Fréttablaðið - 07.05.2005, Page 36
4 7. maí 2005 LAUGARDAGUR
Aukin ökuréttindi
Kynning á nýrri námskrá verður haldin
þriðjudaginn 10. maí 2005 kl. 20.00
Ökuskólinn í Mjódd
Sími 567-0300
Þarabakka 3 109 Reykjavík
Netfang mjodd@bilprof.is
www.bilprof.is
Snúast ekki með dekkinu
Það er hægur vandi að koma
auglýsingum og merkingum
fyrir á sérstökum hjólkoppum
sem fara aldrei á hvolf.
„Um leið og þú tekur af stað er
hjólkoppurinn kyrr,“ segir Albert
Albertson sem flytur inn sérstaka
hjólkoppa sem snúast ekki með
dekkinu þegar bíllinn er á ferð og
eru alger nýjung hér á landi.
„Kopparnir hafa aðallega auglýs-
ingagildi þar sem hægt er að setja
á þá sérmerktar filmur með
hverju sem er, en ég er í sam-
vinnu við auglýsingastofur sem
sérhæfa sig í að merkja bíla,“
segir Albert. Hann segir þetta
vera sniðugt fyrir fyrirtæki sem
vilja ef til vill ekki setja merking-
ar á bílinn sjálfan, eða sem hluti
af heildarpakka þar sem allur bíll-
inn er merktur í bak og fyrir og
henti bæði venjulegum fólksbíl-
um og stærri bílum.
„Kopparnir eru frá 13 upp í 24
tommur og er mjög einfalt að
festa þá í allar venjulegar felgur,“
segir Albert. Koppana segir hann
vera vel festa í felgunum og þeir
losni ekki auðveldlega.
Margir spyrja sig eflaust
hvernig kopparnir haldast kyrrir
þrátt fyrir að bíllinn sé á ferð og
segir Albert það vera sáraeinfalt.
„Það er innri hringur í koppnum
sem er kyrr, en neðst í hringum er
þungt lóð sem heldur honum í
sömu stöðu, þó að dekkið snúist,“
segir Albert.
Þeir sem vilja forvitnast frek-
ar um þessa sérstöku hjólkoppa
geta kíkt á vefsíðuna www.kopp-
ar.is. ■
Nýr jepplingur frá DaimlerChrysler
BIFREIÐIN VERÐUR FRAMLEIDD Í ÞÝSKALANDI – EKKI BRASILÍU.
DaimlerChrysler ætlar að framleiða
nýja bifreið í verksmiðju í Bremen í
Norður-Þýskalandi en það er liður í
áætlun bílaframleiðandans um að
stækka flotann.
DaimlerChrysler er þýsk-amerískur
framleiðandi og jafnframt sá fimmti
stærsti í heiminum. Framleiðandinn
hefur áhuga á að bæta jepplingi við
bílaflota sinn og valið stóð á milli
framleiðslustaða í Brasilíu og Þýska-
landi. Framleiðandinn valdi Þýskaland
til að sýna heiminum að landið væri
góður staður fyrir bílaframleiðslu.
Í verksmiðjunni í Bremen eru 13.700
starfsmenn en fyrirtækið getur ekki
sagt til um hvenær framleiðsla á nýja
jepplingnum hefst.
Mercedes Benz er fram-
leiddur hjá DaimlerChrysler
í Þýskalandi.
Albert Albertsson selur sniðuga hjólkoppa sem snúast ekki með dekkinu.