Fréttablaðið - 07.05.2005, Síða 61
LAUGARDAGUR 7. maí 2005 45
Opið í dag frá 11 til 16
Lampard bestur að mati
enskra íþróttafréttamanna
Frábært tímabil mi›jumannsins Franks Lampard hjá Chelsea var fullkomna› í
gær flegar íflróttafréttamenn völdu hann leikmann ársins.
FÓTBOLTI Frank Lampard hjá Chel-
sea skaut félaga sínum John Terry
ref fyrir rass í kjöri íþróttafrétta-
manna á Englandi á leikmanni
ársins. Terry var um daginn val-
inn bestur af öðrum leikmönnum
deildarinnar en fréttamennirnir
töldu að hinn 26 ára gamli miðju-
maður ætti stærstan þátt í vel-
gengni Chelsea á tímabilinu, en
hann hefur skorað 12 mörk í deild-
inni það sem af er.
Lampard og Terry fengu sam-
tals 90% greiddra atkvæða en
ekki var gefið upp hversu miklu
munaði á köppunum. Jamie
Carragher hjá Liverpool kom síð-
an í þriðja sæti.
Gerry Cox, framkvæmdastjóri
samtaka íþróttafréttamanna í
Englandi, sagði að sáralitlu hefði
munað á Lampard og Terry. „En
Lampard hefur sannað sig í ár
sem ekki aðeins besti miðjumaður
Englands heldur einn sá besti í
sinni stöðu í heiminum,“ sagði
Cox um Lampard, sem er aðeins
annar leikmaður Chelsea í sög-
unni til að hreppa verðlaunin en
Ítalinn Gianfranco Zola hlaut þau
árið 1997. Þá er Lampard aðeins
annar enski leikmaðurinn til að fá
verðlaunin síðan Alan Shearer
fékk þau árið 1994 en hinn er
Teddy Sheringham sem fékk þau
2001.
„Alhliða geta hans sem knatt-
spyrnumanns er stórkostleg og
hann hefur verið í frábæru formi
í allan vetur. Það sem vó þyngst í
þessari kosningu var hins vegar
það að hann hefur skorað 18 mörk
á tímabilinu í öllum keppnum sem
er ótrúlegur fjöldi marka þegar
um er að ræða miðjumann,“ bætti
Cox við.
vignir@frettabladid.is
FRANK LAMPARD Hefur átt frábært tímabil fyrir Chelsea og telja íþróttafréttamenn í
Englandi hann vera þann besta á landinu.
HREIÐAR GUÐMUNDSSON Leikur með KA
næstu tvö árin.
Fámennt hjá ÍR-ingum:
KA samdi vi›
Hrei›ar
HANDBOLTI Enn kvarnast úr bikar-
meistaraliði ÍR því landsliðs-
markvörðurinn Hreiðar Guð-
mundsson er búinn að skrifa und-
ir tveggja ára samning við KA.
Líklegt er að hinn markvörður ÍR,
Ólafur Gíslason, fari til Sviss og
standa ÍR-ingar þá eftir mark-
mannslausir.
„Mig langaði bara að breyta til
og fara í nýtt umhverfi. Prófa eitt-
hvað nýtt og svo ætla ég að skella
mér í Háskólann á Akureyri. Ætli
maður fari ekki í sálfræðina,“
sagði Hreiðar í samtali við Frétta-
blaðið í gær.
„Það eru spennandi tímar fram
undan hjá KA og margt sem mér
líst vel á. Við ættum að mæta til
leiks með gott lið í deildina næsta
vetur,“ sagði Hreiðar en bætti við
að það væri ekki auðvelt að yfir-
gefa ÍR. „Þetta hefur verið frá-
bær tími og það er staðið frábær-
lega að öllum hlutum hjá félaginu.
Það er alls ekki auðvelt að fara en
ég tel að nú sé rétti tíminn að
prufa eitthvað nýtt.“
- hbg
HLÆR AÐ JERRY BUSS Shaquille O’Neal
kippti sér ekkert upp við ummæli Jerry
Buss og gerði grín að árangri Lakers-liðsins
í vetur.
Shaquille O’Neal:
Svarar Buss
fullum hálsi
KÖRFUBOLTI Menn hætta ekki að
munnhöggvast þó svo að tæpt ár
sé liðið frá því að Shaquille O’Neal
sagði skilið við Los Angeles
Lakers og samdi við Miami Heat í
NBA-körfuboltanum. Jerry Buss,
eigandi Lakers-liðsins, sagði að
O’Neal hefði ekki hunskast til að
létta sig fyrr en hann var kominn
til nýs liðs. „Þurfti hann nýtt lið
sem hvatningu til að létta sig?“
spurði Buss blaðamenn á dögun-
um.
O’Neal svaraði um hæl eins og
honum er einum lagið: „Ég þurfti
ekkert á hvatningu að halda held-
ur þurfti ég nýjan og alvörugefinn
liðseiganda eins og Micky Arison.
Og þið megið hafa það orðrétt
eftir mér,“ sagði O’Neal, aðspurð-
ur varðandi ummæli Buss, en sá
síðarnefndi sagðist ekkert sjá
eftir því að hafa skipt O’Neal til
Miami. „Og ég sé heldur ekki eftir
því að hann hafi tapað peningum á
því og að lið hans komst ekki í úr-
slitakeppni,“ sagði O’Neal. - sj