Fréttablaðið - 07.05.2005, Page 54
Fimmmenningarnir í DuranDuran hafa staðfest komusína til Íslands í sumar og
munu halda tónleika í Egilshöll
hinn 30. júní. Lítið bítlaæði mynd-
aðist í kringum sveitina á Íslandi
og það er óhætt að fullyrða að
komu Duran Duran til Íslands
hafi verið beðið með eftirvænt-
ingu í rúma tvo áratugi. Íslenskir
aðdáendur sveitarinnar létu les-
endabréfum, með frómum óskum
um að fá goðin í Laugardalshöll-
ina, rigna yfir Velvakanda Morg-
unblaðsins á sínum tíma en hetj-
urnar létu þó ekki sjá sig.
Gömlu kynnin gleymast ei
Frægðarsól Duran Duran seig
hratt eftir að sveitin náði hæstu
hæðum með plötunni Seven and
the Ragged Tiger. Hörðustu aðdá-
endur hennar hafa þó aldrei snúið
baki við köppunum þannig að það
má reikna með því að fólk sem er
um og yfir þrítugt muni fjölmenna
í Egilshöll til þess að fá loksins að
heyra berum eyrum slagarana
sem lituðu æsku þeirra. Það lifir
lengi í gömlu „eitís“-glæðunum og
þeir sem settu símkerfi Rásar 2 á
hliðina til þess að koma lögum á
borð við Save a Prayer, A View to
a Kill og Wild Boys á topp Íslenska
listans, fjölmenntu á Duran Duran
skemmtanir á skemmtistöðum
sem löngu eru horfnir yfir móð-
una miklu og kunnu skónúmer
þeirra Simon Le Bon, John Taylor,
Andy Taylor, Roger Taylor og Nick
Rhodes geta ekki látið sig vanta
þegar hetjurnar mæta þó það sé 20
árum of seint.
Byrjaði allt í Birmingham
Félagarnir Nick Rhodes og John
Taylor stofnuðu Duran Duran í
Birmingham á Englandi árið 1978
en það var sameiginlegur áhugi
þeirra á tónlist David Bowie og
Roxy Music sem leiddi þá saman.
Þeir fengu bassaleikarann Simon
Colley og söngvarann Stephen
Duffy til liðs við sig en trommu-
heili sá um taktinn.
Félagarnir ætluðu upphaflega
að kalla sveitina RAF til heiðurs
flugher hennar hátignar en þegar
upp var staðið nefndu þeir bandið
eftir illmenni geimmyndarinnar
„Barbarella: Queen of the
Galaxy“ frá 1968. Þar lék Jane
Fonda Barbarellu, sem eltist við
skúrkinn Durand Durand sem
leikinn var af Milo O'Shea, sem
löngu seinna endurtók rulluna í
myndbandi með sveitinni.
Duffy og Colley heltust úr lest-
inni eftir ár og Roger Taylor kom
til sögunnar og leysti trommuheil-
ann af hólmi. Stephen Duffy tók
síðar upp millinafnið „Tin Tin“ og
kom tveimur lögum á vinsælda-
lista, Kiss Me og Icing on the
Cake, í krafti þess að hafa einu
sinni verið í Duran Duran.
Falskur pönkari í hlébarðabuxum
Eftir fyrstu prufuupptökur færði
John Taylor sig yfir á bassann og
gítarleikarinn John Curtis plokk-
aði strengi tímabundið en gafst
fljótlega upp. Þá auglýsti sveitin
eftir gítarleikara í Melody Maker
og var Andy Taylor valinn úr hópi
þeirra sem sóttu um stöðuna. Um
mitt árið 1979 gafst söngvarinn
svo upp og prófaði sveitin nokkra
pilta í stöðuna áður en fyrrum
söngvari pönksveitarinnar Dog
Days, leiklistarneminn Simon Le
Bon, sótti um. Síðar í viðtölum
viðurkenndi Nick Rhodes að
Simon hefði í rauninni verið
rammfalskur í prufunni og að
hann hefði í aðeins verið ráðinn
vegna þess að hann var sætur,
með flott eftirnafn. Þá skemmdu
pelsinn og bleiku hlébarða-
buxurnar ekki fyrir.
