturseiginleikum sem völ er á. Þeir kröfuhörðustu geta einnig reynt ýmsar áhugaverðar nýjungar eins og Active Steering viðbragðsstýrið. Af öðr- um nýjungum má nefna lykillausan að- gang og ræsingu, þráðlaust símkerfi og adaptive beygjuljós.“ Nýja 3 línan verður í boði í fjórum útgáfum; 320i, 320d, 325i og 330i. Grunnverð er kr. 3.150.000. KIA vex hratt SALAN Á ÍSLANDI FJÓRFALDAST. Kia Motors Corporation er sá bílafram- leiðandi sem nú er í örustum vexti á heimsvísu. Fyrirtækið var stofnað árið 1944 og er elsta bílasmiðja Kóreu. Kia er hluti af Hyundai-Kia Automotive Group og hefur sett sér það markmið að verða í hópi bestu bílaframleiðenda heims. Kia rekur 16 framleiðslu- og samsetningar- verksmiðjur í 13 löndum og þar eru smíðaðir alls 1,1 milljón bílar á ári hverju. Umboð og seljendur eru í alls 155 löndum. Hjá Kia vinna nú um 30.000 manns og árlegar sölutekjur fyrirtækisins eru um 14 milljarðar bandaríkjadala. Á þessu ári hefur orðið mikil sölu- aukning á KIA á Íslandi. Bílaumboðið Hekla tók við KIA umboðinu fyrr á þessu ári. Alls hafa verið skráðir 147 KIA bílar á árinu og hefur salan rúm- lega fjórfaldast frá því á sama tíma í fyrra. Mest hefur verið selt af jeppun- um, Sorento og Sportage. Öruggustu bílarnir í Svíþjóð 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Nýi þristurinn er bæði lengri og breiðari en fyrirrennarinn. Saab 9-5 og Saab 9-3 Hatchback eru taldir örugg- ustu bílarnir í skýrslu sem gefin er út af sænsku trygg- ingafélagi. Saab 9-5 og Saab 9-3 Hatchback teljast öruggustu bílar í Svíþjóð samkvæmt nýrri rannsókn á sviði umferðaröryggismála. Stærsta tryggingafyrirtæki Svíþjóðar, Folksam, lét gera rannsóknina. Skýrsla Folksam, „Ekur þú í öruggum bíl?“, er gefin út á tveggja ára fresti og byggjast niðurstöður hennar á mati á meiðslum fólks sem lent hefur í umferðarslysum í Svíþjóð. Rann- sóknin nær til 138 mismunandi bíltegunda. Saab 9-5 og 9-3 Hatchback hljóta verðlaun Folk- sam sem öruggustu bílarnir vegna þess að akstur þeirra er talinn hafa minnsta hættu á meiðslum í för með sér. Niðurstöðurnar byggja á greiningu á 94.100 árekstrum, sem orðið hafa á sænskum vegum frá árinu 1994, þar sem 35.400 farþegar hlutu áverka. Báðar tegundirnar voru þróað- ar samkvæmt öryggisáætlun Saab, sem byggir á tölvulíkönum og árekstrarprófunum sem líkja eftir því sem gerist við árekstur úti á vegum. Þessi tækni hefur verið þróuð út frá gagnagrunni Saab, sem nær til yfir 6.100 raun- verulegra bílslysa í Svíþjóð þar sem Saab bílar hafa komið við sögu. Bílar frá Saab hafa einnig fengið góða einkunn í árekstrar- prófunum sem gerðar hafa verið í Bandaríkjunum af HLDI-stofnun- inni (Highway Loss Data Institu- te) og í EuroNCAP árekstrarpróf- unum. Saab 9-5 Sedan, 9-3 Sport Sedan og 9-3 Convertible hafa all- ir fengið fimm stjörnur í þessum prófunum. ■ Saab 9-3 kemur vel út úr rannsókn sem gerð er af stærsta tryggingafélagi Svíþjóðar á öryggi bíltegunda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.