Ferill Duran Duran tók magn-
aðan fjörkipp eftir að Le Bon
bættist í hópinn. Sveitin varð
fljótt vinsæl innan nýrómantísku
stefnunnar á Englandi og tryggði
sér samning við EMI í lok árs
1980. Fyrsta smáskífan, „Planet
Earth“, náði töluverðum vinsæld-
um og rauk beint í tólfta sæti
breska smáskífulistans. Fjölmiðl-
ar eyrnamerku Duran Duran sem
frumkvöðla bresku nýrómantík-
urinnar ásamt Spandau Ballet en
sveitin var sögð samsuða upp úr
Sex Pistols og Chic.
Glansmynd af popphljómsveit
Lykilatriði í hröðum vinsældum
Duran Duran var hversu mikil
vinna var lögð í ímyndarsköpun.
Myndbönd sveitarinnar voru
framúrstefnuleg og settu nýja
tískustrauma af stað í stað þess að
fylgja þeim. Af frábærum mynd-
böndum sveitarinnar má nefna
„Girls on Film“, „Union of the
Snake“, „Hungry Like the Wolf“,
„The Chauffeur“ og hið magnaða
„Wild Boys“ sem bjó til nýjan
staðal í gerð tónlistarmyndbanda.
Það var einmitt myndbandið
við „Girls on Film“ sem braut leið
Duran Duran upp á toppinn. Það
vakti miklar deilur og sveitin varð
umtöluð. Lagið komst á topp 10 á
smáskífusölulistanum. Fyrsta
breiðskífan, sem fylgdi í kjölfar-
ið, komst hæst í þriðja sæti á
breiðskífusölulistanum. Platan
hékk svo inni á þeim lista í 118
vikur.
Í Duran Duran voru metnaðar-
fullir og duglegir menn og var
strax ráðist í gerð plötunnar „Rio“
sem kom út um vorið 1982. Smá-
skífulögin „Hungry Like the
Wolf“ og „Save a Prayer“ gull-
tryggðu svo vinsældir sveitarinn-
ar. „Rio“ seldist í rúmlega tveim-
ur milljónum eintaka. Duran
Duran-æðið var skollið á í Evrópu
og Bandaríkjamenn voru að
kveikja á sveitinni líka. Fyrsti
slagari sveitarinnar þar í landi
var lagið „Is There Something I
Should Know?“.
Duran Duran brann þó hratt
upp og sennilega má að einhverju
leyti kenna því um hversu ákaft
sveitin herjaði á markaðinn en
þriðja breiðskífan, „Seven and the
Ragged Tiger“ kom út fyrir jólin
árið 1983. Af þeirri plötu átti
sveitin slagarana „Union of the
Snake“ og „The Reflex“. Árið á
eftir var ákveðið að maka krókinn
með tónleikaplötunni „Arena“. Á
henni var að finna eitt nýtt lag,
reyndar það besta sem sveitin gaf
út á ferlinum, „Wild Boys“. Árið
eftir átti hún eitt vinsælasta lag
ársins, „A View to a Kill“ úr
síðustu James Bond-mynd Roger
Moore.
Sundraðir föllum vér...
Það duldist engum að Duran-vélin
fór að hökta eftir Wild Boys og
það var svo á Live Aid tónleika-
hátíðinni árið 1985 sem botninn
datt undan öllu saman. Simon Le
Bon var það falskur á sviði að
hörðustu aðdáendur hans reyndu
ekki einu sinni að halda hlífiskyldi
yfir honum. Mikið grín var gert að
sveitinni í fjölmiðlum og Le Bon
bað aðdáendur sína opinberlega
afsökunar. Það dugði ekki til.
Þeim fannst þeir sviknir og grun-
uðu sveitina um að hafa fiktað í
hljóðupptökunum á „tónleikaplöt-
unni“ vinsælu „Arena“. Sveitin
ákvað að draga sig í hlé og liðs-
menn einbeittu sér tímabundið að
öðrum verkefnum.
Andy og John Taylor voru
þegar farnir að vinna í gæluverk-
efninu Power Station með Robert
Palmer og tóku lagið með þeirri
sveit á Live Aid þar sem Michael
Des Barres leysti Palmer af í
söngnum. Nick Rhodes, Simon Le
Bon og Roger Taylor gáfu hins
vegar út plötuna „So Red the
Rose“ með hliðarverkefni sínu
Arcadia haustið 1985. Lagið
„Election Day“ af þeirri plötu átti
töluverðum vinsældum að fagna
og gaf tóninn fyrir það sem koma
skyldi á næstu Duran Duran
plötu, Notorious, en þá stóðu þeir
eftir þrír, John Taylor, Nick
Rhodes og Simon Le Bon.
Duran Duran hefur svo haldið
áfram í ýmsum myndum en þeir
Simon og Nick eru þeir einu sem
hafa aldrei gefist upp. Taylorarnir
þrír byrjuðu að tínast til baka upp
úr árinu 2000 og sveitin er nú
aftur komin í sína upprunalegu
mynd og þannig fáum við að sjá
hana í Egilshöll í sumar.
38 7. maí 2005 LAUGARDAGUR
Fimm fræknir á Íslandi
Breska hljómsveitin Duran Duran var á hátindi fræg›ar sinnar upp úr 1980 og
naut grí›arlegra vinsælda á Íslandi á öndver›um níunda áratug sí›ustu aldar.
fiórarinn fiórarinsson fer yfir feril sveitarinnar sem íslenskir unglingar me› sítt
a› aftan og ljósar strípur létu sig dreyma um a› sjá á svi›i á Íslandi fyrir rúmlega
20 árum en sá draumur er nú loks a› rætast.
Þeir eru fáir ef einhverjir sem eru jafn
dyggir aðdáendur og Pétur Ívarsson,
verslunarstjóri Boss í Kringlunni. „Ég
var rosalegur á skólaböllunum, með
farða og eyrnalokka,“ segir Pétur og
hlær. Hann fór í pílagrímsferð fyrir ekki
margt löngu og sá goðin sín. „Þetta
var alveg magnað. Þeir voru ótrúlega
vel á sig komnir, hvorki feitir né pen-
ingaþyrstir. Ekkert Bonnie Tyler mæm
eins og í Laugardalshöllinni um árið.
Þeir virtust leggja allt sitt í þetta og
mér fannst ég verða ungur á ný,“ segir
Pétur og bætir að hann hafi lokað
augunum, kollvikin hafi sigið niður og
honum hafi fundist hann vera kominn
með sítt að aftan á ný þegar sveitin
byrjaði að spila. „Ég held að götin fyrir
eyrnalokkana hafi orðið virk aftur,“
segir hann og hlær.
Pétur segir stemninguna á tónleik-
unum hafa verið frábæra og sveitin
hafi spilað mjög þétta dagskrá. „Það
var alveg ótrúlegt þegar Simon Le Bon
söng Save a Prayer og bað alla um að
halda farsímunum sínum á lofti. Hann
reiknaði með því að allir væru hættir
að reykja og enginn með kveikjara en
væru með símana. Svo var lagið spil-
að og allir með farsímana á lofti.“
Pétur segist þó gera sér grein fyrir
því að ásóknin í Duran Duran sé bara
einhver nostalgíutilfinning og þeir sem
hafi þroskast í rétta átt sjái að þetta
séu skemmtikraftar en ekki snillingar.
„Það má samt ekki gleyma því að Dur-
an Duran voru hálfgerðir Bítlar átt-
unda áratugarins,î segir Pétur sem
enn segist spila plötur sveitarinnar í
botni heimafyrir. „Það er þá yfirleitt
fyrsta platan, Duran Duran, sem verð-
ur fyrir valinu.“
Duran Duran (1981)
Fyrsta plata sveitar-
innar gefur tóninn
fyrir það sem koma
skal. Léttleikandi ný-
rómantíkin svífur yfir
vötnum hjá fimm-
menningunum sem
syngja um ást, söknuð, reiði og helsta
áhugamál sitt: fáklæddar stelpur.
Bestu lögin: Girls on Film, Planet Earth,
Careless Memories.
Rio (1982) Það er
sveitt og suðræn
stemning á annarri
plötu Duran Duran,
sem er mun heil-
steyptari en sú fyrsta.
Lögin eru öll grípandi
og Duran Duran-
„sándið“ er fullskapað. Save a Prayer
stimplar sig inn sem eitt traustasta vanga-
og „kveikjara“lag áratugarins.
Bestu lögin: Rio, Hungry Like the Wolf,
Save a Prayer.
Seven and the
Ragged Tiger (1983)
Þriðja plata sveitar-
innar og jafnframt sú
besta. Vinsældir Dur-
an Duran eru í há-
marki þegar platan
kemur út. Framan af ber mest á The
Reflex og þegar ofspilun gerir lagið óþol-
andi er hægt að ganga að sjö traustum
„smellum“. Bestu lögin: New Moon on
Monday, Of Crime and Passion, Union of
the Snake, The Seventh Stranger.
Arena (1984) Tón-
leikaplata með vin-
sælustu lögum sveit-
arinnar af þremur
fyrstu plötunum auk
þess sem Wild Boys
er hér gefið út á
breiðskífu í fyrsta skipti. Platan gagnast
varla neinum nema hörðustu aðdáend-
um sveitarinnar enda koma annmarkar
Simons Le Bon sem söngvara greinilega í
gegn en hann hljómar hálf falskur áður
en búið er að pússa söng hans til í hljóð-
veri.
Notorious (1986) Þreytan sem virtist vera
komin í sveitina í kringum útgáfu Arena
var ekkert plat og hér eru þeir aðeins þrír
eftir, Simon Le Bon, Nick Rhodes og John
Taylor. Andy Taylor og Roger Taylor eru
horfnir út í buskann og platan er gerólík
því sem aðdáendur Duran Duran höfðu
vanist. Það breytir því ekki að þetta er
vönduð plata sem sýnir að þeir sem eftir
standa eru tilbúnir til að þreifa fyrir sér í
ýmsar áttir. Bestu lögin: American Sci-
ence, Skin Trade, Winter Marches On.
Big Thing (1988)
Þremenningarnir
reyna að fóta sig í
breyttu tónlistar-
landslagi með dálítið
fríkaðri plötu sem
virðist í fljótu bragði
eiga fátt sameiginlegt
með þeirri Duran Duran-sveit sem kvaddi
sér hljóðs sjö árum áður. Það fór hrollur
um marga trausta aðdáendur en aðrir
tóku gripnum tveimur höndum og héldu
tryggð við Djúranið sitt. Bestu lögin: I
Don't Want Your Love, All She Wants Is,
Do You Believe In Shame?, The Edge of
America.
Decade (1990) Önnur „best of“ platan ef
Arena er flokkuð sem slík. Hér gerir
Duran Duran upp áratuginn sem hófst
með glæstum sigrum en lauk með los-
arabrag og fækkandi aðdáendum. Smá-
skífa með undarlegri blöndu allra helstu
laga sveitarinnar kom út um leið og
Decade. Skemmtileg tilraun en kokkteill-
inn var slíkur að einungis allra hörðustu
aðdáendum Duran Duran varð ekki flök-
urt af honum. Bestu lögin: Planet Earth,
Save a Prayer, Is There Something I
Should Know?, Union of the Snake, Wild
Boys, A View to a Kill, Skin Trade.
Liberty (1990) Enn eru þremenningarnir
að fikra sig áfram í heimi sem þeir eru
orðnir of gamlir fyrir. Þeir hafa fengið liðs-
auka í tónlistarmönnum sem gera lítið af
viti fyrir þá. Platan er hálfgert sýrutripp,
hávær og leiðinleg. Lagið Violence of
Summer vekur samt nokkra athygli.
Bestu lögin: Serious, All Along the Water,
First Impression.
The Wedding Album
(1993) Hér réttir
Duran Duran aðeins
úr kútnum með
þægilegri plötu sem
er samt hvorki fugl
né fiskur. Lagið
Ordinary World
minnir þó nokkuð á forna frægð og skýt-
ur upp kollinum á vinsældalistum. Bestu
lögin: Ordinary World, Come Undone.
Thank You (1995) Óður Duran Duran til
þeirra tónlistarmanna sem hafa haft mest
áhrif á þá í gegnum tíðina. Sveitin þakkar
fyrir sig með 12 tökulögum. Kannski ekki
það mest spennandi sem þeir gátu tekið
upp á en engu að síður er gaman af því
að heyra þá glíma við The Doors og Lou
Reed. Bestu lögin: Lay Lady Lay, Perfect
Day, Crystal Ship.
Medazzaland (1997) Frekar döpur plata
sem kemur samt einhvern veginn í rök-
réttu framhaldi af því sem á undan er
gengið. Sveitin sýnir smá lit og gamla
Duran Duran-takta í Electric Barbarella,
sem verður þó seint talið til betri laga
sveitarinnar.
Night Versions (1998) Duran Duran gerði
mikið af því að búa til lengri útgáfur af
smáskífulögum sínum, alls konar remix og
endurhljóðblandanir. Aðdáendur sveitar-
innar höfðu gaman að þessu í árdaga
þegar þeir söfnuðu 12“ plötunum. Lengdu
útgáfurnar hétu oftast „night version“,
„extended remix“ eða eitthvað álíka og hér
hefur þeim verið safnað saman á diski.
Aðeins fyrir þá allra hörðustu.
Strange Behaviour (1999) Tvöfaldur
diskur með fleiri remixum.
Poptrash (2000) Plata sem gleymist
fljótt. Einhvern rámar kannski enn í lagið
Someone Else Not Me.
Astronaut (2004)
Sameinaðir stöndum
vér, eða þannig sko.
Roger og Andy Taylor
eru komnir aftur. Að-
dáendur sveitarinnar
biðu spenntir eftir
þessari plötu fullir
væntinga um að upprunalega Duran Dur-
an fyndi neistann á ný. Platan er þó því
miður óspennandi og nánast leiðinleg.
Ekkert lag nær að grípa og hér með er
það væntanlega fullsannað að Duran
Duran er hljómsveit liðinna tíma. Það
sem hún hafði er horfið og aðdáendur
hennar flestir orðnir sköllóttir og hættir
að vera með sítt að aftan. ÞÞ
PLÖTUR DURAN DURAN
Var› ungur á n‡
Pétur Ívarsson er Duran Duran-a›dáandi númer eitt
PÉTUR ÍVARSSON FÓR Í PÍLAGRÍMS-
FERÐ TIL LONDON „Mér fannst ég
verða ungur á ný, kollvikin sigu og ég var
kominn með sítt að aftan. Held að götin
fyrir eyrnalokkana hafi meira að segja orð-
ið virk á ný.“
DURAN DURAN Svona litu hinir fimm fræknu frá Birmingham út þegar þeir voru á toppnum. Þeir eru aðeins farnir að reskjast en hafa
engu gleymt og þó gullöld þeirra hafi staðið stutt gætir áhrifa þeirra víða og nægir þar að nefna bresku hljómsveitina Blur og hina ís-
lensku Maus.